Ljúf helgi

Við tókum því nú bara rólega yfir helgina.. Nenntum ekki að hafa áhyggjur af neinu enda lítið hægt að gera um helgi. Á laugardaginn þá fór Valdi í rúning og lítur núna sómasamlega út fyrir fyrsta skóladaginn. Við fórum í Ikea og Sopstation (Góði hirðirinn) og vorum bara að dóla okkur.. Ég er alveg að fíla Sopstation. Ég fann fallegt gamalt trog fyrir 2000 kr sem færi vel undir lopann minn en ég verð víst að hemja mig því við getum ekki flutt endalaust dót heim. En ég keypti lítinn bakka í stíl við aðra sem ég á heima fyrir 50 kall.  Fann tvær glerskálar, stærri og minni, og ég gerði þau mistök að hugsa mig um og þá var sú stærri farin... Darn... Æi mig vantaði ekki skálar hvort sem var..

Restin af deginum fór nú bara í að prjóna rósaleppaprjónið mitt og sofna í sófanum... Um kvöldið fórum við á Pöbb með Lilju og Vagga sem var rosalega næs.. Ágætt að sitja úti og sötra rauðvín og spjalla..

Á sunnudeginum þá fórum við á Lomma markaðinn sem er markaður sem Lions heldur í Lomma commune. Það var ótrúlega fyndið. Þvílíkt magn af drasli, góðu og gagnslausu. Húsgögnin voru flott sum. Valdi fann skenk sem okkur dauðlangaði að kaupa en þar sem við erum nánast heimilislaus þessa dagana þá ákváðum við að vera skynsöm og sleppa skenknum.. En hann kostaði samt nánast ekki neitt.. Ég sá líka eintak af Clariol (hét það ekki Clariol eða var það Clarins?) fótanuddtæki.. Ó my god... ég hef ekki séð svoleiðis í hundrað ár...

Ég ætla að stússast í húsnæðisvandamálunum okkar á morgun. Ég held að ég eigi ekki að mæta í skólann.. Heimasíða skólans er að mestu á dönsku þó kúrsarnir eigi að vera á ensku. Upplýsingarnar sem ég fæ eru alveg hægri og vinstri, út og suður.. Ég allavega held ég eigi ekki að byrja fyrr en á þriðjudag... Auk þess þá sýnist mér að sveppakúrsinn sem ég er að fara í henti mér ekki sem þýðir að ég er í einu fagi til áramóta... Hummmm hvernig það fer með námslánin vil ég ekki hugsa um....

Jæjja best að fara snemma að sofa... fyrsti skóladagur Valda á morgun..

Kveðjur frá Malmö


Þreyttur dagur

Ó sumir dagar eru bara ekki að virka...

Við vöknuðum í morgun og ætluðum að þrífa okkur í gegnum restina af íbúðinni (fyrir utan eldhús) og þegar ég var byrjuð á fullu þá rákum við augun í miða frá leigusalanum sem hafði komið hér inn til að sækja póstinn sinn (hummmmmmm.....) Þá var hann að rukka okkur fyrir internet og rafmagn sem átti að vera innifalið... NÚ ER KOMIÐ NÓG... Við bara nennum ekki að standa í þessu lengur að hafa leigusala sem skilur ekki bofs í ensku... Loksins þegar íbúðin er að verða alveg frábær... Svo ég labbaði mig niður í búðina hans og reyndi að tala við hann en hann var upptekinn og ætlaði að koma klukkan sjö.. Sem og hann gerði og við náðum nú einhverri lendingu en bara til að gefa okkur tíma til að finna aðra íbúð.. Já líklega endum við með að fara héðan út eftir mánuð eða tvo... Glatað... En við bara nennum þessu ekki lengu.. Gaurinn er með lykil sem hann notar hér inn og út og um við höfum nokkrum sinnum mætt konunni hans með fullt af drasli sem hún hefur sótt hingað... Fínt að losna við draslið ennnnnn..... common.....

Þannig að við erum byrjuð að leita að öðru húsnæði. Kemur betur í ljós á mánudaginn hvernig þetta fer.  Við skruppum bara í bíltúr til Rakel og guttanna og skiluðum vindsænginni sem við fengum lánaða fyrstu  nóttina hér. Við keyptum handa henni rafmagnspumpu þar sem Valdi var í tvo tíma eins og físibelgur að blása þetta upp!!! Síðan bara fórum við á rúntinn og svo heim að klára stofuna sem er orðin svo rosalega fín. Vaggi og Lilja ætluðu að hitta okkur um kvöldið til að fara á flugeldasýningu í tilefni af lokadegi Malmö festival en nýja sænska númerið þeirra virkaði ekki svo við náðum ekki saman það kvöldið.. Við Valdi fórum þá bara ein á röltið sem var ljúft, fullt af fólki og mikil stemning. Einhverjir brjálaðir tónleikar í gangi á Stóra torgi en við fórum á veitingastað á Litla-torgi sem að mínu áliti var ömurlegur en Valdi fékk frábæra nautasteik og ég fékk svínakjöt sem var "cooked to death"... sum sé algerlega ofsteikt og ca 1 skeið af sósu með og disk af hráum frönskum... EKKI að gera sig... á leiðinni heim kom ég við á Burger King og fékk mér borgara enda var ég sársvöng... Rétt áður en við komum í götuna okkar þá ákváðum við að prófa hverfisbarinn og fengum okkur einn bjór og sátum úti í ljúfu veðri en hins vegar var mikil truflun af hjónabandserfiðleikum rússnesks pars sem sat fyrir aftan okkur... konan var gargandi og kallinn hljóp alltaf heim yfir götuna og kom aftur... Drama, drama, drama... En jæjja við erum allavega búin að prófa hverfispöbbinn..

Og svona bara til að angra annars tæpa geðheilsu mína þessa dagana þá vilja fartölvurnar mínar tvær hvorug tengjast netinu hérna... Veit ekki hvort ég nenni að gera neitt í því fyrr en í nýrri íbúð.. vinn bara á tölvunni hans Vald á meðan.. Annars virðast vera álög á mér með húsnæðismál erlendis. Þegar ég flutti til USA þá kom skólinn mér í samband við konu frá Arizona sem var að byrja í skólanum og ætlaði að leigja hús og vildi leigja herbergi út frá sér... Eftir að hafa beðið eftir henni í 3 daga á hóteli í Denver þá hitti ég hana fyrsta skóladaginn.. Ég eins og asni með tvær stórar ferðatöskur í skólanum. Ég fór svo með henni heim og kom mér fyrir í fínu herbergi og allt leit vel út þar til ég lagði höfuðið á koddann... Þá bankaði hún á hurðina og sagðist vera hætt við að fara í skólann og ætlaði að flytja aftur til Arizona.. Úpps... Ég aftur í skólann með ferðatöskurnar daginn eftir... Og húsnæðislaus... En það reddaðist reyndar ljómandi vel þann daginn svo ég vona að þetta leysist allt hjá okkur Valda með tíð og tíma..

Jæjja lítum á björtu hliðarnar... Þetta getur bara batnað..

Kveðjur frá Malmö


NÝ MYNDAALBÚM..

Jæjja loksins eru komnar inn myndir... ATH: Tvö albúm..

Kveðjur


Frábær dagur í Köben

Í dag þrifum við ekkert í íbúðinni... Fórum upp í Alnarp þar sem Valdi er í skóla og könnuðum aðstæður og heilsuðum upp á Deseríe sem er tengillinn hans Valda þar. Skólinn hans og skólasvæðið er svo fallegt og sjarmerandi. Þetta lítur allt svo vel út og hann tilheyrir líka hópi fólks sem byrjar í sama námi á sama tíma.. Ég er hins vegar lost í Kaupmannahafnarháskóla sem er svakalegt batterí...

Síðan löbbuðum við niður á Central Station hér í Malmö, við vorum að æfa leiðina fyrir mig svo ég rati örugglega þegar ég fer í skólann næsta mánudag. Við tókum lestina yfir sem var fokdýrt en ég fæ vonandi stúdentaafslátt og kaupi þá mánaðarkort sem kostar 11.000 kr. Lestarferðin tekur 40 mínútur ca og var bara ljúf.. Afgreiðslukonan hafði reyndar sagt okkur að við yrðum að fara út á Kastrup og taka strætó því þar væri bilun svo við stukkum út en spurðum samt lestarvörðinn sem hló að okkur og sagði okkur að drífa okkur aftur inn.. Engin bilun þarna.. púff.. Við fórum svo eftir leiðbeiningum Hlyns með að taka strætó 2A og fórum út á að því er við héldum réttum stað en fórum beint á næsta resturant og fengum okkur að borða, hringdum í Hlyn sem kom með Rabba sem er líka í KU og býr með Hlyn. Þeir ætluðu sko að sýna mér skólann en við héldum að við værum á sama stað en þegar að var gáð þá var ég á allt öðrum stað í Köben... Strákarnir fylgdu okkur bara í lestina og við fórum á Nörreport sem var næst skólanum eða skólasvæðinu. Þar fundum við International office í Fjólugötu en skrifstofan er staðsett við hliðina á 12 tónum.. Snilld.. en við áttum einmitt erindi þangað.. Við fengum góða þjónustu á skrifstofunni en þar sagði konan mér að hin skrifstofan sem ég ætti að fara á væri lokuð þar til á morgun. Við fórum samt til að tékka hvar hún væri og löbbuðum hringinn í kring bara því það var fallegur garður þarna.. En þá labbar einhver út um hurðina svo við kíktum inn.. Jú viti menn galopið og þar fékk ég lausn allra mála svo gott sem. Búin að skrá mig í rétta kúrsa og svo fundum við út hvar ég ætti að mæta á mánudaginn og fundum þann stað.. Snilld.. En ég er orðin svolítið þreytt á því að fá vitlausar leiðbeiningar..

Eftir þetta þá bara ákváðum við að breytast í túrista og gengum niður "Strikið" úpps kom reyndar í ljós að þetta var ekki Strikið, settumst svo á Amagertorg og fengum okkur vatn og bjór.. Löbbuðum svo upp alvöru Strikið sem var bara næs.. Allt morandi í Íslendingum.. Á leiðinni að brautarstöðinni þá ákváðum við að skella okkur í Tívolíið.. Þar var mikil stemning við bara gengum um og geymum það til betri tíma að fara í tækin en þetta var ljómandi næs.. Fórum svo á veitingastað og fengum okkur rifjasteik þar sem við þurftum að vera með plastsvuntur til að subba okkur ekki út.. Ummmm þetta var svo gott... Við vorum líka verulega subbulega að máltíð lokinni en það fylgdu líka blautar tuskur til að þrífa okkur.. Við nánast ultum út af staðnum við vorum svo södd... Þá tókum við lestina til Malmö og mældum tímann sem tók að labba frá brautarstöðinni og heim.. 25 mínútur... ágætis ganga. Þegar heim var komið var bara legið í leti og á netinu... Ég er hálf bækluð eftir allt þetta labb og alveg gengin upp að hnjám eða jafnvel lærum... Við verðum bara duglegri að þrífa á morgun..

Kveðjur frá Malmö


Malmö Festival

Jæjja við erum enn á kafi í þrifum.. En þetta er allt að koma... Á hverjum degi förum við í Góða hirðin og Ikea... Við algerlega lekum út peningum þessa dagana sem er grátlegt... En kaupum allt það ódýrasta og eigum eftir að kaupa mikið í Góða hirðinum sem er mjög ódýr...

Í gær kíktu Lilja og Vagn til okkar en þau búa þessa dagana bara einni götu frá okkur. Við röltum okkur niður í bæ og kíktum á Malmö Festival og stemningin var eins og á menningarnótt, tónleikar og allskonar uppákomur tívólí og læti, og auðvitað frábært veður. Við fórum á ítalskan veitingastað sem var bara næs og síðan á Írskan bar. Komum svo snemma heim og héldum áfram að taka til.

Hins vegar er alveg fáránlegt að við rákumst á Rakel og guttana í Ikea og svo Lilju og Vagga á götuhorni... Common.. við þekkjum þrjá aðila í Malmö og við hittum þau öll á förnum vegi sama daginn..

Jæjja við lofum að setja inn myndir bráðum en þær safnast bara fyrir í tölvunni hjá okkur. Skrifstofan okkar er að smella í lag en Valdi var að klára að skrúfa saman stólinn minn og nú á bara eftir að koma á nettengingu í herberginu en tölvan mín hefur ekkert sérstaklega verið að virka í netsambandi...

PS. Geðheilsan hjá Valda er að skána en hann þolir ekki hitann og ég er víst að gera hann alveg geðveikann á þessum þrifum og innkaupum.... úpps...  Annars er hann duglegur að skrúfa saman húsgögn því hann þarf ekki að skrúbba og skúra á meðan hehe...

Kveðjur frá Malmö


Ikea, Rúmfatalagerinn(Jysk) og Góði hirðirinn...

Jæjja við erum sum sé þessa dagana á fullu í að þrífa okkur í gegnum ógeðslega skítuga íbúð... Ég er eiginlega svo fegin að kallinn tók rúmið og meira dót því það er allt svo ógeðslegt hérna... Við versluðum í Ikea í gær fyrir heilar 50 þúsund krónur og þar af var æðislegt rúm... Ummmmm sváfum í okkar eigin rúmi í nótt í hreinu herbergi með nýrri kommóðu og fatahengi... Ég er svo gott sem búin að skúra mig út úr baðherberginu sem er að verða rosalega fínt.. Það ótrúlega er að baðkarið, vaskurinn og klósetið voru bara nokkuð mikið þrifaleg og sturtan svínvirkar með rosalegum krafti ólíkt á Hvanneyri þannig að það skorar nú nokkur stig hjá mér... Annars vorum við svolítið fyndin í gær þegar við komum frá IKEA, en við ætluðum sko ekki að borga 5000 íslenskar fyrir heimsendingu svo við bundum rúmið 140X200 á þakið á Hiluxinum... Fólk glápti á okkur eins og við værum fávitar... Vildi óska að ég hefði haft myndavélina mína... Ikea, Rúmfatalagerinn (Jysk) og Góði hirðirin eru öll í göngufjarlægð frá okkur. Góði hirðirinn hérna er alveg frábær. Risastórt rými með fullt af flottu dóti, því miður fundum við ekki rúm þar en það er margt sem við getum reddað okkur með þar... Valdi þurfti að draga mig út á hárinu mér fannst svo gaman að skoða þarna... Fer bara aftur á hans.. hehe.. Eldhúsið er enn bara lokað rými hjá okkur því við höfum ekki geð í okkur að fara þar inn strax... Matarleyfar og fullir skápar af ógeðslegu drasli... Við þurfum bara að fara að manna okkur upp í að tala við David (Leigusalann) því hann talar svo takmarkaða ensku að öll samtöl eru hrein steypa... Ég þarf að verða mér út um túlk til að taka með því ég ætla að fá hann til að fjarlægja miklu meira af þessu ógeðslega dóti.... Eins og áður segir þá er staðsetningin á íbúðinni frábær... Hér er allt til alls í göngufjarlægð og við löbbuðum á Central station í gær þaðan sem ég tek lestina til Köben og það var ca 10 mínútna labb í gegnum bæinn og mikið mannlíf... Hér er líka í gangi eitthvað festival svo það er stemning alls staðar. Í gærkvöldi fórum við út að borða á næs stað, maturinn var rosalega góður og við borguðum 3500 íslenskar fyrir 2 stórar máltíðir, tvö stór rauðvínsglös, kókglas og bjór. Hér er allt svo ódýrt.. Á veitingastaðnum þá sáum við tvo stráka með litla Pug hvolpa. Ó my god þeir voru svo sætir, SVO SÆTIR.... ég missti mig alveg...   Á leiðinni heim komum við svo við í Coop sem er matvöruverslun hér í mínútu fjarlægð. Við gengum um lengi og skoðuðum verðin. Eitt bréf af bacon fyrir 80 kr íslenskar sem hefði kostað 600 kr. heima... Og Ostarnir maður.. vá... þvílíkt úrval og þvílíkt verð... Ég sá gulmygluost sem ég keypti fyrir afmælið hans valda á 3500 kr heima á 400 kall hér... wowww..... Hér er alveg hægt að hlaupa í spik meira en nú þegar er orðið eftir kyrrsetuvinnu sl. tvö sumur...

Jæjja látum þetta gott heita í bili... Verðum að halda áfram að vinna okkur í gegnum íbúðina.. Ég hef ekki haft tíma til að setja inn myndir en það gerist vonandi um helgina...

kveðjur frá Malmö


Komin til Malmo

Jæjjaþá erum við komin til Malmo..

Ferðalagið var stórskemmtilegt. Eftir "létt" kveðjuhóf hjá Benna og Höllu kvöldið áður en við fórum út þá var lagt af stað á Seyðisfjörð klukkan níu um morguninn.. Við tók tveggja og hálfs tíma bið í bílaröð fyrir utan Norrænu sem var frekar boring... Svo máttum við Valdi ekki fara saman um borð því það mátti bara einn bílstjóri fylgja bílnum...  glatað... En jæjja loksins fundum við hvort annað inni á herbergi og fórum að rúnta um skipið... Þetta er nú meiri hallærisdallurinn.... "Shopping area" samanstendur af einni búð sem er opin og lokuð á asnalegum tímum.. Gangarnir voru fullir af ferðafólki sem gisti ódýrasta dekkið og kom sér fyrir alls staðar annars staðar... Ég er búin að fatta nýja tegund af fólki sem heitir "Táfýlufólkið" það er fólk sem ferðast ódýrt og TEKUR allt sem það kemst yfir til að græða... Þetta hefur ekkert með það að gera að ferðast ódýrt sem er bara skynsamlegt og ekkert annað... þetta er þegar fólk fer yfir línuna með það að ferðast ódýrt.. Það var heil fjölskylda búin að koma sér fyrir á 8. dekki með svefnpoka, prímus og matargræjur og búið að smala saman sólstólum til að búa til skjól.. Þarna grilluðu þau mat og sváfu... Þrátt fyrir að alls staðar stæði stórum, skýrum stöfum að þetta mætti ekki... Ég kynntist svona fólki í gegnum landvörsluna og það er frekar pirrandi. Einnig er þetta fólkið sem fer úr fjallgönguskóm sem það hefur verið í í 3 daga innan um annað fólk.. Jukk....

Jæjja við fórum bara snemma að sofa fyrsta kvöldið, það var mikill veltingur á skipinu og orðið erfitt að labba og halda glösum eða dóti á borðum... Íha.. mér fannst þetta ljómandi gaman... Daginn eftir vöknuðum við eldsnemma til að kíkja á Færeyjar... Það var gaman að fylgjast með þegar siglt var inn og ég tók nokkrar myndir af Þórshöfn... Rosalega krúttlegur bær... Svo bara fórum við aftur að sofa... Restinni af deginum eyddum við á Viking club með prjóna og kaffi... Rosa næs og afslappandi að sitja svona í lyftutónlist og algerum heiladauða... Síðdegis kynntumst við íslenskum strákum sem voru að fara í nám, allavega tveir þeirra.  Ég er loksins búin að ná rósaleppaprjóninu sem er heldur snúið en ég er búin að ná tækninni sem er mikil hamingja. Svo varvar stoppað í Hjaltlandseyjum sem við Valdi köllum Pony Island (Shetland pony, smáhestur) Ég tók upp símann og bjallaði í Fríðu landvörð sem hafði unnið með mér eitt sumar fyrir tveim árum í Skaftafelli.. Hún nefnilega lenti í því að verða eftir á Hjaltlandseyjum og þurfa að dveljast þar í heila viku með Kærastanum sínum... Það var víst lítið um að vera nema "Go down to the harbor ".... Ég bara varð að bjalla í hana hehe... Um kvöldið hittum við drengina aftur sem við kynntumst fyrrr um daginn.  Við sátum með þeim á Víking Club um kvöldið þar sem hallærislegasta hljómsveit í heimi var að spila.. Þeir lögðust reyndar í létt fjárhættuspil "21" en komu út á sléttu eftir að hafa spilað allt kvöldið.. gott hjá þeim... Við Valdi hins vegar drifum okkur temmilega snemma að sofa.. Við komum svo ekki til Hanstholm fyrr en 18:30 og það tók einn og hálfan tíma að komast út úr skipinu svo logsins lögðum við af stað... Fundum svo hótel eins og fyrr segir...

Við erum núna komin til Malmö. Íbúðin er á frábærum stað og stór. En þar enda líka kostirnir.. Megnið af húsgögnunum tók kallinn með sér nema sófasettið í stofunni sem er ógeðslega skítugt. Þrifnaðurinn hjá konunni hans er brandari enda skildi hún skúringavatnið eftir í fötunni og allskonar drasl í skápum... Við erum svona að vinna okkur í gegnum íbúðina í þrifum... Þvílíkur skítur og guði sé lof fyrir leysigeislann sem ég tók með að heiman, hér hefur ekki verið þrifið almennilega í 12 ár síðan þau fluttu inn.. En með talsvert miklum þrifum og innkaupum í Góða Hirðinum, Jysk (rúmfatalagerinn) og Ikea þá er nú alveg hægt að gera þetta vel búsetuhæft. Það kom síðan í ljós sem betur fer að Valdi byrjar ekki í skólanum fyrr en næsta mánudag. Þannig að við höfum heila viku til að gera þetta búsetu hæft og kaupa húsgögn.. Vá hvað ég var glöð að þurfa ekki að gera þetta ein... Ég er orðin svolítið leið á því að skúra mig út úr húsum og íbúðum undanfarna daga... Gersamlega búin að fá nóg... Jæjja nú er best að fara að vekja Valda til að fara í Góað hirðirinn... Og hefja massaþrif..

Kveðjur frá Malmö


Komin til Danmerkur

Jæjja þetta verður stutt. Við vildum bara láta vita að við værum komin í Danaveldi og erum á ágætis hóteli rétt fyrir utan hraðbrautina á leiðinni í gegnum Danmörku. Fórum bara á hótel klukkan 23.00 enda orðið frekar þreytandi að keyra hraðbrautina í myrkri. Ferðalagið með Norrænu var ljómandi skemmtilegt sérstaklega ef maður hefur gaman af lyftutónlist og bingói... en það verður nánari ferðasaga með myndum á morgun eða hinn...

Kveðjur frá Vejle

Guðrún og Valdi


Ekkert netsamband á Norrænu...

Ó my god... Ekkert netsamband á Norrænu.. Hvað gera bændur þá? Jú njóta þess að slaka á...

Pökkun gengur hægt og sígandi.. Ég er búin að ná sambandi við David út af íbúðinni og það eina sem hann sagði var ca 20 sinnum  "Lúkking forward to seeing jú.." Ég held samt að hann hafi skilið að við værum að koma á sunnudaginn... Vonandi allavega...  Hann er þá allavega ekki stunginn af úr landi held ég...

Takk fyrir öll kommentin.. Lofa að setja inn eitthvað á sunnudaginn...


Hverafuglar og fleira...

Jæjja þá er síðasti dagurinn á Egilsstöðum runninn upp... Í stað þess að pakka og þrífa íbúðina eins og geðsjúklingur þá er ég bara að chilla á kaffihúsi.. íha... Hér fæst besta Sviss Mokka sem ég hef fengið... Annars standa bara miklar útréttingar fyrir dyrum.. pósthús, banki, tryggingamál og fleira. Ég er líka að ná í David sem leigir okkur íbúðina úti. Smá skerí að það kemur bara símsvari á sænsku hjá honum svo ég skil ekki bofs... Ég er farin að rifja upp ýmsar skerí sögur um svik og pretti hehe.. Heyrði til dæmis af íslenskri hljómsveit á tour í USA sem var búin að panta rútu og skrifa undir tilheyrandi pappíra en svo var engin rúta og ekkert fyrirtæki.. úpps...

Ég lét verða af því í gær að kaupa tímaritið Náttúrufræðinginn 1. -47. árgang. Sum sé frá 1931 og upp úr... Vantar náttúrulega nýjustu.. Ó þetta tímarit er stórkostlegt... Alveg stórkostlegt.. Ég ætlaði nú ekki að tíma þessu enda kostaði bunkinn um 28 þúsund krónur en mig hefur dreymt um að eignast Náttúrufræðinginn lengi og þar sem ég fékk Blikastaðastyrkinn þá hef ég ákveðið að smá hluti af honum (sem er ekki farinn nú þegar) megi fara í bókakaup.. Ég hringdi í Braga fornbókakaupmann á Klapparstígnum og fékk það staðfest að þetta væri "Kristilegt verð" eins og hann orðaði það.. Ekki of hátt og ekki of lágt.. Svo lá ég bara yfir blöðunum í gærkvöldi í stað þess að pakka... Rakst á ýmsar fróðlegar greinar meðal annars þar sem kenningin um Hverafuglana er afsönnuð. Hverafuglar eru sum sé fuglar sem geta synt á hverum í sjóðandi vatni svo hefur eitthvað spunnist upp á söguna og sagt var að ekki væri hægt að sjóða fuglana nema í köldu vatni.  En ég las grein um kennara sem fór með fjölskyldu sinni að hver og var að vonast til að sjá hverafuglana.. Jú viti menn þarna syntu þeir um í búblandi vatninu.. allir flugu burtu nema einn sem kom í ljós að væri urtönd. En við nánari athugun þá var vatnið einungis um 37-38 gráðu heitt og það sem menn héldu að væri suða voru bara loftbólur.. Dö.. þar fór góð saga... Svo var önnur grein sem afsannaði kenninguna um Lagarfljótsorminn... En best að eyðileggja ekki fleiri góðar sögur... En allavega þá eru nokkrar mjög áhugaverðar greinar fyrir mig í grasafræðinni. Hrein snilld.

Jæjja nú skelli ég inn myndum af Jakobi í nýju peysunni.. Mér fannst hann rosalegur gæi í þessu... Vona að honum finnist það líka enda er ég búin að hafa mikið fyrir þessari peysu. Hún átti að vera svo einföld en þá var þetta munsturprjón sem ég er ekkert rosalega sleip í en ég æfðist þó allavega í því fyrir vikið. Nú ætla ég að fara að kaupa lopa til að prjóna á Sunnu og Lindu og kannski hundinn líka hana Freyju... Sjáum til..

Jæjja næsta færsla verður líklega um borð í bátnum eða í Svíþjóð...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband