Grumpý rövl færsla.

Valdi hjólaði í skólann í morgun svo ég gæti haldið bílnum til að stússast.  Fram að helgi er bara hópverkefnavinna hjá Valda fyrir utan eitt próf á fimmtudaginn. Í þetta sinn er Valdi ekki svo heppinn með hóp en hann er með Andrius sem er frá Litháen en hann er ágætur og svo tveimur stúlkum frá Rússlandi og Póllandi en þær reyna að komast auðveldu leiðina í gegnum allt verkefnið. Þær til dæmis mættu klukkan 12 í morgun þegar Andríus og Valdi voru mættir klukkan 10 og svo furðuðu þær sig bara á því að ekkert væri búið að gera!!!!! Þær vildu að strákarnir væru búnir að finna út úr því hvernig ætti að vinna verkið, þær virðast halda að það sé nóg að brosa og vera sætar.  Strákarnir voru ekki búnir að átta sig alveg á því hvernig ætti að gera þetta þó þeir hefðu pælt í því í tvo tíma, þannig að þegar stelpurnar komu fórum þeir (stelpurnar buðust til að passa tölvurnar) til eins kennarans og fengu leiðbeiningar um þetta og þá var hægt að byrja á fullu. þetta gekk svo hægt og bítandi til hálf fimm. mæting aftur á morgun klukkan 10.

Ég vaknaði upp úr kl. 10 og ákvað að skella mér í líkamsræktina en um daginn fundum við stóra íþróttahöll þar sem hægt er að fara á skauta, í squass, badminton, borðtennis, sund og fleira. Það var tilboð 99 kr. til áramóta (990 kr ísk.) og ég bara skellti mér á það til prufu. Jú jú þetta leit svo sem vel út en ég var orðin frekar pirruð þegar ég var búin að borga í stöðumæli og borga svo fyrir lás á skápinn minn.. alltaf þetta kropp sem fer rosalega í taugarnar á mér.. En á leiðinni út þá talaði ég við afgreiðslustrákinn um að fá leiðsögn í tækin þar sem þau eru mörg og ógnvekjandi. En þá benti hann mér á að ég hefði bara borgað 99 kr og ætti því ekki rétt á neinni aðstoð í tækjasalnum.. Hó hó hó.. þvílíkt rugl...  Ég bauðst meira að segja til að borga auka en það kom ekki til greina. Nei nei nei.. ég borgaði bara 99 kr. og átti því ekki rétt á neinu.. Ég laug því að ég hefði aldrei komið í gymm áður og hvort honum þætti það ekki ógnvekjandi að ég væri þá að fikta í græjunum? en hann bara yppti öxlum...  En annars er þetta nú fínasta gymm í sjálfu sér ef ég finn út úr tækjunum.. En ég ætla að leita að gymmi nær mér þar sem það kom í ljós að það kostar um 1500 kr fyrir okkur Valda að fara í Squass en það var aðal aðdráttaraflið á þessum stað og það er bara of dýrt.. Og því get ég bara farið eitthvað annað þegar 99 krónurnar mínar renna út um áramótin... 

Eftir að ég kom heim þá stóð ég í endalausu rugli við að fá EU-kortið sem er sjúkratryggingakortið hér í Svíþjóð en það virðist vera að ég sé dottin á milli sjúkrakerfa og enginn vill bólusetja mig fyrir Gvatemalaferðina... Ég var fyrir löngu byrjuð að reyna að fá EU-kortið en Svíar eru snillingar í að flækja málin...

Eftir það stóð ég í endalausu rugli niðri í Telía út af internetinu okkar.. Þeir segja bara sitt á hvað og vísa út og suður og vita ekki neitt.. Við erum búin að vera í þessu tuði síðan við fluttum á nýja staðinn. Ég er búin að bíða í 8 daga núna eftir að einhver þjónustuaðili kæmi heim.. en ekkert gerðist.. og nú kom í ljós að ég var bara ekkert skráð til að fá slíka þjónustu.. ARRRGGGG.... Jæja en nú kemur einhver heim næsta þriðjudag eftir viku VONANDI.. Og ég fór fram á það að fá enskumælandi tölvunörd.   Svíar gætu örugglega fækkað afgreiðslufólki um helming ef þeir bara myndu leysa úr vandamálum kúnnanna í stað þess að bulla svör og vísa út og suður og fá kúnnann alltaf aftur í hausinn..  Þetta er td. örugglega óýkt 10. ferðin mín þarna niður eftir.....

En eftir Telía ruglið þá gerði ég bara það eina sem getur kætt mig þessa dagana og það var að fara í Sopstationen að skoða. Þar hékk ég vel og lengi og fann gamla sög sem ég keypti handa Valda. Ég fann líka fullt af öðrum hlutum sem mig vantar ekki svo ég hamdi mig....

Jæja best að hætta að röfla..

Kveðjur frá Malmö


Jólastemning í Köben og piparkökur

Á laugardaginn þá fórum við inn til Köben að hitta Brján og Karen. Við ætluðum hjólandi en það var mígandi rigning svo við tókum bara strætó niður á Central.  Ég bjóst nú við hálftómri lest og nóg af sætum en þegar inn í lestina var komið þá var pakkað og engin sæti. Ég var frekar fúl þar sem ég bara verð að fá sæti, get ekki staðið í 40-50 mínútur.. Svo út fórum við og vorum að spá í að taka næstu lest en þá sáum við að það var verið að bæta við nokkrum lestareiningum svo þar fórum við inn manna fyrst og fengum sæti. Jibbí.. eftir 5 mín þá var þessi hluti lestarinnar alveg PAKK FULLUR... Þá eru þetta Svíarnir á leið í jólastemningu í Danmörku...

Við ætluðum svo að hitta Brján og Karen á Laundromatinu sem er veitingastaður Frikka Weiss í Köben.. En vegna einhvers allsherjar misskilnings þá héldu allir að staðurinn væri á Íslandsbryggju svo þangað var haldði en ekki fansnt Elmegade þar..  Eftir eitt símtal okkar á millli þá uppgötvaðist misskilningurinn svo Brjánn og Karen hoppuðu upp í Taxa og við í annan Taxa og fundum svo loks Laundromatið í Nörrebro. Þetta er fínasti staður, huggulegur en alveg pakkaður af fólki. Við fengum fín sæti og góða hamborgara. Það var virkilega gaman að hitta Brján og Karen en Brynhildur Þórey var í pössun hjá Pabba og Siggu.  Eitthvað klúðraðist hópmyndataka og myndataka almennt inni á veitingastaðnum svo ég sat bara uppi með mynd af okkur Valda og enga mynd af Brjáni og Karen, hvað þá af okkur öllum fjórum.. Darn... 

Eftir kaffi á næsta kaffihúsi þá héldum við Valdi niður á Nýhöfn til að spóka okkur á jólamarkaði sem þar var. Það var svolítið rok og 6 stiga hiti en samt jólalegt og góð stemning. Það var búið að setja upp skautasvell á Kongens Nytorv og fullt af jólaljósum alls staðar. Við fórum síðan inn á Hafmeyjuna sem er krá þarna á Nýhöfn og fengum okkur jólaglögg og Eplaskífur sem er eitthvað danskt jóladæmi, virkilega kósi og rómó..

Síðan strolluðum við niður Strikið og á Ráðhústorgið þar sem voru ljómandi fottir panflautuleikarar... Ég var samt ekki alveg viss um að þeir væru ekta þar sem síðustu hljóðfæraleikarar sem við sáum voru bara að blöffa en það komst upp þegar geisladiskurinn stóð á sér.. Hehe... Pínlegt..

Við slepptum því að fara á jólamarkað í Tívolí enda var mannfjöldinn alveg gífurlegur svo við fórum bara á lestarstöðina og þá var PAKKAÐ af fólki þar.. ALVEG PAKKAÐ.. Það var ekki séns að við kæmumst í sæti eða bara inn í lestina yfir höfuð.. Ég fékk þá "fínu" flugu í höfuðið að taka S-tógið númer 10 upp á Nörreport og taka svo næstu lest  þaðan til Malmö en það er stöðin á undan Hovebane og þá gætum við fengið sæti áður en lestin kæmi í geðveikina á Hovebane. Valdi vildi nú frekar bara fá sér bjór og taka bara næstu lest í rólegheitunum.. En nei.. ég dró hann í kasti að spori 10 og upp í lestina og upp úr stöðinni á Nörreport og niður í Lestarstöðina og upp í næstu lest til Malmö.. Panikk en slapp upp á mínútu.. Og jú við fengum SÆTI.. JIBBÍ... En sigurglottið rann af mér þegar við keyrðum inn á Hovebane og einhverjar örfáar hræður skriðu inn í lestina.. Milljón laus sæti.. Hehe... Líklega hefði bjórhugmyndin hans Valda verið betri og jú.. ég er búin að fá að heyra það nokkrum sinnum hvað þetta var gáfuleg hugmynd eða þannig....

Í dag (sunnudag) þá fór ég snemma upp í Burlov Center að versla smá en ég var búin að ákveða að baka Baby Ruth köku í dag sem og ég gerði og tókst ágætlega nema að kakan var þurr.. Ég fann ekki ritzkex og ég er að prófa ný silikon form og svo er náttúrulega ofninn nýr svo þetta var svona öðruvísi.  Eftir hádegið fórum við í jólakaffi til Rakelar og guttanna ásamt Önnu Maríu. Þetta var ljúft síðdegi með piparkökum og ostum. Virkilega næs og gaman að spjalla við Rakel og Önnu Maríu.

NÝTT ALBÚM

Kveðjur frá Malmö

 


Elg-hamborgarar

Ég var líklega enn að ná úr mér þreytunni eftir svefnleysi næturinnar áður þar sem ég vaknaði upp með andfælum þegar Valdi kom heim úr skólanum klukkan 12 á hádegi. Ég var ekkert smá rotuð en er hins vegar hress í dag og búin að bæta fyrir svefnleysið..

Valdi var í skólanum til hádegis en ég notaði daginn í að klára jólakortin. Loksins fórum við svo með 50 jólakort og 5 pakka á pósthúsið. Púff.. þá er það búið.. Dagurinn fór annars í lærdóm en ég náði að skila af mér plöntufjölskylduóskalistanum fyrir munnlega prófið sem reyndar er ekki fyrr en 15. febrúar og svo er ég byrjuð að huga að ritgerð sem við eigum að skrifa og ég ætla að reyna að klára fyrir jól, einnig er ég loksins byrjuð að hreinrita glósurnar úr tímanum á fullu en það er alltaf ákveðin handavinna og pjatt hjá mér.

Um kvöldið gerðum við svo hamborgara úr elghakki. Hér í Mallinu er hægt að kaupa steikur og hakk úr allskonar villibráð. TD. Elg, villisvín, hreindýr og hjartarkjöti svo eitthvað sé nefnt.  Um daginn eldaði Rakel handa okkur Elgsteik sem var ljómandi góð og því var ákveðið að prófa Elg-hamborgara. Þeir voru mjög góðir en það var sérstök lykt af kjötinu og það var líka fituminna. Okkur þóttu hamborgararnir mjöjg góðir og bragðbetri en venjulegir borgarar.

Takk Steinunn fyrir plöntuupplýsingarnar og gaman að sjá ný nöfn í commentunum Steinar og Gíu..

Kveðjur frá Malmö


Þreyttur skóladagur

Ég er alveg að verða búin að fá nóg af að ferðast svona á milli landa í skóla. Ég var svo stressuð því  ég átti að vakna 6.15 að ég sofnaði kannski smá upp úr þrjú í nótt.. Ég var svo ÞREYTT í morgun þegar ég skreið út á stoppistöð og  missti af strætó.. Darn.. en náði samt 7.02 lestinni og svo strætó beint í KVL. Miðvikudagar eru langir dagar, alveg frá 8.30 til 17.00 samkvæmt stundaskrá.  Þetta byrjaði vel með öflugum fyrirlestri um ávexti alveg til 10:20 en eftir það var bara hangs til ca 11:15 og þá var farið út í gróðurhús til að drepa tímann.. Mér finnst þetta alveg ólíðandi í framhaldsnámi að hafa svona hangs í lengri tíma. Ég er komin hérna langar leiðir til að læra og nenni ekki að "hangsa" og lesa Moggann á netinu í tíma... Get alveg gert það heima hjá mér. Eftir hádegið var síðan allra leiðinlegasti fyrirlestur í heimi um veðurfarsbelti og kennarinn mumlaði bara og ég skildi ekkert hvað hann sagði enda var ég orðin svo þreytt að ég bara gafst upp og fór heim klukkan 14:15.... Ég þykist nú kunna eitthvað smá í þessum veðurbeltum eftir að hafa séð um heimavinnuna í vistfræðinni hjá AGÞ.

Ég steinsvaf í lestinni á leiðinni heim, alveg steinsvaf. Vörðurinn vakti mig til að sjá miðann og svo bara svaf ég þar til á Malmö Central. Ég vona bara að ég hafi ekki hrotið of hátt.

Valdi var í hópavinnu í allan dag en nú fer að sjá fyrir endann á þessu hópverkefni en það gengur alveg ágætlega hjá hópnum. Næsta hópverkefni verður svo sett fyrir á föstudaginn svo það er enginn friður. Það verkefni er stærra um sig en þau eru þá 4 í hóp og það verkefni verður kynnt strax eftir jólafrí.

Síðdegið fór í það hjá mér að velja mér próflestrarefni. En það er þannig að við fáum að velja ákveðnar plöntufjölskyldur til að lesa fyrir munnlega prófið. Fjölskyldunum eru gefin stig og við eigum að hafa 80 stiga virði af fjölskyldum. Orkideur eru td. svo stór fjölskylda að hún telst 4.6 stig en smærri fjölskyldur eru bara 1 stig. Þetta tók talsvert meiri tíma en ég hélt og líklega útskýrast nördaupplýsingarnar í myndaalbúmi dagsins af þessu dagsverki mínu.  

Sum sé NÝTT ALBÚM en bara fyrir blómanörda....

Kveðjur frá Malmö


Sopstationen og jólakortaskrif

Það var ekki nokkur leið að ég hefði mig á fætur 5:15 til að mæta í skólann. Ég var svo stressuð þegar ég skreið upp í í gærkvöldi að ég myndi ekki vakna að ég bara sofnaði EKKI (minnti mig á morgunsjónvarpssvefnmartraðirnar hér í gamladaga) ... Svo ég bara slökkti á vekjaraklukkunni og snéri mér á hina og steinsvaf til hádegis... Úpps....

Valdi var í skólanum í allan dag í verkefnavinnu en það er nóg að gera hjá honum. Ég eyddi deginum í allskonar tölvustússi og kvöldið fór í að klára jólakortin.  En síðdegis fórum við niður í Telia í milljónasta skiptið til að reyna að redda internetinu sem er ekki nógu hratt.

Á leiðinni heim kíktum við í Sopstationen. Ég tók fullt af myndum og setti inn sem albúm því mér finnst þetta ein skemmtilegasta skranbúð sem ég hef komið í. Hún er í gömlu verksmiðjuhúsnæði sem er upphaflegt og hrátt. Dótið endurnýjast mjög fljótt og alltaf detta inn flottir hlutir. Auðvitað er megnið af þessu talsvert mikið drasl en inni á milli eru stórkostleg húsgögn og fleira áhugavert dót sem vert er að skoða. Ég myndi vilja versla miklu meira þarna en við getum bara ekki flutt endalaust með okkur af drasli. Allt starfsfólkið er eithvað svona "sunnan" við sig eins og Valdi myndi segja og enginn þeirra talar ensku en alltaf er hægt að bjarga sér og þau hafa öll mikla þjónustulund. Þeim er samt ekki treyst fyrir peningunum beint, þau bara slá inn í kassann og svo er tæki sem gefur til baka fyrir þau.

Ps. takk fyrir commentin á myndirnar. Jú Elín þetta var dama þarna í miðjunni.

Kveðjur frá Malmö


Jólaverslun og afmæli

Helgin er búin að vera næs hjá okkur hér í Malmö. Í gær fórum við að versla jólagjafir en jólaverslunin er greinilega hafin á fullu hér í Malmö því það var pakkað í verslunarmiðstöðinni. Samt gekk þetta hratt og vel fyrir sig og við náðum að klára allt sem við ætluðum að gera. Þegar heim kom þá fór ég að pakka inn jólapökkum og dúlla mér eitthvað..

Um kvöldið skelltum við okkur í þrítugsafmæli Sigga Þórs í Lomma. Planið var nú að stoppa frekar stutt og koma heim og halda áfram að skrifa á jólakortin... En.... það virkaði nú ekki betur en svo að við komum heim rétt fyrir fjögur um nóttina... Þvílíkt stuð.  Það var hist á Lommakránni en þar fengum við okkur að borða. Ég fékk alveg ljómandi góða svínasteik og Valdi nautakjöt... Þá voru skemmtiatriði sem fólust aðallega í spurningakeppni um afmælisbarnið... Hummm... mitt lið fékk 4 stig af 13 mögulegum... Og þau sem unnu voru með 5 stig... úpps... En þetta var stuð... Um ellefuleytið var farið heim til Sigga og Hildar í Lomma og þar var spjallað og dansað fram eftir nóttu við íslenska tónlist..  Við Valdi skemmtum okkur alveg óskaplega vel en erum hins vegar að súpa seyðið af því í dag með tilheyrandi letilífi... Held að jólakortaskrif sé það eina sem ég nenni að gera í dag af viti...

Kveðjur frá Malmö


Ísland-Danmörk

Eitthvað gekk illa hjá mér að vakna í skólann í gær en ég á að taka strætó 6:44 og það er OF SNEMMT..... Ég hafði líka verið að lesa nýju bókina hans Arnalds Indriðasonar Harðskafa fram eftir nóttu en hún gerðist æsispennandi á síðustu blaðsíðunum.

Ég mætti því heldur seint í skólann. Í hádeginu hitti ég nokkra Íslendinga sem eru í KVL Belindu, Stefán og Örnu Dögg... Alltaf gaman að hitta Íslendinga..

Ég og Dýrleif stungum snemma af úr tíma og drifum okkur á Íslendingabarinn Café Renomé sem er fyrir framan Tívolí í Köben. Þar átti klúbburinn Áfram-Ísland að hittast fyrir leik. Við vorum heldur snemma og fengum því sæti sem var hrein snilld. Svo komu Valdi og Siggi og hittu okkur. Brátt varð staðurinn smekkfullur af Íslendingum með asnalegar húfur, fána, trefla og andlitsmálingu.. Í hátalarakerfinu glumdu Íslensk Júróvisionlög, GCD með Mýrdalssand og fleiri íslenska hallærisslagara. Þetta er frekar undarlegur félagsskapur svona Íslendingasamkomur. Ég rakst á nokkra sem ég þekkti þarna eins og td. Eika Roskilde sem heitir reyndar Eiríkur Bergmann en við kynntumst á Hróarskelduhátíðinni í DK fyrir 20 árum síðan.. Einnig hitti ég Hallla Hal sem var með mér í Réttó fyrir 100 árum síðan. Ég held ég hafi ekki einu sinni hitt hann á götu síðan en skarpur var hann að átta sig á því að ég væri Guðrún en ekki einhver ein þriggja... Ég sá líka Auði sem vann með mér á Glym en týndi henni svo áður en ég náði að spjalla við hana. Á leiknum hitti ég Hvata frá Stöð 2 með son sinn.  Við tókum bara taxa á leikinn og gengum inn undir þjóðsöngnum. Við fengum fín sæti fremst og sáum mjög vel allt sem fram fór á vellinum. Það er skrýtin stemning á svona Landsleikjum erlendis, Íslendingarnir náttúrulega teiga bjórinn stjórnlaust og svo er baulað og sungið.. Annars var leikurinn hundleiðinlegur og ég hefði líklega stungið af í hléi ef ég hefði fengið Valda með mér. Það var svo kallllllltt.... En ég hafði fyrr um daginn týnt vetlingunum mínum.

Eftir leik fórum við aftur á Íslendinabarinn þar sem við vorum óþarflega lengi fram eftir nóttu. Lestarferðin heim tók nú sinn tíma svo við vorum komin í bólið hálf fjögur.

En þetta var nú eiginlega lífsreynsla sem er nauðsynlegt að upplifa einu sinni á ævinni allavega. Sum sé það að gerast Íslensk fótboltabulla erlendis... En Valdi tók þeim pakka nokkuð alvarlega og keypti sér húfu, trefil og mikinn bjór... (sjá myndir)..

Kveðjur frá Malmö


ÁFRAM ÍSLAND - AFTUR Á BAK DANMÖRK

Valdi mætti í skólann um hádegið og var í tímum fram eftir degi.  Ég aftur á móti hélt að ég ætti næs frídag í vændum og ætlaði að sofa út en þá greip Hlynur mig á msn klukkan hálf tvö í nótt og þá var málið að við þurftum að borga fyrir Gvatemala miðana okkar í dag til að ná einhverju góðu tilboði.. darn... svo ég þurfti að rífa mig á fætur og fara til Köben. Þar hitti ég Dýrleifu, Lindu og Hlyn á Vide vinstugen. Við áttum ekki að hitta bekkinn alveg strax svo við fengum okkur jólaglögg og funduðum um Gvatemalaferðina. Síðan fórum við á ferðaskrifstofuna að hitta restina af bekknum. Auðvitað kom þá í ljós að ekki var hægt að ganga frá miðunum... því enn er verið að leita að betri tilboðum...Svo ég hafði bara farið til Köben að ástæðulausu... eða hvað...? Ég átti mjög næs dag með Dýrleifu, Lindu og Hlyn en við skelltum okkur bara á kaffihús og fengum okkur Lunch og kaffi.. Bara næs... Kaupmannahöfn er orðin mjög jólaleg og jólamarkaðir út um allt.

Á morgun er langur skóladagur hjá mér en strax eftir skóla þá förum við Dýrleif á einhvern bar til að hitta Íslendingana sem eru að fara á landsleikinn Ísland Danmörk á Parken. Valdi kemur svo þangað. Það verður gaman að prófa að vera fótboltabulla í smá stund en ég hef hins vegar ekki miklar vonir um að við vinnum leikinn.... En ég ætla allavega bara að skemmta mér og skoða mannlífið.... Tek svo fullt af myndum og set inn á morgun eða hinn....

ÁFRAM ÍSLAND

Kveðjur frá Malmö


Vallakra krukkugerð...

Laugardagskvöldið var rólegt hjá okkur. Valdi eldaði svínafilé sem var rosalega gott með grænpiparsósu sem er í sérstöku uppáhaldi hjá okkur þessa dagana.. Um klukkan 22.00 þá heyrðust óskaplegar drunur og þá var flugeldasýning hér rétt fyrir utan gluggann... Við vitum ekkert hvert tilefnið hefur verið eða hvað en það var fullt af fólki samankomið hér úti á íþróttavelli. Við höfðum einnig orðið vör við ákveðna stemningu í hverfinu fyrr um daginn, útikerti og veitingastaðir sem alltaf hafa verið lokaðir voru opnir og mikið af fólki á götunum.. Einhver Kirseberghátíð hefur verið þarna í gangi og við bara ekki vitað af því...  Við vorum næstum því risin úr sófanum til að tékka á stemningunni en vorum eitthvað löt svo við bara tékkuðum á sjónvarpsstöðvunum aftur... Við erum örugglega með svona 40 rásir og fundum EKKERT til að horfa á... Reyndar var ég búin að horfa á heilan Morse þátt sem ég fíla í tætlur... Við enduðum á að leigja mynd á Digital kerfinu og völdum "Little miss Sunshine" sem er alveg stórkostleg mynd sem ég get mælt með... Dramatík og hlátur og ekki væmið og ekki of Amerískt....

Sunnudagurinn fór í bíltúr upp í Vallakra þorpið þar sem krukkugerðin er sem var lokuð um daginn þegar við fórum. Nú var opið. Þetta er óskaplega sjarmerandi gamall sveitabær með risastórum brennsluofni fyrir krukkurnar. Það er bara brennt tvisvar á ári og ég held að nú sé nýkomið úr ofninum fyrir jólin. Ég er náttúrulega gersamlega krukkuóð og missti mig næstum alveg. Ég held að Valdi hafi sloppið vel að við keyptum bara krukku fyrir poka af rauðvíni/hvítvíni (Sjá albúm) hrein snilld.. Þetta er svona klassísk Vallakra krukka en bara með gati á botninum fyrir tappan úr beljunni. Síðan voru þarna mjög fallegar krukkur í öllum stærðum og gerðum. Ég á örugglega eftir að fara þarna aftur og kaupa meira...

Við gengum svo um í skóginum og villtumst smá en það var bara ljúft. Á leiðinni heim komum við við hjá Hildi og Sigga og fengum stórkostlegar hafrakökur, nýbakaðar og kaffi. Ekki tókst okkur að plata þau á Völlinn með okkur á Ísland-Danmörk sem er á miðvikudaginn... En við Valdi ætlum allavega að fara.

Nú er Valdi að tala við börnin á Skype en það er náttúrulega snilldarforrit.. Við erum búin að sjá Ingva litla og Freyju og að sjálfsögðu öll börnin hægri og vinstri... kostar ekki krónu... Nú er Valdi búinn að spjalla við Lindu td. í klst held ég ... snilld..... Svo meðan hann er að þessu þá er hann að elda lambasteik... Snilldar kall..

Kveðjur frá Malmö 


Eggjahræra..

Flensan er að hörfa sem betur fer enda er hundleiðinlegt að hanga heima lasin með hálfa nennu til að gera eitthvað...

Annars er tilveran heldur tíðindalaus þessa dagana. Við fórum í Ikea og keyptum skrifborð fyrir Valda í gær.. Loksins eftir 3ja mánaða Svíþjóðardvöl þá er hann kominn með skrifborð.. Við keyptum einnig borðljós svo nú er hann búinn að koma sér vel fyrir og getur hætt að troða dótinu sínu á skrifborðið MITT.....  Við versluðum einnig vel í matinn í Mallinu en þegar heim var komið þá var klukkan orðin of margt til að fara að elda svínafile og tilheyrandi svo Valdi ákvað að gera eggjaköku... eftir að hafa sett 3 egg á pönnuna þá missti hann eggjabakkann á gólfið og braut 9 egg..... Hehe... mér þótti þetta eiginlega frekar fyndið... En Valdi hafði alls ekki húmor fyrir þessu... Og á meðan ég skokkaði út í búð að kaupa fleiri egg þá fattaði Valdi að "taðheilarnir" sem eiga íbúðina hafa ekki tengt yfirfallið á vaskinum... Þannig að eggjaskúringarnar breyttust í eggjaflóð á gólfinu..... Það var ekki geðgóður Valdi sem mætti mér þegar ég kom með nýju eggin....

Við sváfum vel og lengi út í dag og unnum svo í tölvunum fram eftir degi... Við fórum svo í langan og góðan göngutúr í Kirseberggarðinn og svo eitthvað um Kirseberghverfið og svo þaðan niður í bæ... Veðrið er milt og gott eins og alltaf og ljúft að labba um í 6 stiga hita þegar maður les um brjálað veður á Íslandi....

Kveðjur frá Malmö


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294955

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband