20.12.2007 | 20:36
Lipurtá og letilíf
Valdi er kominn í jólafrí og á að vera að lesa undir próf en hefur ekki alveg komið sér í það.. Hann lá uppi í sófa í dag og las Harðskafa... Ég er hins vegar enn alveg á kafi í ritgerðinni. Ég held að allt í allt séu 5 bls. í höfn og þá eru um það bil 10 eftir. Ég fer hins vegar að renna í þrot með efni enda hef ég alltaf haft það að markmiði að skrifa stuttan og hnitmiðaðan texta, gæði en ekki magn en við eigum að skila 15 blaðsíðum.
Síðdegis þá drifum við Valdi okkur loksins í Squash eða reyndar Racketball sem er aðeins annað, en báðar þessar íþróttir ganga undir nafninu Veggjatennis heima á Íslandi. Ég spilaði Squash sem unglingur með pabba í Veggsporti þar til tekið var fyrir að lána okkur stelpunum salinn (við systurnar og Þórgunnur Ársælsdóttir) þar sem sífelldar djassballettæfingar þóttu ekki viðeigandi í Veggjatennissal. Síðan komst ég aftur í Squassið úti í Gambíu en þar spilaði ég nokkrum sinnum með Nígerískum læknum. En ég var úti í Gambíu 1994 og hef því ekki spilað Veggjatennis í mörg ár svo tilhlökkunin var mikil. Það tók svolítinn tíma að koma sér aftur í gírinn en eftir það var þetta rosalega gaman.. En ég finn það að ég þarf að létta mig talsvert til að ná einhverri snerpu en ég var nú engin Lipurtá að hlussast þarna á eftir boltanum. En þetta var æði og við erum búin að panta tíma aftur næsta laugardag. Gallinn er að þetta er mjög dýrt sport og líklega höfum við ekki efni á að fara nema í mesta lagi 2-3 í mánuði..
Eftir þessa hollustu þá dró Valdi mig í langan bíltúr til að láta mig smakka MAX hamborgara en það er sænsk-hamborgarakeðja eins og Mac Donalds en bara snyrtileg og með alvöru stórum og góðum hamborgurum. Hrein snilld en ansi subbulegt eftir líkamsræktina... Og bara til að toppa klúðrið þá keyptum við okkur súkkulaði á leiðinni heim og liggjum núna uppi í sófa og skönnum sjónvarpsstöðvarnar.... Já það er erfitt þetta námsmannalíf....
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2007 | 22:55
Erum að tapa fyrir jólunum!!!
15 IP tölur í dag á síðunni okkar..
Þetta er mikið hitamál hjá okkur Valda að sjá hve margir kíkja á síðuna okkar. Metið er 39 IP tölur eða innlit á einum degi en í dag voru 15. Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að við séum að tapa fyrir jólunum.. Eða þá að færslurnar okkar séu að verða BORING... Það fer nú að æsast leikurinn aftur þegar börnin koma og svo fer ég til Gvatemala þá hlýtur eitthvað spennandi að tínast til..
Allur dagurinn fór í ritgerðarsmíð hjá mér í dag. Ég er að drukkna í þessari ritgerð um Nicotiana genusinn.. Ég náði að skrifa heilar 2 bls. (13 eftir). Ég ætlaði í heilsubótargöngu í Kirseberggarðinn en það var einhver óreiða á maganum á mér eftir ofát á mandarínum kvöldið áður... Svo ég fór ekkert út...
Valdi fór upp í skóla í dag og fundaði með nokkrum kennurum um framtíð sína í þessu námi, leskúrsa og lokaverkefni. Ýmsar áhugaverðar hugmyndir komu fram og mér til mikillar gleði þá stefndu öll lokaverkefni í Skorradalinn en það þýðir að ég fæ að hafa Valda hjá mér næsta vetur en ekki á þvælingi milli Austurlands og Hvanneyrar eða sem væri verra, Svíþjóðar og Hvanneyrar.
Rakel kom með guttana til að kveðja en þau eru að fara heim til Íslands yfir jólin á morgun.
Um kvöldið eldaði Valdi snilldar kjúklingabringur sem voru fylltar með sveppum og gráðosti og svo vafðar í beikon.. Ummmmmm.......
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2007 | 20:58
Bólusetningar í höfn
Þessi dagur var eiginlega uppfullur af fýluferðum en Valdi hjólaði upp í skóla í morgun til að hitta einn kennara sem var ekki við. Síðdegis hjólaði Valdi svo af stað til að hitta Agniezku sem er með honum í hópavinnu en hún hringdi á miðri leið og sagðist vera upptekin í jólagjafainnkaupum. Á endanum frestaðist hittingurinn fram á morgundag.
Ég fór snemma í skólann í morgun en þetta er í síðasta sinn í bili allavega sem ég þarf að vakna 6:15 til að taka lestina. Eitthvað sagði mér þó að ég ætti bara að snúa mér á hina hliðina og halda áfram að sofa en ég reif mig á fætur og dreif mig í skólann. Þá var eitthvað vesen á fyrirlesaranum og við vorum send út í gróðurhús til að hangsa til kl. 11.. Þetta er svo ópró að láta okkur hangsa úti í gróðurhúsi og kennarinn væbblast um og talar dönsku. Ég minnti hann þrisvar á að tala ensku í morgun en gafst svo upp og hætti að fylgjast með. Klukkan hálf eitt var svo Gvatemalafundur sem var heldur þunnur. Ég þrammaði svo niður í KU til að sækja bækur um sveppi sem ég hafði pantað hjá einum kennara og þær voru komnar og áttu að vera í hólfinu hans. EN NEI... Hann hafði gleymt að setja þær þar... Andsk..... ég var svo pirruð búin að labba og labba og fara í hraðbanka og kaupa umslag og vesen, vesen, vesen....
Þegar heim kom þá ákvað Valdi að dekra við mig og keyra mig niður í Vaccination clinic sem var opin á milli "futten og nítten".... Ég hefði getað labbað eða hjólað þangað en það var svo kalt og ég var þreytt eftir langan Köben dag. Við fundum sum sé út að bólusetningarstofan er bara 1 km í burtu nánar tiltekið í bakgarðinum þar sem Lilja og Vaggi bjuggu meðan þau voru hér. Fyndið.. svona nálægt en tók eilífð að finna.. Og ótrúlegt þá virkaði það og ég fékk mínar sprautur.. Eitthvað var nú enn í gildi af fyrri bólusetningum svo ég fékk bólusetningu við lifrarbólgu og þurfti að endurnýja Kóleruna en restin var í fullu gildi... Þetta kostaði reyndar heilan helling en mikið óskaplega er mér létt að vera búin að ganga frá þessu.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.12.2007 | 11:03
Skemmtilegir dagar
Síðustu dagar hafa verið ljómandi skemmtilegir en Guðbjörg hefur verið hérna hjá okkur þessa vikuna. Á föstudaginn kom loksins að stóru stundinni þegar hún var að verja/flytja lokaverkefnið sitt. Loksins er 5 ára skólapuð að verða lokið og sést í landslagsarkitektatitilinn að loknu verknámi á Íslandi.
Vörnin fór fram við SLU og þetta var ljómandi áhugavert að fylgjast með og Guðbjörg stóð sig eins og hetja í að útskýra verkefnið og svara fyrirspurnum. (Sjá myndir).
Um kvöldið kom Hlynur frá Kaupmannahöfn og öll hersingin fór út að borða. Við fórum á Steikhús við Litla torg og þaðan á Írskan bar en þar var mikill troðningur og hávaði svo við drifum okkur heim enda var Hlynur farinn að haltra verulega en hann missteig sig "á 16 cm háu hælunum sínum". Þegar heim kom þá fékk hann Chillí kjötrétt í plastpoka úr frystinum til að leggja á ökklann sem var talsvert bólginn. Það var mjög skemmtilegt að sitja og spjalla fram eftir í rólegheitunum. Þetta var skemmtilegt kvöld. Það var reyndar svolítið súrt að Þórarinn (maðurinn hennar Guðbjargar) var fastur heima á Íslandi vegna veðurs en hann ætlaði að eyða kvöldinu með okkur. Hann kom ekki til Kastrup fyrr en allavega 20 tímum á eftir áætlun og kom því aldrei til Malmö en Guðbjörg og Hlynur fóru um hádegið yfir til Köben.
Restin af laugardeginum var tekin rólega og fór bara í hangs og kósíheit. En í dag eru stór plön um mikinn lærdóm og duglegheit í dag og næstu daga áður en barnahersingin kemur hér 25. des.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2007 | 22:25
Valdi heim..
Í kvöld kom Valdi heim úr vettvangsferðinni sinni. Morguninn var skemmtilegur og fór í verkefnið þar sem hóparnir voru að velta fyrir sér 100 ára áætlun um framtíð Östad svæðisins sem er 4000 ha jörð sem Östad stofnunin á. Í þessari ferð varð Valdi var við það hve dónalegir nemendur geta verið við gestafyrirlesara en skvaldrið og lætin yfirgnæfðu gestafyrirlesarana frá Póllandi. Ég yrði alveg brjáluð að vera gestafyrirlesari við svona aðstæður. Ég lenti í þessu í Menntaskólanum á Sauðárkróki þegar ég var að kynna Lbhí.. Ég átti erfitt með að sussa harkalega á bekkinn þar sem ég var gestur en sem betur fer kom kennarinn og þaggaði niður í þeim einstaklingum sem voru á athyglisflippi.. Algerlega óþolandi þegar krakkar láta svona...
Ég var að læra fram eftir degi þar til ég fór út í Kirseberggarðinn að labba.. ég missti mig og hljóp smáveigis og er að blæða fyrir það núna en beinhimnubólgan poppar upp bara við nokkur skref.. VONT.. En þetta var ljúft og hressandi að fara 5 km í mildu veðri sem er eins og endalaust haust og umhverfið er svo fallegt þarna. Ég fíla þennan garð alveg í tætlur en það versta er að maður þorir ekki að vera þarna í myrkri en það er komið myrkur klukkan 4 á daginn hér á þessum árstíma.. Ég get vonandi nýtt mér garðinn meira þegar vorar.
Síðan var þvottadagur sem þýðir bara óþolandi ferðir fram og til baka í næstu blokk þar sem þvottahúsið er.. Ég náði ekki einu sinin að klára allt þar sem Valdi kom seint heim svo ég þurfti að bóka tíma í fyrramálið til að klára. En heppin var ég að það var laust en stundum er ekkert laust í heila viku.....
Nú eru myndirnar komnar inn frá ferðinni hans Valda
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2007 | 20:27
Gautaborg, Hákarl og Brennivín
Í gærkvöldi var alþjóðlegur dinner í vettvangsferðinni hjá Valda og Rakel. Þau mættu á svæðið með brennivín, hákarl og hangikét. Hákarlinn vakti talsverða athygli og þótti sérstakur og mörgum þótti hann vondur en einn nemandi var stórhrifinn en það var Raities frá Lettlandi sem vildi endilega fá sendann einn skammt frá Íslandi við tækifæri... Brennivínin kláraðist á undan vodkaflöskunni sem er góðs viti en margir voru forvitnir um innihald vínsins.
Í dag var hins vegar frídagur eða þannig því þau vildu ekki taka þatt í elgveiðunum. Rakel og Valdi fóru því niður í Gautaborg og áttu ágætis túristadag. Þeim var bent á að fara í tívolíið þar sem var jólamarkaður og þar voru heljarins jólaskreytingar enda var markaðurinn opinn 15.00 - 22.00 um kvöldið líklega til að leyfa ljósunum að njóta sín. Markaðurinn var skemmtilegur en þar var handverk og allskonar dót og einnig var skautasvell í gangi og nokkur tívolítæki. Þarna var maður að blása jólakúlur út í gler og rífandi jólastemning alls staðar. (Myndir koma seinna)
Í Gautaborg eru þreyttir og lúnir sporvagnar eins og í bókinni "Palli var einn í heiminum". En Gautaborg virkaði vel á Valda og hann vill endilega fara með mig á markaðinn í næstu viku.. vonandi verður af því.
Á leiðinni heim frá tívolíinu þá birtust allt í einu löggur á hestum á miðri götunni. Rakel og Valda þótti þetta heldur undarlegt en þá kom bara heil skrúðganga fyrir hornið, lúðrasveit og fólk í hestvögnum vinkandi og læti.. Heil hersing...
Ég fór aftur á móti snemma eins og alltaf af stað í lestina til Köben. Skólinn var áhugaverður í dag, góðir fyrirlestrar og skemmtileg baunagreining í víðsjá en það er samt alltaf viðloðandi þetta hangs milli fyrirlestra og dólerí... Ég hins vegar nýt þess alveg óskapleg að hitta Hlyn, Dýrleif og Lindu í skólanum og tala Íslensku það er svo næs.. Enda held ég að ég ein sé að tala á við þau þrjú til samans.. Bara uppsöfnuð talþörf í gangi.....
Í hádeginu þá fórum við á bókasafnið en ég þurfti að sækja fullt af bókum þangað. Svo kom í ljós að það þurfti að panta þær og vesen.. En Dýrleif snillingur, pískaði mig áfram, svo bækurnar voru pantaðar og hún sótti rest í hillur og á 5 mínútum rukum við út með fullt af bókum og hinar voru tilbúnar eftir skóla.. Ég væri örugglega enn að gaufast þarna milli hillanna ef Dýrleif hefði ekki drifið þetta áfram enda þekkir hún bókasafnið... Snilld..
Ég er enn að vesenast með Nova/Nordplus styrkinn.. Ég fékk meil í gærkvöldi um að Nova/Nordplus fulltrúarnir hér neita að skrifa undir því ég bý í Svíþjóð svo þar með var styrkurinn úti... Ég hins vegar benti þeim á að þeir væru bara að kvitta fyrir að ég væri í skólanum sem væri nú staðreynd svo ég fékk undirskriftina.. Snillld.. En þá er bara eftir að senda þetta til Finnlands og sjá hvað sú kona segir við því að ég búi í Svíþjóð en er í skóla í Danmörku en það virðist vera mikill glæpur ... Það má vona...
Það var klúður á lestinni á leiðinni heim.. Hún var STÚTFULL og 20 mín. of sein og þá er sagt í hátalarakerfið.. LESTIN FER EKKI LENGRA... Allir út aftur og enginn vissi hvað var að gerast.. Ég fór bara í mína venjulegu mótmæla fýlu og tók S-tógið á Nörreport og tók Malmö lestina þaðan.. Fékk fínt sæti og hraut alla leiðina til Malmö á meðan að aumingja fólkið sem beið á Hovebanegard þurfti að standa.... ÆÆ...
Heima beið Guðbjörg með lúxus-góða laxasúpu.. Ummmm...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2007 | 15:55
Stúss og aftur stúss..
Síðustu tveir dagar hjá mér hafa mikið til farið í tölvustúss, bókasafnsuppflettingar, heimildalestur, tölvupóstsendingar, úthringingar og vesen. Ég er að taka törn númer 10 í að fá Nova/Nordplús styrkinn en Háskólinn hér er búinn að senda mig í 10 hringi út af því máli og í dag loksins hitti ég á einhvern sem raunverulega kom málinu við og þá var bara svarið NEI þú átt ekki rétt á styrknum því þú býrð í Svíþjóð. Það er spæló.. Ég er líka enn að reyna að finna út hvar ég á að fá bólusetningar og ég held ég sé komin með númer á Vaccination clinic en símsvarinn talar bara sænsku og segir að það sé opið milli Futten og nitten... Skil ekki sænsku en ég held það sé Sautjan og nítján... Ég ætla allavega að prófa að hringja aftur þá. Gaurinn frá Telía kom í morgun og það tók hann tvær mínútur að segja að hann gæti ekki hjálpað mér og skildi ekki af hverju netið væri ekki hraðara og þar með fór hann.. ég ætla EKKI að borga 3000 kr. útkall á hann.. GLÆTAN...
Hins vegar kom Guðbjörg í gær frá Íslandi og verður hjá okkur fram yfir helgi. Það er snilld því að Valdi er einmitt í burtu og mér leiðist þá ekki á meðan. Við Guðbjörg erum búnar að spjalla mikið og fórum í gönguferði í Parkinn áðan sem var mjög næs. Við ætlum svo að borða pizzur í kvöld fá okkur púrtvín og horfa á Desperat Housvifes.. En Guðbjörg er hér til að flytja lokaverkefnið sitt við SLU í landslagsarkitetúr. Hrein snilld..
Valdi og Rakel lögðu af stað hálf sex í morgun í vettvangsferð. Valdi sagði að þessi ferð væri nú eiginlega hálfgert prump... lítið verður úr verki og skipulagning léleg. Það er til dæmis frídagur á morgun þar sem nemendur geta tekið þátt í Elgveiðum eða gert ekki neitt. Jú elgveiðar hljómar kannski spennandi en þetta felst í því að standa úti í skógi og klappa saman höndunum heilan dag... Spennandi? NEI.... Þau ætla bara að gera eitthvað spennandi á morgun eins og að kíkja til Gautaborgar.
Jæjja best að hringja í Varnhem Vaccination clinic þar sem klukkan er að verða FUTTEN...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2007 | 11:15
Jólatrums í Malmö
Á laugardaginn þá ákváðum við Valdi að eiga algeran jóladag saman og fara niður í gamla bæinn í Malmö og upplifa jólastemninguna. Við tókum strætó niður í bæ og stukkum út á Drottningartorginu þar sem fyrsti markaðurinn var. Það var nú reyndar bara skemmtilegur bændamarkaður sem hafði verið þarna í sumar, aðallega grænmeti en ekkert jólalegt. Við héldum áfram röltinu og fórum inn í Caroli center sem er verslunarmiðstöð þarna en það var bara pakkað af fólki og óspennandi, þaðan héldum við svo beint yfir götuna inn í eitthvað port og húsaþyrpingu sem heitir St. Gertruds. Það var eins og að fara á milli tímabelta að fara úr Mollinu í gamla portið. Þar var yndislegur markaður þar sem hægt var að kaupa jólaglögg og handverk og þar var lúðrasveit að spila. Við síðan bara röltum okkur um í gamla bænum og duttum inn á nokkra markaði. Við vorum ekkert að versla svo stressið var ekkert hjá okkur. Ég keypti mér reyndar ullarvettlinga ódýra af einhverri vistvænni kind og á sama stað mátti kaupa íslenskar gærur. Ég sá líka bás þar sem kona var að selja svona ofna renninga á borð, svona langdúka. Hrein snilld. Mikið vildi ég að ég kynni að gera svoleiðis.. Kannski Hildur systir geti kennt mér..
Á Stóra torgi var búið að koma upp skautasvelli og stóru jólatré. Þar var lítill gutti sem stóð ekki í lappirnar á skautunum og ég hreinlega emjaði af hlátrið, greyið. En mamma hans barðist líka við hláturinn hann var svo fyndinn. Að lokum tók hann þann kostinn að skríða á fórum fótum til mömmu sinnar.. (Sjá myndir) Út um allan bæ var jólastemning, allskonar markaðir og jólasveinar á ferð, hjálpræðisherinn syngjandi og kórar og slíkt. Þetta var ósköp yndislegt.
Planið var svo að labba sig í gegnum miðbæinn heim og stoppa og fá okkur jólaglögg en eitthvað tókum við vitlausa beyju og enduðum nálægt Rosengard (Subbuhverfi) og gengum þar um í ósjarmerandi hverfi með engum búðum og fullt af hundaskít... Við löbbuðum og löbbuðum og löbbuðum og komum loks á stað þaðan sem við rötuðum heim en við höfðum farið svakalega krísuvíkurleið... svo bæjarferðin endaði öðruvísi en áætlað var og við komum örþreytt heim og fengum ekkert jólaglögg.
Restin af deginum fór í skýrslugerð hjá Valda en ég var að læra og sunnudagurinn stefnir líka í lærdóm og skýrslugerð.
(SJÁ NÝTT ALBÚM)
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.12.2007 | 19:59
Bókasafnsdagur..
Fyrir hádegið þá ákvað ég að skreppa á Malmö stad bókasafnið sem er hér í gamla bænum. Ég er að skrifa hevy ritgerð um plöntufjölskylduna Solanaceae nánar tiltekið ættkvíslina Nicotiana en ég hef verið í mesta basli við að finna heimildir. Ég hjólaði af stað í léttri rigningu og það var bara næs að hjóla í gegnum bæinn, mjög hressandi. Malmö stad bókasafnið er mjög flott og stórt, ég fékk góða þjónustu þar og þurfti ekki að borga fyrir skírteini. Það er líka þráðlaust net þarna á safninu. Ég fann nú ekkert að ráði af heimildum og mest var á sænsku. Eftir hádegi þá lagði ég af stað heim í mígandi rigningu en Valdi hafði farið upp í Alnarp um morguninn til að hitta nokkra kennara og var að hjóla til baka og ákvað að hjóla á móti mér.. Hann var eiginlega alveg kominn að bókasafninu þegar við mættumst og við hjóluðum heim saman. Við urðum rennandi blaut.
Eftir síðbúinn hádegisverð þá vildi ég fara upp í Alnarp í skólann hans Valda og prufukeyra bókasafnið þar, hvort ég finndi einhverjar heimildir. Og jú.. Ég fann BÓKINA... risa stóra bók um Solanaceae fjölskylduna SNILLD... Hún virkar reyndar svolítið rykfallin og það var köngulóarvefur með köngurló í, á bókinni við hliðina.. Úpps... Það er búið að hræra svo mikið í flokkunarfræðinni að ég er ekkert viss um að þessi bók sé lengur mjög " up to date" en ég dobbletékka það bara..
Síðan fórum við í Burlov Center að kaupa mat og ég keypti svona sæta jólahafra úr bygghálmi með svona rauðum slaufum á (hallærislegt en ekta sænskt og krúttlegt!!!). Rakel og guttarnir höfðu gefið mér einn slíkan stóran í afmælisgjöf svo nú bætti ég við miðlungsstærð og míní.. svo nú á ég Small, Medium og Large... Við keyptum líka eina jólaseríu sem hangir svona niður í glugganum og aðra litla litaða í eldhúsgluggann svo nú er orðið jólalegt hérna inni en úti er veðrið eins og á góðu vori. Við keyptum okkur síðan tilbúna rifjasteik í kvöldmatinn en það er svo subbulegt að borða slíkt að ég fékk eiginlega ógeð á sjálfri mér og rifjasteik.. Þetta er eiginlega of mikið "vulgar" matur til að borða.. En gott var það...
Nú er bara letilíf, glósuhreinritun, sjónvarpsgláp, rauðvín og After eight í kvöld....
Jólakveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2007 | 09:06
Grænmetis- og ávaxtamarkaðir í Köben.
Eitthvað gekk mér illa að halda svefni fyrir brottför í skólann en ég vaknaði galvösk upp úr klukkan þrjú og gat ekki sofna aftur. Ég bara þoli ekki þessar lestarferðir mikið lengur.. En allavega þá byrjaði skólinn heldur dapurlega en það var veðurbeltafyrirlestur og aumingja kennarinn bara DREPUR OKKUR úr leiðindum.. ég skil ekket sem hann segir og ég heyri ekki helminginn heldur. Þetta efni er ekki til prófs (held ég) og því tók ég þann kostinn að lesa Moggann í tætlur á netinu, skoða fasteignaauglýsingar og ég las meira að segaj 24 stundir sem ég hef ekki lesið áður... Þar á eftir var ljómandi góður fyrirlestur um Nytjagrös eins og hveiti, Millet, Maís og slík grös.. Það var gaman og sá kennari var góður. Í hádeginu þá gengum við Trópí-hópurinn frá umsóknum um styrki fyrir ferðina okkar en styrkurinn frá alþjóðasjóði skólans brást svo við þurfum að borga ferðina að fullu úr eigin vasa ef ekki fást styrkir á móti. Arrgg....
Eftir hádegið var farið í torkennilegar útlenskar búðir á Ystegade og þar í kring. Þetta voru svona grænmetis- og ávaxtabúðir eða markaðir sem seldu líka krydd og allskonar dót. Þetta var óskaplega gaman og forvitnilegt. En ég skil ekki tilganginn með að fara með 20 nemendur saman í svona hópferð inn í litlar þröngar búðir þar sem aðeins 3-4 nemendur heyrðu hvað kennarinn sagði í það og það skiptið. Ég var með bakpokann minn og fartölvuna svo ég komst bara varla inn í sumar búðirnar.. En þessar búðir voru algert ævintýri út af fyrir sig. Ég verslaði svolítið í síðustu búðinni en þar var rýmra svo við komumst öll fyrir þar.
Þegar við vorum að leggja af stað úr fyrstu búðinni þá fylgdumst við með því þegar verið var að flytja stóran gám sem verið hafði verkamannaaðstaða á byggingasvæði. Upp fór gámurinn og svo fór hann að hallast og þá fór eitthvað að leka út úr gáminum.. OJBARASTA... það hafði gleymst að loka fyrir salernisrörið svo út gusaðist brún drulla... (lýsi því ekki nánar)... Út um allt á götuna og á allskonar vinnudót sem mennirnir voru með þarna... Ojjjjjjjjjjjj.....
Valdi var í hópavinnu allan daginn. Stelpurnar eru enn með múður og mættu ekki fyrr en þær voru sóttar um hádegið og kvörtuðu enn og einu sinni yfir hvað lítið væri búið að gerast!!!!!! Moðhausar... Kvöldið fór í próflestur hjá Valda en ég ætlaði að dekra við hann og gera gúllash þar sem hann var í próflestri en gúllasið var ógeðslega vont. Ólseigt.. þvílík vonbrigði og meira að segja upphitaða hvítlauksbrauðið var vont. Pakkakartöflumúsin hér í Sveden er líka þannig að það þarf örugglega hálft kg af sykri til að hún hætti að bragðast eins og pappír.
NÝTT ALBÚM MEÐ ÞESSARI FÆRSLU
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar