6.9.2007 | 20:19
Lundardagur...
Til hamingju með daginn Sunna Mjöll!
25 dagar í nýja íbúð..
SÍMARNIR OKKAR Í SVÍÞJÓÐ: Valdi: 00 46 702574109 og Guðrún: 00 46 702579429.
Gaman að sjá athugasemdir frá öllum.. Ný nöfn að birtast annað slagið og gaman að því.. Einnig hafa tvisvar einhverjir sem við þekkjum ekki skrifað athugasemd sem mér finnst hrein snilld.. Hins vegar heyrist mér að þetta sé eitthvað maus að skrifa þessar athugasemdir.. Þarf að staðfesta í meili? Það er flókið... Vona að fólk hafi meiri þolinmæði en ég í svona málum.
Dagurinn hófst klukkan 7.00 hjá mér til að setja í þvottavélina.. Ég átti herbergið pantað frá 7.00 til 12.00. Hins vegar var enginn annar með bókað svo ég setti bara í fjórar vélar alveg á línuna.. Snilld.. Síðan hafði ég þurrkaðstöðuna líka alveg út af fyrir mig.. Ekki tókst mér að festa svefn aftur svo ég fór í tölvustúss til hádegis.
Valdi ákvað að mæta ekki í skólann í dag þar sem það var bara eitthvað svona nýnemakynningarjukk.. Ég hins vegar átti frí og ætlaði nú heldur betur að læra.. En nei.. Við Valdi ákváðum að slá þessu upp í kæruleysi og skjótast upp í Lund og skoða okkur um en við náðum ekki að sjá mikið þegar við vorum þarna um daginn. Við byrjuðum ferðina reyndar á að fara til Rakelar sem er í internetvandræðum sem er skelfilegt.. Maður er orðinn allt of háður þessu interneti og þá tala ég fyrir sjálfa mig. Ekki tókst okkur að hjálpa Rakel því miður. Síðan skruppum við til Hildar og Sigga en þau búa í yndislegu húsnæði í Lomma. Þar fengum við kaffi og konfekt.. Mikið næs.. Og loksins lögðum við af stað upp í Lund. Þar röltum við um og skoðuðum í antíkbúðir og skranbúðir og ég veit ekki hvað og hvað.. Mér tókst að komast aftur af svæðinu án þess að kaupa neitt nema smá súkkulaði.. Geri aðrir betur... Við skoðuðum Dómkirkjuna sem er allsvakalega stór og flott. Ég fékk mér ís þrátt fyrir að eiga að heita að vera í "mataraðhaldi" en ísinn þarna er bara svo góður, svona kúluís.. Síðan klikkaði ég líka endanlega þegar ég fann súkkulaðibúð sem seldi svona truffles.. Ummmmm svo gott.. Ætlum að gæða okkur á því á eftir. Æi ég labba bara hraðar á morgun... OK..
Þegar heim var komið þá fórum við út í búð og keyptum svínafile, stóran bita, sem kostaði bara 600 kr. íslenskar en þetta er svona kjöt sem myndi kosta örugglega 1800 kall á Íslandi.. Um þetta var svo ljúffengt..
Þegar ég var að hlusta á Ísland í bítið á Bylgjunni í morgun þá var verið að fjalla um Al Qaída hryðjuverkamennina sem voru handteknir í Danmörku. Þeir voru víst búnir að plana heljarins hryðjuverk á Norreport stöðinni sem ég fer alltaf á á háannatíma.. SKERÍ.... Mér hefur reyndar alltaf fundist svolítið krípí að vera að ferðast í lestunum á þessum stóru stöðvum og lestin stoppar á Kastrup sem er alþjóðaflugvöllur og auk þess fer hún yfir Eyrarsundsbrúna.... En jæjja það þýðir ekki að hafa áhyggjur af þessu...
Í kvöld sáum við broddgölt hér út um gluggann. Við hlupum út á svalir og sáum hann skjótast hér milli bílanna.. Alger dúlla...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2007 | 18:44
Experimentarium...
NÝTT MYNDAALBÚM!!
26 dagar í nýja íbúð.... En ég er svo spennt að ég er búin að halda í nokkra daga að það sé kominn 6. september.. Djísus.. tíminn ætlar aldrei að líða... Í gær fengu svo Lilja og Vaggi íbúð. Hrein silld.. Nú þurfum við ekki að hafa móral yfir að hafa yfirboðið þau með hina íbúðina.. Sjúkkitt...
Sko.. Siggi.. Ég er klósettsnobbuð... Ég læt bara ekki bjóða mér hvað sem er.. Ég þarf að vera heldur betur desperat til að fara á klósetið í lestinni....
Halla.. Já það var núakkúrat það sem ég gerði.. Ég sleppti kaffinu og pásaði í klst. á meðan við Hlynur röltum um Köben (og leituðum að hreinlegum salernum....) En ég er nærri klst. í lestinni!!!
Stefán.. ég bara veit ekki hvað vandamálið hefur verið.. Ég kann ekki að kommentera á okkar síðu sjálf svo ég vona bara að það gangi betur næst.. Jú tölvan kann líklega ekki að reikna það er málið.. PS. verðum að hittast í Köben.. Eða þið kíkið yfir í heimsókn þegar við erum komin í dísent íbúð...
Annar var þessi dagur ljómandi skemmtilegur.. Ég þurfti að ferðast í 2 tíma í morgun til að komast í Experimenterium sem er í Hellerup. Þar áttum við að vera í Sveppakúrsinum í dag. Experimenterium er frábær staður sem tekur á móti skólahópum og almenningi en þetta er svona vísindasafn sem er með allskonar "interactive" leik- og sýnitæki. Þú getur skoðað augasteininn þinn þenjast út og inn, kannað viðbragðsflýti þinn, þú getur reynt að sökkva skipi með því að setja mismunandi álag á það og fleira.. Allskonar eðlisfræði og efnafræði sett í samhengi fyrir börn og unglinga.. Hrein snilld.. Krakkar! (Sunna, Linda og Jakob) við förum sko þangað um jólin... Við vorum í allskonar prógrömmum í dag, aðallega að fylgjast með fræðslustarfi þeirra. Þetta var ljómandi gaman nema að ég er alveg búin að fá mig fullsadda af viðhorfi kennarans hans Úlricks þegar við erum í umræðuhópum um hvað við eigum að gera á Svampefest sem er eftir hálfan mánuð og verður haldin þarna í Experimentarium. Það er alveg sama hvað við komum með góðar hugmyndir hann slátrar þeim öllum.. Þetta er alveg innilega ekki hvetjandi til að koma með hugmyndir yfir höfuð...
Eftir óskaplega langa heimferð þar sem ég missti bæði af strætó og lest og svo var lestin sein þá komst ég loksins til Malmö og Valdi tók á móti mér á Central Station. Dagurinn hans Valda var hins vegar rólegur. Hann svaf yfir sig.. (vissi að ég hefði átt að bjalla í hann!!!) og svo eftir hádegið kláruðu þeir félagarnir Ulo (Eistlandi), Rokas (Litháen) og Valdi verkefni sem þeir eiga að flytja á afmælisdag Valda, það er að segja næsta mánudag. En verkefnið fjallar um Ösp í þeirra heimalöndum og nýtingu á henni.
Við Valdi röltum svo um miðborgina í ljúfu veðri en Valdi var búinn að kaupa sér Ecco skó og svo keypti ég mér ódýra hliðartösku. Við keyptum líka batterí í myndavélina okkar sem kostar heima 9000 kr en 3000 hér.. Það lá við að það gripi mig græðgi og ég keypti fleiri en ég held að það sé nú ekki ástæða til.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.9.2007 | 21:00
Íbúðaruppsögn
Valdi var í fríi í dag og notaði daginn til að fara á bókasafnið í Alnarp og læra. Síðdegis eftir skólalærdóminn þá var Valdi búinn að mæla sér mót við Sigga Þór til að fá aðstoð við að segja upp íbúðinni.. Þeir ætluðu tveir vígalegir í búðina til kallsins til að segja upp leigunni, en hann á skartgripabúð hér í hverfinu þar sem maður þarf að dingla til að komast inn og maður kemst ekki út fyrr en þeim þóknast að ýta á takka.. Smá skerí... En Siggi var nú aðallega hafður með til að koma í veg fyrir tungumálaörðugleika... En þegar þeir félagar lögðu af stað þá mættu þeir henni Lamiu hér á ganginu svo þeir bara sögðu henni þetta og hún tók því bara vel það er að segja ef hún hefur skilið þetta hehe... Jú jú.. þetta var víst skýrt og alveg á hreinu..
Ég fór í skólann snemma og átti erfiðan morgun þar sem kennarinn virðist ekki alveg vera að skilja enskuna mína hvað þá að geta talað hana sjálf.. Hún er öll af vilja gerð að hjálpa mér konan en henni tókst að afvegleiða mig svo í verklega hlutanum í morgun að ég var bara alveg strand til hádegis... Eftir hádegið var "havevandering" sem er alltaf skemmtileg út í Botanic gardens... Ég var orðin ansi þreytt þegar garðröltið var búið eftir nærri þrjá tíma en ég var með skólatöskuna á bakinu allan tímann með allar orðabækurnar og skólabækurnar... Eftir skóla var búin að mæla mér mót við Hlyn þar sem ég hafði keypt handa honum sænska möppu og gatara en þessar sænsku eru víst alveg sérlega góðar.... Við röltum aðeins á Strikinu og viti menn við hittum Snorra Sigurðsson, Unsteinn og Magnús frá Blikastaðasjóðnum. Það urðu fagnaðarfundir og mikið spjallað úti á götuhorni.. Þeir voru á leiðinni til Finnlands á einhverja bændabyggingaráðstefnu... Snilld...
Valdi sótti mig í lestina enda var ég alveg í spreng eftir að hafa drukkið tvo Guinnes... ALDREI að drekka neitt áður en ég fer í lestina.. ALDREI... En við Hlynur fórum á snilldar krá sem heitir Hvide vinstue minnir mig en þetta er sögufræg Íslendingakrá og var alveg ljómandi snyrtileg með mjög hreinlegum salernum...
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2007 | 17:17
Kerrukappreiðar, ný íbúð fundin og skrýtni sveppakúrsinn
Á sunnudeginum fóru Valdi og Vaggi á veðreiðar en þessa helgina var Derby-helgen í gangi. Þetta voru kerrukappreiðar á brokkurum. Mikill mannfjöldi var á vellinum en kappreiðavöllurinn er nánast inni í borginni. Stemningin var gríðarleg en hægt var að kaupa bjór og hamborgara á vellinum og sumir voru drukknari en aðrir. Menn veðjuðu grimmt og sumir grétu og aðrir hlógu að leik loknum. En Valdi og Vaggi lögðu nú ekkert undir í þetta sinn. Í úrslitahlaupinu þá ætlaði allt að verða vitlaust og menn görguðu og hvöttu sína hesta og minnti stemningin helst á landsleik í handbolta á ögurstundu . Þegar ljóst var hver hafði unnið þá fóru eigendur vinningshestanna hring á vellinum í opnum hestvagni. En þar á undan hafði verið heljarins verðlaunaafhending þar sem þeir fengu jakka og einhverja kostulega gripi. (Myndaalbúm fylgir þessu)
Við erum búin að finna íbúð!!!!!! Í Kirseberg hér rétt hjá. Það kom inn auglýsing á blocket.se í gærkvöldi svo ég sendi meil og hringdi svo eftir henni í dag. Þá sagði konan að það væru milljón manns búin að hringja og búið væri að bjóða 6500 í hana. Ég bara skaut út í loftið og bauð 7000 kr. gegn því að við fengjum að sjá hana strax. Það hittist þannig á að parið var í íbúðinn og við alveg rétt hjá svo við bara skutumst og þetta small allt saman. Þetta er ungt par sem ætlar að leigja út í vetur íbúðina sína sem þau eru að gera upp og þau tala fína ensku. Það verður allt hvítt og nýtt og nýjar innréttingar og hátt til lofts og næs... Við fáum hana 1. okt og ég tel dagana... En svo skömmu seinna þá kom í ljós að það voru Lilja og Vaggi sem höfðu boðið 6500 í íbúðina.. Úpps.. svo við vorum að yfirbjóða vini okkar hér í Malmö... Sem er náttúrulega heldur mikið skítt en ég vona bara að þau finni eitthvað við sitt hæfi sem fyrst. Annars fór Vaggi til Íslands í dag og verður allavega fram í október.. Það er fúlt.
Í dag fór ég í fyrsta tímann í Mycologíske feldtkúrs... En ég hafði eiginlega ekki hugmynd um hvað þessi kúrs fjallaði um. Jú eitthvað um sveppi... En þetta er sum sé kúrs sem kennir um sveppina og einnig hvernig á að miðla fræðslu til almennings á mannamáli. Við tökum td. þátt í Svampefest 2007 sem mér skilst að 11.000 manns komi á og svo erum við líka með stórt svæði í Botanic Gardens á Kulturnatte í Kaupmannahöfn, föstudagskvöldið 14. október þar sem verður horrorherbergi með slímsveppum og allskonar grín og fræðsla í gangi um sveppi. Þetta verður bara gaman hugsa ég. Síðan förum við í vikuferð til Soro í DK í lok kúrsins að skoða sveppi.
Jæjja ég þarf að fara að læra og Valdi er í grillveislu hjá skólanum.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.9.2007 | 22:07
Skemmtilegur túristadagur..
NÝTT MYNDAALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU...
Ó já .. Við ákváðum sum sé að verða túristar í dag.. Elín og Baldur komu snemma og Valdi hljóp út í búð og kepti nýbakað brauð og ég smurði Lúxus samlokur.. Loksins komumst við af stað eftir mikla smurningu, kaffi og internetkíkk. Vaggi og Lilja fóru að sækja systur hans Vagga Ragnhildi og og mannin hennar hann Valda og Hauk son þeirra Á Central Station, en þau búa í Kaupmannahöfn og ákvaðu að taka þátt í túristadeginum mikla. Ég og Valdi, Baldur og Elín og Rakel og guttarnir ákváðum að leggja af stað og hitta þau seinna.. Við hófum ferðina á að kíkja á gamla myllu sem er í Arlöv rétt hjá þar sem Rakel á heima. Myllan var frábær en auðvitað var hún lokuð í dag vegna einhvers.. Fúlt en við kíkjum bara aftur seinna. Hins vegar sáum við kindur og hænur sem vöktu athygli drengjanna.
Næsta stopp átti að vera Kungsmarken Nature Reserve en við gátum ekki fundið það almennilega í Garmin tækinu og ekki gekk að nota kortið til þess heldur.. Málið var að við vorum með kortið þar sem við X-uðum inn á staðina og Vaggi og Lilja voru með túristabókina þar sem staðirnir voru útlistaðir svo við vissum ekki alltaf alveg hvað var hvar.. hehe.. Við stoppuðum því í Lundi til að ná áttum og kaupa betri kort og slíkt. Lundur er yndislegur bær.. alveg yndislegur.. við röltum þarna um, urðum viðskila og villtumst smá.. En náðum loks saman og fengum okkur ís sem var frábær.. Ég var svo hrifin af Lundi að ég spurði afgreiðslustelpuna í ísbúðinni hve lengi tæki að taka lest til Malmö.. Jú jú bara 15 mínútur.. snilld.. Og hún var svo almennileg svo ég spurði hana bara áfram hvort það væri erfitt að fá húsnæði þarna.. Og hún sagðist sjálf vera að leita og það væri martröð. Hún mælti frekar með Malmö því þar átti víst að vera auðvelt að fá húsnæði.. Dö... Ég held nú ekki tilkynnti ég henni.. En ég sagði henni að mér þætti Lundur yndislegur bær og ég gæti alveg hugsað mér að búa þarna.. Jæjja eftir fínar leiðbeiningar frá Turistbyran þá fundum við Parkinn sem við ætluðum í.. En viti menn þetta var bara golfvöllur.. Dö.... Svo við héldum áfram á næsta áfangastað sem var Ystad Djurpark en þangað var 45 mínútna keyrsla og með aðstoð Garmin tækisins gekk sú ferð ljómandi.. Við keyrðum sveitavegi og skoðuðum sænska sveit og það var snilld.. Alger snilld.. landslagið er svona í bylgjum, tré og akrar og dýr á beit. Við sáum krúttlegustu hús í heimi á leiðinni. Ég lá í kortinu og skoðaði samgöngur til að vita hvort við gætum leigt þarna.. En nei.. samgöngurnar eru nú ekki að slá í gegn svona úti á landsbyggðinni.. Allavega ekki þegar maður ætlar alla leið til Köben..
Á leiðinni sáum við meðal annars Shetland pony sem er smáhestur.. Hann var feitur og pattaralegur.. Mér finnst alltaf jafn fyndið að sjá þessa hesta...
Þegar við komum í Djur parken þá voru allir orðnir mjög svangir svo við borðuðum nestið okkar. Af einhverri íslenskri hefð þá höfðu allir smurt of mikið svo nóg var til af ljúffengu nesti.. Kex og samlokur.. Elín og Baldur ákváðu að halda leið sinni áfram sjálf þar sem þau voru nýbúin að skoða svona dýrapark í DK en Vaggi, Lilja, Valdi, Ragnhildur og Haukur bættust í hópinn í staðinn.. Dýraparkurinn var FRÁBÆR... við vorum lengi að rölta um og strákarnir Hafþór, Siggi og Haukur nutu sín alveg í botn.. Þarna voru allskonar dýr.. Gamlar sænskar tegundir af húsdýrum og líka tegundir frá "langt í burtu löndum" eins og til dæmis Lamurarnir sem voru stórkostleg dýr með langt skott, frá Madagaskar. Það var hægt að taka prik og leika við þá og svo fóru þeir líka í sólbað þegar sólin braust fram úr skýjunum.. Þeir ruku allir til og fóru í jógastellingu og snéru hausnum á sér.. (sjá myndaalbúm) Það var alveg stórkostlega fyndið að sjá þetta. Hendurnar á þeim voru mjúkar og fæturnir líka (táslurnar) engar klær sá ég og útskýrir það líklega af hverju fólk fékk að fara svona nálægt þrátt fyrir að þeir væru að hamast í netinu.. Augun í þeim skærljósbrún.. alveg fyndin...
Síðan sáum við allskonar dýr td. Zebrahesta, Lamu, Nandu, Watussi, kengúrur, kanínur, míní-shetland-pony (ég meina ég hélt að Sh. pony væri sá minnsti og þá er til míní útgáfa.. common) og allskonar spennandi apa.. Hrein snilld. Þetta var vel skipulagður og yndislegur dýragarður. Vona að hann verði opinn í vetur þegar börnin koma...
Þegar dýragarðsferðin var búin þá fengum við okkur smá snarl aftur og héldum niður með ströndinni til að skoða Ales steinana sem eru steinar sem eru raðaðir upp í bátslaga form og eru frá um 600 árum ek. Þetta er líklega sólúr eða eitthvað slíkt.. Við gengum í gegnum smáþorp á leiðinin og sáum flott gufubað og flotta póstkassa en það virðist vera metnaður hjá fólki að skreyta póstkassana sína þarna.. Steinarnir voru flottir og litu út eins og neðri tanngómur í forsögulegri skepnu.. Síðan var haldið heim á leið eftir frábæran "Túristadag" í Suður Svíþjóð....
Þessa stundina er Valdi á hverfispöbbnum með Vagga en ég hafði ekki orku til að fara út úr húsi meir.. Enda ætla ég að ná góðum nætursvefni og vera dugleg að lesa grasafræðina mína á morgun..
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.8.2007 | 21:39
Rigningardagur og grillveisla..
Ó já Steinunn... Honum Valda er margt til lista lagt en það að meðhöndla tusku er ekki einn af hans sterku hæfileikum.. En hann hefur nú verið liðtækur í öðrum hlutum td. að skrúfa saman húsgögn og svo sér hann alfarið um keyrslu og ratvísi á meðan ég sit eins og prinsessa og humma mig í gegnum vitlausar beygjur....
Ó nei Siggi... Við hugsum þér ekki þeigjandi þörfina, síður en svo... Við erum enn 150% þakklát fyrir það stúss sem þú gerðir fyrir okkur.. Þessi skítur sem er í íbúðinni er vegna matseldar hjá þessum þjóðum og er nánast ósýnilegur þar til við nánari athugun.... En ég veit að allavega Írakarnir brasa mikið og borða feitan mat og þá verður allt svona fitugt og skíturinn verður svona "everlasting" þegar hann festist þar í... Og þetta er ósýnilegt við fyrstu sýn... Og svo vissum við líka alveg að það var nú slatti séns tekinn á þessu... En við vonuðum bara það besta... En við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir hér þar til annað finnst...
Annars byrjaði þessi dagur á því að ég mætti of snemma í skólann.. reif mig upp 6.50 til að mæta níu en átti þá að mæta 10:15!!!!... Á stundaskrá stóð 9.00 en svo við nánari athugun stóð í smáa letrinu 10.00 og svo sagði kennarinn að það væri 10:15 "sum sé 10 + 15 mín fyrir löglegar "seint" mínútur...... Common... Ég sat bara á skólatröppunum með kaffi og las Nyhedsavisen... BORING...
En síðan hófst dásamlegur tími í plöntuskoðun í Botanic gardens... Þetta er yndislegur garður með fullt af eldgömlum gróðurhúsum.. Hrein snilld... Þarna röltum við um með lúpurnar okkar og svona verða allir föstudagar á næstunni... Eftir tímann klukkan 12 þá skellti ég mér í strætó og leitaði að "bóksölu stúdenta" en ég var með frekar loðnar leiðbeiningar og henti mér út úr strætó í skyndingu þegar ég sá götuskiltið en ekki fann ég bóksöluna... Spurði þá ungan mann hvort hann vissi hvar hún væri og þá sagðist hann vera "lost" að leita að henni líka svo ég bara elti hann... Bóksalan var dásamleg.. ég hefði getað keypt upp heilan bókarekka þarna af blóma- og plöntulífeðlisfræðibókum.. Hrein snilld... En ég lét mér nægja tvær litlar orðabækur, bókina fyrir kúrsinn og eina aukabók um plöntulífeðlisfræði... Mér tókst að taka strætó áfallalaust til baka á Nörreport og skellti mér bara í lestina heim þar sem það mígrigndi í Köben... Valdi var ásamt Vagga og Lilju að hjálpa Rakel að koma restinni af búslóðinni sinni upp í íbúðina og síðan fóru þau í Coop Forum að versla fyrir grill sem var planað hjá Rakel um kvöldið... Ég aftur á móti kom mér bara upp í íbúð í mígandi rigningu og fór í algert þunglyndiskast þar sem enn og aftur hvorug talvanna minna vill nettengjast.. Nú er ég búin að ýta á svo marga takka að það er borin von að þær nettengist nokkurn tíman... Arrrrrgggggg...
Grillveislan um kvöldið var yndisleg... Maturinn var alveg frábær, grillaðar kjúklingabringur og svínakjöt með kartöflusalati og tilheyrandi... Fengum svo frábærann ís í desert. Guttarnir hennar Rakelar voru ljómandi þægir og alveg yndislega sætir... Restin af kvöldinu fór í að liggja yfir kortum og túristabæklingum þar sem við ætlum í dagsferð um Suður-Svíþjóð á morgun en Baldur og Elín eru að koma í heimsókn..
Hér sé stuð.. Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2007 | 20:04
Skúra, skrúbba, bóna....
Dagurinn hjá mér fór í að klára eldhúsið... Náði nú eiginlega ekki alveg að klára en nóg til þess að við gátum borðað fyrstu máltíðina okkar í íbúðinni... Fórum að versla mat í Coop Forum sem er Risastór verslun, þurftum reyndar að kaupa potta og pönnu líka. Við elduðum svo hakk og spakk og fengum okkur ljúffenga osta í eftirrétt... Umm... Loksins gátum við líka keypt mjólk, brauð, morgunkorn, jógurt og slíkt... Nú þarf maður ekki að svelta þar til maður fer úr húsi. Td. í dag þá var ég matarlaus og nennti ekki út þannig að ég gróf upp einhver club súkkulaðismástykki síðan um borð í Norrænu og át þau í hádeginu.. jukkkkk.... Lítið að frétta af húsnæðismálum en Lilja forwardaði á mig auglýsingu á blocket í gær þar sem óskað var eftir leigjendum sem væru helst yfir 40 ára.. Jibbí.. loksins á maður séns... Lilja og Vaggi eru innan við þrítugt svo þau áttu ekki séns.. En ég er búin að senda tvö meil á þessa auglýsingu og fæ engin viðbrögð en þetta hljómaði samt vel.. Ég fékk hins vegar símtal frá konu sem var að tilkynna að hún væri búin að leigja út sína íbúð.. því miður... En fallega gert hjá henni að hringja því það virðist bara ekki vera til siðs hér að láta vita að búið sé að leigja út...
Jæjja best að fara að smyrja nesti fyrir skóladaginn á morgun.. Snilld.. smyrja nesti.. ummmm og ég get fengið mér morgunmat líka... hehe...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2007 | 20:08
Eldhúsþrif og stórþvottar..
Jæjja þetta var rólegur dagur. Valdi var búinn snemma í skólanum og kom heim. Ég var í óða önn að þrífa eldhúsið og sinna þvottamálum. Ég ákvað að ég nennti ekki inn til Köben.. Næsta föstudag er bara "Havevandering" svo ég reyni að feika mig í gegnum plöntuskoðun án þess að hafa lesið námsefnið sem ég hef náttúrulega ekki enn náð að kaupa. Verð bara dugleg um helgina. Þvottaaðstaðan hér er undarleg.. Hún er í kjallaranum á næstu byggingu en innangengt héðan úr kjallaranum. Það er svolítið krípí að fara þarna um dimma steypta kjallara og milljón læstar hurðir. Pöntunarkerfið á herberginu er flókið og ég skil það ekki ennþá en það þarf lykil til að færa til einhvern kubb og panta tíma.. Síðan er hún Lamia leigusali greinilega enn að þvo hérna svo kubburinn minn hverfur annað slagið!!!! En ég náði að panta í dag og komst að í þvottaherbergi með tveimur risavélum.. Snilld.. ég þvoði 6 vélar. Síðan er þurrkkerfið alveg fríkað.. Það eru svona þurrkskápar sem maður stillir á 95 gráður og lokar og svo er allt þurrt eftir klst... Og í dag fann Valdi þurrkherbergi þar sem maður hengir upp þvottinn og setur hitaviftu í gang og "Abraka dabra" allt þurrt eftir klst... Snilld.. (furðulegt hvað góð þvottaaðstaða getur skapað mikla hamingju... hehe)..
Við ætlum bara að þrífa okkur í gegnum hluta eldhússins.. Nenni bara ekki að díla við rest... En á morgun er planið að geta eldað sjálf.. Ég er komin með ÓGEÐ á veitingastöðum og hvað þá Burger King og þá er ég ekki einu sinni að hugsa um hvað þetta gerir fyrir vaxtarlagið á mér... Það verður munur að geta keypt sér jógúrt og fengið sér morgunmat í stað þess að fara á veitingastað milli 2 og 3 og svo aftur um kvöldið...
Hann David (Dafir eða hvað hann heitir) leigusali er held ég alger snillingur eða þannig... Hann hefur sett ljósaperu með photocellu í eldhúsið þannig að ef kveikt er á báðum eldhúsljósunum í einu þá slokknar á þessu eða ef maður kveikir á ganginum þá ákveður eldhúsljósið bara að vera ekki með.. hehe.. Hrein silld.. Nennum ekki að díla við þetta svo það verður bara rökkur í eldhúsinu stundum og við sjáum þá allavega ekki skítinn á meðan.. Þegar við fluttum inn þá vantaði næstum allar ljósaperur en hins vegar er geymslan með snilldar sýstemi sem kveiknar á þegar er opnað og slokknar við að loka hurðinni.. En við reynum sem minnst að fara inn í geymsluna þar sem við geymum dótið þeirra og það lyktar illa.. Við erum búin að spreyja svona "táfýluspreyi" inn og setja svona lyktarkubb... Núna er appelsínulykt í blandi við ógeðslyktina.... veit eiginlega ekki hvort lyktin skánaði..
Síðdegis kíktum við á Rakel og guttana en Hafþór hafði verið með gubbupest í gær og fór því ekki í leikskólann í dag en var samt súperhress... Guttarnir voru stórhrifnir af nýja leikfanginu hans Valda, Garmin leiðsögutækinu, og án þess að skilja í raun hvað það gerði þá suðuðu þeir í mömmu sinni um að fá svona.... Já snemma beygist krókurinn..... Strákaleikföng...
Það er alveg mesta furða hvað íbúðin er að verða fín... Held við unum okkur bara hér í rólegheitunum þar til okkur verður hent út eða við finnum annað og betra... Hreinni og ljósari veggi.. til dæmis..
Kveðjur frá Malmö..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2007 | 19:51
Fyrsti skóladagurinn í Kaupmannahafnarháskóla..
Jæjja ég lagði af stað snemma í morgun til að klúðra nú örugglega ekki neinu á fyrsta skóladeginum.. Ég var alveg viðbúin því að það yrði eitthvað klúður í miðasölunni, milljón manns í röð eða eitthvað.. En þá var bara engin biðröð en hins vegar var það sama óliðlega afgreiðsludaman og gaf okkur rangar upplýsingar síðast.. Ég var því við öllu búin þegar ég sýndi henni stúdentaskírteinið til að fá afslátt og hún skoðaði það vel og lengi og samþykkti loksins.. Púff... Hún hafði verið með eitthvað múður áður um að það þyrfti að vera af einhverri ákveðinni gerð.. Jæjja en þá hafði ég misst af 7.42 lestinni og hinkraði því eftir 8.02 lestini... Það mátti ekki tæpara standa því ég fór út í Nörreport 4 mínútur í... Fann kennslustofuna og kúrsin hófst á klassískri tónlist áður en allir voru mættir.. Michael, gaur í bekknum, reyndi að ljúga því að mér að allir danskir skólatímar byrji svona hehe... Ég sagði bara að það væri nú næs ef svo væri... Kemur svo í ljós að við erum bara 6 í þessum kúrs sem er bara næs. Kennarinn óskaði víst eftir því að kenna kúrsinn á ensku eins og var gert í fyrra en honum var hafnað.. Sem er fúlt þar sem ég sat frá 9 til 4 og var ekki alveg með á nótunum... Kennarinn í verklegu kennslunni hún Signe talar ekki einu sinni góða ensku. En allavega þá hófst námskeiðið Plants á fyrirlestri og svo frá 10 og fram eftir degi þá vorum við í smásjárvinnu að skoða blómskipan plantna og teikna þversnið.. rosa gaman.. (í alvöru). Hins vegar þá var engin pása frá 13-16 og ég var komin með alvarlegt "rassæri" eftir setuna.. Hins vegar er skólinn svona milljón ára gamall og sjarmerandi, staðsettur í horninu á "Botanic Gardens" í miðri Kaupmannahöfn... Frekar mikið næs að vera í svona rosalega gömlum skóla.. Eftir skóla rétt missti ég af lestinni en það eru bara 20 mín á milli og lestin stoppar á Nörreport og er 50 mínútur yfir á Malmö Central... rosalega þægilegt.. Svo tekkur við 20 mín labb heim sem ég hef nú bara gott af.
Valdi skoðaði Alnarp garðinn vel í dag þar sem pása var í skólanum. Þetta er mjög gamall trjágarður sem yndislegt er að labba um. Skólinn var svo búinn snemma og þá var farið að hjóla um með Vagga en þeir fóru niður á strönd og skoðuðu líka Turning Tornsö sem er klikkaður turn hér á hafnarsvæðinu (Það er mynd af honum í albúminu).
En þegar til Malmö var komið þá kom ég við á Sopstationen og Valdi, Lilja og Vaggi hjóluðu til mín en þau voru á kaffihúsi á ströndinni.. Síðan röltum við heim til Vagga og Lilju og Lilja hjálpaði mér að skrá mig inn í MKB húsnæðismiðlunina... Ekki líklegt samt að það gangi upp þar sem það er hálfs til eins og hálfs árs bið eftir húsnæði á svona leigum. En við erum allavega búin að skrá okkur og formlega sækja um fjórar íbúðir ásamt um það bil 600 öðrum.. Djísus...
Ég þarf víst að fara inn til Köben í fyrramálið þar sem skólabóksalan er mjög svo gáfulega opin 10-12 og 13-16... Dö... maður er í tímum þá.. HALLÓ... hve ógáfulegt getur þetta verið? Þarf líka að kaupa mér RISA-skólabakpoka... Þarf að hafa yfirhöfn, tölvu, orðabók, kennslubók og det hele í töskunni svo tölvutaskan dugar alls ekki....
Jæjja kveðjur í bili frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2007 | 21:22
Fyrsti skóladagurinn hjá Valda
ATH: Nýtt myndaalbúm kom inn í gær.. Gleymdi að láta vita af því. Einnig ef þið skrifið athugasemdir þá fæ ég meil um það svo við missum ekki af neinu... Þið getið kommentað á myndirnar og hvað sem er.. Endilega skrifið komment svo við vitum að einhver er að fylgjast með...
Fyrsti skóladagurinn hjá Valda hófst á því að hitta alla kennarana og það var nafnakall. Svo var heljarins fyrirlestur um svindl en svindl felst í þremur atriðum: Það er að vera "freerider í hópverkefnum, copy paste í ritgerðum án þess að geta heimilda og svo að vera með svindlmiða í prófum. Og þessu var sérstaklega beint til Austur-Evrópubúanna... hummmmm. Eftir það var hópnum skipt í nokkra minni hópa og farið var í ratleik um svæðið.. Aha.. bara svona eins og maður lenti í í Byggð og búskap á Hvanneyri... næs... Svo var myndataka en Valdi hafði sérstaklega farið í rúning fyrir það. Í hádegismatnum hitti Valdi Lilju, Matthildi og Hildi og svo var Vaggi með Lilju í skólanum þennan daginn (reyndar aðallega á bókasafninu að lesa um traktora). Eftir hádegið þurftu nemendur að kynna sig og sína í hverjum hóp... Þessi hópur er svona heldur í yngri kanntinum en Rakel og Valdi eru algerir aldursforsetar á svæðinu.. Við hittum nokkra krakkana í Mollinu síðdegis og þau eru bara unglingar.. En þetta er samt á mastersstigi en það er misjafnt milli landa hvenær fólk klárar BS, sumar þjóðir eru bara fyrr á ferðinni. Valda líst bara ljómandi vel á námið, skólann og skólafélagana..
Ég aftur á móti átti horror morgun í húsnæðisleit... Ekkert gekk upp sem ég reyndi.. Ég var komin lengst upp í Arlöv á einhverja skrifstofu en þá vildu þau ekkert við mig tala því ég var ekki með sænska kennitölu.. Kom svo í ljós þegar heim var komið að það skipti ekki máli... En ég endaði bara í mígandi rigningu uppi í Arlöv og rataði ekki heim og var bara á stuttermabol... Stelpuskjátan á húsnæðisskrifstofunni neitaði að hringja á leigubíl fyrir mig því hún væri farin í mat... Common... Mígandi rigning úti... Ég brosti breitt til hennar og sagði Takk Takk BELJA... En hún brosti blítt á móti og hélt ég væri bara að segja takk takk... Æi hvað maður getur verið barnalegur stundum... En ég var bara alveg runnin út á geðheilsu... hafði líka eitt drjúgum tíma í að reyna að ná út pening fyrir leigunni úr bönkum... Ekkert gekk... Ég fór í alla hraðbanka og tók út allt sem ég gat.. Náði upp í 90 þúsund eftir hádegið og Valdi gat svo tekið út rest en ég var búin að MAXA út allar úttökuheimildir á öllum kortum fyrir daginn.... Þar sem við vorum runnin út á tíma með að finna nýtt húsnæði þá neyddumst við bara til að borga Írakanum tveggja mánaða leigu út í hönd.. En ég náði að fá konuna hans til að skrifa kvittun sem ég held að hafi verið mistök af hennar hálfu en við erum núna allavega með kvittun fyrir leigu í höndunum sem er hægt að nota gegn þeim ef þau eru með múður...
Af einhverjum ástæðum batnaði þó geðheilsan við þetta og nú erum við allavega búin að kaupa okkur 2ja mánaða frið.. Eigum bara eftir að þrífa eldhúsið og þá verður íbúðin alveg ljómandi fín... Svo það er nú ekki vandamál.. Við Valdi skelltum okkur í Burlov Center sem er klassískt Moll og röltum þar um. Ég fór í H og M og keypti mér topp og við keyptum okkur sænsk símanúmer.. Þar af leiðandi eru gömlu númerin out og ný komin í staðin. Man þau ekki núna en ég læt vita bráðum.. Þau eru löng... Síðan freistuðumst við til að kaupa okkur GPS tæki (Garmin) svona til að rata... Ógeðslega kúl... Maður bara stimplar inn hvert við erum að fara og bingó.. Beygið til hægri og beygið til vinstri.. Snilld... Röddin á reyndar erfitt með að bera fram sænsku götunöfnin... Ég ætla að taka græjuna með á morgun til Köben og reyna að finna hvar ég á að mæta í skólann með henni.. hehe..
Við fórum svo á ítalskan veitingastað sem var næs og svo komu Vaggi og Lilja um kvöldið. Þau eru netlaus að leita að húsnæði svo þau kíkja á netið hjá okkur þegar þau geta..
Jæjja best að koma sér í bólið þar sem ég þarf að mæta snemma á brautarstöðina í fyrramálið því fyrsti skóladagurinn er á morgun (Held ég).
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar