17.10.2007 | 17:05
Meiri sveppir og bambar..
Nýtt myndaalbúm.
Jæjja þá er enn einn sveppadagurinn að kvöldi kominn eða þannig.. Ég á reyndar kvöldtímann eftir frá 19-22.... Í dag var mígandi rigning en það aftraði okkur ekki frá því að sækja sveppina út í skóg.. Ég var heppin með sveppagrúbbu í dag en ég er með mjög skemmtilega sveppi sem vaxa á trjám og eru eins og risastórir fastir kubbar.. Ég þurfti að nota sög til að ná þeim niður... Kúl... Hápunktur dagsins í gær var hins vegar að sjá "stinksvamp" sem lítur út eins og míní-typpi og hann lyktar alveg ógeðslega. En í dag fannst annar sveppur sem lyktaði eins og úldinn fiskur (svipað og hinn).. Og hann Christian vogaði sér að setja sveppinn í hettuna hjá vinkonu sinni henni Marit... Ég var að spjalla við Marit og lyktaði út í loftið og spurði hvort þau hefðu fundið Stinksvamp.. Nei.. en einhver illa lyktandi sveppur var í nágrenninu.. við leituðum í kringum okkur og Christian bara hljó.. Ojbarasta.. Þvílíkir vinir.. hehe... Þetta er örugglega annarlegur sveppafræðingahúmor hehe..
Brenninetlurnar létu mig alveg í friði í dag. Ó já Óskar Óðinn.. ég skil alveg Brenninetlufóbíuna því þetta er sárt....
Valdi eyddi deginum í rannsóknarskóginum í Asa. Þar skoðuðu þau til dæmis ranabjölluskemmdir og svo skoðuðu þau mismunandi aðferðir við nýgróðursetningu sem miða að vörnum gegn ranabjöllu en ranabjallan er hættulegasta meindýrið í svona heilfellingum. Eftir hádegið skoðuðu þau áburðartilraun og líffræðilegan fjölbreytileika í Asa. Valdi og Rakel voru búin klukkan fjögur og fóru þá að túristast. Þau keyrðu í kringum Asavatnið og stoppuðu á nokkrum stöðum en þau fundu meðal annars kirkju í skógarrjóðri sem var svona útikirkja sem var vígð 1994, með altari, sætum, krossi og öllu saman. Einhverjir sveitungar höfðu búið þetta til. Rakel og Valdi sáu fullt af dádýrum en ekki náðust myndir af slíkum svo þau eru ein til frásagnar..... Þau telja sig líka hafa heyrt í elg (je sjúr..) en ekki séð hann.
Já Steinunn... það fer að líða að afmæli okkar systra en það er 29. október... Þá verð ég á kafi í próflestri og vona bara að kallinn gefi mér eitthvað gott að borða....
Bestu kveðjur frá Danmörku
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 19:59
Kattholt og meiri brenninetlur..
NÝTT ALBÚM
Bévítans brenninetlurnar ná mér alltaf.... Nú sagði einn kennarinn mér að leita að einhverjum svepp á stilkunum á gömlum brenninetlum.. Ég passaði mig vel þar til ég hnaut eitthvað til og stakk hendinni beint utan í eina... Arrggggg..... VONT......
Annars var þetta fínn dagur. Fyrir hádegið sveppatínsla og eftir hádegið sveppagreining en ég fjárfesti í sveppagreiningarforriti frá honum Thomas kennara sem er algert sveppaséní.. Það er varla sú bók hér á borðunum um sveppi Norðurlandanna þar sem hann er ekki einn af höfundunum.. En allavega þá bjó hann til þetta sveppagreiningarforrit sem er skemmtilegt leikfang í sveppagreiningunni.. Ég náði samt bara að greina 5 sveppi í dag... En ég lærði mikið á þessu fikti.. Hins vegar er stelpan við hliðna á mér frá Svíþjóð og hún er algert sveppanörd.. Hún greindi 35 sveppi í dag... Humm.. þarf að taka mig á.... Nei nei.. ég er ekki í sveppafræði heldur grasafræði svo ég er með afsökun... Hún er í doktorsnámi í sveppum.... kúl....
Valdi átti líka skemmtilegan dag í Svíþjóð en í dag fóru þau til Nörrakvill sem er Þjóðgarður og rétt áður en þau komu þangað sá þau elstu eik í Svíþjóð sem 950 ára gömul (ég held að einhver hafi verið að plata þau!!!) Þau í gönguferð um þjóðgarðinn sem ekki hefur verið átt við síðan hann var friðaður en það setur óneitanlega svolítinn svip á umhverfið. Þegar þessu var lokið fóru Rakel, Valdi og Pille frá Eistlandi í áttina að Vinnerby þar sem Astrid Lindgrenworld er staðsett en það er safn um bækurnar hennar og hana sjálfa, en það var lokað og þegar þau voru að fara til baka þá sáu þau skilti sem benti á Ólátagarðinn og þangað fóru þau og sáu Ólátagarðinn sem bækurnar um börnin í ólátagarði eru skrifaðar um.. Eftir það fóru þau í Kattholt þar sem Emil bjó en þegar þau keyrðu þangað fóru þau í gegnum Maríannelund þar sem læknirinn bjó sem tók súpuskápina af hausnum á Emil þear hann festi hana þar.. Ógleymanlegt atriði í sjónvarpssögunni...
Annars fattaði ég það í dag að það hefði verið skipt um borgarstjóra í Rvk fyrir helgi.. Ó my god.. maður dettur úr nettengingu í nokkra daga og verður bara alveg out.. Mér líst þó heldur betur á hann Dag heldur en Vilhjálm. En ansi er hann þó ungur.. (eða er ég bara orðin svona gömul?) Hins vegar fær hann alltaf stig fyrir algerlega ógleymanlegt söngatriði ásamt vinum sínum í brúðkaupi Halla og Röggu þar sem konur staðarins bókstaflega grétu úr hlátri og enduðu í hóp inni á kvk-klósti að endurgera meikuppið eftir það atriði..
Kveðjur frá Soro
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.10.2007 | 20:25
Brenninetla og vettvangsferðir...
Já nú erum við Valdi bæði í vettvangsferðum á vegum skólanna. Ég er í Soro í Danmörku en Valdi einhvers staðar í þriggja tíma fjarlægð frá Malmö... Hann og Rakel óku þangað síðdegis. Hann segir að þar sé alveg frábær skógur og honum líst ljómandi vel á aðstæður á gistiheimilinu þar sem þau eru. Ég er hins vegar á gömlum uppgerðum sveitabæ sem hefur verið breytt í svepparaskoðunarmiðtöð. Sveitabærinn er úti í miðjum skógi og hér eru sveppir út um allt. Við byrjuðum daginn á að týna sveppi fram til hádegis og svo eftir hádegið og alveg til tíu um kvöldið þá var verið að greina sveppina... Og eins og kennararnir segja "GREINA" ekki "GISKA". Hér þarf a fara eftir flóknum sveppagreiningarlykli með víðsjá og stundum þarf að nota smásjá til að sjá lögun gróanna og sveppþráðanna.. Mér tókst sum sé frá 13.00 og fram undir kvöldmat að greina heila 7 sveppi... Maður hefði nú verið fljótari að bera saman myndir í bók en það er ekki "lögleg" greining heldur bara ágiskun... Þetta var allavega ofboðslega áhugavert.
Í morgun tókst mér að þvælast utan í brenninetlu en þær eru hér út um allt... Það er sárt.. Ég er enn að drepast í hendinni. Maður er bara ekki vanur að þurfa að passa sig á þessari plöntu... Ekki það að ég þekkti hana ekki.. ég bara kveikti ekki á perunni að hún væri svona hættuleg.. .
Já Steinunn það er von þú spyrjir um verðið á flatskjánum.. En hann kostaði 60 þúsund.. við áttum 20 þúsund til góða þar sem við fluttum svo seint inn í nýju íbúðina.. Síðan var smá tekið af debetkorti Valda og smá af mínu og smá sett á sameiginlea kortið.. Þessu var svona nurlað saman til að við fengjum ekki stóran reikning seinna... Þett hafðist.. Við ætluðum okkur í raun ekki að kaupa svona alvöru sjónvarp en bara tilhugsunin um að bera "hlunk" upp á þriðju hæð og reyna svo að selja hann bara til að spara smá pening.. Var bara ekki alveg að gera sig....
Jæjja ég set inn myndir seinna.. Netið er svo slow hérna að ég yrði í alla nótt... En nú ætla ég að sjá hvort ég geti ekki fengið ofninn til að virka hér í herberginu... Ég var svo heppin að fá sérherbergi.. En núna eru allir í partýstandi uppi í aðalhúsi.. Glætan að ég nenni því...
Bestu kveðjur frá Soro
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2007 | 14:04
Menningarnótt í Köben
Það gerðist helst til tíðinda á fimmtudaginn að við fórum og fjárfestum í sjónvarpi.. Ákváðum að kaupa flatskjá þó þeir kostuðu meira en gömlu kassarnir en við höldum að við getum ekki losnað við gömlu kassana áður en við flytjum.. enginn vill kaupa svoleiðis lengur... svo við keyptum ódýrasta flatskjáinn sem var til 32" en rosalega flottan samt.. Svo þegar Valdi fór að skanna inn rásirnar þá komu inn held ég 23 rásir.. Íha... svo fáum við 27 rásir með internetinu en það var ókeypis á tilboði með 12 mánaða interneti.. Svo nú held ég að maður bara hætti í námi og fari að horfa á sjónvarpið he he... Það var nú aldeilis nautn að setjast í nýja sófann með teppið, rauðvínsglas, prjónana og fjarstýringuna... Ummmmmm...
Föstudagurinn var langur og strangur dagur hjá mér og reyndar líka Valda.. Valdi var í skólanum fram eftir degi en svo komu Hlynur og Siggi frá Köben í heimsókn. Valdi og Hlynur sýndu Sigga skólann í Alnarp og svo var farið í sýnisferð í nýju íbúðina þar sem ég held að sjónvarpið hafi vakið mesta athygli ásamt bjórnum í ísskápnum!!!! Síðan fóru þeir félagar allir saman til Köben þar sem Hlynur fór á "Reggie" tónleika og Siggi og Valdi komu að hitta mig..
Ég var mætt í skólann klukkan 9.00 en það var síðasti tíminn í Planter þar sem farið var yfir prófið og gert kennslumat og fleira.. Vá hvað ég hef áhyggjur af þessu prófi... Ég hef 14 daga til að lesa fyrir það en ég held samt að ég falli... Þetta er svo erfitt á dönsku.. En vá hvað ég ætla að reyna... En ég er búin að læra svo mikið í þessum kúrs... Svo klukkan 13.00 fór ég að hitta Karen og Brynhildi Þórey... Fyrir þá sem ekki vita þá er Karen kærasta Brjáns bróðurs og Brynhildur er dóttir þeirra. Það var svo gaman að hitta þær mæðgur. Brynhildur er núna 5 og hálfs mánaða og Karen lítur glimrandi vel út en hún var í heimsókn hjá vinkonu sinni í Köben sem á lítinn gutta á svipuðum aldri og Brynhildur. Sú litla skríkt og hló og fór alveg á kostum.. Brosti út í eitt og var svo þæg og góð.. Algerlega fullkomið eintak...
Eftir kaffihúsið með þeim mæðgum þá þurfti ég að sinna undirbúningi fyrir menningarnótt. En Sveppabekkurinn minn var með uppstillingu á tveimur stöðum í garðinum. Aðstaðan var mjög skemmtileg en básinn okkar var í göngum undir elsta og stærsta gróðurhúsinu og líka í tjaldi úti í garð. Þar sýndum við matsveppi, myglusveppi og svepp sem óx á skjá á veggnum (ógeðslega kúl)... og margt fleira.. Á mínútunni 18:00 þá fylltist allt af fólki... Alveg brjálað að gera.. Ég var mest í því að gefa sveppamassa og sýna fólki hvernig ætti að rækta Österhatte í klósetrúllu.. Ég var orðin svo steikt í hausnum klukkan 22:00 að ég vissi ekkert hvað ég var að segja.. bla bla bla... Þvílíkur erill... En þetta var mjög gaman að taka þátt í þessu og garðurinn logaði í stemningu og ljósum... Síðan komu Valdi og Siggi og sóttu mig og við settumst á kaffihús en svo tókum við Valdi lestina heim.. vá hvað ég var þreytt... Þreytt.. þreytt.... En við áttum svo eftir að hljóla heim af lestarstöðinni... Kalt og þreytt..
Jæjja núna er ég að fara í skólaferðalag upp til Soro einhvers staðar fyrir utan Köben... þar verð ég í einhverjum skála að skoða sveppi í fjóra daga... Valdi fer líka í ferð á morgun... Og svo næstu helgi byrjar próflestur hjá mér á FULLU... En íha.. Það er nettenging í skálanum... Jibbí... Og svo nettengjumst við á fimmtudaginn í næstu viku.. HALELÚJA...
Bestu kveðjur frá Malmö
Já Vaggi! Okkur "líður" bara vel í nýju íbúðinni....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.10.2007 | 12:21
Fjögur ný albúm...
4 ný albúm komin inn í dag. Og þar á meðal myndir af nýju íbúðinni. Ég var eitthvað að spá í að bíða með að setja inn myndir þar til allt yrði perfect.. En nei.. það gæti tekið tíma.. Annars er þetta að verða svo yndislegt heimili að það hálfa væri nóg... Það vantar bara sjónvarp, skrifborð fyrir Valda og svo hugsanlega fáum við hilluna hennar Guðbjargar frá Hildi og Sigga. Nú fer þetta að verða gestafært með fína svefnsófann okkar og det hele.. Svo endilega farið nú að melda ykkur í heimsókn... Baldur og Elín... þið getið reynt aftur... Nú er þetta orðið svo vistlegt og fínt...
Annars vildi ég bara verja mig aðeins í "Stóra Ikea" flutningsmálinu en það kostaði heilar 5000 ísk að láta flytja sófann heim og ég vildi bara spara þann pening... En allavega þá fannst mér þá lágmark að gaurarnir sem komu með sófann bæru hann upp á þriðju hæð fyrir þennan pening en nei þeir bara skutluðu þessu út á gangstétt og við Valdi þurftum að bera þetta inn og upp..... síðustu daga hef ég verið svo aum í öllum vöðvum og útlimum, með harðsperrur og þreytu .... Ofan á þungaflutninga fram og til baka, upp og niður stiga þá er ég byrjuð að hljóla og það útheimtir notkun á alveg nýjum vöðvum sem hafa ekki verið hreyfðir síðan í USA... Og það er sárt og afturendinn á mér er ekki að fíla sætið heldur.. En það er frábært að vera komin á hjól og vöðvaeymslin eru að jafna sig eftir flutningana....
Á morgun er menningarnótt hjá Dönum. Ég fer í skólann í fyrramálið til 13.00 og svo hitti ég Karen og Brynhildi Þórey og eftir það er bara menningarnæturundirbúningur.. Sveppahópurinn minn stendur sum sé fyrir einhverju trumsi í Botanic gardens annað kvöld.. Svo endilega kíkiði... Þar verð ég alveg til miðnættis...
Jæjja best að rjúka.. En ég er á bókasafninu hér í Kirseberg, það er ljúft og hljótt að sitja hér fyrir utan þegar starfsfólkið blastaði sjónvarpinu þegar tilkynnt var hver fengi bókmenntaverðlaun Nóbels... Gasalega spennandi... eða þannig...
Kveðjur frá Kirseberg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2007 | 11:32
Kirseberg og fina ibudin...
Ai... Ekki islenskir stafir.. Do....
Allavega ta er ibudin alveg frabaer. Bjort og fin. Ja tad koma myndir inn a morgun lofa eg.
Valdi fann bokasafn i svona 150 metra fjarlaged fra husinu okkar og tar er okeypis internet.. Jibbi.. Eg bara kikti tangad nuna til ad tjekka a tessu svo eg er i tolvu fra teim.. kem aftur a morgun med mina tolvu med myndir og islenskum stofum.
Eg fekk alveg sjokk tegar eg fattadi ad tvottahusid var i blokk i naestu gotu.. Sum se langt i burtu.... En hins vegar pantadi eg tvottadag i dag og tetta tvottahus er ad svinvirka.. Rosalega stort og flott. Tegar madur pantar ta faer madur 2 tvottavelar, einn storan turrkara og turrkherbergi fast i 4 tima. Svo er a lausu ein RISASTOR Tvottavel og tveir turrkskapar. Eg komst i RISA velina i morgun og eg held ad tad hafi sparad mer trjar velar... Snilld... Allt vidhald a tessari blokk og trif virdast vera i finu lagi. Allar velarnar virkudu, allt er hreint og snyrtilegt. Strangar reglur i husinu vardandi hitt og tetta. TD. ma ekki vera med mottu fyrir utan hurdina sina... Vid fengum mida inn um luguna ut af tvi.... Svo ma ekki vera med havada eftir 22.00 a kvoldin... Ansi strangt en breytir natturulega engu fyrir okkur... Mer list ljomandi a tetta... Og oskaplega gott ad turfa ekki ad fara hulduhofdi eins og i gomlu ibudinni..
Svefnsofinn sem vid keyptum er tvilik snilld.. Hann er ekki sa myksti i heimi en hann er naestum tvi hornsofi, med svona sessalon og svo tremur saetum. Sidan tekur um tad bil 5 sekundur ad breyta honum i svefnsofa... Alveg snilld.. Svo er haegt ad hafa svefnbeddann bara uti allan timann og ta er nu aldeilis haegt ad haugast og horfa a sjonvarpid saman i tessum sofa... Eg skal taka myndir og syna a morgun....
Takk fyrir oll kommentin ut af Irakanum... Vid erum svona ad spa i malin... List vel a utreikninga Vagga um hvad er haegt ad gera fyrir peninginn.. hehe..
Kvedjur fra Kirseberg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2007 | 12:32
Loksins Loksins !!!!
Jæja þá erum við loksins flutt í nýju íbúðina. Það gerðist á sunnudagskvöld, þá var Anna hætt að gráta og gat afhent íbúðina. Íbúðin er björt og fín en eitthvað virðist hafa klikkað í hönnuninni á eldhús innréttingunni, það eru engir efriskápar en það er bara gott fyrir liðleikann á mannskapnum.
Í gær gerði Guðrún heiðarlega tilraun til að koma mér á geðveikrahæli, það byrjaði með því að ég kom heim úr skólanum um 3 leitið, þá fórum við í Telia búð sem er á svæðinu hjá Malmö Högskola, niður við sjó. Þar pöntuðum við háhraða internet sem verður tengt í næstu viku og fengum digital tv frítt með í ár. það var biluð brú þarna þannig að allri umferð var beint á eina götu og við vorum geðveikt lengi að komast þaðan í burtu
, ég var alveg að tapa mér. þegar við sluppum úr umferðar geðveikinni héldum við til Jagersro center til að fara í Jula og kaupa framlengingarsnúrur, vinkla og skrúfur. þá var komið að næstu raun fyrir búðar fælin kallinn sem var orðin tæpur á geði, það var að fara í IKEA
. Jæja við fórum sem sagt í IKEA til að kaupa sófa við vorum búin að finna einn en hann reyndist vera alt of dýr þannig að við skoðuðum aðeins meira og fundum sniðugan svefnsófa á þokkalegu verði og keyptum hann. við keyptum líka eldhúsborð og 4 stóla saman í pakka á einhverju grínverði og nýjan skrifborðstól fyrir Guðrúnu, þannig eð ég fæ bara þann gamla. Við þurftum að fara á lagerinn hjá IKEA til að sækja sófann, Afgreiðslumaðurinn spurði mig hvort ég væri á stórum bíl, já nokkuð sagði ég fer mikið fyrir þessu? já þetta eru tveir stórir og tveir litlir kassar. Þegar við sáum gripina þá sá ég strax að ég kæmi þessu aldrei í bílinn, þá kom Guðrún upp með þá "Frábæru" hugmynd að ég færi bara tvær ferðir á morgun að sækja þetta
. En ég var orðin mjög pirraður og þreyttur um þetta leiti og svaraði því um hæl: NEI GUÐRÚN ÉG NENNI EKKI AÐ EIÐA MORGUNDEGINUM Í RÚNTA TIL OG FRÁ IKEA, ÉG HEF NÓG ANNAÐ AÐ GERA. ÉG BORGA FREKAR 5000 KALL OG LÆT SENDA ÞETTA. Og það varð úr við pöntuðum flutning og sófinn kemur heim milli 18 og 22 í kvöld. snilld.......
þegar heim var komið tók svo við að setja saman hitt og þetta af húsgögnum og var ég að til 00.00 fór þá að sofa, Það er alltaf jafn gaman að fitja eða þannig.
Jæja það er svo sem ekkert merkilegt meira að gerast annað en við erum farin að nota hjólin okkar til að komast á milli staða, ég er hálftíma í skólann og Guðrún er svona 20- 25 mín á brautarstöðina.
Best að hætta þessu bulli og hjóla heim til að halda áfram að setja saman húsgögn. Við þökkum stuðninginn af klakanum.
Flutningskveðjur frá Malmö . Valdi og Guðrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.10.2007 | 09:35
Pizzuveisla hjá Rakel
Já núna búum við hjá Rakel og það er óskaplega ljúft. Á laugardagsmorgni þá fórum við að ganga frá íbúðinni sem var lítið mál enda stóð ekki til að þrífa hana í spað enda er hún mun hreinni núna en þegar við tókum við henni. Síðan fórum við til Davids og skiluðum lyklunum og ég benti honum á að hann væri að tvíleigja íbúðina og við vildum fá endurgreitt fyrir hluta október.. Hann staðhæfði að hann væri ekki búinn að leigja út íbúðina sem er rangt og þar af leiðandi gætum við alveg verið þarna út mánuðinn... Ég sagði að það væri fínt að vita og ég myndi þá koma og fá lyklana til að sækja póst (við gáfum aldrei upp heimilisfangið þarna svo það er enginn póstur)... Þannig að nú ætlum við bara að sjá til hvort við erum einhvern tíman í vondu skapi og viljum taka það út á einhverjum þá göngum við í málið aftur.. En eins og er þá erum við bara svo guðs lifandi fegin að vera laus úr þessu rugli að kannski bara sleppum við þessu veseni.. Við vorum svo bara í stússi fram eftir degi en um kvöldið þá gerði ég pizzur fyrir Rakel, guttana, Lilju og Valda. Ég fór með pizzaofninn minn með mér út en hann hefur ekkert verið notaður fyrr en núna. Pizzurnar voru ljómandi góðar þó ég segi sjálf frá og kvöldið var hið skemmtilegasta.
Núna er sunnudagsmorgun og ég ætla að reyna að læra eitthvað, hjólatúr er á döfinni en aðallega þá horfum við bara á símann í þeirri von að Anna hringi og segi að íbúðin sé til en þau lofuðu henni með kvöldinu...
Kveðjur frá Arlöv
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.10.2007 | 21:22
Sagan endalausa...
Jæjja... Ég veit þið trúið því ekki en við erum ekki flutt ennþá!!!!
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JAKOB...
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ UNNUR Í ÁSI...
Ég pakkaði og pakkaði og henti öllu ofan í Ikeaplastpoka og Valdi kom snemma heim úr skólanum til að flytja þar sem síðasta samtal við Önnu var að það væri 1 tími í þetta.... En sum sé þá hringdi Jakob kærastinn hennar Önnu og var alveg miður sín.. Hann sagði að Anna væri búin að fá taugaáfall og gæti ekki hætt að gráta... Hann margbaðst afsökunar en sagði að hann teldi að þau gætu ekki afhent íbúðina fyrr en á mánudaginn. Hann þyrfti að fara með Önnu heim til sín til Danmerkur til að jafna sig.... Djísus... Ég hélt ég yrði ekki eldri en svo sem ekkert hægt að gera en að samþykkja þetta... Hann hringdi svo seinna til að staðfesta að Anna gæti ekki hætt að gráta og lítið væri hægt að gera nema bíða... Ó boy... Þannig að nú gistum við Valdi inni í stofu hjá Rakel og búslóðin okkar í bílnum og að hluta hjá Matthildi í Lomma... Við ákváðum að gista ekki eina nótt í viðbót í fjólubláa hryllingnum enda var allt komið niður í poka og töskur... Niðurpökkunin var frekar hroðvirknisleg þar sem við töldum okkur bara vera að flytja milli húsa og ætluðum bara að henda þessu yfir... En ég þurfti að grafa mig í gegnum farangurinn bara til að finna föt og tannbursta fyrir helgina... Við enduðum í pizzuveislu hjá Hildi og Sigga, ásamt Matthildi, Rakel, Lilju og öllum börnunum sem fylgja þessari hersingu. En hvar væri maður ef maður hefði ekki alla þessa yndislegu Íslendinga sem vilja allt fyrir mann gera.. Lilja er búin að standa sveitt í þungaflutningum, Rakel situr uppi með okkur þessa helgi, Matthildur situr uppi með búslóðina okkar í geymslunni og stofunni og Siggi ætlar með okkur að redda ID kortum á morgun.. Hrein snilld.... Annars sendi Anna okkur sms í kvöld og var alveg miður sín að klúðra þessu svona en hún segir að við fáum líklega íbúðina á sunnudagssíðdegi... VONANDI... Ég sendi bara sætt sms til baka þar sem ég sagði henni að hafa ekki áhyggjur og vonandi liði henni betur...
Jæjja það er ekki annað hægt en að brosa bara að þessari hringavitleysu sem þessi húsnæðismál eru búin að vera hjá okkur, bara ekkert annað í stöðunni...
Bestu kveðjur frá Arlöv
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2007 | 11:56
FLUTNINGAR...LOKSINS...
Já Guðbjörg, takk fyrir það.. við skoðum málin þegar við erum flutt hvað okkur vantar...
Jæjja þá er loksins langþráður flutningsdagur runninn upp... Við erum bara að pakka og bíða eftir að hún Anna hringi og gefi grænt ljós á að við mætum.. Þau eru að leggja lokahönd á þrifin....
Leigusalinn hann Dafir óð hér inn í morgun með lykli og vakti Lilju... Þvílíkur endemis dónaskapur.. Þau ganga svo hart að okkur núna að fara út því þau eru komin með annan leigjanda. Lilja benti á að við værum nú búin að borga út október en þá sagði hann að til að vera október þá þyrftum við að borga nóvember..... Hummmm... skil þetta ekki alveg hjá kallinum.. enda er hann náttúrulega bara ruglaður.. Ég veit ekki hvort við ætlum að standa í því að bösta hann en það er náttúrulega einum of að ýta okkur út þegar við erum búin að borga 8000 skr í leigu og leigja svo öðrum fyrir líklega 8000 skr og sjálfur borgar hann líklega ekki meira en 3000 skr á mánuði... Og reiknið nú... kallinn er að koma út í stórgróða með að tvíleigja október og þetta er náttúrulega KOLÓLÖGLEGT... Ég var svo mikill snillingur að fá kvittun hjá Lamíu fyrir september og októberleigunni sem hún skrifaði undir og allt svo ef við hótum að fara með þetta í leigusamtökin þá kannski borgar hann okkur aftur hluta leigunnar... Glætan... held við séum bara að skapa okkur vesen og leiðindi með þessu... En sjáum til í hvernig skapi ég er í á morgun... En málið er að það er verið að breyta þessum leiguíbúðum í svona "bústaðsrétt" sem þýðir að eftir smá tíma þá eignast hann einhvern rétt í íbúðinni sem er nokkurra milljóna króna virði og líklega ætlar hann þá að selja og græða... Svo ég veit ekki hve mikið kallinn er tilbúinn til að taka sénsinn á því að við látum vita að hann er að leigja út íbúðina ólöglega meira að segja tvöfallt... geri aðrir betur....
Jæjja best að fara að pakka... Næst verða vonandi myndir af nýju íbúðinni hreinni og fínni og reyndar tómri þar sem við eigum ekkert hehe..
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar