2.11.2007 | 13:19
Prófið búið...
Já prófið er búið...
Ég náði prófinu.... Íha... Ég var alveg gersamlega á taugum.. Þetta var svo mikið og svo erfitt.. Ég var eiginlega búin í gærkvöldi að flokka út það efni sem ég ætti raunverulegan séns í og leggja áherslu á það... Við áttum sko að draga efni og ég mátti víst draga tvö og velja á milli (af því ég er útlendingur).. En það boðar alltaf ólukku að fara í próf og stóla á heppni.... svo mætti ég í morgun aðeins of snemma og krakkarnir fóru inn einn af öðrum og fyrst kom Jenett út og hún hafði fengið einn flokk af plöntum sem ég var að vonast eftir.. svo fór Mikkel inn og hann fékk Burknana MÍNA... ARRRG.... svo fór Helle inn og hún fékk Samanburð á einkímblöðungum og tvímímblöðungum... Ég sem var alveg með það á hreinu... Ég veit ekki hvað þriðja stelpan fékk... en það hefur örugglega verið eitthvað sem ég vissi eitthvað um.... Jæjja þannig að ég bara fór inn klukkan tólf og þarna sátu 2 kennarar og einn prófdómari.. Djísus.. gæti þetta verið eitthvað meira stressandi... Þá sagði kennarinn að það hefði verið eitthvað klúður með efnið hennar Helle svo hún dró víst tvisvar.. Dö.. og ég fékk þá bara það eina sem eftir var... Og þar sem ég taldi aðstæður mínar vera svo gersamlega glataðar þá eiginlega bara fór ég að slaka á... Og smám saman bara náði ég að þekkja allar tegundirnar sem lagðar voru fyrir framan mig og greina þær og lýsa og útskýra og bla bla bla... Gat nefnt þær allar og det hele... Ég samt var enn bara að vona að ég hefði... Skriðið...... Svo fór ég fram á gang og beið í 10 mínútur og þá kom kennarinn út og sagði að ég hefði fengið 7 sem er brilljant.. Fyrir ofan sjö er 10 og svo 13 en staðið er 2 .... Bara ég og Mikkel náðum 7 en hinar stelpurnar voru með fjóra... Ég er svo ánægð... Það hefði verið frekar pínlegt fyrir verðandi grasafræðinginn að falla í grasafræðinni.... En samt ekki því þetta var allt á dönsku og mikið erfitt...
Jæjja nú eru Benni, Halla og Gabríel Snær komin til Svíþjóðar og nú ætlum við að túristast mikið um helgina...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.11.2007 | 10:32
Er Valdi þarna hinumegin?
Próflesturinn er alveg að ganga frá mér... Geðheilsan farin norður og niður... Ósköp verð ég fegin þegar prófið er búið á morgun.. Staðið eða fall.. MÉR ER ALVEG SAMA... Get bara ekki lesið meira..
Benni og Halla koma í kvöld ásamt litla Gabríel Snæ sem er nú bara nokkurra mánaða. Við munum sum sé leika alvöru túrista um helgina og gera eitthvað skemmtilegt..
Valdi fór að passa hjá Sigga og Hildi í gær. Ég komst ekki með undir því yfirskini að ég væri að lesa undir próf (en var í raun að horfa á Grays Anatomy í sjónvarpinu hehe)... En allavega þá gekk það bara ljómandi vel hjá honum enda ekki við öðru að búast af þriggja barna föður.. En í morgun þá kom þessi dásamlega athugasemd við færsluna í fyrradag og ég vona að Sigga sé sama þótt ég bara setji hana hér inn í heilu lagi:
Bara að þakka fyrir lánið á honum Valda í gærkveldi. En Stefán Pétur læddist að rúminu okkar í morgun og spurði mömmu sína ósköp lágt, "er Valdi þarna hinumegin?". Hann hefði alveg viljað hafa hann áfram.. Kærar kveðjur.
Þetta bara bjargaði deginum mér fannst þetta svo krúttlegt...
Og Guðbjörg... Auðvitað máttu gista hér hjá okkur... Í fína nýja svefnsófanum okkar... Sjálfsagt... En annars erum við að hugsa málið með hilluna... Við fengum bara alveg nóg af að bera hluti upp á þriðju hæð.... En Valda vantar hillu svo málið er í nefnd... Takk takk..
Jæjj Síðasti próflestrardagurinn... DUGLEG, DUGLEG, DUGLEG.... Je sjúr...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2007 | 15:25
Fleiri grá hár og próflestur..
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar....
Já þá er maður orðinn 38 ára.. Valdi sá í alvöru fleiri grá hár hjá mér í morgun þegar við löbbuðum út í búð.... En ég held að þeim hafi fjölgað undanfarin ár vegna námsins og svo tekur líka oft á taugarnar að búa með Valda kalda.. hehe..
Afmælisdagurinn fór í próflestur en Valdi var duglegur að dekra við mig og gaf mér ákaflega praktíska afmælisgjöf: Sleif, spaða og svoleiðis dót sem vantaði í eldhúsið.... Já þetta árið var greinilega ákveðið að vera frekar hagsýn en rómantísk.... En hins vegar fékk ég fallegan blómvönd frá Valda sem kom að góðum notum í próflestrinum þegar ég fattaði að eitt blómið væri Gerbera og þá tók ég það og skoðaði í Lúpunni minni og potaði svolítið í það í þágu námsins. Eitthvað er blómið slappt í dag eftir meðferðina.... Svo fékk ég ljómandi gott lasagnja í kvöldmatinn... Rakel, mamma hennar og guttarnir komu svo síðdegis með afmælisgjöf en frá þeim fékk ég teskeiðar (eitthvað sem vantaði sárlega á heimilið) og Jólahafur frá Ikea... Krúttleg ekta sænsk jólaskreyting sem maður verður að eiga þegar maður er í Sviþjóð yfir jólin... Svo fékk ég líka jólakerti frá mömmu hennar Rakelar... Valdi og gestirnir fengu sér afmælisrúlluköku sem Valdi hafði keypt en ég fór út að trimma.. Hins vegar fékk ég alveg skelfilega verki í sköflunginn og hlussaðist um með miklum harmkvælum og dreif mig bara heim eftir 4 km... Er heldur bækluð í dag...
Valdi er að byrja á nýrri önn í skólanum og honum líst vel á byrjunina en það sem þau eru að læra núna er áætlanagerð í skógrækt. Það verður mikil verkefnavinna og þar á meðal eitt Gis verkefni og svo verða tvær vettvangsferðir... Nóg að gera..
Loksins fengum við sent kortið í digital sjónvarpið okkar svo Valdi tengdi allar 27 rásirnar... Þær eru aðallega þær sömu og við höfðum fyrir en við bætist eitthvað af Discovery stöðvum, tvær sportrásir og Animal Planet en þar er ég að vonast til að sjá þættina "Emergency vets" sem eru gríðarlega vinsælir í USA og eru svona reality TV á dýraspítala og tekið upp á Alameda East dýraspítalanum í Denver þar sem ég var í verknámi... Hinar stöðvarnar eru bara svona "Sam-Norrænt-hallæri" eins og ég kalla það en það eru einhverjir þættir þar sem allir eru ljóshærðir, svakalega hláturmildir og allir þættirnir minna á Samnorræna umræðuþáttinn með Eika Hauks fyrir Júróvision.... Síðan eru Svíar svo ginkeyptir fyrir raunveruleikaþáttum td: "Bondi sökar fru", "Ensam mamma sökar", "Stokholms next top model" og í alvöru þá eru þau enn með einhvern Bingó-Lottó þátt...
Jæjja best að halda áfram að lesa "Ordner með stivelsesholdig frohvide".... Spennó....
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.10.2007 | 10:20
Afmæliskveðjur...
Til hamingju með afmælið Gerður, Hildur og Dóri í Osló... Og líka Bjössi á Reyðarfirði sem átti afmæli í gær...
Það er stórafmæli hjá Dóra en hann verður fertugur kallinn... Í gegnum tíðina þá var oft sú hefð að Dóri bara byði sínum gestum í afmælið okkar systra... Þá slapp hann við að halda upp á sitt... Eitt árið þá komu nokkrir prúðbúnir gestir sem við þekktum ekki og bönkuðu upp á í Logalandinu og kynntu sig sem gestirnir hans Dóra... Fínt mál.. En Dóri bara var alls ekki kominn.... Og ekki mætti Dóri fyrr en á Miðnætti... Þá höfðu gestirnir fengið að borða og skemmt sér ágætlega held ég en voru frekar kleinulegir fram eftir kvöldi.... Annars stendur til að heimsækja Dóra og Helle fyrir jól til Osló og heimsækja líka alla sem við þekkjum í Ási...
Þessi helgi var eiginlega alveg tíðindalaus.. Valdi fór út að hjóla í gær og hjólaði út um alla borg, endaði í einhverju inaðarhverfi og svo á Central station. Hann er alveg að kynnast borginni ljómandi vel svona hjólandi. Ég fór hins vegar út að trimma og hljóp 4 hringi í garðinum (hljóp=lufsaðist) en ástandið á sköflungnum og náranum er betra þar sem ég hvíldi í tvo daga.
Elín .... svarið við spurningunni hvort kílóin séu ekki að renna af mér er nei... Sástu ekki myndina af norska jólanamminu.............
Helgin fór alveg í próflestur hjá mér.. En þetta gengur án gríns hægt og illa.. Ég þyrfti allavega mánuð í viðbót því bókin er á dönsku... Ég er ekki viss um að ég nái að klára að lesa námsefnið fyrir prófið.. Svo er þetta svo ruglingslegt.. Þetta eru lýsingar á plöntufjölskyldum og lýsingarnar eru einhvern veginn svona: tré, runni, klifurtré og stundum jurtir, epi-, hypo- og stundum perigyn... Blómin 5 deild en geta verið færri vegna skerðingar, fræflarnir 5-15, Fræið ber, hneta eða hýðisaldin... Hummm... takk fyrir þessa lýsingu.. þetta útilokar EKKI NEITT.... Svo kemur alltaf svona varnagli eftir hverja fjölskylduflokkun.. Sko.. þessi ætt er stundum flokkuð með þessum og ætti eiginlega kannski ekki að vera í þessum flokk heldur einhverjum öðrum.. Ég held þessir grasafræðingar séu bara algerlega að steypa þegar þeir eru að flokka þetta niður... Ég vil bara flokka þetta eftir tré, runni, kaktus, jurt.. Í fjóra flokka og kalla það gott...... Og hana nú.....
Jæjja best að halda áfram með Dipsacales sem er fjölskylda undir Helkronede ordner... Arrrgggg....
Kveðjur frá rigningunni í Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.10.2007 | 09:00
Kveðjupartý..
Nýtt albúm.
Það er verið að selja lambakjöt af Hesti. Sagði ég við Valda í gær.. Það var ekki fyrr en Valdi fór að hlæja að ég fattaði að það var eitthvað skrýtið við þessa setningu.. En fyrir þá sem eru ekki Hvanneyringar þá er Hestur rannsóknarbú í sauðfjárrækt og það var verið að auglýsa skrokka þaðan til sölu á starfsmannanetinu í gær..
Valdi fór í prófið sitt í gær og gekk bara nokkuð vel telur hann. Enn er verið að taka á svindlmálum hjá nemendum en gæslan var talsvert öflugri núna en á síðustu prófum því ákveðnar þjóðir virðast bara telja það eðlilegt að svinda. Í upphafi tímans var haldin löng ræða um hvað væri bannað og meðal annars er bannað að vera með GSM síma í prófi "Dö". Og svo hringdi síminn hjá einum nemanda sem svaraði og fór bara að kjafta. Honum var vísað út með det samme og varð alveg brjálaður.. Kom aftur inn í prófið og var ekki sáttur.. Fór svo inn í næsta herbergi þar sem líka var próf í gangi og vildi ræða við yfirsetumanneskjuna þar sem henti honum út.... Já það eru mismunandi hefðir í mismunandi löndum en sumt hefði maður nú haldið að væri "Common sence"..
Ég var alveg orðin steikt í próflestri enda gengur þetta hægt og illa hjá mér svo við Valdi fórum í Burlov Center að hitta Lilju og kaupa í pizzur en við ætluðum að hittast nokkur um kvöldið til að kveðja hana því hún er að flytja til Uppsala. Ég fór líka í íþróttabúð og keypti mér trimmbuxur, svona hallæris þykkar joggingbuxur með teygju að neðan.. Keypti líka þunnan síðerma trimmbol og líka vindjakka.. Ég keypti svo lyklakippu til að festa lyklana mína við mig þegar ég hleyp og svo litla dýnu til að gera magaæfingar... Ég er eiginlega gáttuð á hvað íþróttaföt geta verið ódýr hér miðað við heima.. Á Íslandi þá átti ég sömu ömurlegu skóna í 10 ár því ég tímdi ekki að kaupa nýja.. Hér kostar þetta bara ekki neitt... En það er eins gott að ég haldi áfram þessu trimmstandi þar sem ég er búin að græja mig svo vel upp með Ipod, skrefamæli, lóð, föt og fleira.. Það væri heldur hallærislegt að gefast upp núna..
Eftir verslunarferð í Burlov Center þá fórum við Valdi í Sopstationen því það vantar enn skrifborð fyrir Valda. En ótrúlegt en satt það var ekki eitt skrifborð til sölu þarna.. Skrýtið því það hefur alltaf verið nóg af þeim.. Það var reyndar hægt að kaupa svona gamaldags "skóladesk" mjótt og hátt sem maður opnar og geymir eplið sitt í... En líklega ekki hentugt.. hehe.. Hins vegar datt ég niður á 10 kökudiska og 5 kaffibolla í sixtís stíl, brúnt sem ég féll alveg fyrir.. Ég þurfti að suða mikið í Valda að fá að kaupa þetta því ég var víst búin að lofa að kaupa ekki meira leirtau... En þetta var bara svo flott. (Sjá myndaalbúm)
Um kvöldið komu Hildur, Lilja, Matthildur og Rakel í Pizzur til okkar. Ég verð bara að segja að þetta voru með betri pizzum sem ég hef gert.. Þær voru bara fantagóðar þó ég segi sjálf frá. Þrátt fyrir fáa gesti þá náðum við að hafa stofupartý og eldhúpartý í gangi nær allt kvöldið... Íslensk hallæristónlist var spiluð úr tölvunni svo sem "Til hamingju Ísland og Sódóma"... Þetta var virkilega næs.. En við erum að missa svo marga Íslendinga heim um jólin. Eftir áramót þá er það bara Rakel sem er eftir hér með guttana og svo við. En á mánudaginn þá fer ég með Hildi að hitta einhverjar konur sem búa í Lundi.. Kannski kynnist maður einhverjum þar.
ATH: Á Iceland express eru frábær tilboð í gangi til Köben... Held það sé bókunartími núna.. Ferðatími í nóv.. Endilega ef einhver vill koma í heimsókn.. En Benni og Halla verða í viku í byrjun nóv svo þá er svefnbeddinn upptekinn...
Jæjja þá er það meiri próflestur en ég er orðin svo steikt að ég held ég muni ekki þekkja muninn á Kaktus og birki í prófinu...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2007 | 19:50
Próflestur, próflestur, próflestur..
Já það er fátt til tíðinda frá Malmö þessa dagana.. Við erum bæði í endalausum próflestri. Valdi fer í próf á morgun en ég eftir viku og ég er alveg komin í PANIKK.... Þetta er á dönsku og svo MIKIÐ... og svo FLÓKIÐ...
Annars erum við komin í skype samband og mitt skype nafn er gudrun.bjarnadottir1 og Valda er valdimar reynisson, svo nú þurfa endilega allir að Skypa sig og spjalla við okkur.. Ég keypti líka inneign á skype svo ég get hringt í heimasíma á Íslandi fyrir "kúk og kanil".... Ég er búin að ofsækja systur mínar í dag eftir að ég fann út úr þessu Skype dóti.. Og Valdi talaði í einn og hálfan tíma við krakkana í gær.. Hrein snilld...
Ég fór út að trimma í dag og það var yndislegt.. En hins vegar er ég greinilega mjög slów svona fyrst í stað þar sem ég átti í mestu vandræðum með að taka fram úr gangandi konu.. hehe... en þetta kemur... Annars er ég farin að finna fyrir svolítilli beinhimnubólgu frama á sköflungnum og vona bara innilega að það hverfi.. En nýju fínu loftpúðaskórnir mínir eiga að koma í veg fyrir svoleiðis vesen... Ég keypti mér sko fína hlaupaskó í Sport-outlet búð sem er hér rétt hjá.. þar er allt á hálfvirði eða meira og fullt af flottum vörum... og líka ljótum... hehe.. Þar keypti Valdi sér fína gönguskól um daginn ódýrt en kostuðu áður 14.000.
Muniði eftir kisu litlu sem var heima hjá okkur í nokkra mánuði á Álfhólnum. Hún gekk bara undir nafninu Kisa.. Allavega þá varð hún fyrir bíl um daginn á Bústaðaveginum og dó.. Einar var búinn að koma henni fyrir hjá mömmu sinni sem býr við Bústaðaveg.
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2007 | 11:03
Próflestur og trimm...
Síðustu dagar hafa farið í próflestur og letilíf...
NÝTT ALBÚM: NÁMSFERÐ TIL ASA
Valdi snillingur... lærði og lærði fyrir próf sem var í gær en ekki í dag eins og hann hélt svo hann missti af prófinu "Bjáni... " Hann talaði við kennarana og það verður upptökupróf.. Nú er hann að læra fyrir próf sem er á föstudaginn og hann er búinn að "dobbletékka" það...
Ég fór í gær til Kaupmannahafnar til að labba í gegnum Botanisk gardens með tveim úr bekknum til að undirbúa próf.. En það var eins og ég hélt.. Þær töluðu bara dönsku og ég græddi ekkert á þessu.. Ég dreif mig bara til baka og ætla sjálf í næstu viku að skrölta um garðinn..
Síðustu tvo daga hef ég náð að skrölta út að trimma en Kirseberggarðurinn er hrein snilld til að trimma í... Ég er í dag heldur bækluð, teygð og toguð.. En ég hefði átt að hvíla mig í gær en þegar ég byrja að trimma verð ég svo manísk að ég gat ekki sleppt úr degi... En í dag ætla ég ekkert að trimma svo ég hafi heilsu til að fara út á morgun... Trimm er kannski ýkur yfir þetta athæfi mitt en mestmegnis er ég að labba og trimma til skiptis til að byrja með.. Vonandi eykst hraðinn og þolið ef ég held þessu áfram.
Í dag fundum við loksins endurvinnslusvæðið fyrir húseignina. Snilldar gámasvæði þar sem allt er flokkað. Svona vil ég sjá á Hvanneyri í framtíðinni.. En ég skal taka myndir og setja inn við tækifæri.. (Sérstaklega fyrir Björk formann umhverfisnefndar Borgarbyggðar.....)
Valdi er orðinn mikill hjólafíkill en hann fór þrisvar sinnum út að hjóla í gær... Í skólann, niður í bæ og svo til Rakelar. Hann fjárfesti í vatnsheldum bakpoka.
Af hverju kommenteraði enginn á fínu rapphænuna? Okkur Valda fannst hún svo flott með skupluna sína og hálsfestina... fannst engum þetta fyndið?
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2007 | 21:06
Rapphænur og Flatkanínur
Steinunn.. Það var sko planið að Valdi færi heim einu sinni fyrir áramót á milli anna en það eru bara engar pásur, þetta er bein keyrsla. Börnin koma til okkar 25. desember og verða í tíu daga.
Annars var þetta rólegur dagur í dag.. Skutumst aðeins upp í Burlov center en vorum annars bara heima. Rakel kom í kaffi en hún var að læra á bókasafninu hér rétt hjá.. Ég hafði gert tilraun með að búa til "Smack" sem er norskt jólanammi sem er í raun bara Buggles með súkkulaðihjúp... Þetta endaði nú ekki í neinum hjúp hjá mér heldur bara dippi... Bökunarsúkkulaðið hér er sko ekki eins gott og íslenska suðusúkkulaðið. En mér fannst þetta ljómandi gott en Valdi fúlsar við þessu.. Valdi fór í hjólatúr og endaði á mörkum Rósengardhverfisins en það er "Harlemið" í Malmö... Hann fékk á tilfinningunni að þarna við "landamærin" biðu dópdílerarnir eftir viðskiptavinum.. því þar héngu dularfullir guttar og gerðu "ekki neitt"......
Annars gleymdum við að segja frá Rapphænunum sem við sáum í dýragarðinum í gær.. Það er einhver tegund af norrænum hænum sem heita í alvöru Rapphænur.. Okkur fannst þetta heldur fyndið og sáum fyrir okkur rappandi hænur.. Í dag er nóg að nefna rapphænurnar og við Valdi rifnum úr hlátri.... En fyrst við erum byrjuð að tala um dýrategundir þá vill Valdi meina að hann hafi uppgötvað nýtt afbrigði af kaninum en það eru svokallaðar "flatkanínur" sem virðast halda sig í vegkönntum og jafnvel á miðjum vegum og fara ekki fet... Einnig hafa sést dæmi um aðrar tegundir flatdýra svo sem "Flatíkornar".... en oft er erfitt að greina tegundirnar... En hér er mikið kanínuvandamál og hafa nokkrar reynt að fyrirfara sér á bílnum hans Valda...
En svona sér Valdi fyrir sér alvöru norræna rapphænu.......
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2007 | 20:41
Skåne djurpark - túristadagur
NÝTT ALBÚM...
Jæjja í dag tókum við því létt og lékum túrista. Við fórum ásamt Rakel, mömmu hennar, guttunum og Lilju í Skåne Djurpark sem er ca klst fyrir norðaustan Malmö eða á Mið-Skáni. Þessi dýraparkur er rétt fyrir utan bæ sem heitir Höör en hann leggur áherslu á dýr Norðursins svo þarna voru engin Sebradýr eða slíkt. Garðurin var virkilega vistlegur og virtist fara ljómandi vel um öll dýrin en þarna voru elgar, vísindar, uxar, villisvín, uglur, hænur, úlfar, ernir, kindur, bambar, sauðnaut og fleiri dýr. Við vorum í heila fjóra tíma að labba þarna um í yndislegu haustveðri og haustlitum. Við tókum með okkur nesti og borðuðum á bekk í garðinum en mamma hennar Rakelar hafði búið til pönnukökur og skúffuköku en það var ljúft að fá svona íslenskt bakkelsi.
Sveitin í kringum dýragarðinn var einstaklega falleg. Svona ekta sænsk eins og maður ímyndar sér.. Kósí tmburhús, rauð eða pastelgul með fallegum trjágarði en þetta var alveg ævintýralega fallegt í haustlitunum.
Kvöldið fór í letilíf í sófanum með fjarstýringuna og snakk...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.10.2007 | 22:11
NETTENGING Í HÖFN...
Nýtt albúm.. Ok.. ég lofa.. Þetta er síðasta sveppaalbúmið..
Nú erum við Valdi bæði komin heim úr vettvangsferðunum okkar.. Sveppaferðin mín var æðisleg og ég get svo svarið það að ég er farin að sjá eftir að hafa ekki bara tekið master í sveppafræði... Þetta var svo gaman. En það versta er að það er enginn sveppakúrs kenndur neins staðar.. við KU hefur kúrsinn Svamperiget ekki verið kenndur í mörg ár og sami kúrs við HÍ ekki heldur.. Jæjja þetta verður bara hobbý hjá mér í staðin..
Í gær voru Valdi og Rakel í rannsóknarskóginum í Asa í Smálöndunum. Þar skoðuðu þau ýmiskonar aðferðir við "regeneration" endurplöntun eftir rjóðurfellingu. Þau skoðuðu líka aðferðir við "precommercial thinning" (forgrisjun) og mismunandi rannsóknir á því. Svo fóru þau Rakel í Lammhult sem er næsti bær við gistiheimilið þar sem þau gistu, en þar fóru þau í búð og fóru svo í bíltúr um fallega sveitina.
Fyrir heimferð í dag skoðuðu þau mismunandi grisjunaraðferðir við greni og furu. Í Lönsboda skoðuðu þau síðan svartbergsnámu en eftir það var haldið heim á leið.
Valda tókst svo að nettengja okkur þegar heim var komið en ekki tókst okkur að fá þessar 27 sjónvarpsstöðvar til að virka þar sem beðið var um lykilorð sem við vorum ekki með.. Þjónustusíminn var náttúrulega snilld hjá Telia eða þannig!!! En maður á að segja á sænsku hvað maður vill í stað þess að velja einn eða tvo. Td. Internet, Sjónvarpsvandamál.. eitthvað svoleiðis.. En dö.. Ég skil ekki og tala ekki sænsku... Þegar ég fæ símsvara á sænsku með ýttu á einn eða tvo og allt það þá bara grísa ég út í loftið en ég komst ekki í gegnum þennan þjónustusíma.. Þannig að við verðum bara að skella okkur í búðina á morgun.. Ég eyddi fyrrihluta dags í lærdóm og stúss en svo var þvottatími hjá mér síðdegis.. Það fór nú ekki betur en svo að ég gleymdi að taka síðasta þurrkaralóadið út fyrir níu um kvöldið svo þvotturinn læstist inni.. Snilld... Held líka að ég hafi lesið það í húsreglunum að þvotturinn verði gerður upptækur og eitthvað flókið að fá hann til baka.. Svíar eru svo óskaplega regluglaðir.. og sumar reglurnar ekki alveg að meika sens....
Lilja kíkti í heimsókn um kvöldið til að kíkja almennilega á íbúðina en hún hefur ekki komið síðan hún flutti með okkur..
Annars er ég komin í hálfs mánaðar próflestur og Valdi er líka í próflestri en hann fer í tvö próf í næstu viku. Fyrstu masterseiningarnar eru í höfn með sveppakúrsinum en honum lauk formlega með vettvangsferðinni. Myndir frá ferðinni hans Valda koma síðan inn á næstu dögum.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 294957
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar