14.8.2007 | 10:40
Mývatnssveit og Borgarfjörður eystri
Jæjja.. það er svo sem ekki eins og netsamband liggi á lausu hér fyrir austan. GSM samband er heldur ekki í íbúðinn okkar svo við þurfum að standa úti á svölum til að tala... En ég er sest inn á kaffihús áður en börnin vakna til að henda inn einni færslu..
Hér er búið að vera meiriháttar gaman. Á laugardaginn fórum við inn í Borgarfjörð eystri, öll nema Linda sem fékk að vera eftir hjá Álfsól vinkonu sinni. Akstursleiðin er nú ekki fyrir lofthrædda og auk þess voru vegaframkvæmdir í gangi. Á leiðinni stoppuðum við í sjoppusjálfsala sem er rekinn af Kidda í Vídeóflugunni hér á Egilsstöðum hún er bæði vind og sólarknúin skilst mér... og algerlega "In the middle of nowhere" Hrein snilld. Í Borgarfirði var bara krúsað um og skoðað og auðvitað stoppað í Bakkagerði og farið í Álfastein. Þar var líka farið í fuglaskoðunarhúsið niðri við höfn. Við ókum svo í gegnum Bakkagerði og litum á lundaslóðir í kringum höfnina.. Þetta er nú sætasta höfn sem ég hef séð. Ég sagði börnunum ýmsan fróðleik um lunda þar sem ég þykist nú sérfróð eftir að hafa gædað á lundaslóðir á Tjörnesinu hér um árið. Td. þá er svo gott sem vonlaust að þekkja kynin í sundur og þeir eru bara með holur fyrir kynfæri og nudda þeim saman við æxlun. Eina leiðin til að kyngreina lunda er að kryfja hann. En einu fuglarnir sem hafa typpi eru endur. Annars missti ég mig í blómamyndatökum þarna við höfnina og klifraði ansi hátt upp í kletta til að mynda burnirót og fleiri plöntur og gleymdi lofthræðslunni um stund.. Þegar heim kom þá vildi Linda ekki fyrir sitt litla líf yfirgefa Álfsól svo við hin fórum og fengum okkur hreindýraborgara sem fást hér í Hamborgarabúllunni.. Hrein snilld.. Ummm þeir eru svo góðir.. Þar er líka ágætis þjónusta svona almennt.
Á Sunnudeginum þá skutluðumst við inn í Mývatnssveit í hálfgerðu skítaveðri en sveitin er alltaf jafn falleg. Ég held ég hafi um það bil gert út af við krakkana af fróðleik og upplýsingum.. En Sunna var kurteis og hlustaði samviskusamlega meðan Linda og Jakob bara fífluðust... Ég tók líka törn í að sannfæra börnin um að þau ættu að verða landverðir sem er náttúrulega besta starf í heimi. Eftir rúnt um vatnið og gott labb í Dimmuborgum kræklóttastíginn þar sem ég dró Jakob ofan í allar holur og gjótur sem ég vissi um, þá fórum við og fengum okkur að borða í Gamla bænum.. Og þar fékk ég crepes pönnuköku sem var ógeðslega vond.. sá staður er nú alltaf eitthvað hálfgert klúður greyið..
Á mánudeginum þá var nú bara sofið út og tekið til og dúllast eitthvað. Reyndar var Jakobu skutlað inn á Seyðisfjörð til að hitta Bárð Jökul vin sinn af Hvanneyri sem er þarna hjá pabba sínum núna. Hann býr í ævintýralega krúttlegu húsi við lónið á Seyðisfirði. Þeir dunduðu sér þarna allan daginn saman við að dorga og leika sér. En hvernig Valda datt í huga að senda mig keyrandi þennan lífsháskaveg er mér alveg óskiljanlegt.. Þetta var bara lofthræðslutripp.. Shitt.... Ég reyndi að bera mig mannalega með Jakob í bílnum en ég held hann hafi alveg séð í gegnum mig.. hehe..
Eftir að hafa sótt Jakob síðdegis (Valdi keyrði) þá fórum við út að borða á Kaffi Nílsen sem var æði.. Rosalega góður matur og góð þjónusta. Þetta var nú síðasta kvöldið með grísalingunum en þau fara klukkan hálf fjögur í dag. Svo Valdi ákvað að vera grand á því og bjóða okkur út að borða. Næss.. Síðan fórum við í bíltúr hringinn í kringum Lagarfljótið... Og svo heim til að klára að prjóna peysuna sem ég var að prjóna á Jakob.. eins gott að það náðist að klára hana fyrir brottför... Ég mun taka mynd af honum í henni áður en hann fer þegar hún er þornuð... Jæjja eins og áður segir þá fara grísalingarnir í dag og þá höfum við Valdi einn dag til að ganga frá íbúðinni.. Ég hef nú ekki miklar áhyggjur.. En hins vegar er enn eftir eitthvað úthringingarstúss td. að hringja í David sem á íbúðina sem við leigjum.. Við vorum ekki alveg að skilja enskuna hjá hvort öðru í síðasta símtali... Svo símtalið var eins og úr einhverri lélegri Mr. Bean mynd... Jæjja sjáum hvernig það gengur..
Kíkið í myndaalbúmið.. Þar eru nýjar myndir..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.8.2007 | 17:16
Rólegheit á Egilsstöðum.
Í gær var algert Majorkaveður hér fyrir austan, gersamlega óþolandi heitt. Eftir að Valdi var búinn að vinna þá ákváðum við að fara í sund en það var svo pakkað fyrir utan af bílum þannig að við bara ákváðum að rúnta inn í Hallormsstaðaskóg og fara í sund þar. Ég keypt mér ís svo þetta var hinn besti bíltúr en þegar við komum inn í Hallormsstaðaskóg þá kom í ljós að sundlaugin var lokuð í allt sumar.. Jæjja við kíktum í staðin á fyrirhugað lóðasvæði þarna í Réttarkambi, frekar spennandi lóðir þar að fara í úthlutun. En þá ákváðum við að fara í sund á Eiðum.. sem er alveg 15 km í hina áttina frá Egilsstöðum miðað við Hallormsstaðaskóg svo enn var rúntað af stað en þá var víst bara engin sundlaug á Eiðum.. Við Valdi viljum nú meina að þar hafi allavega einhvern tíman verið sundlaug. Við fórum þá í heimsókn til Benna og Höllu til að kíkja á Gabríel Snæ sem er tiltölulega nýfæddur og alger dúlla.. Svipsterkur og flottur. Þar hitti ég hana Lilju Filipusar sem er á leið í nám til Alnarp svo við gátum nú mikið spjallað. Hún og Vaggi voru að senda bílinn sinn með Norrænu í gær.. Vaggi og Hlynur Gauti voru úti í garð að smíða pall með Benna svo ég missti af því að hitta þá sem er nú reyndar alveg fáránlegt að klúðra því. Valdi hitti þá því hann fór í pallasmíðina líka... Eftir þessa heimsókn þá fórum við loksins í sund á Egilsstöðum en sundlaugin þar er stórfín og pottarnir frábærir, vel heitir og hæfilega djúpir en ég er með algert antípat á grunnum pottum. Síðan var bara skriðið upp í sófa með snakk og prjónaskap en sakir þreytu var farið snemma að sofa..
Í dag er Valdi búinn að vinna og ég fékk að sitja inni á Héraðsskógum í nettengingu og er í útréttingum eða tölvu- og símavændi eins og ég kalla þetta... Tryggingamál, leigumál, skólamál, vinnumál... allskonar stúss... Ég er enn á skrifstofunni en Valdi er að koma að sækja mig því jeppinn er kominn úr viðgerð, eitthvað dularfullt ískur sem var að gera okkur áhyggjufull fyrir brottför.. Svo sækjum við börnin þrjú í kvöld klukkan hálf níu..
Kveðjur í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.8.2007 | 16:03
Komin austur!
Púff...
Jæjja þá erum við komin austur á Egilsstaði. Á mánudaginn pökkuðum við og þrifum og það var líka gestagangur.. Elvar og Helma komu ásamt dóttur sinni henni Gummu, það var nú stutt stopp en gott að losna við eitthvað af bakkelsinu og gaman að hitta þau... Við ætluðum svo að vera lögð af stað í síðasta lagi upp úr hádegi á þriðjudag en svo bara flæktust málin.. Ég þurfti að funda með Áskel fyrir brott för og láta tékka á nýju tölvunni hjá Guðjóni tölvufræðingi. Við vorum náttúrulega gersamlega útkeyrð af þreytu, höfðum verið að til tvö eða þrjú nóttina næturnar áður og vaknað sjö... En það var bara haldið áfram og við gáfum okkur ekki tíma til að skjótast í Kollubúð og fá okkur pulsu þar sem við héldum í alvöru að við værum rétt að fara að leggja í hann.. Þegar átti að fara að taka mikla ryksugutörn þá fór rafmagnið og þetta var allt í þessum dúr... En loksins komu svo Hildur og Hlynur að sækja stólana og við skúruðum okkur út eftir að hafa afhent Úllu nýja leigjandanum lyklana.. Númeraplöturnar ætluðu reyndar aldrei að nást af Rollunni (Corolla) en loksins hafðist það og við ókum út af Hvanneyri og ég held ég hafi aldrei séð Skessuhornið jafn fallegt og þegar við ókum í burtu.. Ský eða þoka á bakvið svo Skessuhornið tróndi alveg eitt og sér og tignarlegt... En jæjja þegar við komum svo í Borgarnes þá þurfti að taka bensín og skila af okkur ónýtum batteríum og skila lyklunum í göngin.. En þá var einhver megabilun hjá N1 í Hyrnunni og allt í steik.. En einhvern veginn hafðist þetta... Og þá var komið að því að borða fyrsta matarbitann þennan daginn enda klukkan orðin 19.00... En þá virtust bara allar samlokur búnar svo við hentum upp í okkur pulsu í Hyrnunni sem var ógeðslega vond en ósköp var gott að fá eitthvað í magann.. Jæjja og þá var loks ekið af stað.. Við fengum svo almennilegan kvöldmat í Hrútafirði og skiptumst á að keyra og sofa. Það var náttúrulega alveg týpískt að þegar við ókum í gegnum Mývatnssveitina mína þá var myrkur og ég s á ekki neitt. Síðast þegar ég ók þar í gegn í vetur þá var myrkur og svartaþoka.. Vonandi náum við að kíkja í fallegustu sveitina á landinu næstu helgi í björtu en ég hef ekki komið þangað í nokkur ár og er komin með veruleg fráhvarfseinkenni.
Við ókum svo inn til Egilsstaða um klukkan fjögur um nóttina eftir að hafa ekið í þoku öll Möðrudalsöræfin.. En þetta gekk ótrúlega vel þrátt fyrir þreytu.. Enda hefðum við nú bara gist á Akureyri ef við hefðum verið of þreytt til að keyra...
Nú sitjum við á kaffihúsi á Egilsstöðum í stórkostlegu veðri og við Valdi ætlum í bíltúr ..Íha...
Kveðjur frá Egilsstöðum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.8.2007 | 20:48
Pökkunarþreyta...
Jæjja þá er komið sunnudagskvöld.. Valdi er úti að grilla og við erum í smá pásu frá flutningum.. Við erum orðin svo þreytt.. En þetta gengur vel. Það var gestagangur í gær og verður aftur á morgun.. heppilega bakaði ég áður en ég pakkaði eldhúsinu.. Í gær komu Elín sem vann með mér á Stöð 2, Daníel maðurinn hennar og Snorri sonur þeirra.. Hann er alger orkubolti og elskaði að koma í fjósið, alger dúlla. Svo kíktum við í Búvélsasafnið og Ullarselið, bara næs..
Við erum með geymsluhúsnæði hér á svæðinu en eigum eftir að prútta um verð svo við erum að reyna að pakka öllu eins þétt og hægt er. Þetta er svona eins og tetrisleikurinn.. Það var mikil uppgötvun að setja hillurnar okkar þrjár niður í geymslu hér hjá okkur og fylla þær af drasli áður en við settum næstu þétt upp við.. Þannig staflaðist mikið dót. Svo er þetta svo flókin pökkun.. Dót sem við þurfum í Svíþjóð og svo dót sem við þurfum strax á Egilsstöðum næstu tíu daga og svo dót sem fer í geymslu.. Hildur og Hlynur taka tvo stóra stofustóla upp í Fremri-Brekku. Þetta eru stólar sem Valda voru gefnir einu sinni og eru stórfínir og við tímum ekki að láta frá okkur en höfum bara ekki pláss fyrir þá lengur en fínt að vita af þeim á Fremri-Brekku.
Jæjja best að halda áfram að pakka.. Annars held ég að það verði ekki pakkað mikið meira í kvöld vegna þreytu... Heiti potturinn í Brún hefur meira aðdráttarafl þessa stundina..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2007 | 23:58
Niðurpökkun hefst hægt...
Rólegur dagur... Skelltum okkur örstutt á Kollubar í gærkvöld.. sáum að það voru nokkrir bílar svo við kíktum í klst. Þar var reyndar fullt af fólki svona miðað við fimmtudagskvöld.. Ég er enn að hlæja að umræðum um þyngdartakmarkanir í kojunum í Norrænu, en við Valdi vorum að komast að því að þar eru kojur sem gerir mínar hugmyndir um verulega kósí dvöl á skipinu heldur daprari.. En 150 kg er víst hámarkið í hverju rúmi.. Arrgg... Þetta gerði víst kvennafar Syðstu-Fossadrengjanna heldur dapurt þar sem pikkupplínan var: "Hvað ertu þung?"
Ég eyddi meirihluta dagsins uppi á skrifstofu í skólanum að ganga frá gögnum og reyna að skrifa skýrslu yfir greinasafnsvinnuna.. Tölvukerfið var eitthvað í klikki og ég var að færa á milli með minniskubb. Djísus.. tapaði mér og hætti þessu rugli bara... Svo var bara enginn í vinnunni nema Tobbulína sem var auk þess í annarri álmu hússins... En það bjargaði geðheilsunni að rekast á hana annaðslagið..
Valdi fékk að sofa af sér keyrsluþreytu og vinnuþreytu fram eftir degi en svo hófst niðurpökkun á fataherberginu.. Rauðakross gámurinn færi góðan slatta af "fínum" fötum.. Og Góði Hirðirinn hér á Hvanneyri fær eitthvað líka.. Núna finnur maður fyrir því hvað 200 fm hús er STÓRT og þar kemst MIKIÐ drasl fyrir...
Þar sem verulega almenn leti var á heimilinu þá ákváðum við að skippa stóru pökkunarplönum kvöldsins og skelltum okkur í sund upp í Brún. Yndislegt að hafa lykil að lauginni og geta verið þarna bara tvö alein í bleyti og leti.
Bloggar | Breytt 5.8.2007 kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.8.2007 | 02:20
Upphaf að ferðasögu til Svíþjóðar
Heil og sæl..
Hér með hefst ferðasaga okkar hjónaleysanna til Norðurlanda í nám.
Í dag (fimmtudag) kom Valdi til byggða að austan og nú hefst niðurpökkunarhelgin mikla.. Hún hófst á grillveislu hjá Steinunni systur hans Valda í Mosfellsbæ. Það var hrein snilld. Steinunn og Gústi búa í yndislegu húsi við Amsturdam í Mosó.. Þar var grillað og spjallað.. Mikið næs.. Fjölskylda Valda var kvödd með virktum en ég hafði fyrir nokkru kvatt mína fjölskyldu í kaffiboði hjá Pabba og Siggu. Nú fer allt að verða klárt til brottfarar. Við erum búin að fá fína leigjendur fyrir húsið okkar og Kátur er kominn í fína pössun í Ölviholtið þar sem hann hefur tvo litla gutta til að leika við sig alla daga og Jón , nytjajurtabóndi, sér ekki sólina fyrir honum enda er þetta yndislegur hundur.. Svo er þarna vinnufólk sem atast í honum alla daga.. Kátur brosir í hring þessa dagana... Við erum líka komin með húsnæði í Malmö... Hann Sigurður Þór Guðmundsson, mastersnemi, reddaði þessu öllu fyrir okkur svo nú bíður okkar 95 fm. íbúð í Malmö með öllum húsbúnaði.. Jú kostir og gallar.. þetta er leigt á svörtu.... kolsvörtu svo við erum að taka smá séns.. En það er svo erfitt að finna húsnæði í Malmö að við bara skelltum okkur á þetta... Kostir.. rétt staðsetning, rétt stærð, ágætis leiga, engin skriffinnska. Gallar: Indversk kona á þetta og ef þið hafið einhvern tíman séð Indverskar bíómyndir þá getið þið ímyndað ykkur litadýrðina (litaógleðina) og búslóðaglingrið...
En allavega þá verður pakkað og gengið frá málum núna um verslunarmannahelgina og svo verður lagt af stað austur á þriðjudaginn og þar munum við vera í íbúðinni hans Valda fram að brottför með Norrænu 16. ágúst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar