12.5.2008 | 10:36
Óbærilega heit helgi
Já hér hefur verið allt of mikill hiti. 25 stig alla helgina.. ÞETTA ER ÓBÆRILEGT...
Þessi helgi hefur verið mjög viðburðarrík og skemmtileg. Valdi er í próflestri en það hefur gengið illa að hanga inni og lesa í þessu veðri. Á laugardaginn hjóluðum við niður í bæ í Slottsparken en það er garðurinn í kringum Malmö kastala. Þar var krökkt af fólki, hundum og börnum og mikil sólarstemning. Já Svíar eru loksins búnir að fækka fötum. Við vorum aðallega að skoða trén í garðnum og vorum með kortið úr bókinni hans Valda um Trén í Malmö. Þessi garður er alveg yndislegur, fjölbreyttur og fallegur. Þarna eru tjarnir, blómabeð, tré, kaffihús, gömul mylla og margt fleira. Endurnar voru alveg "crazy", þær voru ekki mannafælur en Helsinginn var greinilega að verja sitt svæði því hann ætlaði að hjóla í okkur nokkrum sinnum og við áttum fótum okkar fjör að launa á köflum undan óðum Helsingjum. Við skoðuðum mörg tré, sáum fiska í tjörnunum og froska en þrátt fyrir mikinn hita þá var dagurinn ljúfur.
Ég vaknaði snemma á sunnudeginum því ég hafði náð að plata Lilju með mér á keramiknámskeið hjá Wallåkra en það var yndislegt að koma þangað aftur og Lilja sýndi ótvíræða hæfileika og gerði fullt af fínum krukkum. Ég fékk að vinna með meiri leir en ég hef gert hingað til og æfði mig í að miðjusetja stærri leirklumpa og gera almennilegar skálar. Við Lilja erum svo spenntar að fá krukkurnar okkar til okkar en þær verða ekki tilbúnar fyrr en eftir 2 mánuði svo líklega fáum við þær bara í haust þegar Valdi eða Lilja hafa erindi í SLU. Valdi gerði þau alvarlegu mistök að hleypa mér upp í Wallåkra með vísakortið mitt svo ég náði að versla eina skál, eina litla krukku og tvo kaffibolla sem voru nú aðallega keyptir til að æfa mig í að renna svona form. (var þetta ekki góð afsökun!!!)
Eftir Krukkunámskeiðið sóttum við Valda og fórum að veiða í varnargarðinum fyrir neðan Eyrarsundsbrúna. Enn var 25 stiga óbærilgeur hiti en stemningin í miðbænum og í görðunum við sjóinn og bara alls staðar, var frábær, fullt af fólki og sólarstemning. Við höfðum keypt ódýra veiðistöng en Valda snillingi tókst að brjóta plastið sem festir hjólið, áður en við byrjuðum að veiða... Þannig að það var svolítið puð að kasta út í og draga inn en Valdi lét sig hafa það og við Lilja sóluðum okkur á meðan. Ég kastaði reyndar nokkrum sinnum út í en gerði ekki mikið annað en að veiða þang og flækja hjólið. Við sáum hins vegar fullt af fiskum og einu sinni reyndi Horngädda (Belone Belone) að bíta í hjá Valda en það hafðist ekki.
Eftir að hafa gefist upp á veiðinni með öngulinn í rassinum þá ákváðum við að grilla og Lilja sótti grillið sitt og það var grillað á svölunum hjá okkur. Góður matur hjá Lilju og gott að enda ljúfan dag á svona góðri máltíð.
Í dag er Valdi enn í próflestri, svolítið sólbrenndur eftir gærdaginn en það er smá gola og eins og Valdi sagði "Það er BARA 18 stiga hiti"....
Bestu kveðjur úr hitanum í Malmö
(2 ALBÚM)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2008 | 09:41
Skemmtileg heimsókn í Jägersbo
Í gær fórum við til Jägersbo til Hugrúnar og Guðjóns en þau eru búin að koma sér vel fyrir á hjólhýsasvæðinu þar í snyrtilegu hjólhýsi með stóru flottu fortjaldi. Við lentum í umferðarteppu á leiðinni en við mættum til þeirra upp úr klukkan 18:00. Svæðið þarna í Jagersbo campingcenter er yndislegt en þau eru td. staðsett alveg við vatnið og svo er fín þjónustumiðstöð rétt hjá, þar sem hægt er að þvo, fara á salerni og í sturtu. Einnig skoðuðum við eldhúsaðstöðuna sem var flott, hrein og fín.
Guðjón eldaði handa okkur frábært svínakjöt og líka flís af Hjartarkjöti.. Ummmm þetta var svo gott... Við borðuðum rækilega yfir okkur enda ekki annað hægt þegar svona góður matur er í boði. Í desert fengum við fersk bláber og jarðarber með rjóma sem var ljúffengt.
Eftir mat þá röltum við okkur niður að vatni og fórum út á skrýtna flotbryggju sem var þarna. Hún var samsett úr plastkubbum og skrúfuð saman með risastórum plastskrúfum.. Þetta var svona eins og Duplo bryggja.. þar var líka rennibraut fyrir börnin til að skutla sér í vatnið.. Valdi óþekktarormur þurfti náttúrulega að kanna hvað vatnið væri heitt/kalt og endaði með að fletta sig klæðum og kasta sér til stunds við mikinn fögnuð en aðallega undrun frá nærstöddum Svíum... Valdi synti þarna um í smá stund og kom svo upp úr alveg rennandi blautur og var í blautum buxum það sem eftir var heimsóknarinnar.. Og svo skilur hann ekkert af hverju hann er kvefaður í dag..
Þetta var ljúf heimsókn en við vorum svo komin til baka til Malmö um hálf tólf.
Í dag stefnir í óbærilegan hita enn og einu sinni en Valdi er í próflestri og ég er að vinna við greinasafnið. Líklega verður nú tekið rölt út í góða veðrið seinna í dag. Á morgun förum við Lilja svo á keramiknámskeið upp í Vallakra..
NÝTT ALBÚM
Bestu kveðjur úr hita og svita í Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2008 | 11:33
Sólarrúntur um Skán
Í gær fórum við í langan bíltúr um Skán.
Ferðin hófst reyndar í Sopstation þar sem ég hafði ekki komist þangað í langan tíma. Þar fann ég tvo diska sem ég keypti. Eftir það lá leiðin upp til Kristianstad sem er í norðausturhorninu á Skáni eða í um eins og hálfs tíma akstursfjarlægð. Kristianstad er krúttlegur bær með subbulegustu verslunarmiðstöð sem við höfum séð og líka eiginlega þeirri skrýtnustu. Minnti hálfpartinn á Kjörgarð á Laugaveginum í den. Ríkið þar var hins vegar alveg að gera sig en við fundum ótal margar nýjar tegundir af bjór sem Valdi hafði aldrei smakkað. Erindið var hins vegar að fara í handverksbúð en ég hafði séð til sölu fallega hringi á Litla Torgi á jólamarkaði sem voru seldir þar. Hringirnir voru mjög fallegir og ég fjárfesti í einum slíkum en hann er með rauðum stórum steini svona ekta ég...
Þegar við komum út úr handverksbúðinni varð Valdi fyrir árás vespu sem hann virðist hafa rekist í og þar af leiðandi pirrað á einhvern hátt en hún stakk hann í fingurinn og það var víst MJÖG VONT... Ég þurfti að plokka oddinn úr puttanum og svo varð puttinn hvítur... Úpps.. Valdi var mjög aumur í puttanum í dágóðan tíma og var puttinn stirður og bólginn enn í morgun...
Eftir Kristianstad ákváðum við að keyra meðfram ströndinni heim og fyrsta stoppið var Åhus en þar gengum við um ósa Helgeå þar sem var bryggja með veitingastöðum og ísbáti. Þetta var mjög huggulegur bær og sjarmerandi að labba meðfram ánni.
Þaðan keyrðum við áfram suður með ströndinni og stoppuðum meðal annars í Yngsjö og kíktum á ströndina þar. Sjórinn var ískaldur en við fórum samt í fótabað sem var mjög hressandi. Fólk er greinilega farið að koma sér fyrir í sumarhúsunum þarna í kring og einnig var mikið um húsbíla á svæðinu. Svíar virðast raunverulega nota sumarhúsin sín sem sumarhús og búa þar allt sumarið.. Það hlýtur að vera yndislegt að vera í þessu umhverfi nálægt sjónum þar sem eru strandveitingahús og stemning í heilt sumar en ekki bara um helgar eins og Íslendingar virðast gera.
Við ákváðum að hafa matarstopp í Simrisham og fórum á ágætis veitingastað, við röltum aðeins um miðborgina og niður að höfn en þarna eru eldgamlar götur og hús en miðbærinn virtist mjög huggulegur. Ég sá í einum búðarglugga alveg stórkostlega Ruggukind (samanber rugguhestur)... (sjá myndir).. Sem betur fer var búðin ekki opin því ég hefði alveg getað freistast til að kaupa kindina því mér fannst hún æði. Valdi dæsti bara....
Þegar heim var komið þá var lagst í sjónvarpsgláp en við náðum í skottið á "Dirty, Sexy, Money" en mér skilst að það sé verið að sýna þá vitleysu á Íslandi líka.
Í kvöld stefnum við á að fara til Hoor og heimsækja Hugrúnu og Guðjón og grilla með þeim.
PS. vorum að reka augun í það að hér er 21 stiga hiti en á Hvanneyri 2,1 úpps.... Sömu tölur en ekki alveg.....
Bestu kveðjur úr óbærilegum hita í Svíþjóð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 08:03
Bollar, steik og Despó...
Jæjja það er rólegt hjá okkur núna. Valdi er að drukkna í hópverkefninu sínu og ég er að drukkna í vinnu í tölvunni. Við höfum lítið gert nema að rölta okkur út í Kirseberggarðinn til að fá smá hreyfingu. Endurnar eru líklega orðnar alveg stútfullar af brauði því þær litu ekki við brauðinu sem við reyndum að gefa þeim svo við urðum að henda því í næstu ruslatunnu...
Í gær fór ég í keramiktíma eins og alltaf á þriðjudagsmorgnum. Ég hér með dreg til baka öll ummæli um misflottar krukkur og skálar hjá samnemendum mínum... Bollarnir mínir eru svo skakkir og skældir... þetta er bara mun erfiðara en ég hélt.. .. Ég lét af fullkomnunaráráttunni um daginn og ákvað að muna að þetta námskeið væri til að læra af því en ekki framleiða fullkomna bolla í fyrstu tilraun... En í gær var ég að setja höldurnar á bollana og það gekk skrautlega... En höldurnar fóru á og svo sjáum við til hvort þær haldist þar en beinar eru þær ekki en ég held að þessir bollar verði bara skemmtilega persónulegir ef þeir klárast einhvern tíman.. (Sjá myndir).
Í gærkvöldi var Desperat Housvifes kvöld.. Þá er alltaf tilefni til að fá sér rauðvínstár og elda góðan mat... Við keyptum risasvínalærisvöðva úti í búð fyrir lítinn pening og svo gerði ég heimalagað Valdorfsalat með... Mikið hefðum við verið til í að grilla þessa steik á svölunum en við eigum ekki grill.. Í gær var 20 stiga hiti púff... Ég hjólaði niður í skattinn í gær og ég hélt ég myndi deyja á leiðinni... Svíar eru aðeins farnir að fækka fötum núna og hætta að ganga í dúnúlpunum...
Stefnir í svipaðan hita í dag en það er nú þegar heiðskírt og 17 stig í augnablikinu... Púfff ég dey... en ósköp á ég eftir að sakna veðursins þegar maður kemur heim í vindinn á Hvanneyri...
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2008 | 17:11
Samnorræn hallæristíska..
Já við Valdi höfum komist að því að við erum orðin of gömul til að skilja tískustraumana hér í Svíþjóð og Köben. Við höfum reynt í smá tíma að finna venjuleg föt á Valda en það hefur gengið illa. Við ákváðum að fara í Fields sem er stór verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn og freista gæfunnar þar en Valdi er búinn að gera göt á öll sín föt eða "vaxinn upp úr þeim"...
Í Fiels fundum við alveg hörmulega tísku sem við köllum Samnorræna hallæristískustrauma... Sænskir karlmenn eru til dæmis rosalega gjarnir á að vera í bleikum skyrtum eða væmnum litum.. (Skoðið myndirnar).. Auk þess þá var hávaðinn eiginlega of mikill í þessum búðum til að við gætum einbeitt okkur.. Við enduðum í Dressmann og náðum þar í tvo boli og einn síðerma bol.. Auk þess keypti Valdi buxur í North face útvistarbúðinni sem hægt er að renna skálmunum af en hann er lengi búinn að langa í svona buxur.. Ég komst hins vegar í yndislega búð sem heitir The Masai Clothing company sem hefur stórar stærðir og ég keypti tvo svona "skokka" kjóla eða toppa... veit ekki alveg hvað þetta telst vera.. Valdi segir að þetta séu "Skokk kjólar" til að skokkka í.. Hummmm... Valdi sagði líka að þetta væri "gömlu kellingabúð"... því það voru bara eldri konur að afgreiða og versla... Þær sem voru ungar þarna voru að aðstoða mæður sínar að versla... (Æi er ég orðin svona gömul....)
Þaðan fórum við inn til Kaupmannahafnar og röltum okkur inn til Christianíu. Þetta var dágott rölt en það hafðist með einu bjórstoppið en hitinn var nánast óbærilegur á þessum yndislega laugardagi..
Christianía var fremur dapur.. Markaðurinn var svo sem skemmtilegur en ég keypti einn ódýran hring en hætti við að kaupa annan eftir að mér var bent á að skrúfa mætti steininn úr og geyma þar "kókaín"... Hummm.. held ég hafi ekki þörf fyrir slíkan hring... Í loftinu var ákveðin reykingalykt og einnig hlandlykt.. Óþrifnaður var mikill og sorglegt að sjá Grænlendingana litla og rýra með bjórinn sinn og eitthvað sorglegt skakkt glott á vörunum.. Mannlífið var mikið þarna og ferðamenn út um allt í bland við Grænlendingana og unga menn með bjór og jónu... Já það var ákveðin upplifun að koma þarna.. Við fórum inn á útskurðarverkstæði til að skoða timburhandverkið en það var heldur ómerkilegt og dýrt.. Á heildina litið þá var þetta að sjálfsögðu upplifun að koma þarna..
Eftir það var rölt í átt að miðborginni og við fundum bjórbúð með hinum og þessum bórtegundum og antíkmarkað. Við vorum að leita að veitingastað sem kom svo á daginn að var eiginlega of "fancy".. Við héldum áfram og rákumst inn á Mexícó/Texas stað við Ráðhústorgið.. Ég fór strax í fýlu þegar afturendinn á mér komst ekki í stólinn... Ég meina Texasveitingastaður ... og gerir ráð fyrir penu fólki... Ekki að ganga upp.. Margarítan mín var bara fjall af klaka sem flæddi um allt borðið.. En forrétturinn var stórkostlegur.. Hot wings.. Ekta USA... Valdi fékk sér Nachos með osti, stórn skammt.. Svo kom maturinn og þá var "Well Done" kjötið mitt rautt og hrátt og ég maulaði franskarnar.. En medium rare kjötið hans Valda var HRÁTT.. eins og það átti að vera.. En rauðvínið var gott og félagsskapurinn góður (Valdi)... Eftir það var haldið heim á leið enda var ég alveg gengin upp að hnjám og mikið þreytt..
Annars hafa síðustu dagar farið í að klára að fara yfir síðasta vistfræðiverkefnið og reikna saman vetrareinkunn og skila þeim af mér.. Þetta hefur verið svakaleg vinna.. En prófið hjá þeim er á morgun.. Ég verð að játa að það er ákveðinn léttir að vera búin að skila þessu af mér þó þetta sé búið að vera gaman.
Valdi er enn í hópverkefni en hópurinn samanstendur af Valda og Valda og meiri Valda.. Valdi segir að "hinir" í hópnum hafi verið latir um helgina og því hafi lítið unnist.. Hann segir að "hópurinn" lofi betri vinnubrögðum næstu daga..
Bíllinn er í viðgerð... Það eru bara ekki til varahlutir í bíla fyrir fullorðna í Svíþjóð og það þurfti að panta þá frá Danmörku sem virðist taka um það bil viku.. (45 mín með lest..).... Svo við bíðum enn..
Bestu kveðjur úr hitanum, svitanum og sumrinu í Svíþjóð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2008 | 11:38
Sauðdrukknir Svíar
Í gær fórum við upp í Lund með Lilju. Dagurinn fyrir 1. maí er einhverskonar hátíð hjá skólakrökkum og mátti sjá sauðdrukkna námsmenn slaga um allt í Lundi. Þau voru greinilega að fara í eða koma frá einhverskonar "pikknikk" því allir voru með garðstóla, bjór og nesti. Einnig mátti sjá kóra á víð og dreif um bæinn ásamt lúðrasveit sem var með klappstýrur með sér. Við vitum ekki alveg hvers eðlis þessi hátíð var en sumum búðum var lokað snemma í tilefni dagsins. Einnig rákumst við á mikið af mjög prúðbúnum ungmennum td. ungir menn í mörgæsabúningum og stúlkum í síðkjólum. Líklega hafa þau verið á leið á einhverskonar vorball eða lokaball hjá menntaskólanum sínum.
Eftir að hafa virt fyrir okkur mannlífið í Lundi þá fórum við á Enska krá og fengum okkur bjór en svo var haldið aftur til Malmö. Það verður að segjast að almenningssamgöngur eru mjög góðar hér en við gengum beint upp í lest til Malmö sem tók bara 15 mínútur. Bíllinn er enn að bíða eftir að komast á verkstæði.
Við Valdi ákváðum að skella okkur út að borða þegar við komum til Malmö en í miðborginni hér var ekki ófremdarástand og engir unglingar heldur var bara melló föstudagsstemning í gangi og fólk að flykkjast á barina. Við fórum á Ítalskan stað þar sem ég fékk besta pasta í heimi og Valdi fékk ágætis pizzu. Eins og sönnum námsmönnum sæmir þá pöntuðum við okkur ódýrustu rauðvínsflöskuna sem var eiginlega bara rosalega góð. Næs.. Síðan var bara farið heim með strætó og haugast..
(ALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU)
Bestu kveðjur úr rigningunni í Malmö (Samt 14 stiga hiti og logn)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2008 | 12:58
Hvenær fækka Svíar fötum?
Í dag er 20 stiga hiti og ég var niðri í bæ áðan og Svíar eru enn kappklæddir... Hvað er málið með þetta?
Valdi er búinn að vera í skólanum mánudag og þriðjudag en er núna kominn í hópverkefnavinnu hérna einn heima þar sem hópunum er skipt upp eftir löndum og Valdi er eini Íslendingurinn í bekknum.
Síðasta sunnudag fór ég í "intensive throwing" námskeið en það var keramiknámskeið frá 10-16 og maður gat tekið endalausan leir og hent mistökunum jafnóðum án þess að spá í að vikta eða verka leirinn.. Þetta var rosalega gaman en ég sat alveg í föst allan daginn án þess að fá mat eða pásur. Ég náði að gera 3 "bolla" og gerði svo 3 í viðbót í dag. Ég snyrti til bollana frá sl. sunnudegi í dag og geri svo höldur í næstu viku. Þetta er svo gaman.
Annars hef ég bara verið föst í tölvuvinnu í tengslum við vistfræðina og greinasafnið. Nú fer vistfræðin að líða undir lok en síðasta verkefninu var skilað í gær.
Valdi var að panta tíma fyrir bílinn á verkstæði því það er farinn hjöruliðskross og það virðist erfitt að fá varahluti hér í svona bíla og þeir eru ekki ódýrir en bíllinn fer inn á mánudaginn.
Annars er bara bongóblíða og við á leiðinni út í sólina
(EITT NÝTT SMÁALBÚM)
Bestu kveðjur heim í slydduna og rokið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.4.2008 | 19:34
Vladimír Pólskí heim frá Póllandi
Jæjja það hlaut að koma að því að kallinn kæmi heim.. En Valdi er búinn að vera í fimm daga í Póllandi nánar til tekið í Bialowieza þjóðgarðinum. Þetta var síðasta langaferðin hans en nú eru bara dagsferðir eftir.. Sem betur fer... Þessi þjóðgarður er langstærsti náttúrulegur skógur á láglendi í Evrópu og þarna eru heimkynni Evrópuvísundarins sem er stærsta landspendýr í Evrópu.
Ferðin var mjög skemmtileg í alla staði en hópurinn dvaldi á fínu gistiheimili rétt fyrir utan þjóðgarðinn í litlu þorpi. Skógurinn var alveg svakalegur en þetta eru stærstu tré sem Valdi hefur nokkurn tíman séð. Það var áhugavert að koma að skóginum því úr fjarska sást greinilega hvernig skógurinn er lagskiptur. Í útjaðrinum er birki og elri ríkjandi og þær eru töluvert lægri en aðrar tegundir þarna. Síðan koma aðrar tegundir lauftrjáa og grenið stendur svo upp úr og trónir yfir allt. Grenið er hátt í 60 metrar. Skógurinn var friðaður á sínum tíma fyrir skógarhöggi því þetta voru veiðilendur konunga og keisara en það var aðallega vísundurinn sem þeir vildu vernda til að veiða. Meðalstórt karldýr er um 900 kíló og má því maula á einum vísundi í ansi langan tíma.
Dýralíf er mjög fjölbreytt í skóginum og þar finnast sjaldgæfar tegundir fugla og dýra. Hópurinn fór í einskonar dýragarð þar sem sjá mátti stærstu spendýrin sem lifa í skóginum, td. gaupur, hirti, úlfa og vísunda. Þau fóru einnig í fuglaskoðun en sáu fáa fugla en heyrðu þó í mörgum meðal annars tveim gerðum af spætum. Þau sáu svo hrafnshreiður hátt í trjákrónu. Á leiðinni á hótelið sáu þau ekta stork á skorsteini en Valdi náði fínni mynd af storkinum í hreiðrinu (SJÁ ALBÚM).
Í þjóðgarðinum var glæný gestastofa/fræðslumiðstöð og þar fór hópurinn og sá sýningu um lífríki garðsins með leiðsögumanni. Þar mátti sjá allar helstu dýrategundirnar uppstoppaðar og útstillingu á plöntum og skordýrum. Þar keypti Valdi mjög fallega myndabók um þjóðgarðinn.
Síðasta kvöldið var svo grillað saman á tjaldstæði í þjóðgarðinum sem var rétt hjá landamærum Hvíta-Rússlands. Kvöldið var skemmtilegt og veðrið var frábært þetta kvöld og allan tíman en það var sól og blíða. Þetta var besta og áhugaverðasta fræðsluferðin sem Valdi hefur farið í á þessu ári.
Mín vika hefur farið í tölvuvinnu en hápunkturinn var að hitta Rabba, Hlyn, Sigga, Lilju og Örnu Dögg á veitingastað niðri í bæ og drekka "nokkra" bjóra.. Þetta kvöld var mjög skemmtilegt og ég held ég hafi fengið harðsperrur í kinnarnar eftir hláturrokurnar enda hlógum við út í eitt allt kvöldið... Frábært að hitta þetta lið og vonandi gerist það aftur fyrir brottför...
(TVÖ NÝ ALBÚM)
Gleðilegt sumar frá Malmö (í 15 stiga hita)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2008 | 16:34
Sólarvörn takk...
Já hér er aldeilis að koma sumar.. Sólin skín þvílíkt að ég var að kafna áðan úti í Kirseberggarðinum og það er kominn tími á sólarvörn fyrir rauðhausinn....
Þessa dagana er ég bara föst í tölvunni í vistfræðinni og Greinasafninu til skiptis. Það er í raun mjög gaman en alveg ofboðslega finnst mér Greinasafnið ganga hægt hjá mér.. ég veit ekki af hverju en þetta bara tekur svona svakalegan tíma ef vel á að vera...
Í morgun fór ég í keramiktíma en ég er farin að efast mjög um hæfileika mína á þessu sviði en allt gekk á afturfótunum í morgun. Leirklessan mín vildi ekki miðjusetja sig á rennibekkinn og það var sama hvað ég reyndi, klessan bara sveiflaðist til og frá í allar áttir.. Arrrggg.... En eftir smá leiðbeiningar og upprifjun frá kennaranum þá náði ég tækninni aftur í bili allavega... Ég er bara að æfa mig á bekknum og hendi öllu sem ég geri núna... Ég hef nú líklega ekki efni á því að gera grín að verkum annarra nemenda en konurnar virðast hirða allt sem þær gera og láta brenna, alveg sama hvað það er skakkt og skælt.. Ein mætti í dag með jólapiparkökumótin sín og var að gera leirkalla og hesta (eða var það grís).. Ég verð að segja að þetta er svolítið eins og að mála eftir númerum.... Þær eiga það líka til að fá kennarann til að sýna sér eitthvað og jú Jóhann gerir fína skál og sýnir þeim tæknina og um leið og hann er kominn fyrir hornið þá er hlaupið með skálina í brennsluhilluna.... HALLÓ...
Valdi átti fínan dag í Póllandi en hann er í Bialowíeza þjóðgarðinum. Í morgun hjóluðu þau á svæði innan þjóðgarðsins sem er með sérstaklega strangri friðun. Þar voru þau í dag að labba um og skoða, fugla, gróður, tré og dýralíf auk þess sem þau hlýddu á fyrirlestur úti í skógi. Hótelið sem þau eru á er alveg ágætt en bara sumar tölvur vilja nettengjast og tölvan hans Valda er ein af þeim sem er í mótþróakasti þannig að myndir frá Póllandi koma inn um næstu helgi.
Í fyrramálið þurfa þau að vakna um fimm leytið því þau ætla í fuglaskoðun eldsnemma að skoða "woodpeckers" og aðra furðufugla þarna á svæðinu...
Jæjja best að henda kínarúllunum inn í ofn... Desperat housvifes í kvöld... svo ég held ég taki bara sófakvöld með prjónana..
Bestu kveðjur frá Malmö (og Póllandi)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2008 | 20:21
Langur labbitúr og vondar pizzur..
BRYNHILDUR ÞÓREY ER EINS ÁRS Í DAG.. TIL HAMINGJU....
Í gær fórum við í langan göngutúr yfir í Bulltoftagarðinn.. Við höfum komist að því að Svíar eru snillingar í að viðhalda grænum svæðum í borginni og tengja þau saman mill bæjarhluta. Hægt er að ganga á grænum svæðum langar leiðir hér í borg. Við gengum að Kirseberggarðinum okkar og þaðan yfir á grænt svæði milli íbúðabyggða en þar mátti finna fallega göngustíga, tennisvelli og fótboltavöll. Þaðan komumst við svo undir hraðbrautina og yfir í Bulltoftagarðinn sem er við hliðina á IKEA, umvafinn íbúðabyggð en er mjög stór og fjölbreyttur. Þarna eru tennisvellir, fótboltavellir, tjarnir, trjásýnisafn, líkamsræktarstöð, mínígólf, trimmbrautir og frisbívöllur svo eitthvað sé nefnt. Hrein paradís í miðri borg. Trjágróðurinn þarna er stórkostlegur en þarna má sjá aspir, lerki, hrossakastaníu og margt fleira. Svo röltum við okkur til baka og ég held að við höfum allavega gengið um 10 km í gær.
Í gærkvöldi átti að vera kósíkvöld með pizzum en ég get svo svarið það að pizzurnar voru ofboðslega vondar.. Ég var alveg miður mín enda held ég að ég geri frekar góðar pizzur að öllu jöfnu... Nú verður pizzaofninum pakkað niður og hann fer heim með fyrstu ferð..
Sunnudagurinn fór í tölvuvinnu hjá okkur báðum. Við röltum okkur út í Kirseberggarðinn og löbbuðum 5 km. Við ákváðum að gefa restinni af pizzunum frá í gær séns til að spara pening og viti menn þær voru mun betri upphitaðar.. (en ofninn fer samt heim... )
Þetta var sem sagt róleg og næs helgi hjá okkur en nú fer Valdi til Póllands á morgun og þá verð ég ein alla vikuna en Valdi kemur svó á föstudaginn. Valdi er að fara í þjóðgarð í Póllandi sem heitir Bialowíeza.
(NÝTT ALBÚM)
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar