7.6.2008 | 23:30
Kartöflubyssa og súrealísk jarðgöng...
GETRAUN:
HVAÐ ERU MÖRG JARÐGÖNG Á 450 KM LEIÐ FRÁ MOELV Í HEIÐMÖRK (Einar og Unnur) OG YFIR Í BERGEN ÞAR SEM NORRÆNA LEGGUR AÐ?
Hitinn slaknaði aðeins í dag en það er búið að vera mjög heitt undanfarið.. Á föstudaginn fórum við í Skógarsafnið sem er ekki langt frá Einari og Unni. Hitinn var óbærilegur þann daginn en safnið var mjög skemmtilegt. Þarna mátti sjá allt sem tengist skógrækt, skógarnytjum og bara skóginum yfir höfuð td. var þarna safn um dýrin í skóginum. Mér fannst reyndar svolítið langsótt að hafa kjallarann alveg undir fiskasafn þar sem sýndir voru fiskarnir sem eru í vötnunum í skóginum en hins vegar var mjög svalt í kjallaranum svo við skoðuðum þann part vel og lengi. Einnig var þarna útisafn þar sem maður labbaði út í eyju í stórri á þar sem voru gamlir veiðiskálar og mikill skógur.
Um kvöldið grilluðu Einar og Unnur fyrir okkur og við borðuðum úti á veröndinni þar sem við vorum á Elgvaktinni en elgirnir koma stundum fram í ljósaskiptunum og viti menn við sáum einn seinna um kvöldið en Einar og Valdi sáu reyndar annan mjög nálægt því þeir gerðu út leiðangur til að finna elgina. Við höfum væntanlega ekki séð elgi fyrr um kvöldið þar sem Einar og Valdi voru að leika sér með kartöflubyssu.. Já KARTÖFLUBYSSU.. En Einar hafði búið til slíka þar sem maður setur kartöflu í langt rör og spreyjar svo hársprey í gat og kveikir í... BÚMM... Út þýtur kartaflan með miklum hvell og flýgur langar leiðir...
Eftir mat var líka farið í að sækja gamla kamínu sem Einar og Unnur gáfu okkur en húsinu þeirra fylgdu margar kamínur. Við fengum eina litla og krúttlega sem heitir Trolla og er með mynd af þverflautuleikara á hliðinni.. Snilldargræja en við höfum verið að skoða svona kamínur í vetur en ekki fundið neina sem okkur leist á fyrr en þessa..
Í dag keyrðum við til Bergen 450 km leið um stórkostleg fjöll og mörg jarðgöng. Landslagið var stórkostlegt á leiðinni og keyrslan skemmtileg en svolítið lofthræðsludæmi.. Við stoppuðum í krúttlegri geitaostabúð í þröngu fjallaskarði þar sem hjónin búa þar allt árið með geitunum sínum. Valdi keypti hjartarpylsu, geitapylsu og hreindýrapylsu og líka beitilynghunang en Valdi er orðinn mikill áhugamaður um pylsur af öllum stærðum og gerðum. Þarna mátti líka finna mjög fallega gæru/vefpúða sem kostuðu einungis 20 þúsund íslenskar... Ég fjárfesti hins vegar í litlum hreindýrahornum..
Á leiðinni voru fjölmörg jarðgöng.. og þau lengstu heita Aurdalsgöngin og eru 24, 5 km. Á leiðinni í gegnum göngin þá breytast ljósin annað slagið og verða rauð eða græn en þetta er gert til að halda bílstjórunum vakandi... Það er súrealískt að keyra í skærgrænum göngum eða bláum.... (Sjá myndband)
Það var fallegt að keyra inn til Bergen en það var mikið mannlíf í miðbænum í góða veðrinu. Við skelltum okkur bara beint á hótel sem er örstutt frá þar sem Norræna leggur að og erum á leið í bólið..
MUNIÐ AÐ TAKA ÞÁTT Í GETRAUNINNI.. Það eru ENGIN verðlaun.... Bara kikkið að vera með.. Rétt svar mun svo koma í fyrstu færslu eftir að við komum heim...
Bestu kveðjur frá Bergen..
(NÝTT ALBÚM)
Bloggar | Breytt 8.6.2008 kl. 04:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.6.2008 | 08:29
Komin til Noregs
Jæjja þá erum við komin til Unnar og Einars í Noregi.. Þvílíkt yndislegt að búa ekki í tjaldi lengur..
Ferðalagið hefur gengið vel en hitinn er enn að drepa okkur. Sl. mánudag þá fórum við inn til Stokkhólms en það var eiginlega bara klúður því vegaframkvæmdir voru miklar þarna og umferðartafir í milljón stiga hita en loksins komumst við í gamla miðbæinn og röltum um sem var alveg yndislegt. Gamlar, mjóar, krúttlegar götur en okkur sýndist þessi aðalgata miðbæjarins vera algerlega stíluð á túrista, ísbúðir og túristabúðir til skiptis... Í Stokkhólmi fundum við dýrasta bílastæði sem við höfum rekist á ever... ca 600 kr. klst... Svo tíminn tikkaði á okkur og við drifum okkur í burtu... Við stoppuðum stutt í Uppsala og skoðuðum einhverja víkingagrafreiti en sjálft safnið var lokað en umhverfið var fallegt. Um kvöldið gistum við í Vallvik sem var mjög lítið tjaldstæði með tveimur húsbílum en auðvitað var öll aðstaða lokuð því túristatímabilið var ekki byrjað.. En við erum alltaf fegin að finna tjaldstæði þar sem nánast enginn er.. Valdi reyndi að veiða í sjónum með engum árangri og svo voru flugurnar að éta okkur lifandi fyrir utan tjaldið..
Á þriðjudeginum var haldið inn til Gränfors sem er lítið þorp eða húsaþyrping þar sem eru búnar til heimins bestu axir. Þetta var svona stoppið hans Valda en hann er búinn að tala um þetta í allan vetur að koma við þarna. Staðurinn var yndislegur. Þarna er Axarsafn sem er gamalt hús með myndum af axarnotkun og fullt af gömlum öxum, mjög sjarmerandi. Svo fórum við á kaffihús og loksins í axarbúðina sjálfa. Valdi fjárfesti í tveimur öxum, brýni og bók um hvernig á að byggja bjálkahús. Þarna er líka Keramikverkstæði sem var eiginlega mjög óspennandi en þeir sérhæfa sig í blómapottum... Við forum svo í smiðjuna sem var mjög skemmtileg en þeir vinna allskonar járnhluti eins og snaga og hurðahúna og slíkt. Við spjölluðum við konuna sem var þarna og hún var að segja okkur frá allskonar námskeiðum sem eru í smiðjunni. Gränfors heldur ýmis námskeið eins og í að byggja bjálkakofa, survival in the wild, smiðjuhandverk og svo kenna þeir allskonar útskurð. Það væri nú spennandi að fara þarna einhvern tíman.. Eða allavega senda Valda á bjálkakofanámskeið..
Þegar þarna var komið þá vorum við komin ansi nálægt skógareldunum í Hassela en það brá fyrir megnri brunalykt annað slagið og svo fannst okkur við greina mistur en það gæti hafa verið ímyndun.. En síðustu daga hafa geisað mestu skógareldar í Svíþjóð í nútímanum eins og segir í einu blaði. Ég var ósköp fegin þegar við tókum stefnuna frá eldunum..
Um kvöldið var gist á yndislegu húsbílatjaldstæði þar sem við vorum enn og einu sinni ein í heiminum og konan sem við hringdum í til að geta borgað fyrir tjaldstæðið vildi ekki taka við greiðslu en kom spes til að opna klósetaðstöðuna fyrir okkur svo við vorum með prívat klóset og sturtu rétt fyrir aftan tjaldið og vatnið þar fyrir framan... Glæsilegt...
Á miðvikudeginum drifum við okkur inn til Noregs en ferðalagið var mun lengra en við höfðum gert ráð fyrir þar sem Garmin græjan plataði okkur svolítið. Keyrslan var hins vegar stórkostleg í gegnum fjallendi og mikið skóglendi. Uppi á toppinum á fjöllunum rétt fyrir landamærin er greinilega skíðatúristastaður með milljón hótelum, verslunum og veitingastöðum. Lengst uppi á fjallstoppi mætti okkur td. skilti sem stóð á Kebab og annað sem sagði Stadium (íþróttaverslun)... Ekki var hræðu að sjá þarna enda enginn snjór og engir túristar... Hins vegar er túristatímabilið tvöfallt þarna á fjallstoppnum en seinna í sumar kemur þarna mikið af göngufólki enda er umhverfið mjög fallegt..
Við vorum svo komin til Unnar og Einars heldur seint en þá beið okkar matur og hreint rúm... Yndislegt. Unnur er systurdóttir Valda sem var að kaupa sveitabæ með sínum manni honum Einari sem er norskur. Þetta er hrein og klár paradís, landið er með skóg og fallegum akri og fyrir neðan húsið er beitarsvæði þar sem elgir halda til en fyrsta kvöldið sáum við elgina í ljósaskiptunum. Íbúðarhúsið er líka mjög stórt með milljón herbergjum og kamínum og kósi.... Kisan þeirra hann Dexter er alger rúsína og hér fer vel um okkur...
Á fimmtudeginum var farið til Oslóar að hitta Helle og Dóra. Þar fengum við hádegismat og svo var rölt um næsta nágrenni þar sem voru matjurtagarðar sem höfðu breyst í blómagarða með míní sumarhúsum. Það var æðislegt að hitta Dóra og Helle en ég hef ekki hitt Dóra í allt of langan tíma og hef varla náð að hitta Helle almennilega fyrr en núna... Við ákváðum að skippa miðborginni enda var hitinn alveg óbærilegur og Hilux er ekki stórborgarbíll svo það var brunaið inn í Ás þar sem við hittum Oddnýju og börnin hennar, Þórhildi og Svavar, ásamt Hrafnhildi en Oddný og Hrafnhildur voru með okkur Valda á Hvanneyri. Þær gæduðu okkur um Landbúnaðarháskólann og við skoðuðum landbúnaðarsafnið sem var mjög áhugavert fyrir mig en ég er sérleg áhugamanneskja um landbúnaðarsöfn og er Búvélasafnið heima á Hvanneyri uppáhaldssafnið mitt. Síðan var grillað heima hjá Oddnýju í bongóblíðu og mikið spjallað um heima og geima... Þetta var alveg frábær dagur í góðum félagsskap í Osló og að Ási...
Í dag föstudag er planið að taka því frekar rólega og jafnvel bara að hanga hér á búgarðinum með smá skutl í skógarsafnið sem er hér í nágrenninu.. Enn og einu sinni er milljón stiga hiti og Valdi orðinn frekar útkeyrður á endalausri keyrslu og aumur í eyrunum eftir gólin í mér á þessum háfjallavegum auk þess sem hægra lærið á honum er orðið aumt þar sem ég held fast í kallinn í bröttustu brekkunum... Ekki skánar það svo víst á leiðinni til Bergen á morgun en þar eru vígalegir háfjallavegir...
Bestu kveðjur frá Noregi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 08:39
Óbærilegur hiti
Jæjja þá erum við komin af stað í ferðalagið og strax degi á eftir áætlun en það skiptir engu máli..
Fyrsta daginn keyrðum við bara beint í Luhrsjö baden Camping og skelltum upp tjaldinu. Við fórum í létta kvöldgöngu niður að vatninu og inn í skóginn. Þessir Camping staðir eru allir svipaðir það er að segja milljón húsbílar við vatn og fullt af fólki með hundana sína með sér. Þarna voru til dæmis 5 stórir púðluhundar í girðingu við einn húsbílinn og flestir með einhverja hárgreiðslu og borða í hárinu.. Djísus...
Við sváfum ágætlega en mér var svolítið kalt. Um morguninn á laugadeginum þá endurröðuðum við í bílinn en farangurinn var meiri en við ætluðum okkur í upphafi. En eftir það hófst yndislegur rúntur þar sem við stoppuðum bara hér og þar eftir hentugleika. Fyrsta stoppið var í friðlandi þar sem við fórum í göngutúr og skoðuðum dásamlegt útsýni og fallegan skóg en þar heyrðum við í gauki, kúkú, kúkú..
Næsta stopp var í Råshult sem er æskuheimili Linné sem hefur verið breytt í byggðasafn og landið umhverfis bæinn er friðað sem menningarlandslag. Þar tókum við labb í skóginum og hittum litla og stóra hesta. Landslaginu er viðhaldið eins og það var á 18. öldinni og það er án gríns eins og að labba inn í annað tímabelti að labba þarna um.. Yndislegt. Byggðasafnið var skemmtilegt líka og þarna var túristabúð þar sem ég keypti mér blómasvuntu enda er kisusvuntan mín komin í hengla.
Við tókum létt stopp í stórri antíkverslun í gamalli skemmu. Ég get svo svarið það að ef ég hefði haft meira pláss í bílnum og einhver opin vísakort þá hefði ég misst mig alveg... Það var svo margt flott þarna og ekki á neinu uppsprengdu verði heldur akkúrat á sanngjörnu verði... Ég sá norska vöggu frá 1850 sem hefði verið fullkomin undir lopann minn.. Við sáum líka risastór elgshorn en ég hamdi mig ( eða Valdi hamdi mig ) og keypti bara Rådjurs horn sem voru lítil, pen og kostuðu bara nokkra hundraðkalla íslenska.. Valdi keypti sér gamla timbursög..
Næsta stopp var í Husby bruk sem er herragarður þar sem húsin og þorpið í kring hafa verið friðuð sem byggðasafn. Þar fórum við á yndislegan veitingastað og ég fékk frábæran fisk sem kallast Gös. Við röltum þarna um en þarna voru túristabúðir og söfn eins og gamla smiðjan sem var spennandi.
Við gistum svo í Ramkvilla þar sem var nær ekkert fólk og við skelltum okkur út í vatnið sem var mjög kallt en mjög frískandi í þessum svakalega hita.
Á sunnudeginum þá vorum við á slóðum Emils í Kattholti og Línu langsokk en við heimsóttum Kattholt og fórum í Bullerby þar sem börnin í Ólátagarði bjuggu. Síðan fórum við í Astrid Lindgren world sem er paradís barnanna en það er stórt svæði með endalausum sviðsmyndum úr ævintýrum Astrid Lindgren..
Þar sem hitinn var orðinn óbærilegur (31 stig) þá vorum við orðin alveg heiladauð og keyrðum inn í Linköping og skráðum okkur inn á hótel. Þar gátum við hlaðið öll batterí, komist á netið, farið í sturtu og slakað á. Um kvöldið fórum við á veitingastaðinn The bishops arm þar sem við vorum næstum einu kúnnarnir og við fengum svakalega góðan mat og nutum þess í botn að borða ekki Burger king eða ógeðslega kjötfarshamborgara sem er eitthvað sér sænskt fyrirbæri...
Í dag er planið að keyra inn til Stokkhólms.
Bestu kveðjur Frá Linköping
(NÝTT ALBÚM MEÐ ÞESSARI FÆRSLU)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2008 | 13:34
Lögð af stað heim..
Jæjja þá erum við svo gott sem búin að þrífa okkur út úr íbúðinni... Nú erum við að leggja af stað upp í Smálöndin þar sem við ætlum að gista í nótt í nágrenni við Línu langsokk og Emil.. Hitinn er óbærilegur til flutninga og okkur finnst að það eigi að banna 25 stiga hita þegar menn eru að bera þunga hluti út í bíl...
Lokahófið fyrir bekkinn hans Valda var rosalega skemmtilegt í gær.. Við tókum fullt af skemmtilegum myndum sem koma seinna..
Hrikalegt að heyra af jarðskjálftanum. Jakob bjallaði í okkur og lét okkur vita.. Valdi var mjög ringlaður enda var hann nýkominn úr svona keppni þar sem menn snúast í hringi og hlaupa svo út í bláinn.... En hann náði loksins áttum... Svo horfðum við á fréttirnar þegar við komum heim... Svakalegt að sjá myndirnar. Þetta vekur upp minningar frá því í stóra skjálftanum hér um árið á 17. júní en þá var ég útsendingarstjóri í fréttum og álagið og panikkið var þvílíkt að útsendingin sem varði í 90 mínútur er eiginlega í "blakkouti" hjá mér... Og á þeim degi tók ég þá ákvörðun að hætta í þessum bransa... Þetta var bara Too much...
Jæjja og þá erum við farin í ferðalagið okkar.. Við munum reyna að komast á netið á hverjum degi og segja fréttir...
Bestu kveðjur frá Malmö (í síðasta sinn)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.5.2008 | 08:01
Niðurpökkun og lokagrillveisla í kvöld
Takk fyrir æðisleg komment um bollana... Nú veit ég hvernig á að fá mörg kommennt á bloggið.. það er að kalla beint eftir þeim og það virkaði.....
Elín þú velur þann þrílita.. já ég er nokkuð sammála að hann sé sæmilega lukkaður og Bebba! það verður sko alltaf nóg kaffi á Álfhólnum. Ég sendi heim poka af Gvatemalakaffibaunum sem ég geymdi síðan í ferðinni til að geta boðið upp á nýmalað á Álfhólnum svo nú verður viðeigandi að hella upp á og drekka Gvatemalakaffi úr bollunum mínum.. Hrafnhildur.. Allt sem þú nefndir verður í boði á Álfhólnum, te, kaffi, safi, vatn, kakó og fleira til... Björk þú færð kaffi og jafnvel rauðvín í bollann.. ég er viss um að það virki.. Jú Vigdís, bollunum var nú einmitt raðað þannig að þeir flottustu væru fremstir svo það passar.... Já Þórunn Harðar.. þessi blái er einmitt sá stærsti og sterklegasti og hann hefur unnið á hjá mér þrátt fyrir að vera svona skærblár en ég er meira fyrir jarðliti... Og nú þurfið þið svo bara að drífa ykkur í kaffi á Álfhólinn strax og við komum heim.. Bollarnir fóru sko ekki með Samskip heldur var þeim pakkað inn í bóluplast og settir í plastbox.. Þeir fá að vera inni í bíl hjá okur allt ferðalagið.... Alveg heilagir..
Hrafnhildur... Ég veit ekki hvort við erum með síma á þig og ertu með síma á hana Oddnýju Guðmunds.. Mér hefur gengið illa að skrifa komment á bloggið hennar.. Við verðum líklega á ferðinni í Ási fimmtudaginn 5. júní.
Af flutingunum er það að segja að allt gengur ljómandi vel. Við erum búin að selja eða gefa nærri allt dótið en bara ein hilla og eitt skrifborð er eftir.. Það hringdi hingað íslensk stúlka sem sá auglýsinguna á Blocket og vildi kaupa skrifborð og endað með að kaupa líka fatahengið og fékk svo fullt af öðru dóti gefins.. Allir ánægðir... Ungt par sem var nýbúið að kaupa sér sumarhús keyptu svefnsófann og svo kom skrýtið par í gær og keypti rúmið. Maðurinn var axlarbrotinn og konan hans og Valdi báru rúmið út.. Þau ætluðu reyndar að koma því inn í skottið á Volvo station en það gekk ekki... Dö... þau sóttu þá toppfestingar og þá gátu þau flutt rúmið...
Núna gistum við á ágætis vindsæng á gólfinu. Það tók reyndar smá tíma að pumpa í hana og svo er hún undarleg og tekur kippi og það er hávaði í henni.. Við höldum að loftið sé að færast milli hólfa og líklega hætta þessi óhljóð í dýnunni... Vonandi....
Í gær vöknuðum við eldsnemma (5 um morguninn) til að fara með restina af dótinu upp í Varberg þar sem Samskip er með aðstöðu. Sú ferð gekk vel nema að reiðhjólin voru við það að detta af bílnum alla leiðina og við þurftum að stoppa og festa þau nokkrum sinnum... En í þetta sinn fóru hjólin, 6 kassar, 2 ferðatöskur, eldhúsborð og stólar, pottery hjólið og ein kommóða... Kallarnir hjá vörumóttöku Samskipa eru einstaklega næs og hjálpuðu okkur að koma þessu vel fyrir á bretti. Púff þá er það búið og núna finnum við endanlega ekki neit af dótinu okkar... Við til dæmis áttum fjóra ostaskera.. Einn sem Valdi gaf mér í jólagjöf og lítur út eins og hreindýr, tvo frá Álfhólnum og einn sem Guðbjörg skildi eftir hjá okkur þegar hún flutti úr landi.. Sem sagt fjórir ostaskerar.. Ég tók einn frá og pakkaði þremur og við ætluðum að lifa á hituðum rúnstykkjum og osti það sem eftir er en viti menn ég virðist hafa pakkað öllum fjórum ostaskerunum niður.. DARN.... ÉG NEITA AÐ KAUPA FIMMTA OSTASKERANN... Svo nú kaupum við niðurskorinn ost það sem eftir er... Sem sagt allt í kössum og klúðri...
Eftir ferðina upp í Varberg í gær þá fór Valdi beint í munnlegt próf í trjágreiningu og það gekk rosalega vel hjá honum en þetta var síðasta prófið og nú er bara eftir að fllytja einn fyrirlestur í dag.
Valdi er enn í skólanum og ég er að þrífa mig út úr íbúðinni í dag og svo fer ég í klippingu síðdegis. Í kvöld er svo grillveisla í skólanum því þetta er síðasti skóladagurinn. Ég fæ að fara með enda ekki seinna vænna að hitta eitthvað af þessum skólafélögum hans Valda.. Svo leggjum við af stað í ferðalagið á morgun... Þetta verður stuð...
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2008 | 11:30
Heimsins flottustu bollar!!!!
Jæjja núna búum við í kössum og ferðatöskum.. Reyndar er ekki búið að selja rúmið en vonandi gengur það. Sófinn var seldur í gær svo nú er aðalmálið að losna við rúmið.
Valdi er enn á fullu í skólanum og að skila verkefnum. Ég gerðist ritari fyrir hann til að hann yrði fljótari að skila af sér nokkrum greinargerðum og það svínvirkaði.. Þær eru búnar. Núna er hann uppi í Dalby Söderskov að mæla eitthvað og svo eiga nemendurnir að vinna í hópum á morgun og gera einhverja útreikninga. Þau lögðu reyndar af stað í gær en það mígrigndi svo það var snúið við og ákveðið að mæla í dag. Já veðrið í gær var æði, rigning og bara 8 stiga hiti.. næs.. Í dag er aftur orðið óbærilega óþolandi heitt (ósköp á maður samt eftir að sakna góða veðursins hérna þó maður bölvi því í augnablikinu... )
Í morgun var síðasti keramiktíminn. Ég mætti ekki nema bara til að sækja bollana mína sem voru enn volgir beint úr ofninum.. Þeir eru Æði... eða þannig... Maður verður að taka viljann fyrir verkið... þeir eru skrautlegir, skakkir, misstórir, glerjungurinn bráðnar saman á undarlegan hátt og sumir litir virka ekki saman.. En það skiptir engu máli.. mér finnst þetta flottustu bollar í heimi.... Þeir minnkuðu líka í brennslu um 10-15% svo þeir eru talsvert minni en ég ætlaði mér.. kannski verða þetta bara expresso bollar.. En ég er allavega búin að hella mér upp á kaffi núna og er að sötra úr nýju bollunum.... Ég er búin að setja inn myndir af bollunum og vil fá að vita hver er flottastur (skástur)....
Jæjja það er eins gott að halda áfram að pakka þar sem restin af búslóðinni fer upp í Samskip eldsnemma í fyrramálið... Sjónvarpinu verður ekki pakkað fyrr en seint í kvöld þegar Desperat housvifes er búið en allt annað má fara í kassa....
Bestu kveðjur frá Malmö
(NÝTT ALBÚM MEÐ BOLLUNUM)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.5.2008 | 20:07
Svíþjóð með húsunum....
Á föstudaginn brunuðum við upp í Tomelilla sem er í um það bil 45 mín fjarlægð frá Malmö. Johann keramikkennarinn minn var búinn að tala við vin sinn um að selja mér ódýrt keramikhjól og tilheyrandi byrjendaverkfæri. Fyrst að við vorum nú komin út fyrir borgina þá tókum við skemmtilegan bíltúr til Ystad og svo suður með ströndinni inn til Malmö aftur. Á leiðinni þá missi ég út úr mér alveg óvart "Svíþjóð með húsunum er miklu flottari en hin Svíþjóð"... Túlkun: Þegar maður kemur út úr borginni þá eru bara krúttleg hús með krúttlegum görðum... Malmö er ekkert rosalega spes borg... Ég get ekki beðið eftir að keyra Smálöndin í næstu viku en mér skilst á Valda að þar séu sko alvöru krúttleg hús í pastellitum.
Við stoppuðum á syðsta odda Svíþjóðar sem heitir Smyge og svo keyptum við Jarðarber á vegasölu en nú virðist "sesonið" vera fyrir jarðarber sem voru til sölu út um allt. Þetta var næs bíltúr og ég var himin lifandi með "pottery hjólið" mitt og prísinn sem ég fékk..
Á laugardaginn þá fórum við yfir til Kaupmannahafnar að hitta Höllu stóru systur hans Valda en hún var þar á ferð með Reyni syni sínum sem er þjálfari fyrir blaklið sem var að keppa í Danmörku. Við hittum Höllu á Ráðhústorginu þar sem Panflautuleikararnir eru enn að halda uppi stuði... Við röltum upp að Sívala turninn og fórum þar upp. Maður hefur svo oft labbað framhjá turninum svo það var nú kominn tími til að kíkja inn og upp. Útsýnið frá toppnum er alveg klikkað en Sívali turninn var upphaflega byggður á 17. öld sem stjörnuskoðunarstöð.
Á Kongens Nytorv voru bæði handverksmarkaður og antíkmarkaður sem við röltum okkur um og svo gengum við Nýhöfn fram og til baka en fólksfjöldinn var talsverður enda var veðrið alveg frábært.. Eða Höllu fannst veðrið frábært en svona bongóblíða fer okkur Valda ekkert rosalega vel... En þetta var næs.. Eftir það var sest inn á Hvíds vínstue til að hvíla lúin bein. Dagurinn var ljómandi skemmtilegur í rölti og spjalli og gaman að hitta Höllu og taka sér pásu frá flutningsstressinu. Þetta var síðasta ferð okkar til DK í bili allavega.
Um kvöldið horfðum við svo á Evróvision og Valdi sýndi ótrúlega þolinmæði að horfa með mér og hlusta á skoðanir mínar á undarlegri stigagjöf sumra þjóða... En Íslenski hópurinn stóð sig frábærlega og ég held að 14. sæti sé bara ljómandi fínt. Hins vegar virðist ég alls ekki hafa nokkra dómgreind fyrir hverjir eru líklegir sigurvegarar þar sem ég hafði tautað yfir þrem efstu lögunum.. "Æi greyin.. þau eiga ekki séns.."... Já það er því ekki ráðlegt að taka mark á mínum Evróvisionspádómum.. En ég verð að viðurkenna að það kom upp smá púki þegar aumingja Carlotta Pirelli (Svíþjóð) var fyrir neðan Ísland og bara talsvert neðarlega... Það sem hefur ekki verið látið með þessa konu hér í Svíþjóð.. púff... Ég var nú einmitt að dást að því hvað flestar söngkonurnar voru í eðlilegum holdum fyrir utan Carlottu sem var heldur rýr og klæðalítil ásamt því að vera allt of mikið máluð.. Valda finnst að hún líti út eins og Bratz dúkka... Og ekki orð um það meir... En þetta var bara ljómandi skemmtileg keppni og næs sjónvarpskvöld yfir snakki hjá okkur Valda.
Við náðum að selja skrifborðsstólana okkar um daginn... Nú vorum við að auglýsa rúmið og svefnsófann og við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir.. Við bara verðum að ná að losna við þetta því annars er bara VESEN í gangi... Niðurpökkun er í fullum gír og allt í kössum út um allt og síðasta máltíðin var elduð í eldhúsinu áðan... Nú hefst nánast þriggja vikna tímabil þar sem við búum í ferðatöskum og finnum ekki neitt.. æi það er smá sjarmi yfir því en samt....
Bestu kveðjur frá Malmö
2 ný albúm Syðsta Svíþjóð (Tekið á símann hans Valda) og Síðasta Danmerkurferðin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2008 | 10:08
Panikk... það hringir enginn...
Smá panikk í gangi... En ég var að setja inn auglýsingu á Blocket.se til að selja húsgögnin okkar og það hefur enginn hringt.... PANIKK.... Hvað við gerum ef við losnum ekki við þetta veit ég ekki... Ég vil líka fá pening fyrir þetta því við náttúrulega eyddum hellings pening í þetta í haust..
Annars er bara rólegt... Vinnan fyrir Greinasafnið er að mestu búin í þessari lotu svo nú fer ég að einbeita mér að niðurpökkun. Valdi fékk ekki að taka prófið sitt aftur sem honum gekk illa í svo nú situr hann sveittur og er að skrifa greinargerðir úr milljón greinum sem hann á að skila á morgun.. Hann er reyndar í dag í vettvantsferð í ´"útlandinu" sum sé Danmörku.
Ég fór í keramiktímann minn á þriðjudaginn og lenti í tímaharki við að klára að glerja bollana. Ég hélt kennaranum í gíslingu í 45 mínútur fram yfir tímann og konan hans og nokkurra mánaða gamalt barn biðu á meðan... En ég bara varð að klára að glerja því þetta var síðasti tíminn en svo sæki ég bollana tilbúna á þriðjudaginn næsta.. Vá ég er ekkert smá spennt að sjá hvernig þetta kemur út.. Ég ákvað að hafa þetta bara algjöra tilraunastarfsemi og hafði tvo liti á hverjum bolla og suma hálfa að utan líka... Panikkið gerði það að verkum að ég var farin að sulla litum hægri og vinstri á alla bolla og systemið mitt var komið í steik... Númer hvað af hvaða glerjung ég hafði valið saman á hvaða bolla var alveg komið í rugl... En það verður spennandi að sjá útkomuna.. Það er alveg sama hvað þeir verða ljótir, skakkir eða asnalegir á litinn... ÞIÐ FÁIÐ KAFFI ÚR ÞESSUM BOLLUM Í FRAMTÍÐINNI.. Og hana nú...
Ætli maður horfi ekki á Evróvision í kvöld með öðru auganu en ef Lilja kemur þá verður horft með báðum.. Valdi er í Evróvision verkfalli og verður því inni í herbergi að skrifa greinargerðir...
Jæjja ég ætla að halda áfram að horfa á símann og vona að hann hringi..
Kveðjur frá Malmö
PS. myndir koma vonandi bráðum inn... en það er eitthvað klikk á blogginu með innsetningu á myndum sem gerir það að verkum að það tekur marga klukkutíma...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2008 | 14:09
Nóg að gera
Já það er nóg að gera hjá okkur þessa dagana...
Á laugardaginn fórum við í túristasiglingu um Malmö.. Það var svolítið fyndið en við sigldum um síkin í miðborginni og fórum fram hjá Slotsparken og kastalanum og stöðum sem við þekktum vel. Ég er nokkuð viss um að túristagædinn hafi verið þunnur en hann þambaði vatn allan tímann og gædaði á þremur tungumálum og var greinilega alveg að mygla á starfinu.. Sömu brandararnir dag eftir dag og þeir voru eiginlega ekki einu sinni góðir... En það var mjög gaman að sigla um miðborgina og sjá hana frá öðru sjónarhorni..
Valdi er á fullu í skólanum og ég er alveg að drukkna í Greinasafnsvinnu.. Um helgina fórum við upp í Alnarpgarðinn og gengum þar um en sá garður er alveg yndislegur með fullt af flottum trjám. Valdi er að undirbúa sig fyrir trjágreiningarpróf sem hann fer í í næstu viku.
Lilja kom í mat í gærkvöldi en við buðum upp á svínasteik og prufukeyrðum nýja eldhúshnífa sem við vorum að kaupa og þeir "svínvirkuðu" eins og maður segir...
Valdi álpaðist til að ná prófinu sem hann fór í í síðustu viku en var ekki ánægður með frammistöðuna. Hann er að spá í að taka prófið aftur til að hysja upp einkunnina ef hann má það...
Ég er líka að undirbúa brottflutning en það er nú bara að bresta á í næstu viku en planið er að yfirgefa Malmö föstudaginn í næstu viku... En miðvikudaginn 28. maí förum við með restina af búslóðinni í skip. Ég er að fara að auglýsa allt sem við ætlum að selja og bráðum verðum við bara í tómri íbúð...
Við keyptum okkur ódýrt tjald í gær og tjalddýnu en við ætlum að gista í tjaldi á ferðalaginu okkar til að spara pening en ekki á hótelum sem væri fáránlega dýrt...
Takk Steinunn fyrir að redda útsæðinu það verður snilld að geta skellt sér beint í kartöfluniðursetningu við heimkomu. Og já Bebba.. það styttist sko í þetta... Íha...
Myndir frá bátsferðinni koma seinna
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2008 | 19:31
Með öngulinn í rassinum...
Hitinn þessa vikuna hefur dansað í kringum 18-19 og 20 stig.. Púff.. of heitt... Mér skilst að vorið/sumarið sé komið heima á Hvanneyri.. Hrein snilld..
Sl. þriðjudag fór ég í keramiktímann minn eins og alltaf á þriðjudögum nema að Johann sem kennir okkur var í fríi og einhver Johanna kenndi í staðin... Ég var bara ekki í stuði og það gekk ekkert upp hjá mér auk þess sem henni tókst að toga eitt handfangið af einum bollanna.... veit ekki alveg hvað var í gangi þar.... En við límdum haldið aftur á með leirlími... Loksins eru bollarnir að fara í brennslu.... Ég bjó síðan til tvær ágætis skálar en náði svo að klessa plastpoka í þær þegar ég var að setja þær upp í hillu svo þær voru hnoðaðar í kássu og sendar í endurvinnsluna...
Á miðvikudaginn fórum við upp í Varberg sem er í ríflega tveggja tíma fjarlægð frá Malmö. Við vorum að fara upp í Samskip með 6 kassa, eina ferðatösku og skápinn hennar Gerðar systur. Þetta er fyrsta sendingin heim en ég taldi ágætt að senda þetta í tveim lotum enda er þetta mikil skriffinnska og flókið kerfi allt saman... En þetta gekk ágætlega en við áttum að mæta með dótið fyrir 12 og við ætluðum að vera komin tíu en það vildi ekki betur til en svo að við komum akkúrat 12.03... Sem slapp þó fyrir horn... Valda þótti alveg óbærilega leiðinlegt að keyra hraðbrautina á spariklædda traktornum (Hilux). Ég hafði það hins vegar ágætt en ég hraut hálfa leiðina upp eftir og las svo glæpasögu á leiðinni niður eftir... Næs....
Valdi er á fullu í skólanum og svo er hann að drukkna í heimavinnu líka... Hann fór í próf á þriðjudaginn og er eiginlega að vona að hann hafi fallið þar sem það gekk illa hjá honum að læra vegna veðurs um helgina... Hann vill fá annan séns... (og betra próflestrarveður!) Ég er á fullu í Greinasafninu sem mér þykir ganga heldur hægt en þetta bara tekur þennan tíma og ég er ekki nógu þolinmóð...
Við fórum út að ganga í Kirseberggarðinn í gær og þá var fornbílasýning þar.. algert klúður að vera ekki með myndavélina.. Fullt af frábærum fornbílum og fólk að skoða þá.. En í dag skutumst við svo að veiða aftur við Eyrarsundsbrúna en Valdi hafði keypt hosuklemmu í Bauhaus og festi veiðihjólið á þannig að stöngin svínvirkaði... Við fengum hins vegar engan fisk en gaurinn sem var að veiða við hliðina á okur fékk þrjár geddur... Svo aftur fórum við heim með öngulinn í rassinum...
Nýtt stutt albúm
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar