19.9.2007 | 21:52
Við erum Svíar!!!! (Nýbúar)
12 dagar í nýja íbúð..
Valdi vaknaði snemma til að undirbúa flutning á verkefninu sínu sem hann flutti klukkan 14.20 í dag.. Valdi var smá stressaður enda að flytja fyrirlestur á ensku. Síðan áttu nemendur og kennarar að gagnrýna flutninginn og efnið. En viti menn.. auðvitað gekk þetta ljómandi vel hjá honum.. Valda var mjög létt þegar hann kom heim og hann hagaði sér eins og fífl í allt kvöld.. Og viti menn.. stjörnuspáin hans sagði: "Þú verður þú sjálfur í kvöld"... Já skerí tilhugsun...
Valdi keyrði mig á stöðina í morgun þar sem ég var að flytja allan myglaða matinn til Köben til að geyma hann í skólanum. Ég var með hann í svona glæru plastboxi og fékk nokkra skrýtna svipi frá fólki í lestinni þar sem í gegnum lokið blasti við mjög myglað kjötálegg og lyktin lak í gegn og var ógeðsleg.. Annars var tíminn í sveppafræðinni frekar Boring.. Við vorum að undirbúa Svampefest og það gekk erfiðlega að halda ungu, ljóshærðu, dömunum að verki.. Bla bla bla á dönsku og svo bara hangs því kennarinn var ekki á staðnum.. Ég var eins og gribba aldarinnar að halda þeim að verki..
Auðvitað var lestin 12 mínútum of sein á leiðinni heim.. Kemur manni nú ekki á óvart lengur.. Þegar heim kom þá fórum við Valdi í búð hér í næstu götu sem selur dánarbúdót.. En er bara opin á kvöldin tvisvar í viku. Ég hafði séð í glugganum þar krukku sem ég girntist undir sleifar, spaða og slíkt fyrir eldhúsið. Þetta er Hoganäs krukka en það er gamalt leirkerafyrirtæki hér í Svíþjóð sem er reyndar núna hætt að framleiða svona hefðbundið sænskt og er búið að uppdatera línuna eitthvað.. En þetta var í gömlu línunni.. Þegar heim var komið þá kom í ljós að hún var heldur djúp svo sleifarnar og dótið drukknar bara í henni.. Úpps.. En ég fæ mér bara frauðplast í botninn eða eitthvað.. Þá reddast þetta...
Síðan skruppum við upp í Burlöv Center sem er verslunarmiðstöð að skoða hjól. Við fundum fín og ódýr hjól en ætlum að skoða þetta aðeins betur seinna þar sem við vorum með fullar hendur af matvörum og gátum því ekki skoðað hjólin almennilega en þessi stórmarkaður er ekki með litlar körfur, bara stórar sem þú þarft að setja pening í til að fá lánaðar og þær eru staðsettar úti á miðju bílaplaninu. En þar sem við ætluðum að rölta í aðrar búðir áður en við versluðum í matinn þá tókum við ekki körfu.. Þetta er undarleg viðskiptapælin.. Ég meina ef við hefðum haft almennilega körfu þá hefðum við gengið út með miklu meira af mat og tvö hjól..... En nei þeir tímdu ekki körfunum í okkur.... Síðan komum við heim og Valdi eldaði stórkostlega lambasteik.. ummmmm... Svo kom Lilja í heimsókn...
Hey.. við eurm orðnir SVÍAR.. Allavega erum við komin með sænskar kennitölur.. Þær komu í póstinum í dag.. Þá getum við loks skrifað undir löglegan leigusamning og slíkt.. Snilld..
Hej då fra Malmö!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2007 | 21:11
Memory overlode....
13 dagar í nýja íbúð..
Já Stefán.. Mér líst ljómandi vel á íslendingafélagshádegisverðarslúðurhitting hjá Kvl.... en ég byrja ekki fyrr en 12 nóvember.... og mæti þá..
Þetta var langur skóladagur hjá okkur báðum. Valdi kom heim klukkan 18.00 en hann var mættur 8 í morgun... Ég lagði af stað labbandi eins og alltaf 7:30 og kom heim 17 eftir langan og strangan verklegan tíma í plöntufræði.. Á dönsku, ensku og svo þvæli ég íslenskunni með.. Hausinn á mér var alveg uppurinn þegar ég kom heim.. Það sama mátti segja um Valda sem var í skólanum og í hópverkefni í allan dag.. Hann var búinn á því og skreið upp í kl. 22.00 sem gerist sjaldan með hann. Nú hrýtur hann eins og slátturvél inni í rúmi.. hehe..
Lestin í morgun var 17 mínútum of sein.. 8:22 lestin var komin á hina teinana og hefur þá lagt af stað 3 mínútum seinna en samkvæmt töflu átti hún að vera á plani... Þetta lestarkerfi er alveg ekki að virka, þeir eru alltaf seinir en yfirleitt er það í hinn endann. Jú og auðvitað var hún 7 mín á eftir áætlun heim....
Ég hef verið að safna mygluðum matvörum fyrir Svampefest 2007 (www.svampefestival.dk) sem verður núna um helgina en við ætlum að setja myglaðar matvörur inn í ískáp sem með glerhurð og útskýra sveppina sem vaxa í ískápnum okkar.. Eldhúsið, sem var þó slæmt fyrir, var orðið frekar ógeðslegt með allri þessari mygluvöru svo ég pakkaði þessu niður í kassa og ætla að láta þetta mygla uppi í skóla það sem eftir er vikunnar...
Desperat Housvifes byrjuðu í kvöld. Búið var að auglýsa þetta svakalega að nýtt season væri að byrja... Mín alveg spennt settist niður með rauðvínsglas og ætlaði sko að "eiga móment"... En auðvitað var þetta serían sem var sýnd heima á Fróni í fyrra.. Svakalegt áfall...... En hún Hildur var reyndar búin að vara mig við að sjónvarpsefnið væri allt rosalega lengi að berast til Svíþjóðar og við höfum tekið eftir því að allir þættir eru í okkar augum gamlir.. Enda horfum við nú lítið á´sjónvarp hérna.. Hins vegar er klikkað fyndinn þáttur sem heitir ID sem er sænskur skemmtiþáttur þar sem fólk á að giska á störf fólks sem stillir sér upp og er númerað.. Hver er bifvélavirkinn? Er það númer 10 og hver er barnfóstran? Er það númer 6?.... Okkur fynnst þetta frekar fyndinn þáttur og alveg hægt að festast við hann....
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 20:03
Skrópidagur hjá Guðrúnu...
14 dagar í nýja íbúð..
Ég ákvað að skrópa í sveppakúrsinum í dag.. Hann átti bara að vera til hádegis og ég bara nennti ekki að fara.. Ég nýtti daginn talsvert betur með því að fara með Valda í skólann og sitja á bókasafninu þar og læra.. Skólinn hans Valda er svo yndislegur, kósi og vinalegur að ég hef hér með ákveðið að þykjast vera nemandi þar og mæta við öll tækifæri með Valda í skólann og hanga á bókasafninu!!!! Valdi var að vinna í hópverkefni í allan dag með Ívani og gekk það bara vel.
Íslendingafélagið í Alnarp (Rakel, Lilja, Valdi, Matthildur og Hildur) hafa ákveðið að borða alltaf saman í hádeginu á mánudögum. Það klikkaði síðast því Valdi og Rakel voru í ferð en núna borðuðu allavega saman Rakel, Guðrún og Valdi en ég hef eins og áður segir ákveðið að þykjast vera nemandi í Alnarp og mun því mæta á þessar samkundur boðin eða óboðin..... Hildur er á Íslandi og Lilja var ekki á svæðin.. Hvar Matthildur var veit ég ekki...
Eftir skóla fórum við Valdi á rölt að kíkja í hjólabúðir en við höfum ákveðið að fjárfesta í hjólum því það er eini rétti ferðamátinn hér í borginni. Einnig held ég að ég nenni ekki að labba ríflega 3 km á lestarstöðina á morgnana eftir að við flytjum en núna labba ég 2 sem er hæfilega hressandi...
Kvöldið fór í vinnu hjá Valda og lærdóm hjá mér.. En ég er bókstaflega að þýða mig í gegnum "De højere planters evolution og klassifikation" Gasalega spennandi efni... Ég vil meina að þessir dönsku grasafræðingar sem skrifuðu bókina (allir þrír að kenna mér) hafi bara skáldað upp orð þegar þeir vissu ekki hvað hlutirnir heita.. Ég er með einar 7orðabækur og svo orðabókina á netinu til að gaufast gegnum þetta....
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2007 | 17:49
Kastalinn í Malmö
15 dagar í nýja íbúð..
Nýtt albúm í dag..
Náði aðeins að læra fyrir hádegið en ég eyddi mestum tímanum í að koma veforðabókinni minni aftur í tölvuna.. Hún ákvað bara að vera ekki með í dag.. En svo fórum við með Lilju, Rakel og strákunum labbandi niður í Kastalann í Malmö.. Hann er mörghundruð ára gamall með síkjum í kring, virkisvegg og fallbyssubyggingum.. Á leiðinni að kastalanum þá duttum við niður á skranmarkað á Drottningartorginu.. Svo sem ekkert merkilegt dót en ég datt niður á stálbakka með viðarhöldum en ég er svolítið húkkt á svoleiðis bökkum.. Þeir eru innilega ekki í tísku svo þessi kostaði 200 krónur íslenskar.. Valdi var ekki nógu snöggur að átta sig á því að ég væri stungin af inn á markaðinn vopnuð peningaveskinu mínu.. hehe..
Þegar við komum í kastalann þá keyptum við einn miða fyrir öll söfnin sem tilheyra þessu safnasvæði en við náðum bara að skoða það sem var í kastalanum. En það var ruglingslegt.. Þarna var náttúrugripasafn með lifandi og uppstoppuðum dýrum, svo voru vistarverur konungs í kastalanum, allskonar skrýtnar uppstillingar og lítið speglasvæði. Ég náði aldrei neinum áttum í safninu í sjálfu sér en þetta var samt fullt af skemmtilegum sýningum og mjög gaman að skoða þetta. En í náttúrugripasafninu þar var svo mikið myrkur nema inni í búrunum en svo fattaði ég hvers vegna hehe.. Veggirnir voru ógeðslega bláir og druslulegir en ég sá það ekki fyrr en myndirnar fóru í tölvuna..
Eftir mikið og þreytandi safnastúss þá settumst við inn á kaffihúsið í kastalanum, það var ósköp ljúft. Þar sáum við kindur á beit úti á túni sem mér fannst frekar fyndið svona inni í borg.
Síðan röltum við heim í gegnum gamla bæinn.. Guttarnir orðnir þreyttir og fengu að fara á hestbak hjá Rakel og Valda..
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.9.2007 | 18:06
Sköllótta konan og nýja íbúðin..
16 dagar í nýja íbúð...
Lítið myndaalbúm fylgir þessari færslu
Í gær eftir skóla fór ég í Kvl sem er gamli landbúnaðar og dýralæknaháskólinn í Köben sem hefur sameinast KU. Ég var að skrá mig í sveppakúrs þar sem sveppakúrsinn sem ég er í núna er algert rugl og alvörusveppakúrsinn "Svamperiget" var ekki kenndur í ár frekar en síðust ár vegna áhugaleysis.. Ég meina hvernig er ekki hægt að hafa áhuga á sveppum.. Kommon... En allavega þá fann ég sveppakúrs á BS stigi í KVL og fattaði í fyrradag að í gær væri síðasti skráningardagur.. Shitt.. Ég dreif mig niður eftir alveg tilbúin til að þetta væri eitthvað klúður en viti menn. Ég hitti Danska Tobbu alþjóðafulltrúa sem heitir Winnie og hún er ljóshærð, brosmild og vildi allt fyrir mig gera eins og hin Íslenska Tobba.. Og ég er sum sé hér með skráð í sveppakúrs í kvl á næstu önn.. Hrein snilld.. Mér leist líka ljómandi vel á skólann.. allt svo næs eitthvað og virðist vera í einni byggingu annað en KU sem er dreifður út um alla borg..
Valdi fékk úthlutað nýju hópverkefni í gær sem á að skilast í seinnihluta næstu viku. Hann fékk tvær spurningar: Er hægt að nota breytileika í eiginleikum trjáa við grisjun og Í mjög vélvæddri skógrækt borgar það sig að vera með val? Hann er í hóp með Ívan frá Úkraínu sem á afmæli sama dag og Valdi... Kúl.. Ívan kom svo hjólandi í dag og þeir settust yfir þetta saman..
Í gær pantaði Valdi flugfar fyrir börnin hingað um jólin.. Þau koma 25. desember og fara 6. janúar.. Snilld. Náum 11 dögum..
Ég skellti mér í klippingu í gær eftir skóla.. Ég var verulega stressuð því ég treysti bara Kötu og Ölmu fyrir hárinu á mér en stúlkan vandaði sig mikið vel.. En þegar upp var staðið var eiginlega ekkert hár eftir... Frekar MIKIÐ stutt.. Valdi kallar mig sköllóttu konuna þessa dagana..
Við fórum í dag í rölt að nýju íbúðinn okkar í þeirri von að hitta á Önnu og Jacob þar sem við höfðum týnt númerunum þeirra. Við vorum að virða fyrir okkur lest sem fór yfir okkur á brú á leiðinni og þá slæddist hjá Samskipsgámur.. Fyndið.. Nýja hverfið sem við erum að fara að flytja í er svo sjarmerandi.. En það heitir Kirseberg. Gömul hús og krúttlegar götur.. Svo eru ný fjölbýlishús inn á milli. Þegar við vorum komin fyrir utan þá stigu þau út úr bílnum sínum.. Snilld.. Við skoðuðum okkur um í íbúðinn og þetta er allt að koma hjá þeim.. en samt MIKIÐ eftir.. Þau vita að við erum búin að borga fyrir þessa íbúð til 1. nóv svo það er ekki hundrað í hættunni þótt þetta náist ekki alveg 1. okt.. En ég vona þó að það sleppi.. Síðan röltum við heim og ákváðum í sameiningu að setja númerin á öruggan stað.. Við röltum með miðann inn í aukaherbergi sem átti að vera vinustofa og þar var korkplata á veggnum og ég sagði "setjum hann hér" en það var einhver miði þar fyrir.. Jú viti menn.. Auðvitað símanúmerin þeirra... Hehehehe!!!!! Þetta skrifast víst á mig....
Annars er haustlegt í Malmö þessa dagana.. Rok og haustlauf fjúka út um allt.. Hvenær Svíarnir kveikja á hitanum í húsunum veit ég ekki en mér finnst ALVEG vera kominn tími til þess.... Annars sögðu Sænsku veðurfræðingarnir að það yrði alveg sko HEVÍ rok í dag.. Jæjja þetta var bara eins og góður dagur á Hvanneyri.. Skilst að veturinn sé bara skollinn á heima á Fróni...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2007 | 21:52
Prófdagur hjá Valda
TIL HAMINGJU MEÐ BÍLPRÓFIÐ SUNNA!!!
18 DAGAR Í NÝJA ÍBÚÐ
Valdi fór í próf í morgun. Það var fyrsta prófið sem hann tekur í skólanum en systemið er þannig að hann tekur stuttar tarnir og svo er prófað úr hverju efni fyrir sig. Þetta var próf í Silviculture of Broadleafs og aðallega spurt um tegundir sem vaxa ekki eða illa á Íslandi en Valdi heldur að þetta hafi nú gengið sæmilega.
Ég tók þvottadag í morgun en einhver fáviti hafði sett eitthvað inn í lásinn á hurðinni milli Blokkanna svo bara fólk í næstu blokk gat þvegið í eina viku.... En loksins var gert við þetta. Mér finnst svo gott að þvo á morgnana því þá fæ ég allar vélarnar fyrir mig en hins vegar gekk það ekki upp í morgun og ég var staðin að verki að setja í báða þurrkklefana.. Úpps.. En það var í fínu lagi ég bara játaði á mig syndir mínar og konan bara skellti sínu dóti í þurrkherbergið.. Skildi alveg að ég var með svo mikinn þvott..
Þegar Valdi kom heim úr prófinu þá píndi ég hann með mér í Sopstationen (góða hirðin) en ég elska að fara þangað og skoða dót.. Þar fann ég alveg brjálaðislega flott 12 manna antík matarstell með sósuskál og 6 auka bökkum og skálum fyrir 7000 krónur íslenskar.. En sem betur fer hafði Valdi hemil á mér og taldi mig ofan af að kaupa þetta.. Nú hefur verið búin til ný regla að Valdi kemur alltaf með í Sopstationen eða þá að ég fari þangað án peningaveskisins svo ég kaupi nú enga vitleysu!!!!! Síðan dró ég hann upp í Lund því ég hafði séð þar gamla leirkrukkku sem ég var óskaplega skotin í en ákvað að hemja mig í það skiptið.. En svo fann ég aðra svipaða í Sopstationen sem ég keypti og þá langaði mig í hina í stíl.. Valdi snillingur fann búðina aftur en ég er svo gersamlega áttavillt að ég hefði aldrei rambað þangað ein.. Og við keyptum krukkuna en þetta er 100 ára gömul Höganes krukka en Höganes er eldgömul leirkeragerð sem er enn við lýði en hefur eittvað uppdaterað sig í nýtískuvörur.. Við ætlum að fara þangað einhvern daginn í heimsókn og skoða tvær aðrar leirkerasmiðjur á svipuðu svæði.
Síðan fórum við heim og ég fór að læra og Valdi að vinna í tölvunni. Seinna um kvöldið tók ég törn í að leita að miðanum með símanúmerum fólksins sem við leigjum hjá í næsta mánuði en fávitarnir við erum búin að týna miðanum... Djísus... En við ætlum að rúnta til þeirra um helgina og banka upp á til að redda þessu...
Verð í lokin að segja frá atviki sem gerðist í El Gigante (ELCO) um daginn þegar við keyptum Múltíprentarann... Ég hélt ég myndi deyja.. Við vorum sum sé búin að kaupa prentarann og vorum að skoða allskonar hluti sem okkur vantar ekki td. bílagræjur.. Græjurnar voru allar settar upp á vegg tengdar við hátalara til að prófa hljóðið.. Flókið stjórntæki var svo til að ákveða hvaða græju var hlustað á í það og það skipti.. Valdi fór að ýta á takkana og mér leist nú ekki á blikuna og sagði honum að hætta.. En nei hann fiktaði áfram þar til það blastaðist einhver 1 græja af 10... HÁÁÁÁÁÁTTTTT.. Búðin er jafn stór ef ekki stærri en stóra Elco heima og ég get svaið að ég held að fólkið út á bílaplani hafi heyrt í græjunum... Ég stökk á alla "lækka" takka og Valdi stökk á stjórnborðið.. Loksins hætti hávaðinn eftir pínlega langan tíma... Við hundskuðumst í burtu og hefðum gefið handlegginn fyrir hauspoka!!!!
Hávaðakveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007 | 22:05
Próflestur og dýratrums
19 dagar í nýja íbúð..
Nýtt myndaalbúm enn og aftur.. Verð að minnka þetta myndatrums því það tekur svakalegan tíma.. Eins gott að einhver sé að skoða þetta.
Annars er fátt um daginn hans Valda að segja nema að það var PRÓFLESTUR Í ALLAN DAG.. Hann fór á bókasafnið í Alnarp til að læra eftir hádegið og svo í kaffi til Rakelar þar sem við áttum póst að vanda en við höfum misnotað heimilisfang hennar algerlega til að fá póst til okkar.
Ég hins vegar vaknaði 6.30 til að komast í lestina 7.42 til Köben en í dag áttum við að fara á Zoologiske museum (ekki sl. mánudag eins og ég hélt). Ég var hins vegar svo snemma á ferðinni að ég náði 7:22 lestinni.. Reyndar þurfti ég að hlaupa í panikkkasti og ýta á hnappinn á öllum hurðum ásamt einhverjum Jakkalakka sem var alveg að panikka.. Og loksins opnaðist ein hurðin og við komumst inn.. Svona er ég sjúklega stundvís að ég náði lestinni á undan.. Það er nú eitthvað að því.. En jæjja það var ágætt að vera tímanlega.. Fyrir hádegið vorum við á Náttúrugripasafninu sem var mjög áhugavert. Yfirsafnakonan var reyndar óskaplega neikvæð á allt því hún fílar ekki húsnæðið og virðist ekki nenna að gera neitt í skipulagi eða slíku fyrr en þau flytja í nýtt sem verður í fyrsta lagi 2009. En mér fannst þetta skemmtilegt en skrýtið safn. Þau blanda saman sögu náttúrufræðinnar og svo dýrunum. Þarna var mikið um landkönnuði og einnig var þarna sýning um notkun á fjöðrum hjá mannfólkinu í gegnum árhundruðir.. Td. var þarna dúnúlpa og indíánahöfuðskraut og líka gína í brasilískum kjötkveðjuhátíðarbúningi. Þetta var ljómandi skemmtileg pæling. Í hádeginu fórum við heim til Carolyn í bekknum til að borða nestið okkar. Hún býr í yndislegri íbúð þarna rétt hjá safninu. Ég er bara svo hrifin af hreinum og hvítum íbúðum þessa dagana að ég gæti verið svolítið hlutdræg. Eftir hádegið fórum við í zoologiske garden sem kom í ljós að var náttúrulega bara dýragarðurinn hér í Köben. Hann var mjög dapurlegur, skiltin í niðurníðslu og dýrin þunglynd eða eitthvað skrýtin í hegðun. Búrin voru skítug og þar fram eftir götunum.. En þetta var lífleg heimsókn, sérstaklega parturinn í Reptile húsinu. Þar fengum við að sjá fullt af exótískum eðlum, snákum og skordýrum. Svo fengum við að halda á herlegheitunum. Ein stelpa í bekknum sýndi okkur dýrin en hún er líka starfsmaður þarna. Ég var svo dugleg að halda á tveim slöngum og einnni eðlu.. Sleppti hins vegar kakkalökkunum og lirfunum..
Eftir að við vorum búin þarna þá tók ég strætó niður á Ráðhústorg en á leiðinni þá þurfti strætó að stoppa fyrir Margréti Danadrottningu og forseta Brasilíu í rosa fancy bíl með löggufylgd og fánum.. Ekkert smá kúl.. Ég sá Margréti drottningu mjög nálægt og mjög greinilega... Einnig sá ég kallinn en gerði mér ekki grein fyrir hver þetta var. Kúl.... Í stað þess að hundskast upp í lestina á Hovebanegaard þá fékk mín þá flugu í höfuðið að labba upp Strikið en ég hef aldrei labbað það frá upphafi til enda.. NIÐURSTAÐA: Strikið er ekki mjög spennandi verslunargata og alveg troðfull af Íslendingum.. En þegar á endann var komið þá fattaði ég að ég þurfti að labba hálft Strikið til baka til að komast svo Köbmagergade inn á Nörreport.. Labbi, labbi, labbi, labb.. Ég var eiginlega búin að labba mig upp að lærum þegar ég kom heim.
Kvöldið var rólegt og fór aðallega í innsetningu á myndaalbúminu.. Ætla að vera dugleg á morgun að læra en Múltíprentarinn er alveg að SVÍNVIRKA en ég skanna inn skýringarmyndir úr orðabók og raða upp og skrifa íslenskar skýringar við. Þetta hjálpar mér mikið. Auk þess er ég nánast að þýða plöntubókina sem er á dönsku.. Það er eiginlega eina leiðn til að komast í gegnum þessa dönsku.. En hraðinn er að aukast hjá mér..
PS. hef ákveðið að leggja báðum tölvunum mínum þar til við fáum nýja íbúð og getum kallað til þjónustuaðila frá internetfyrirtækinu. Eins og er þurfum við að fara í gegnum Írakann og við nennum því ekki. Ég held það sé öllum fyrir bestu að ég bara leggi tölvunum og haldi geðheilsunni (minni og Valda) góðri til mánaðarmóta.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.9.2007 | 13:52
Staffanstorp og afmæli
20 dagar í nýja íbúð.. Íha..
Nýtt myndaalbúm fylgir þessari færslu..
Á sunnudeginum var lært fram að brottför til Staffanstorps en okkur var boðið í kaffi til Önnu Maríu og Vilbergs sem búa þar ásamt sínum tveimur börnum. Þau eru búin að vera í Svíþjóð í 7 ár og gátu gefið okkur ýmis ráð. Við fengum vöfflur og hjónabandssælu.. Ummm.. þvílíkt lúffengt og svo röltum við út í matjurtagarðinn þeirra og skoðuðum hann og næsta nágrenni. Óskaplega ljúfur dagur.
Á mánudeginum lagði ég extra snemma af stað í skólann því við áttum að fara í Zoological Museum og það var lengra í burtu og eftir 2ja tíma ferðalag og mígandi rigningu þá var bara enginn mættur þarna nema ég. Eftir spjall við afgreiðslukonuna á ensku þá sagði hún "ertu ekki íslensk?" og viti menn þá var þetta Íslendingur.. En niðurstaðan var að ég hafði eitthvað misskilið málið og dreif mig bara upp í skóla og þá hafði ferðinni verið frestað og ég hafði greinilega misst af þeim upplýsingum. Örugglega verið sagt á dönsku!!!! Fram til hádegis var bara umræða um Svampefest og gengið út frá því að við notuðumst við Ísskápahugmyndina mína, snilld. Þetta verður bara gaman.. Ég dreif mig heim eftir klúður lestarferð.. Þeir henda manni bara út hér og þar og fella niður ferðir og fresta og ég veit ekki hvað og hvað.. Gersamlega óþolandi.. Á leiðinni heim þá reddaði ég afmælisgjöf fyrir Valda en í ár var frumlegheitunum ekki fyrir að fara og mér datt bara ekkert í hug svo ég gaf honum viftu en slíkt vantaði sárlega á heimilið... Gasalega rómantískt og útpælt ekki satt.. hummmmmm... Valdi kom svo heim úr vettvangsferð þar sem hann kynnti verkefnið sitt ásamt hinum tveim úti í skógi en það hafði verið mígandi rigning allan daginn og það var hægt að vinda Valda í heilu lagi þegar hann kom heim en nýja úlpan svínvirkaði... Við skutluðumst svo að kaupa múltíprentara og fengum loks afgreiðslu eftir dúk og disk.. Ég verð svo geðvond við svona aðstæður að ef ég hefði vitað um annan stað sem seldi þessar græjur hefði ég farið þagað.. En við höfðum gefist upp á laugardeginum á að bíða eftir afgreiðslu... græjan kostaði 14 þúsund krónur sem er talsvert mikið ódýara en heima tel ég.. Þá fórum við til Rakelar að sækja póstinn okkar og Valdi fékk afmælisgjöf frá Rakel og guttunum en það var hitabrúsi en eftir rigningarferð í skóginn um morguninn þar sem gott hefði verið að hafa með sér kaffi, þá datt Rakel þetta í hug.. Hrein snilld.. Síðan "bauð" ég Valda út að borða en við duttum óvart niður á rosalega fancy veitingahús í miðbænum.. Pöntuðum fjórréttað og líka fyrirfram ákveðinn vínseðil fyrir hvern rétt.. Svo voru allskonar aukaréttir inn á milli.. Þjónarnir þaulæfðir og ruku til og frá með hnífapör og rétti og við vorum ekki alltaf alveg viss um hvaða hnífapör færu með hverju eða hvaða matur eða meðlæti ætti saman og eins með vínið.. Þetta var eiginlega pínlega fínt.. En hver réttur eða diskur var algert lostæti.. svona bragðorgía og allt vel fram sett.. Rauðvínið sem við fengum með aðalréttinum var svo hrikalega gott að það rann niður eins og flauel... Þetta var ósköp ljúft en við sátum þarna frá 8.00 til 10:30 um kvöldið... Tók aðeins lengri tíma en Burger King... (og kostaði "aðeins" meiri pening). Ég held þetta hafi allavega verið það fínasta sem ég hef farið út að borða síðan ég var notuð sem tilraunadýr fyrir kokkalandsliðið fyrir Morgunsjónvarpið hér um árið en þá sat ég á hótel Óðinsvé dagstund og fékk örugglega 10 smáretti sem voru snilld...
Í dag er Valdi í próflestri og ég er að gaufast í tölvumálum. Ég nettengdist á minni tölvu á þráðlausu neti sem einhver er með hér í húsinu og Guðjón tölvuséni á Keldnaholti gat þá tengst minni tölvu... Greyið var í 1 og hálfan tíma að reyna að nettengja mig með kaplinum en það er bara ekki hægt.. Ég meina hvernig getur glæný tölva verið með svona vesen..... Skil þetta ekki.. Og geðheilsan mín er komin til ANDSK..... Svo þarf ég að fara í gegnum póstinn okkar að heimann sem kom í gær og þar kom í ljós að það er enn verið að rukka mig fyrir nettengingu heima, Stöð 2 hefur ekki endurgreitt okkur það sem við áttum að fá, Spölur hefur ekki borgað til baka tryggingagjaldið fyrir gangnalykilinn , Vís er enn að rukka bílatryggingar á bíl sem fór af númerum fyrir skömmu... Og svo framvegis.. Getur ekkert gerst automatískt í þessu þjóðfélagi... Af hverju þarf ég að pína fólk til að borga mér það sem mér ber... Þvílíkt vesen og langlínusímtöl... Já geðheilsan er tæp þessa stundina en lagast vonandi bráðum....
PS. Ég setti inn myndaalbúm af mér í vinnunni á fréttastofunni. Hann Hvati í Danmörku sendi mér þessar myndir af mér þar sem mig grunar að þetta hafi verið síðustu vaktirnar mínar og ég á enga mynd af mér í vinnunni eftir 10 ára feril eða meira.. Vona að Hvata sé sama þótt ég seti þessar myndir inn...
Geðbilaðar kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.9.2007 | 19:48
Afmælið hans Stefáns
Nýtt albúm með þessari færslu
23 dagar í nýja íbúð..
Jæjja við sváfum út og nutum þess í botn en þurftum svo að lufsast á fætur um ellefu. Ég þreif eldhúsið sem ég nenni helst ekki að gera þessa dagana, hvað þá að þrífa aðra hluta íbúðarinnar.. Ég meina við erum að fara að flytja.. eftir 23 daga..
Við ætluðum að drífa okkur í smá stúss áður en við færum í afmæli til Stefáns son Hildar og Sigga Þórs. Stússið fór eiginlega í klúður vegna tímaskorts. Við fórum í El Gigante sem er svona Elko hér í Svíþjóð til að skoða svona multiprentara, með skanna, ljósritunarvél og slíku. Þetta er ekki svo dýrt hér ca 14.000 kr fyrir ágæta HP vél. En ekki var nokkur lifandi leið að fá þjónustu þarna svo við gáfumst upp og ákváðum að drífa okkur upp í Lund en þegar út í bíl var komið þá komumst við að því að tíminn var ekki nægur svo við fórum í Burlov Center til að skoða skó á mig. Valdi snillingur fann á mig skó sem smellpössuðu og ég keypti þá. Sko.. hann er svo mikill smekksmaður hann Valdi.. Síðan fórum við bara aðeins á röltið og meðal annars inn í H&M í BB deildina sem er "fitubolludeildin"... Valdi er hættur að þora með mér inn í þessar "stóru stærðir" búðir því ég verð svo geðvond.. Ég meina hvað er verið að pæla með þessum sniðum og efnum. Þverröndótt gerir engri konu gott, skærir litir eru heldur ekki grennandi.. Víð hálsmál eru bara til að sýna brjóstahaldarafarið, stuttar ermar leyfa Bingó-handleggjunum að njóta sín og mittissíðar skyrtur gera ekkert annað en að leyfa stórum afturendum að viðra sig vel.. Skil ekki þessa pælingu fyrir mitt litla líf.. En einstaka sinnum dettur maður niður á nothæfa flík svo ég held áfram að fara þarna inn og svekkja mig yfir þessu...
Jæjja en geðheilsan skánaði þegar við fórum í fjögurra ára afmæli Stefáns sem er sonur Sigga Þórs og Hildar og þau búa í Lomma í yndislegri íbúð. Þarna voru nokkrir íslendingar og ansi mörg börn sem voru svo spennt og skemmtu sér vel. Búið var að reisa "Partý-tjald" í garðinum og þar var afmæliskakan. Kakan var svona í sjóræningjastíl og það var afmælið í heild sinni líka. Veitingarnar voru þvílíkt góðar og glæsilegar. Eftir veitingarnar þá stjórnaði Siggi Þór leit að fjarsjóðskistu við mikinn fögnuð krakkanna og svo var farið í kapphlaup, boðhlaup og fleira.. Þetta var einstaklega skemmtilegur dagur í góðum félagsskap.
Þegar heim kom tók hins vegar við geðvonska yfir tölvunni minni sem ákvað núna að tengjast ekki nýju þráðlausu músinni.. En það poppaði í lag áðan með einum takka.. Vildi bara óska að tölvurnar mínar vildu nettengjast.. En það gerist bara seinna.
Valdi eldaði fínustu kálfasteik sem reyndar var ólseig en afskaplega bragðgóð. Ó já hér er sko hægt að hafa steikur á hverju kvöldi án þess að fara á hausinn..
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2007 | 20:12
Skógardagur
24 dagar í nýja íbúð....
Myndaalbúm fylgir þessari færslu.
Valdi fór í dagsferð með skólanum í dag í skóginn í Skabersjö. Þar unnu nemendur í hópum að ýmsum verkefnum eins og að taka borkjarna úr beykitrjám og telja árhringina, telja sjálfsáð beyki á ákveðnu svæði og áætlua viðarrúmmál og gæði trjánna á svæðinu. Dagurinn var hinn skemmtilegasti enda var ágætis veður og stemningin góð. Nemendur höfðu einnig unnið hópverkefni í vikunni á undan og helmingur þeirra var kynntur úti í skógi í dag en hinn helmingurinn á að kynna á mánudaginn. Hver hópur fékk ákveðna trjátegund til að fjalla um út frá nýtingu í þeirra heimalöndum og hópurinn hans Valda fjallar um Ösp. Í dag voru teknar tegundirnar: Eik, Beyki, Elri og hlynur. Í ferðinni sáu þau lítinn snák í grasinu sem er friðaður hér í Svíþjóð. Hann spriklaði ógurlega þar til honum var sleppt. Einnig slæddist með í för froskur sem varð á veigi þeirra og var hinn gæfasti. Skabersjö er skemmtilegt svæði sem er mikið notað til útivistar en Valdi var næstum "keyrður" niður af nokkrum langhlaupurum sem þóttust ekki sjá skógfræðinemann við vinnu sína!!!!
Ég átti ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan 10.15 svo ég fékk að sofa klst. lengur í morgun.. Lúxus... Það hvarflaði reyndar að mér að mæta ekki þar sem alls 3ja tíma ferðalag fyrir eina klst. og 45 mínútur í "havevandering" var eiginlega stór spurning hvort væri þess virði.. En ég dreif mig af stað því mér finnst þessir tímar skemmtilegir og lærdómsríkir. Í lestinni var hópur af einhverskonar skátum sem sungu "Ging, Gang, Gúllí, Gúlli" (eða eitthvað svipað.... ) í allavega 20 mínútur... HALLÓ... aðeins of mikil gleði aðeins of snemma... En loksins þögnuðu þau.. Ég meina eiga þessi börn ekki að vera í skólanum á þessum tíma... En líklega voru þetta nú ekki skátar heldur eitthvað lið í einhverju frá einhverjum skóla.. þau voru allavega í miklu stuði og sungu einhver Jolly lög og Ipodinn minn var batteríslaus og ég hafði ekkert að lesa!!!!! Auðvitða var mér svo hent út á aðalbrautastöðinni í DK. Þetta lestarkerfi er svo ruglað.. stundum fer lestin áfram til Norreport og stundum ekki. Ég er nú búin að læra að taka S-lestina áfram svo ég náði að mæta á réttum tíma.. Havevandering var ljómandi skemmtileg eins og alltaf og svo ætlaði ég nú bara að taka lestina til baka en þá var ferðinni aflýst og næsta ferð var með seinkunn svo það voru um 48 mínútur í næstu lest.. Djísus.. svo ég bara rölti mig niður einhverjar verslunargötur. Ég fann yndislega búð sem heitir Notre Dame og selur fullt af hlutum sem mann vantar EKKI... Mér tókst að versla tvær skálar, tvö glös og eina bastkörfu... Það er svolítið fyndið að strolla niður Strikið.. Þar eru bara Íslendingar, hægri og vinstri, alveg fjallhlaðnir verslunarpokum... Þegar niður á aðalbrautarstöðina var komið þá var ég svo þyrst að ég var að deyja.. Ég hálf skreið að einhverjum standi þar sem stóð " Are you thirsty?" Ó JÁ..... svo stökk ég upp í lest sem ég var ekki alveg viss um að væri að fara til Malmö.. En sem betur fer tók ég sénsinn því fólk var víst búið að bíða í klst. eftir þessari lest og hún var að fara til Malmö... Veit ekki hvað var í gangi í lestaráætlunum dagsins en þær eiga að vera á 20 mín. fresti.. Í Malmö fór ég á Sopstationen (góða hirðirinn) til að kaupa trog sem ég hef lengi girnst.. en þá var auðvitað búið að selja það.. Ég keypti hins vegar flotta krukku í staðinn.. En á þessum tímapunkti var ég orðin svo þyrst og þreytt að ég bara pantaði taxa heim.. Svo kom Valdi og við röltum aðeins niður í bæ en eftir það kíkti Rakel á okkur með guttana og svo Lilja og við fórum og fengum okkur að borða.. Svo var rölt heim og ég er á leiðinnin að krassa niður í rúm þar sem hitinn fer illa í mig og það er erfitt að labba í sól með marga innkaupapoka... (Shop untill you dropppppp það er það sem gerðist)... Og ég er DROPP núna...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar