15.11.2007 | 21:50
Verkefnavinna og veikindi
Ég (Valdi) mætti klukkan 8 á bókasafnið í morgun til að hitta Zakíu og Rakel vegna verkefnis sem við erum að vinna að. Einhver ælupest var að hrjá guttanna hennar Rakelar þannig að hún kom ekki, Zakíu fann ég hins vegar um 9 leitið þá var hún nýkomin og ég var búinn að finna út úr villu sem við gerðum í gær þannig að allar tölur voru nú réttar. Næsti klukkutíminn eða rúmlega það fór í að að sýna Zakíu hvað búið var að gera, Sólheima dvölin kom sér vel þarna þar sem taka þurfti aðeins á þolinmæðinni við þessa kennslu í tölfræði, en það hafðist þó að lokum, eða það held ég.
Litlu seinna hitti ég svo Andrius út af öðru verkefni sem við áttum að kynna eftir hádegi, við settumst niður og fórum yfir kynninguna og ákváðum hver ætti að segja hvað og svoleiðis. Þá þurfti hann að rjúka að hitta hópinn sinn úr fyrra verkefninu. Við kynntum svo okkar verkefni eftir hádegi ásamt öðrum nemendum sem þurftu að leysa önnur vandamál en við. Svona eru dagarnir núna bara brjáluð keyrsla í skólanum og ekkert nema verkefna vinna.
Guðrún var eitthvað lasin í morgun með beinverki og allan pakkann, Henni leiddist svo mikið í dag að hún tók til í íbúðinni í veikindunum og þvoði þvott en það var hinn sívinsæli þvotta dagur í dag.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2007 | 23:05
Sænskar bifreiðastöðureglur!
Valdi þurfti að vakna snemma í morgun til að skutla mér á lestarstöðina en ég tók 7.02 lestina til Köben þar sem ég átti að vera mætt 8:30. Það passaði akkúrat en ég var að fara í fyrsta tímann í Tropical botany með Lindu, Dýrleif og Hlyn. Mér líst rosalega vel á kúrsinn og það var æðislegt að vera í tíma með Íslendingum. Við vorum búin um þrjúleytið en það var einhver frestun/niðurfelling á ferðum til Malmö svo ég var föst í klst. í Köben á Nörreport. Gersamlega óþolandi... Ég ákvað svo að vera rosalega dugleg og labba heim þessa 3 km og græjaði mig með vettlinga, Ipod og labbaði rösklega af stað í gegnum lestarstöðina og út... Burrrrrrrrrr..... Ískallt... Svo ég ákvað bara að skoða strætóferðir og fann út að nr. 7 stoppar á lestarstöðinni og hjá Kirsebergkirkjunni sem er hér alveg rétt hjá... Hrein snilld....
Í morgun komumst við að því að við höfðum fengið stöðumælasekt á jeppann meðan við vorum á Íslandi. Við töldum okkur vera í löglegu stæði en vorum þá of nálægt götuhorninu en við vorum 7 metra frá horninu í stað 10 sem á víst að vera... Þetta kostar okkur 7000 ískr í sekt... Við vorum svo glöð að flytja í stöðumælalaust hverfi en ég er búin að fatta að Svíar hala bara inn pening á annan hátt.. Þeir setja allskonar undarlegar reglur og niðurstaðan er að það er bara varla hægt að leggja hér í hverfinu löglega!!!!!!!
Valdi fór um tíu í skólann og hann var í verkefnavinnu í allan dag. Hann er náttúrulega búinn að missa tvo daga úr skólanum þannig að verkefnin hafa hlaðist upp og hóparnir beðið eftir honum... Hann fór svo aftur í kvöld til að vinna verkefni með Rakel.
Ég var eitthvað þreytuleg í kvöld og er hreinlega orðin lasin, beinverkir og aumingjaskapur... Held samt að þetta sé bara svona ferðaþreyta sem kemur svona fram með hitavellu... En ég á ekki að mæta í skólann fyrr en á mánudag svo ég ætla að slaka á og vinna eitthvað fyrir greinasafnið.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2007 | 22:04
Komin "heim" til Malmö
Valdi flutti fyrirlesturinn sinn í gærkvöldi á Egilsstöðum. Mætingin var sæmileg og þetta gekk bara vel.. Smá tæknilegir örðugleikar í byrjun en það leystist svo...
Ég fór í mat til Hildar Kristjáns og Óla og hitti í fyrsta sinn son þeirra hann Kristján litla sem er orðinn 14 mánaða gamall.. Ekkert smá sætur.. svolítið súr samt þar sem hann var búinn að vera lasinn.. En eftir smá stund þá vildi hann alveg láta halda á sér og kjassa og knúsa... Hildur og Óli voru að flytja í raðhús sem þau voru að kaupa og ég var ekkert smá hrifin af því... þetta er svona palla dæmi og virkilega vistlegt... Og verður enn betra þegar Óli er búinn að skipuleggja þetta en hann er innanhúsarkitekt... Það var yndislegt að hitta þau og við Hildur spjölluðum um Edduverðlaunin og rifjuðum upp gamla tíma á Stöð 2... Snilldar kvöldstund...
Í morgun sótti ég Valda út á Rvk-flugvöll og við útréttuðum aðeins og drifum okkur svo bara út á völl.. Ferðin gekk áfallalaust fyrir sig og ég náði að sofa ágætlega á leiðinni en Valdi las nýjustu bók Arnalds Indriðasonar svo honum leiddist ekki jafn svakalega og á leiðinni til Íslands.
Núna erum við komin "heim" til Malmö og bara nokkuð sátt við Íslandsheimsóknina... Ég er að byrja í KVL í fyrramálið í kúrsinum Tropical Botany en Valda bíður mikil hópaverkefnavinna á næstu dögum.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2007 | 17:21
Íslandsheimsókn..
Eftir að ég keyrði upp á Hvanneyri þá komu börnin til Valda. Jakob og Linda hafa stækkað og Sunna er búin að lita hárið á sér rautt. Jakob er líka búinn að lita sitt svart... Linda er líka byrjuð að spila á fiðlu. Við erum bara búin að vera í burtu í varla þrjá mánuði og samt hafa þau stækkað og þroskast svo mikið...
Ferðin mín upp á Hvanneyri gekk vel en ég kom við í Hyrnunni og keypti pizzu fyrir mig Björk og Báa. Það var yndislegt að koma á Hvanneyri þó það væri myrkur.. Veðrið var líka milt og gott. Við Björk fengum okkur rauðvínstár eftir matinn og kíktum svo á Önnu Guðrúnu og Björn og sátum hjá þeim til miðnættis. Það er alltaf jafn gaman að spjalla við þau. Við Björk röltum þá heim og sötruðum smá beilís og skelltum okkur svo á barinn... Við gengum framhjá Álfhólnum í myrkrinu á leiðinni... Ó ég sakna hússins... Við vorum nokkuð viss um að barinn væri tómur en þá var tveggja manna hljómsveit að spila... Steini og Olli.. bara hressir.. Slæðingur var af fólki á barnum og virkilega gaman að hitta alla aftur.. Eftir barinn þá fórum Ég, Björk, Sigga Júl og Þórunn heim til Siggu og horfðum á DVD með "Best off" Evróvision lögum... Já ég veit... frekar hallærislegt.. En við skemmtum okkur stórkostlega við að syngja og dansa "Diggy lú, diggy ley, life is going my way, when I am walking in my golden shooes!... Með Herrýs var það ekki?
Á sunnudagsmorgninum þá hitti ég loksins hana Heklu litlu en hún hafði verið sofnuð þegar ég kom kvöldið áður... Hún er nú meiri rúsínan.. Þvílíkur karakter.. farin að labba um allt en þegar ég fór úr landi þá var hún bara rétt byrjuð að stíga nokkur skref... Síðan fór ég í sund og lá vel og lengi í heita pottinum en sundlaugin í Borgarnesi er örugglega með bestu potta á landinu..
Þegar til Rvk var komið þá fórum við í bíltúr upp í Heiðmörk og svo í Mosfellsdalinn en ég ætlaði að reyna að ná á leigjendunum mínum þar... Tveir bílar voru í innkeyrslunni en enginn svaraði þegar ég bankaði.. Mér þótti heldur druslulegt þarna fyrir utan og ég held ég hafi örugglega heyrt í þremur hundum þarna inni... Búið er að mála forstofuna vínrauða en ég held samt að ég hafi gefið leyfi fyrir málun en bara gleymt að spyrja um lit.... Það er svolítið sorglegt hvað allt er í niðurníðslu þarna... leigjandinn er þó búinn að mála þakið og veröndina eins og um var samið.... Ég hugsa að ég reyni að selja þetta við fyrsta tækifæri þegar ég kem heim.. Ég bara er komin með nóg af leigjendavandamálum...
Í gærkvöldi þá sótti Valdi Kentuky kjúkling og við horfðum á Edduna saman. Mér finnst það alltaf jafn gaman þar sem ég þekki nú enn einhver nöfn þarna í bransanum.... Mér fannst frábært að Egill skyldi fá tvö verðlaun en ég hefði nú viljað sjá Dunu fara með eitthvað heim fyrir Veðramót en ég hef svo sem hvorki séð myndirnar hans Ragnars né Veðramót...
Í dag er Valdi fyrir austan en hann er að flytja fyrirlestur þar í kvöld. Ég var nú bara að hangsa í dag og fór í heimsókn til Brjáns, Karenar og Brynhildar sem er náttúrulega mesta dúlla í öllum heiminum... (Sjá myndir). Ég er líka búin að hanga á saumastofunni hjá Gerði og liggja í Árbæjarlauginni í tvo tíma.. næs.... Nú er ég í húsi pabba hans Valda í Árbænum en Reynir er í útlöndum. Húsið hér í Árbænum er svo yndislegt og hlýtt og notalegt en það er við hliðina á Elliðaánum og ég hef bara verið að virða fyrir mér endurnar synda framhjá en hér eru gluggar í hólf og gólf..
Í kvöld fer ég svo til Hildar Kristjáns og svo förum við Valdi "heim" til Malmö á morgun...
TVÖ NÝ ALBÚM...
Kveðjur úr Árbænum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2007 | 21:34
Komin heim á Frón
Jæjja við erum komin heim til Íslands. Yndislegt.. Veðrið svona milt og fallegt..
Við vöknuðum snemma í morgun, eiginlega allt of snemma. Við vorum komin á Central Station allt of snemma og fengum okkur bara morgunmat í rólegheitunum. Við vorum að hinkra eftir Rakel, guttunum og mömmu hennar Rakelar sem ætlaði að vera samferða okkur í fluginu heim.
Allt gekk að óskum og við vorum örugglega fyrst til að tékka inn og höfðum nægan tíma til alls.. Vopnaleitin var reyndar frekar fyndin þar sem Mamma hennar Rakelar var "böstuð" með míní kökukefli.... Það sást eitthvað dularfullt í röntgenmyndinni svo það þurfti að taka allt upp úr handtöskunni og það kom í ljós að dularfulli hluturinn var kökukefli með litlum járnpinna í gegn. Konan í tollinum og maðurinn á röntgentækinu hlógu vel og lengi að þessu.
Á flugvellinum hittum við hann Sigga Þór nýbakaðan master frá Hvanneyri...
Flugið var einfaldlega langt og leiðinlegt en við þurftum að fljúga miklu lengri leið vegna ókyrrðar í lofti þannig að flugið var 3 og hálfur tími í stað 2 og 50 mín... BORING.... Svo þarf maður að kaupa sér mogga og Sómasamloku um borð...
Við misstum af rútunni sem við áttum að taka í bæinn og þurftum að bíða í 20 mín eftir að næsta færi og í staðinn þá fengum við endurgreitt... Hehe... ekki málið... 2400 kall... munar um minna... Í rútunni var hann Teitur Þorkelsson gamall vinnufélagi min frá Stöð 2 og skólafélagi systra minna... Það var gaman að spjalla við hann en við höfum ekki hist almennilega í allt of langan tíma...
Nú er Valdi heima hjá Pabba sínum í Árbænum með börnunum en ég er uppi á Hvanneyri með Björk Harðar... Næs... ég fer svo á morgun að hitta þau öll...
Kveðjur frá Hvanneyri
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.11.2007 | 21:04
Fyrsta haustveðrið!
Í morgun vöknuðum við upp við alvöru Íslenskt haustveður.. 8 stiga hiti, rok og rigning.. Þetta þykir ekki tiltökumál á Íslandi en þegar ég var í klippingu í morgun og hafði áhyggjur af bílnum sem var illa lagður þá sögðu klippidömurnar.. Ó við skulum bara flýta okkur því það er svo hrikalega vont veður úti... Hehe.. ég sagði bara Ó nei.. Þetta er yndislegt veður.. minnir mig bara á góðan haustdag á Íslandi... Þeim fannst það ekki fyndið.. Ég held þeim hafi hryllt við tilhugsuninni... En ég bara brosti... (PS. lít út eins og kíví eftir klippinguna)
Valdi heldur t.d. að það sé enn september þar sem trén eru enn í haustlitum eins og í september á Íslandi.
Annars var bara undirbúningur í dag fyrir brottför á morgun. Klipping, þvottadagur og Valdi var að vinna í skýrslunni og fyrirlestrinum. Við fórum líka niður í Telía og reyndum að díla við tölvuproblemin mín en hvorki Dell tölvan né Think paddinn vilja vinna almennilega... Arrrgggg... Tölvan hans Valda sem er 100 ára gömul vinnur alveg ágætlega af einhverjum ástæðum....
Við tókum léttan rúnt um Burlov center í leit að vísakortinu mínu sem er undarlega horfið af yfirborði jarðar.. (hef Valda grunaðann.... ) Ekki fannst það... Ég fór líka út í "Venus livs" sem er búðin hér á horninu og spurði gaurinn þar hvort hann hefði séð kortið (talar ekki ensku) .. En hann þekkir mig nú ágætlega.. Já já ... viö tökum kort... já já.. við tökum kort.. 'Eg bara brosti á hugsaði "kannski tók hann kortið í álvöru... " nei nei.. það er bara týnt og tröllum gefið.. Og ég er búin að láta loka því...
Síðan kíktum við til Rakelar til að plana brottför á morgun þar sem mamma hennar er í sama flugi og við. Síðan lagðist ég upp í sófa og prjónaði og Valdi vann í skýrslunni.
Við erum orðin spennt að kíkja heim á morgun. Valdi talaði við krakkana og ég talaði við Lindu sem er ekki alveg að fatta búsetuskipulagið þessa dagana.. Jú við búum í Svíþjóð og við ætlum samt að búa hjá Afa hennar um helgina.. Síðan koma þau um jólin.. Aðeins of flókið milli landa.. En Linda hefur komið til Þriggja útland sem eru: London, Íslands og Viðey!!!!!! (Á sínum tíma fannst henni skrýtið að fljúga frá Íslandi til Íslands en það var Rvk-Egilsstaðir!!!)... Annars erum við alveg að springa úr spenningi að koma heim á morgun og hitta grísalingana... Þau hafa örugglega stækkað um heilan meter.. (samanlagt...).
Nýtt albúm: Östad...
Kveðjur frá Malmö og sjáumst á Fróni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2007 | 20:07
Milli ferðalaga
TIL HAMINGJU SIGGI ÞÓR MEÐ MASTERSVÖRNINA... GLÆSILEGT....
Jæjja nú er Valdi kominn heim, degi fyrr, en áætlað var úr vettvangsferðinni sinni. Mikið er ég fegin því mér leiðist óskaplega hérna ein. Vettvangsferðin var svona upp og ofan hvað varðar gagnsemi en þessar ferðir eru alltaf búnar snemma á daginn en kvöldin eru ekki nýtt neitt. Þessi ferð er undirbúningur fyrir stórt verkefni sem unnið verður um þetta svæði og þau eiga eftir að fara aftur áþarna fyrir jól. Rakel og Valdi voru svo í hópavinnu með stúlku frá Tansaníu sem var eitthvað tæp í enskunni svo þetta var stirt.
Ég hef verið að vinna í tölvunni fyrir greinasafnið þessa dagana inn á milli sem ég ligg í leti. Ég ákvað um klukkan þrjú í dag að henda mér bara upp í sófa og gefa fjarstýringunni séns... Viti menn... fullt af skemmtilegu efni á daginn... En ég var nú aðallega að prjóna rósaleppaprjónið mitt svo einbeitingin á sjónvarpið var ekki mikil.
Á laugardaginn förum við sum sé heim til Íslands en Íslensku símarnir okkar verða strax settir í gagnið við lendingu: Valdi: 8478324 og Guðrún 8652910. Ég fer beint upp á Hvanneyri og geri ráð fyrir að vera þar hjá Björk og kíkja jafnvel létt á Kollubar... Á sunnudaginn ætla ég í SUND.. og vonandi næ ég í skottið á krökkunum áður en þau halda aftur yfir heiðina..
Á morgun setjum við inn myndir frá ferðinni hans Valda en myndavélin gleymdist í bílnum hjá Rakel.
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 18:32
Enn ein pizzuveislan..
Í gær komu gestir frá Danmörku en Rabbi, Þórdís og Hlynur komu í heimsókn til að hitta Höllu og Benna. Að sjálfsögðu voru gerðar pizzur og svo var bara setið og spjallað...
Benni og Halla ákváðu að fara yfir til DK í dag til að vera nær flugvellinum fyrir brottför á morgun. Annars er ég farin að keyra hér í Svíþjóð enda tími til kominn.. Þýðir ekki að vera einhver prímadonna og láta Valda keyra og segja bara hægri og vinstri... Eftir að hafa keyrt Benna og Höllu á Stöðina þá fór ég í Sopstationen að skoða... Þetta er martröðin hans Valda að ég fari þangað ein, með peningaveskið og með bílinn til að flytja dót... Annars missti ég mig svo sem ekki alveg en ég keypti einhver dýrahorn til að hengja upp á vegg.. Mig hefur alltaf langað í svoleiðis.... En hvernig við ætlum að flytja þetta heim er svo annað mál...
Mér tókst ekki að finna Telia búina til að kvarta undan netsambandinu en það kemur í ljós að við erum bara með brot af nethraðanum sem við erum að borga fyrir og ég get ekki sett neitt efni inn á greinasafnið með þessum hraða.. Ég er alveg brjáluð... En eins og er þá er ég bara að vinna þetta í Word skjali og færi svo yfir seinna...
Valdi er í sinni vettvangsferð í Östad sem er 40 km fyrir utan Gautaborg. Þau Rakel gista ekki með hópnum heldur eru á gistihúsi í nágrenninu. Það fer eiginlega ekki saman að hafa krakkana sem eru að staupa sig og borða sínar núðlusúpur með Valda og Rakel svo þau bara kusu að vera sér....
Ég ætla að taka algert letikvöld í kvöld uppi í sófa með fjarstýringuna og prjónana mína...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2007 | 10:15
Trópí-félagið
Sunnudagurinn var mjög rólegur, eiginlega fór dagurinn bara í letilíf. Seinni hlutann þá fórum við Valdi upp í Burlov center og keyptum á hann buxur en á mig keyptum við kápu og toppa.
Um kvöldið þá fóru allir (nema ég) í mat til Rakelar en hún bauð upp á Elgsteik. Allir voru ánægðir með elginn og ég fékk að smakka hann þegar þau komu heim og hann var bara mjög góður. Ég komst ekki með í matarboðið þar sem ég varð að þvo STÓRÞVOTTA.. En ég hafði ekki þvegið í langan tíma vegna prófa og allir þvottatímar upppantaðir fram að þessu... Ég þvoði 7 vélar og á tímabili var ég búin að leggja undir mig 3 þurrkara af 4 mögulegum... Þegar Benni, Halla, Valdi og Gabríel Snær komu heim þá var bara horft á sjónvaprið og ég prjónaði svolítið. Svefnsófinn er svo æðislegur að nú geta allir legið flatir og horft á sjónvarpið án þess að það sé þröngt... Þetta er alger snilldar svefnsófi...
Valdi er farinn í fimm daga ferðalag á vegum skólans og kemur aftur á föstudaginn. Benni og Halla eru úti á bílnum að skoða sig um en ég er núna tekin til við að vinna aðeins í Greinasafni landbúnaðarins sem ég var að vinna í í sumar... Það tók nú allan morguninn að finna dótið, og komast aftur í gírinn og rifja upp hvað var í gangi með hvað.... En ég ætla að vinna í Greinasafninu alla þessa viku.
Næsta mánudag þá byrjar Block 2 í skólanum. Þá er ég skráð í einn áfanga sem lítur út fyrir að vera hrein snilld en hann heitir Tropical Botany og er um hitabeltisjurtir og kemur mikið inn á grasnytjar sem er á mínu áhugasviði. Þetta eru 10 dagar í fyrirlestra og hópverkefni en síðan verður farið til Gvatemala í þrjár vikur í janúar... Ekkert smá spennandi. Dýrleif og Linda voru skráðar í áfangann og ég frétti af þessu í gegnum Sigga Frigg og ég var alltaf með smá áhyggjur að mig vantaði ferðafélaga í herbergi og svoleiðis en þá bara skráði Hlynur Gauti sig í áfangann. Hrein SNILLD.. Nú er ég komin með fínan ferðafélaga en Valdi hefur mikla reynslu af að ferðast með Hlyn þar sem þeir voru herbergisfélagar í Lbhí ferðinni til Norðurlanda og hann gefur honum hæstu einkunn..... Auk þess er Hlynur búinn að panta allar bækurnar fyrir okkur á netinu og Dýrleif er búin að vera að vinna í að sækja um styrki fyrir ferðinni... Snilld.. það verður gaman að vera aðeins innan um Íslendinga og nú ætti kennslan að fara fram á ensku fyrir víst þar sem svo margir "útlendingar" eru í hópnum... En við Hlynur erum búin að ákveða að við fjögur erum þá augljóslega í "Trópí-Félaginu"... og það félag gengur út á það að æfa sig fyrir ferðina í að drekka Margarítur þar sem Gvatemala er svo nálægt Mexíkó... Hrein snilld..
Já varðandi heimferðina þá gleymdist víst að láta vita af tímasetningum. En við komum síðdegis á laugardaginn næsta. Ég fer líklega á Hvanneyri en Valdi verður í bænum og hann ætlar svo að hitta krakkana á sunnudaginn. Á sunnudagskvöldið kem ég í bæinn og Valdi fer svo austur á mánudagsmorgun. Ég eyði mánudeginum í útréttingar eða bara aftur á Hvanneyri vegna vinnunnar. Síðan sæki ég Valda á flugvöllin á þriðjudaginn og við förum beit út á Keflavíkurvöll.... .Þetta verður sum sé svolítið snúin ferð...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.11.2007 | 18:45
Leitin að sænska keramikinu...
Eins og áður sagði þá eru Benni og Halla hjá okkur í nokkra daga. Við skelltum okkur upp í Lund í gær til að skoða okkur um þar í mildu og yndislegu haustveðri. Gabríel Snær sonur þeirra er fjögurra mánaða og undi sér ljómandi vel og er svo þægur og góður í ferðinni... Kvöldið fór í að haugast inni í stofu og horfa á sjónvarp og slaka á...
Á laugardeginum var ég óskaplega þreytt enda hafði ég ekkert náð að sofa af viti... Ég var ennþá svo "high" eftir grasafræðiprófið og það er erfitt að sofna með frosið bros á vörunum... Alveg frosið og er eiginlega enn til staðar...
Í dag fórum við með Rakel, mömmu hennar og Guttunum upp í Höganes hér fyrir norðan Malmö til að heimsækja Hauganes keramik verksmiðjuna.. Ég reyndar vissi að Höganes hafði verið selt fyrir nokkrum árum og var bara orðið fjöldaframleiðsla svo vonbrigðin voru ekki svo slæm en þetta var svona eiginlega eins og að labba um í leirtausdeildinni í IKEA.. Og frekar dýrt... Einn kaffibolli án undirskálar var á ca 1000 kr upp í 1600 krónur.. Í einhverjum moðpastellitum.. En jæjja það var samt gaman að skoða þarna...
Síðan lá leiðin á pizzastað þar sem við fengum misgóðar pizzur.. Mín var ágæt en slepjuleg.. Með kebab og bernessóssu.. Hvernig átti mér að detta í hug að bernessósan yrði smurð ofan á pizzuna og kjötið sett ofan á... Þar á eftir þá leituðum við að Vallakra leirkerasmiðjunni sem á að vera meira svona handgert og upphaflegur stíll.. Það er ekki hægt að finna neitt um þetta á netinu svo við bara keyrðum inn í Vallakra þorpið og römbuðum á þetta. Þá er þetta rosalega krúttlegur bær inni í "Nature reserve" skógarfriðlandi. Þarna er veitingastaður og allt svona greinilega handgert og notalegt.. En..... EKKI OPIÐ Á LAUGARDÖGUM.. Common.... Alla aðra daga vikunnar... jú en EKKI Á LAUGARDÖGUM...... Svo við bara röltum um skóginn sem var alveg yndislegur og fyndið hvað Gabríel Snær (4 mánaða) sýndi skóginum MIKINN áhuga... ég held hann hafi reynt að segja Lerki... En ég er ekki viss... Þarna sá ég stórkostlega sveppi (sjá myndir).. En við þurfum sum sé að gera okkur aðra ferð þarna seinna.. Kannski í desember þegar sérstakur jólamatseðill er í gangi á veitingastaðnum... Annars vildi ég meina að Gabríel hefði sagt ULLARSOKKUR... síðdegis þegar við komum heim... svo setti hann stút á munninn og sagði UUUUUUUU.. Ég held hann hafi verið að reyna að segja ULLARSOKKUR aftur.... Duglegur strákur..
Jú það er rétt Steinunn.. Valdi er á leið til landsins og ég líka... Valdi þarf að fara austur á Egilsstaði til að skila af sér sumarvinnunni í fyrirlestrarformi og ég ætla að koma heim og HANGSA... eða útrétta eitthvað... Ég fékk sæmilegt verð á flugi svo ég bara skellti mér en ég nenni alls ekki að hanga ein hér í Malmö. Eftir árangurinn í grasafræðiprófinu þá bara ákvað ég að verðlauna mig rækilega.... Annars verðum við mest lítið saman í ferðinni við Valdi því ég fer á Hvanneyri og kem svo aftur suður þegar Valdi fer austur og svo hittumst við bara þegar við förum aftur í flug.. frekar glatað.. En það verður gaman að kíkja aðeins heim.. Getur þú kannski gefið Valda eitthvað að borða...... ? Hann mun allavega bjalla í þig bráðum.. hehe..
Já Lilja það er sko planið að kíkja til Uppsala og heimsækja ykkur og kaupa einhverja Linne minjagripi....
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar