Lasin heima í fjólubláu íbúðinni..

Já það gerist varla verra en ég var lasin heima í gær í fjólubláu íbúðinni.... Hryllingur.. Hins vegar svaf ég til hádegis og leið svo talsvert betur... Síðdegis kom Valdi svo heim og við fórum í stúss.. Fórum með hjólið mitt í yfirhalningu en það var svona heldur vanstillt en nú er það alveg snilld.. Keyptum blek í nýja prentarann okkar og kíktum á svefnsófa í Jysk (Rúmfatalagernum). Alveg óskaplega eru þeir ljótir og dýrir..

Ég er enn að vinna í internetmálum fyrir okkur í nýju íbúðinni.... Ég get bara ekki skilið hvað er svona flókið við það að námsmenn vilji fá internettengingu... Það liggur við að við þurfum að framvísa fæðingarvottorði og sakavottorði... en ekki alveg, bara yfirlýsingu frá Lín og frá skatteverket um kennitölu... Djísus... Ég hringdi í annað fyrirtæki í gær og spurði um nettengingu en þá var svarið þar að ég gæti bara alls ekki fengið tengingu hjá þeim nema að hafa heimasíma sem tæki 6 vikur að fá... Er ekki allt í lagi með þessa þjónustu? Síðan stendur skýrt á heimasíðunni að það sé alveg hægt að fá net í gegnum breiðbandið... Jæjja ég bara brosi og tel upp að tíu þegar ég fæ svona þjonustu...

Um kvöldið þá var nammikvöld. Valdi og Lilja fóru í Coop og keyptu fullt af sælgæti og svo horfðum við á dramatískan þátt af Grays anatomy... Bara kósi... Ég var á meðan í því að fara í gegnum allt blaðrusl á heimilinu og henda til að vera tilbúin til að pakka niður.

Í dag er frí í skólanum hjá mér svo ég er að dunda mér við niðurpökkun og lærdóm. Hlakka svo óskaplega til að flytja...

Kveðjur frá Malmö


Oh... Frestun á flutningi...

Steinunn, nýgifta, til hamingju með afmælið...

Mattihildur í Lomma. Til hamingju með afmælið líka

Ó já.. hún Anna Ringkvist vinkona okkar með íbúðina hringdi í dag og var alveg miður sín en við getum ekki fengið íbúðina fyrr en á föstudag... Arrrrrrrrrrrrrrrrggggg.... En þau eru svo indæl bæði tvö að við vorum ekkert að æsa okkur yfir þessu... Ég er reyndar á tæpustu taug hér í fjólubláu íbúðinni.. En þetta reddast allt saman.

Valdi fór í próf í morgun, hefði getað gengið betur en vegna veikinda var undirbúningur ekki eins mikill og til stóð en hann vonast til að hafa náð þessu samt.

Þriðjudagar eru alltaf langir og erfiðir hjá mér en þá er Planter áfanginn á dönsku allan daginn. Þetta er snilldar áhugaverður kúrs en bara á dönsku... Svo ég er farin að hafa verulegar áhyggjur af prófinu.. En í dag vorum við að fjalla um burkna og ég var vel lesin svo þetta var mjög gaman.

Í hádeginu þá lenti ég í baráttu við nokkrar "finkur" eða litla litaða sæta fugla úti í Botanic gardens þar sem ég sat á bekk og var að borða samlokuna mína og tala við Valda í símann. Þá fóru þær nokkrar að setjast á bekkinn og koma nær og nær.. Svo trítluðu þær yfir lærin á mér.. Mér fannst þetta óskaplega fyndið og sætt... Svo í gríni þá rétti ég samlokuna framan í eina sem notaði tækifærið og nældi sér í bita... Enn fyndnara... En svo kom ein og henti sér á samlokuna og stóð á puttunum á mér og reyndi að hafa skinkuna úr samlokunni.. Ég veifaði hendinni og reyndi að losna við fuglinn og skellti á Valda í snarhasti... Og þá flaug finkan burt... OK.. ekki svo fyndið lengur og ekki svo sætar... En svo komu þær aftur allar þrjár og ég gaf þeim sitt hvorn bitann og þær flugu glaðar í burtu... Allir vinir.. Rottan sem ég hitti um daginn reyndi þó allavega ekki að hafa af mér matinn...

Valdi fékk nýtt hópverkefni í dag en það er um "BILUN" "GISJUN" eða hvaða orð sem þið viljið notað yfir "precomercial thinning" sem er snemmgrisjun... Hann á að skila þessu í næstu viku..

Eftir bömmerinn með íbúðina þá ákváðum við Valdi bara að fara út að borða á Boomers og fá góðu hamborgarana þar og hafa ekki áhyggjur af neinu.. Reyndar tók ég til í eldhúsinu sem ég hef verið að fresta í smá tíma þar sem það er ekki hægt að bjóða Lilju upp á skítugt eldhús  og myglutilraun á eldhúsborðinu... En tilraunin fer upp í skóla á morgun og fær að mygla þar.

Kveðjur frá Malmö


Enn meiri internetraunir...

Í dag fór Valdi á bókasafnið til að læra og var þar með Rakel og þremur öðrum að læra undir próf í allan dag, þetta lærdómssamstarf var mjög alþjóðlegt en í hópnum voru Malasíubúi, Svíi og Þjóðverji.

Ég var heima að læra þar til Lilja kom með bakkelsi og hitaði súkkulaði fyrir okkur.. Umm... rosa næs..  Þá var bankað á hurðina og þar stóð hún Lamia Indverski "landlordinn" okkar.. Jú núna ætlaði hún að sýna tilvonandi leigjanda íbúðina. Sú virtist óttaleg frekja og horfði bara á mig og sagðist þurfa að vita NÁKVÆMLEGA hvenær við flyttum út... En þar sem við erum búin að borga leigu fram til mánaðarmóta þá gat ég nú ekki alveg séð ástæðu fyrir þessari frekju svo ég sagði að við færum bara seinna í vikunni... Og hún ítrekaði að hún þyrfti að vita NÁKVÆMLEGA hvenær... og fékk sama svar. Þá gekk hún inn í eldhús og spurði hvort ég myndi ekki skila af mér íbúðinni hreinni, td. inni í öllum skápum. Ég sagði bara skýrt NEI.. Ég fékk íbúðina skítuga, ég þríf eftir mig en ekki krónu meir... Það kom svipur á hana og hún túlkaði fyrir Lamiu sem bara dæsti og brosti út í loftið. Ég hefði helst viljað benda á að íbúðin væri MIKLU hreinni nú en þegar við fengum hana í hendur upphaflega. Við erum hins vegar ekki alveg sátt við það að þau séu að hirða leigufé af okkur og nýjum leigjendum fyrir október. Erum að spá í hvort við eigum að gera veður út af því...

Jæjja svo skelltum við Valdi okkur upp í Burlov Center til að skrá okkur fyrir eina mögulega internetinu sem hægt er að fá opnað á tveimur tímum en ekki 3 vikum... En auðvitað þurfum við þá sænskt ID card.. Djísus... Svo við getum bara ekki fengið internet yfirhöfuð... En jæjja við ætlum að leita krókaleiða í þessu eins og öðru... En það að fá sænskt ÍD card er víst alveg heljarins vesen...  Maður bara brosir út í annað yfir þessari vitleysu í Svíunum... Þeir hafa ótrúlega þolinmæði í að flækja málin..

Bestu kveðjur frá Malmö


Flensudagur og internetraunir!!

Fáum ekki nýju íbúðina fyrr en á miðvikudag.

Frábært að sjá að Dafnar er að dafna vel á Hvanneyri og heimaskógurinn að komast í aktion.. Snilld..

Fúlt að missa af "Maður í mislitum sokkum" partýi í Brún.. Maður fær bara heimþrá við lýsingar Betu á kvöldinu...

Valdi er alger flensa í dag. Hóstar og hnerrar og er með hita. Ég er svona hálfsloj.. en er að vona að ég sé að sleppa.. Þetta er slæm helgi fyrir Valda til að vera með flensu því hann á að vera að læra undir próf en það gengur illa.. Svo dró ég hann út í hádeginu til að skoða internettengingarmál fyrir nýju íbúðina.. Þetta byrjaði sem ósköp næs rölt í góðu veðri niður aðalgötuna og þar rákumst við á skemmtilegan grænmetismarkað á Drottningartorginu þar sem var selt lífrænt grænmeti, gærur, heimabökuð brauð og ýmislegt fleira spennandi.  Svo héldum við röltinu áfram og þá var aðeins byrjað að rigna. Og þegar kom að Litla torgi þá var þar handverksmarkaður í tjöldum. Valdi greyið var mikið lasinn en ég hljóp um eins og geðsjúklingur til að ná að skoða þetta allt án þess að gera út af við Valda sem bara hnerraði.. Ég fann alveg  ÆÐISLEGA hringi.. en ég er með mikla hringadellu og hef ekki fundið nýtt áhugavert lúkk á steinahringjum í áraraðir en þarna voru frábærir hringir.. Ég er búin að HINTA við Valda að ég eigi afmæli í lok okt.. en hann minnir bara á að ég hafi gefið honum VIFTU!!!!!

Þegar þarna var komið þá var byrjað að rigna svolítið meira og við fundum símabúð og fengum þær upplýsingar að það tæki 3 vikur að fá internettengingu og það væri sama hjá hvaða fyrirtæki, það væru alltaf þrjár vikur.... COMMON... er þetta ekki ólöglegt samráð?  Það setur mig í hrikaleg vandræði að hafa ekki netið því ég er algerlega háð orðabókinni á netinu og google-myndunum til að læra... Svo er bara hægt að fá netið ef maður skráir sig í heilt ár.   Ég varð alveg brjáluð við að heyra þetta og svo var líka farið að rigna allverulega svo ekki bætti það geðheilsuna.. Einu sinni hélt ég að mesta skriffinnsku vesenið í heiminum væri í Gambíu því þar sögðu þeir alltaf "come back to morrow" en eftir að ég fattaði að það þýddi að ég ætti að borga mútur þá fór allt að svínvirka, hratt og vel... Síðan hélt ég að mesta vesenið væri á Íslandi en nei.. Nú hefur Svíþjóð vinninginn í veseni og formlegheitum.... Verst maður getur ekki bara mútað þeim líka.... það kerfi svínvirkaði....

Jæjja annars er bara lærdómskvöld í kvöld hjá mér og vonandi Valda líka.

Kveðjur frá Malmö


Lestarraunir...

Flytjum á þriðjudagskvöld.. Íha..

Valdi er í próflestri þessa dagana svo hann tók sig til og hjólaði upp í Alnarp á bókasafnið til að hressa sig við og læra. Leiðin er skemmtileg og þægilegt að hjóla hana enda eru skipulagðir hjólastígar hér um alla borgina. Það tók Valda um 40 mínútur að hjóla í skólann aðra leið.. Annars er Valdi með flensuskít og gengur hér um hnerrandi og hóstandi... Valdi fékk einkunn um daginn úr fyrsta prófinu sem hann tók við SLU og hann stóð sig bara nokkuð vel og var vel yfir meðaleinkunn. Svo er próf næsta þriðjudag og vonandi gengur honum eins vel.

Ég fór í skólann í morgun og lagði snemma af stað á lestarstöðina þar sem ég þurfti að endurnýja mánaðarkortið fyrir lestina. Ég var náttúrulega svo snemma að ég náði 7:42 lestinni.. Skaust þar inn á mínútunni og náði sæti og allt.. rann svo bara inn í Ipodinn minn og var eiginlega hálf sofnuð þegar ég fatta að lestin fór bara ekkert af stað... Svo sé ég að 8:02 lestin er komin á sporið við hliðna og fólk fer smám saman að týnast þar yfir.. Ég spyr einhvern tölvunörd fyrir framan mig hvort hann viti hvað sé að gerast, hvort við eigum að færa okkur yfir. En hann sagði að engin tilkynning hefði komið um slíkt.. En eftir nokkrar mínútur þá vorum við mjög fá eftir og svo slokknuðu öll ljósin í lestinni og hurðirnar lokuðust...  og við ein eftir.. Úpps.. Svo við drifum okkur út en þá var 8:02 lestin stútfull svo ég varð að bíða eftir lestinni 8:22... Arrrrrgggggggg......  Mætti of seint og það tók mig 2 tíma að komast í skólann, meira ef maður telur með labbið í 25 mínútur..

Um daginn lenti ég líka í fáránlegu atviki. Þá var ég á Nörreport og það stóð Kastrup/Malmö C. á skjánum sem næsta lest á spori tvö... Lestin kemur ég og fleiri hoppum inn og lestin lokar svo hurðum og rennur af stað og um leið heyrist í hátalarakerfinu "This train is NOT going to Malmö".... Ha.... Hvurslags gildra var þetta... Nánast allir í vagninum hoppuðu á fætur.... Og út á næstu stöð sem heppilega var Aðalbrautarstöðin..... Skil ekki svona lestarrugl...  Annars náði ég að sofna í lestinni í dag... Ansi þægilegt.. fáir í lestinni, ég var með gott sæti og svo bara vaknaði ég og vissi ekki alveg hvort ég væri enn í DK eða komin til Svíþjóðar eða bara komin aftur til DK.....

Þegar heim var komið þá fórum við Valdi í Sopstationen því ég gat ekki gleymt einni krukkunni sem ég sá þar um daginn en gat ekki borið á hjólinu mínu... Krukkan var enn þarna og þá sá ég að þetta var ekta gömul "Vallakra" krukka en líklega var ástæðan fyrir því að enginn hafði keypt hana enn sú að fyrri eigandi hafði málað hana gula að innan... Dó... Það var ljótt og eiginlega eyðilagði krukkuna. En ég ákvað að kaupa hana samt og athuga með málingarleysi sem og ég gerði og það svínvirkaði og nú er krukkan alveg glansandi fín uppi á skáp hjá okkur... En nú hef ég lofað að láta af krukkukaupum í bili allavega en ég hef fengið 6 frábærar ekta sænskar leirkrukkur fyrir um 7000 kr. íslenskar í skranbúðum eða Sopstationen. Bara nokkuð góður díll..

Kveðjur frá Malmö


Valdi kominn heim..

Nokkrir dagar í nýja íbúð.. Flytjum líklega ekki fyrr en eftir próf hjá Valda á þriðjudaginn.....

Nýtt albúm í dag..  

Nú er ég búin að endurheimta kallinn minn... snilld.. En Valdi kom heim síðdegis í dag eftir skemmtilegt og lærdómsríkt skólaferðalag til Tönnersjöhed. Skógurinn þar er tilraunaskógur sem SLU sér um að mestu leyti. Þarna eru endalausar tilraunir á vegum SLU og fleiri aðila en þarna eru um 1000 hektarar af skógrækt. Svæðið er rosalega skemmtilegt bæði til útivistar og kennslu. Dagarnir fóru í það að gera ýmsar æfingar sem kennararnir lögðu fyrir. Á kvöldin var talsvert stuð en tveir nemendur áttu afmæli í ferðinni og af því tilefni var haldið strandpartý og svo annað hefðbundið partý... Valdi ellismellur sleppti strandpartíinu en lét nú sjá sig í hinu partýinu... Krakkarnir eru náttúrulega svolítið yngri og djömmuðu eitthvað öll kvöld enda alveg eftirlitslaus... Nú er eitt par komið í bekkinn en Úlo og Catrin eru byrjuð að skjóta sig saman... úlll lall la.....

Á leiðinni heim í dag voru fórnarlömb Guðrúnar skoðuð.. En það var RISA-STÓR timburstafli sem lá í valnum eftir að Guðrún (óveður) fór yfir svæðið árið 2005. Búið var að taka gamlan herflugvöll undir timburgeymslu (lager).  Í dag eru þarna ein milljón rúmmetrar af timbri en voru um 3 þegar mest var eftir Guðrúnu. Staflinn er 2,3 km á lengd og 5-6 raðir af timbri í hvora átt út frá akveginum á milli. Svakalegt að sjá hvernig Guðrún hegðar sér.... Maður veðrur bara hræddur!!!!!

Dagurinn hennar Guðrúnar var ósköp rólegur.. Þvottadagur fyrir hádegið ásamt lærdómi og svo bara lært og lært og lært eftir hádegið..

Kveðjur frá Malmö


Fyrsta hjólaferðin

 5 dagar í nýja íbúð...

Lestin 15 mínútum of sein í morgun.. en á réttum tíma heim...

Jæjja Valdi er alveg að fíla sig í vettvangsferðinni. Þau gista rétt hjá þorpi sem heitir Gullbranna en þau eru í einhverjum skála sem heitir Gullbrannagarden og fer bara vel um þau þar. Þegar ég talaði við hann áðan þá heyrðist mér liðið vera að fara í sána.... Þau eru síðan á daginn úti í skógi sem heitir Tönnersjöhead sem er rannsóknarskógur. Þar eru þau að vinna verkefni alla daga, mæla og meta og spekúlera í hlutunum svo vinna þau líka verkefni á kvöldin..

Lestin var of sein í morgun eins og alltaf og hún henti mér út á Hovebanegard... Pirró.... Þessir þriðjudagar eru alltaf erfiðir... Mig verkjar í hausinn... Fyrst fyrirlestur svo verklegt og eftir hádegið 3 tímar af Havevandering... Ó ég á aldrei eftir að ná þessu....

Ég notaði nýju labbigræjuna mína til að mæla allar leiðir sem ég fór í dag... Heima - Centralstation 1,9 km.... Centralstation - Heim 2,2 km... Hummm.. jú ég var svo þreytt á leiðinni heim og tók minni skref... Síðan mældust nákvæmlega 550 metrar frá Skólanum og niður að Nörreport og á þeirri leið, sem tók 5,38 mín.. þá brenndi ég 38 hitaeiningum.. hehe.. Gaman að leika sér með græjuna..

Í hádeginu þá fann ég frábært mötuneyti í Jarðfræðihúsi háskólans. Þar fæst ódýr matur og þar er salathlaðborð.. Mjög girnilegt og vistlegt.. Þetta er reyndar í smá labbifjarlægð en ég ætla að reyna að fara þarna aftur... Ég var búin að spyrjast fyrir um mötuneyti á vegum skólans og enginn vissi neitt.. Týpískt... þetta hefur "mentorinn" minn líklega átt að segja mér en hún var bara í burtu fyrstu dagana mína í skólanum og gat svo aldrei hitt mig... Ég hef alltaf setið í forstofunni og maulað samlokuna mína eða ef veður er gott þá fer ég út í Botanic gardens en ég hef ekki farið þangað síðan rottan hljóp yfir tærnar á mér!!!

Þegar heim var komið þá fórum við Lilja í hjólatúr á nýju hjólunum niður í Sopstationen (Góða hirðinn). Hjólið mitt er nú eitthvað undarlega stillt en ég gat lítið notað gírana, bremsan var slöpp og svo var karfan mín allt of laus og seig niður á framdekkið.... En með smá stillingu þá verður þetta snilld að hjóla svona... Og við vorum auðvitað með nýju hjálmana líka.. Mér tókst að kaupa tvær Höganas krukkur, eina litla undir hnífapör en hún smellpassar og svo aðra undir sleifar í þeirri von að hún passaði betur en hin... Æi ég er greinilega ekki með mjög skarpt auga á stærðir en þessi var svo nákvæmlega eins og hin sem ég á og er allt of stór.. Dó... Hún er samt ljósbrúnni og þær eru voðalega flottar saman... Þarf bara að finna eitthvað hlutverk fyrir þær.. Ég hefði líklega keypt eina í viðbót ef ég hefði þorað að bera þetta á hjólinu.... Jæjja ég þarf að fara í svona krukkukaupameðferð eða sopstation meðferð en lítum á björtu hliðarnar... þær eru ódýrar...

Kveðjur frá Malmö


Trimmdagur..

6 dagar í nýja íbúð

Jæjja Valdi fór í morgun í nokkurra daga ferðalag á vegum skólans. En heppin er ég að Lilja er hjá okkur þessa vikuna svo mér leiðist ekki neitt.. Annars var reyndar dagurinn frekar hundleiðinlegur framan af... Ég var andvaka í morgun og settist við tölvuna klukkan fimm í morgun.. Stússaðist þar við að skoða kúrsa fram og til baka.. Fann nokkra nýja áhugaverða en heimasíða Kaupmannahafnarháskóla er ekki nein snilld eða þannig. Allir kúrsar fyrir næstu vorönn eru merktir 2007 því ekki er búið að uppfæra upplýsingarnar fyrir 2008, það þýðir að allar dagsetningar eru rangar og það er mjög óþægilegt og auk þess er maður bara alls ekkert viss um að kúrsarnir séu kenndir yfir höfuð.. Ég hef hingað til valið "kúrsar á ensku" og þá kemur ákveðinn listi en í dag fór ég í kúrsar á dönsku og þá kom ennþá lengri listi og hvað haldiði, flestallir kúrsarnir kenndir á ensku.. Dö... En kúrsalýsingarnar á dönsku.. Ég er ekki alveg að ná þessu sýstemi.. En núna held ég að ég sé komin með sæmilega kúrsauppsetningu, reyndar allt of margar einingar en sjáum til..

Eftir að Valdi fór þá sofnaði ég í tvo tíma og vaknaði svo og fór að læra og lærði bara allan daginn alveg fram á kvöld og þá ákvað ég að fara út að kraftlabba... Ég hafði keypt mér lítil lóð um daginn og svo keypti ég skrefamæli, svona ódýran sem maður tengir við sig.. Mér finnst alltaf svo gaman að hafa einhver svona leikföng þegar maður er að trimma... Einu sinni keypti ég GPS úr sem var alveg snilldar - labbileikfang... Þar til það hætti að virka... En fyrir ykkur sem ekki vitið þá var ég einu sinni mikill trimmari, hvort sem þið trúið því eða ekki... En allavega þá ruslaðist ég út með Ipod, skrefamæli og nýju handlóðin mín.. Og þetta var svo rosaleg gaman að ég bara hljóp og hljóp... eða þannig.. lufsaðist milli ljósastaura annað slagið.. En ég er allavega komin í stuð.. Hljóp og labbaði ca 2,5 km og var 25 mínútur að því samkvæmt mælinum góða.. Ég hef ekki hlaupið síðan ég tók smá törn á Hvanneyri hér um árið.. Fór stóra hringinn en var ekki í sérstaklega góðu formi og þegar ég kom að nýja fjósi þá ákvað ég að taka góðan sprett áleiðis heim í nemendagarða og svo þegar ég var að gefast upp þá kom einhver labbandi.. svo ég þurfti að "lúkka" vel svo ég hélt áfram að hlaupa og svona gekk þetta alla leið heim þar sem Unnsteinn og Óðinn voru að þökuleggja fyrir utan íbúðina mína.. Ég spretti úr spori létt á fæti eða þannig og hentist inn um hurðina og bókstaflega krassaði á gólfið.. Og hef ekki hlaupið síðan....

Kveðjur frá Malmö


Svampefest 2007

7 dagar í nýja íbúð!!

Vaggi: nem.gudrunb@lbhi.is Endilega sendu mér nafnið á gaurnum..

Já Guðbjörg takk fyrir gott tilboð um hjólið en ég ákvað að kaupa mér eins hjól og Valdi og vona að því verði ekki stolið og ég geti tekið það með mér heim..

Það er búið að vera mikið að gera því Svampefest 2007 var um helgina. Svampefest er hátíð sveppanörda í Danmörku sem er haldin í Experimentarium safninu í Kaupmannahöfn. Mörg þúsund manns koma þarna og skoða sveppi.. Bekkurinn minn var með nokkur borð á sýningunni þar sem við sýndum myglaðan mat og svo var hægt að soða myglusveppina í smásjá, við vorum líka með borð sem sýndi sveppina á markaðinum, svona almenna neyslusveppi. Þetta kom nokkuð vel út hjá okkur.

En allavega þá var föstudagurinn strembinn í undirbúningi á Svampefest. Lestin var 23 mínútum of sein svo ég kom seint í tíma sem ég þoli ekki að gera. Eftir hádegið þá vorum við bara að setja upp sýninguna í Experimentarium. Ég þoli ekki skipulagsleysi en 2 klt. fóru í að bíða eftir kennaranum honum Úlrik sem "skaust" frá. Við vorum þarna ansi margar að bora í nefið í langan tíma þar til hann kom til baka. Ég komst ekki heim fyrr en rétt fyrir hálf átta um kvöldið.

Á laugardeginum vaknaði ég snemma til að komast á Sýninguna. Allt fór í steik varðandi strætóplanið mitt og ég væbblaðist um eitthvað skemmtilegt hverfi vel og lengi í leit að réttum strætó. Ég datt inn í nokkrar antíkbúðir og á einn skemmtilegan skranmarkað þar sem ég fann enn og einu sinni tvo viðarstálbakka.. En ég endaði svo með að hoppa upp í taxa til að komast á réttan stað allt of sein.. Sýningin sjálf gekk ljómandi vel. Mikið af fólki og mikil áhugi á mygluðu matvörunum okkar. Svolítið erfitt að tala ekki dönsku þarna, sérstaklega við börnin sem hlupu skelfd í burtu ef ég tjáði mig... Ein íslensk fjölskylda leit við og þá gat ég TALAÐ....

Valdi svaf út á laugardeginum og vaknaði við borhljóð í húsinu en þau gera sér þetta stundum til dundurs í íbúðinni hér á efri hæðinni .. Lærdómsfriðurinn úti svo Valdi fór í Jagersrocenter og keypti sér hjól og grind til að flytja hjól á bílnum og svo fór Valdi í langan hjólatúr út í bláinn og bara nokkuð ánægður með nýja fjallahjólið sitt. Síðan sótti hann mig á Stöðina og við fórum til Rakelar að passa en hún þurfti að bregða sér af bæ. Guttarnir voru líflegir að vanda, við fengum okkur ís og svo gróðursettum við sveppi í klósetpappír.. Ó já.. Ég fékk sveppamassa með heim af sýningunni sem maður átti að setja á klósetpappírrúllu og vökva.. Og þá eiga að vaxa upp Österhattesveppir.. Allavega fannst guttunum merkilegt að gróðursetja sveppa"fræ" í klósetpappír... Eftir að guttarnir voru sofnaðir þá prjónaði ég hálfan rósalleppa...

Á sunnudeginum þá sváfum við út og fórum svo upp í Jagersrocenter því nú vildi ég kaupa hjól eins og Valdi. Jú ég keypti nákvæmlega eins og svo keyptum við hjálma. Ég keypti líka körfu á mitt og svo tvo hlussu lása. Ég ætla sko ekki að láta stela mínu hjóli. Ég keypti líka lítið hitatæki því það er svo ískalt í íbúðinni, Valdi keypti sér stígvél því hann er að fara í ferðalag á morgun.  Svo þegar við vorum að labba þarna í mollinu í rólegheitum þá allt í einu sé ég andlit sem ég þekki. Jú viti menn þarna var hann Óli tynes, fréttamaður af Stöðinni, á ferð með konu sinni henni Vilborgu (Boggu) og systur hennar sem býr í Lomma. Þar urðu nú fagnaðarfundir og ég fékk ágætis uppdateringu á Stöðvar 2 slúður/fréttir..

Nú erum við að far að taka til því íbúðin er í rúst að vanda en Lilja er á leið til okkar en hún ætlar að vera hjá okkur í nokkra daga og því best að reyna að feika það að hér búi fólk en ekki svín.... Valdi ætlar að elda Nautasteik í kvöld í tilefni þess að Lilja er að koma  og að hann er að fara í burtu alla vikuna. Ég verð fegin að hafa Lilju hérna þessa vikuna svo ég þurfi ekki að drepast úr leiðindum ein..

Kveðjur frá Malmö


Sögur af Káti ofurhundi...

11 dagar í nýja íbúð...

Dagurinn minn var rólegur.. En ég átti frí í dag.. Ég vaknaði seint enda einhver hálfflensuskítur í gangi hér á heimilinu. Ég þvoði þvotta og lærði í allan dag.. BORING... Valdi var í skólanum að hlusta á fyrirlestur um Swedish forest agency fyrir hádegið og svo að hlusta á nemendaverkefni og dæma þau eftir hádegið.. Hann lagði sig svo þegar hann kom heim þar sem hann var hálf flensulegur eins og ég.

Hápunktur dagsins var hins vegar að fá bréf frá Jóni bónda í Ölvisholti sem er að passa Kát en eins og þið flest vitið þá vorum við svo heppin að koma honum í fóstur í alvöru sveit þar sem eru tveir litlir guttar og vinnufólk sem atast í honum allan daginn. Hann brosir víst alveg í hring alla daga.. Gaman gaman.. En hann Kátur lenti í smá hremmingum um daginn sem hefðu getað farið illa ef hundurinn væri ekki svona hlýðinn.  Jón bóndi var að fara að gera við þakið á fjósinu og fór út á þakið og upp á efsta og brattasta hlutann.. Ekki hvarflaði að honum að Kátur myndi elta þó hann sé húsbóndahollur en.... Allt í einu heyrir Jón undarlegt hljóð og lítur við og þá rennur Kátur framhjá honum niður þakið alveg forviða á svip en stoppar í þakrennunni.. Úpps.. Jón kallar til hans "Stittu kjurr" og hann hlýddi og beið rólegur þar til tveir trésmiðir komu  með stiga og björguð honum..  Greyið litla..

Hins vegar fékk Kátur að spreyta sig á smalamennsku og stóð sig bara ljómandi vel.. Annað slagið sleppa nágrannakindur inn á túnið hjá Jóni og hann þarf að smala þeim út og í þetta sinn tók hann Kát með sem fór bara beint í að smala þeim saman í hóp og halda þeim þannig eins og hann hefði aldrei gert annað.. Snilld.. nú gat Jón fengið þarna tækifæri til að skamma rollurnar augliti til auglitis og upplýsa þær um eitt og annað viðvíkjandi landamerkjum, girðingum og beit í hans túnum og svo var þeim smalað heim til sín.. Jón bíður nú spenntur eftir að kindurnar sleppi aftur yfir á hans tún til að geta þjálfað Kát betur...

Já við söknum Káts mikið enda er þetta besti hundur í heimi...  En mikið óskaplega vorum við heppin að koma Káti á svona gott heimili.

Kveðjur frá Malmö


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 294963

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband