Komin til Gvatemala eftir LANGT ferðalag..

Jæjja þá erum við komin til Gvatemala eftir óendanlega langt ferðalag. Ég er svo þreytt að ég held ég sé að deyja.. En við Hlynur erum svo spennt að við tímum ekki að fara að sofa svo við pöntuðum bjór í roomservice ásamt vatni og erum bara að haugast á þessu fína lúxushóteli sem við erum á. http://www.grandtikalfutura.com.gt/.

Ferðalagið var svakalega langt. Ég var svo stressuð að ég náði engum svefni nóttina fyrir brottför þannig að þegar ég var mætt á Kastrup klukkan sex á sunnudags morgni þá hafði ég þá þegar verið vakandi í 18 klst.  Fyrsta flugið var langt eða átta og hálfur tími frá Kastrup til Newark og svo var það Huston í Texas og loks Gvatemala city. Alls vorum við í loftinu í 14 klst og 10 mín. En ferðalagið í heild sinni frá mætingu á Kastrup og þar til við komum á hótelið var alls: 27 klst og því reiknast mér til að ég sé búin að vera vakandi í 45 klst... Það sem bjargaði okkur í fyrsta langa fluginu var að það var sjónvarpsskermur á bakinu á hverjum stól og maður valdi sjálfur efni og ég horfði á eina bíómynd og nokkra CSI þætti.. Hrein snild og svo var ég með eina bók eftir Arnald Indriðason.

Þegar við komum á hótelið þá kom í ljós að þetta er snilldar lúxus hótel og við Hlynur erum stórhrifin af herberginu okkar enda erum við með sitt hvort hjónarúmið og þetta er allt hið flottasta. Ég er hins vegar búin að liggja með tær upp í loft þar sem ökklarnir á mér eru eins og á fíl vegna bjúgs eftir þessa löngu flugvélasetu.

Jæjja best að koma sér í bólið þar sem það bíður okkar spennandi dagur á morgun. Við fáum að sofa út til að ná úr okkur flugþreytunni og svo skoðum við Háskólann í Gvatemala City. Kannski næ ég að setja inn myndir annað kvöld..

Bestu kveðjur frá Gvatemala City


Karlinn einn í koti situr

Ósköp er nú einmannalegt hér í íbúðinni þegar allir eru farnir, nema karlinn sem á að vera að lesa undir próf sem er á þriðjudaginn.   Jæja það sem gerst hefur í dag er það að klukkan 5 í morgun keyrði ég Guðrúnu niður á brautarstöð þar sem hún átti að mæta klukkan 6 á Kastrup til að tékka inn í flugið til Gvatemala,  Hún er væntanlega enn á leiðinni þangað þar sem þetta ferðalag átti að taka 20 tíma. Vonandi gengur vel hjá þeim.

Þegar þessum rúnti var lokið reyndi ég að leggja mig aftur en það tókst ekki.  ég vakti svo börnin klukkan 8 og við fengum okkur morgunmat og fórum svo út á Flugvöll (Kastrup).  það tók smá tíma að tékka alla inn og svoleiðis.  En börnin komust heil á höldnu heim á Klakann, lentu þar um klukkan 4 að Íslenskum tíma. Ég er búinn að heyra frá þeim.

Á Kastrup hitti ég svo Rakel og Guttana og Önnu Maríu en þau voru að koma frá Íslandi  en með sitthvorri vélinni,  Eftir nokkra bið á flugvellinum, (en ég mátti ekki yfirgefa flugstöðina fyrr en að vélin var farinn í loftið þar sem ég hafði keypt fylgd fyrir Lindu Ósk),  Var haldið í lestina og ég skutlaði Rakel, Guttunum og Önnu Maríu heim. 

Nú sit ég einn og mjög þreyttur vegna svefnleysis og reyni að skrifa eitthvað gáfulegt, ég held að ég láti próflesturinn bíða til morguns og fari heldur snemma í bælið í kvöld.

Annars gerðust þau undur og stórmerki að það kom vottur af vetri. Frá áramótum var frost rok og snjófjúk hér í Malmö og í gærmorgun frostrigning framan af degi sem gerði ægilega hálku, Sem að ég og börnin urðum vel vör við uppi í Lundi en þangað fórum við í gær en það varð stutt stopp bæði vegna hálku og einnig varð Lundur rafmagnlaus þannig að við drifum okkur bara heim þegar við höfðum skoðað kirkjuna.  Seinni partinn byrjaði svo að snjóa og náði jörð að verða alhvít,  en það er allt horfið núna enda hitastigið komið í 3°c.

Jæja það er best að hætta þessu bulli og snúa sér að öðru.

Einmannalega kveðjur frá Malmö


Ísland og Gvatemala á morgun

Jæjja þá er jólafríið búið og krakkarnir eru á leið heim á morgun. Það er búið að pakka og í kvöld var hátíðarkvöldverður með svínasteik og sykruðum kartöflum. Í dag fóru Valdi og krakkarnir upp í Lund til að spóka sig um en þá var svo mikil hálka að það var ekki stætt svo þau drifu sig bara heim.. Ég var hins vegar hérna heima í panikki að ganga frá síðustu stundu reddingum fyrir brottför í fyrramálið. Eins og í fyrra þá sé ég um heimavinnuna í vistfræðinni en þá voru um 35 nemar en núna eru þeir hátt í 90... Ég var að klára að búa til verkefni fyrir þá og setja þetta allt inn á skoli.is og setja niður reglur fyrir verkefnin eða leiðbeiningar.. Núna er ég í panikki að klára að pakka. Ég þurfti að spretta einu hálsmáli af skyrtu sem ég var að kaupa og sauma svo sjálf saman... GERÐUR.. ÞETTA ER ÞITT VERK... Heheh..  En ég held þetta líti bara vel út hjá mér.. Setti líka teygju í einar buxur og annað smálegt.

Það verður áfall fyrir Valda annað kvöld þegar krakkarnir verða farnir heim til Íslands og ég verð farin til Gvatemala og hann bara einn í slotinu.... Hann fer fyrst með mig um fimm leytið út á Central station og hendir mér út þar, svo nokkrum tímum seinna fer hann með börnin alla leið á Kastrup og svo einhverjum tímum eftir það þá fer hann líklega og sækir Rakel og guttana... Svo þetta verður flugvallardagurinn mikli hjá Valda.

Jæjja nú verð ég að klára að pakka og reyna að fá 2ja tíma svefn áður en ég fer í sólarhrings ferðalag.. En við fljúgum 9:15 til Newark í USA og þaðan til Huston og svo þaðan til Gvatemala City..

Ég skal vera dugleg að setja inn færslur eftir því sem netsamband finnst á hótelunum... Og Valdi er búinn að lofa að setja inn færslur frá Malmö..

Kveðjur frá Malmö


Tívolí Lokað....

Eftir góðan letidag á nýársdag með tærnar upp í loft þá var farið í Malmö safnið en það inniheldur mörg söfn m.a. kastalann, tækni- og sjóminjasafn með kafbát og margt fleira.  Í þetta sinn þá var kafbáturinn skoðaður og tækni- safnið ásamt einskonar experimentaríum þar sem börnin geta spreytt sig á ýmsum eðlisfræðitilraunum.

Í gær þá var loksins haldið inn í Danaveldi þrátt fyrir skítakulda og rok en þetta er fyrsta veðrið sem kalla mætti vetrarveður hér í Malmö. Ég þurfti að fara í skólann að stússast út af Gvatemala og skila bókum á bókasafnið á meðan Valdi og börnin strolluðu Strikið.  Krökkunum tókst að versla meiri föt og líka nokkur plaöggöt. Þegar ég var loksins búin að hlaupa alla leið milli háskólanna minna (KVL og KU) og svo þaðan niður á Kongens Nytorv þá bjallaði ég í Valda og börnin og viti menn þau voru 3 metrum frá mér við enda Striksins.. Þá fengum við okkur kaffisopa og röltum svo Strikið til baka. En þá var planið að fara í Tívolíið. Það voru eiginlega farnar að renna á mig tvær grímur með að það myndi eitthvað klúðrast með þetta Tívolí þar sem Jakob var svo spenntur að þetta bara hlaut að fara í vaskinn.. Og viti  menn þegar komið var að Tívolíinu þá var það lokað fram í apríl.. ÞVÍLÍK VONBRIGÐI..  Jakob tók þessu þó mjög mannalega.

Þá var haldið inn í bangsabúð þar sem Linda valdi sér bangsa sem var svo fylltur upp á staðnum og sett í hann hjarta og hann fékk nafn og fæðingarvottorð. Þetta var voðaleg seremónía þar sem Linda þurfti að taka fullan þátt í fæðingu bangsans sem reyndar var kisa. Þetta er eiginlega snilldar aðferð til að hafa af fólki peninga. Sætu bangsarnir kostuðu ekki mjög mikið en svo er heil álma í búðinni sem eru bara föt á bangsana og þau eru dýr.  Snilld að gefa börnunum ódýru bangsana en svo vilja þau auðvitað fá fötin frá ömmum, öfum, pöbbum og mömmum næstu 10 jól og afmæli... Snilldar bissness.... Fötin voru reyndar mjög flott. Allir bangsarnir,  þó þetta væru hestar, kisur eða pólarbirnir, pössuðu í sömu stærðir og allst staðar voru göt á buxunum til að skottin kæmust út.. Snilld..

Og þá var haldið á Hard Rock þar sem við biðum í klukkutíma eftir að fá borð en það var vel þess virði því maturinn var góður. Enn eitt bissnestrikkið þarna er að láta fólk bíða eftir borði í Hard Rock versluninni sem auðvitað endaði með því að allir keyptu eitthvað nema Valdi...

Annars var þetta yndislegur dagur og allir fóru hlaðnir pinklum og pakksaddir í lestina heim.

NÝTT ALBÚM: Hitt og þetta

Kveðjur frá Malmö


Áramót í Malmö

Jæjja síðustu dagar hafa verið ljómandi fínir. Bíltúr í Skåne Djurpark og svo ferð í Malmö Kastalann.. Í dag var svo bara farið að versla það sem vantaði í áramótamatinn og svo var áramótaísinn búinn til heldur seint en ég hef komist að því að spariísinn frosnar á ca 4 tímum.. sem betur fer... svo það slapp til annars hefði þetta bara verið áramótasjeik..  síðan fóru Valdi og Krakkarnir út í Kirseberggarðinn og ég kláraði að taka til og þrífa íbúðina..

Áramótamaturinn var hangikjöt sem var stórkostlega gott með uppstúf og grænum baunum. Valdi hafði eytt mörgum klukkutímum og stórum hluta geðheilsu sinnar um daginn í að tengja tölvuna sína við sjónvarpið til að geta horft á Áramótaskaupið og annálana... Allt gekk á afturfótunum.. En svo svissaði hann í Dell-Drasltölvuna mína sem svínvirkaði... svo við gátum horft á skaupið í sjónvarpinu í alveg ágætustu gæðum og ekkert hökt.. Ég held hins vegar persónulega að hápunktur áramótaskaupsins hafi verið að sjá hvernig Remax notaði 3ja milljón króna mínútuna sína.. Ég var reyndar í smá stund að fatta að þetta væri auglýsing.. Hún liðaðist bara í gegn án átaka.. ekki slæm og ekki góð og breytti engu fyrir skaupið sem var bara ekki fyndið...  Ef ég hefði verið Remax þá hefði ég bara keypt mínútuna án þess að nota hana og sagt alþjóð að þeir hefðu gert það til að bjarga skaupinu.. Remax hefur á sér nógu slæmt orð þeir séu ekki að rústa heilaga skaupinu fyrir landanum...

Annars fannst krökkunum örugglega skaupið gott þar sem þau sátu alveg límd yfir þessu klukkan 12 að sænskum tíma og högguðust ekki þótt bomburnar færu hamförum fyrir utan... Ég, Valdi og Linda fórum út á svalir og það var meiriháttar.. Svíar eru ekkert síðri en Íslendingar í bombugleði.. Við sáum reyndar ekki mikið frá þriðju hæðinni í blokkarhverfinu... En nóg samt..

Þannig að nýtt ár er gengið í garð hér í Svíþjóð svo við sendum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár.....

ATH: NOKKUR NÝ ALBÚM...


Verslunarferð og leikfangasafn..

Jæjja loksins heyrist frá okkur en hér hefur verið nóg að gera undanfarið.. Ég er alveg að drukkna í þessari helv.... ritgerð svo ég hef nú ekki alveg getað farið í allar skemmtiferðirnar sem Valdi og börnin hafa farið í.

Fyrsta dagin þá skelltu þau sér niður í bæ og röltu þar um... En daginn þar á eftir var farið í verslunarferð í Jagersrocenter... Þar eru útsölur alveg á fullu svo það var pakkað af fólki.  Valdi var búinn að ákveða að það yrði farið og versluð föt á börnin þar sem þau eru talsvert ódýrari hér úti en heima og auk þess þá var hægt að kaupa eitthvað á útsölu sem var auka bónus...   Ég sá um að finna föt á Lindu en það var alveg rosalega gaman. Hún er svo viljug að máta og ekkert vesen og hún hlustar líka á mig með hvað er flott og ekki flott... (en hvort ég er dómbær um það er annað mál....) En ég var náttúrulega að reyna að kaupa skynsöm skólaföt og vona að það hafi tekist en hún fékk tvennar buxur og einhverja toppa og svo búnt af sokkum sem eru merktir hverjum degi vikunnar...  Sunna keypti einhverjar buxur, boli, belti og nærföt en ég náði ekkert að skipta mér af því enda líklega stórhættulegt að fara að hafa skoðun á fatavali unglinga.. Ég reyndi samt að hafa puttana í því sem Jakob og Valdi voru að skoða en komst að þeirri niðurstöðu að þeir voru bara í góðum málum en jakob keypti buxur, peysu og fína úlpu. Ég náði að kaupa mér léttan jakka og topp fyrir Gvatemalaferðina á útsölu í Zizzi sem er "fitubollubúð" eins og valdi kallar það... Nei það er ekki hægt að kaupa fitubollur þar (eins og Valdi heldur) heldur er þetta búð með stórum stærðum..

Um kvöldið var bara farið útí búð og keyptar pizzur en pizzustaðurinn Pizza Algarve er hér úti á horni og bara með þokkalegar og ódýrar pizzur.. En sænskar pizzur eru yfirleitt frekar vondar...

Í gær þá þurftum við að stússast vegna Telía reikningsins og við þurftum að borga húsaleiguna. Telía internetfyrirtækið er alger brandari.. Selur okkur háhraða net sem virkar ekki og veitir alveg ótrúlega lélega þjónustu og rukkar svo 20.000 krónur íslenskar fyrir netsambandið.. DÓ.... Eitthvað að hér... En þeir voru lokaðir svo við bara borguðum reikninginn og ég tek kast seinna að rövla...

Ég var líka frekar pirruð í bankanum þegar ég sá að við erum rukkuð um 600 krónur íslenskar fyrir að borga með peningum en ekki í heimabanka... Ég lét gaurinn vita að mér þætti þetta fáránlegt og hann brosti bara. Og lýsandi fyrir þjónustuna hjá þessum banka þá var drengstaulinn með þvílíkann sogblett á hálsinum að hann hefði sést á gervihnattamynd... Jæjja ég verð að hætta að pirrast út í sænska þjónustulund sem er ekki til staðar...   Eftir þetta stúss þá tók ég bílinn en Valdi og krakkarnir fóru í Leikfangasafn niðri í bæ og svo röltu þau svolítið um og fóru í Íþrótta-outlet-búð og keyptu í þróttapeysu fyrir Jakob. Leikfangasafnið var víst skemmtilegt en þar sáu þau eldgamlar barbí og slíka hluti og líka Bratz dót...  En þar mátti ekki taka myndir því miður..

Í kvöldmatinn var svo villisvínasteik en Jakob hafði óskað eftir því. Hún var ágæt en svolítið þurr en allt meðlæti var de-lúx eins og sósan og waldorfsalatið sem við Linda gerðum.

Um kvöldið var svo ostaveisla en við áttum eftir að borða ostana sem átti að borða á aðfangadagskvöld. Ótrúlegt en satt þá borðaði Linda vel af villisvíninu og svo borðaði hún ostana um kvöldið eins og hún væri botnlaus... Ég hélt nú ekki að 7 ára krakkar vildu osta með sultu og kexi svo ég tók út ís fyrir hana en viti menn hún varla leit við ísnum...

Jæjja nú er þvottamorgunninn mikli og bráðum ræsi ég börnin og planið er að kíkja í langan bíltúr í dag.. Og ég held ég leyfi mér bara að fara með þó ritgerðin sé alveg í steik....

TVÖ NÝ ALBÚM

Kveðjur frá Malmö


Börnin komin..

Jæjja þá eru börnin komin í 10 daga... Fluginu seinkaði um næstum einn og hálfan tíma... Það var víst tvísýnt hvort þau færu í loftið yfir höfuð vegna veðurs.. en sem betur fer hafðist það..

Við héldum svo litlu jólin heima í kvöld og á boðstólnum voru sænskar kjötbollur.. Mér finnst slíkur matur alveg óskaplega góður og ég borða alltaf yfir mig af sænskum kjötbollum. Þær eru líka taldar til hátíðarmats hér í Svíþjóð.... Síðan var heimagerði fíni ísinn minn í eftirrétt...

Eftir matinn voru pakkarnir teknir upp og nóg var af þeim... Eins og sést á meðfylgjandi myndaalbúmi....

Ljómandi skemmtilegt jóladagskvöld... og ég held að allir hafi verið ánægðir með sínar gjafir... Ég held að gjöf kvöldsins hafi nú samt verið gítarinn sem við gáfum Sunnu.. En hún var óskaplega ánægð með hann og þetta kom henni algerlega á óvart...

Jólakveðjur frá öllum hér í Malmö

NÝTT MYNDAALBÚM.. Eiginlega tvö albúm.. Jól í Malmö og Börnin komin ...


Jólaofát

Þessi jól hafa verið ósköp ljúf á allan hátt..  Hlynur Gauti var hjá okkur á aðfangadagskvöld en við borðuðum hamborgarhrygg með tilheyrandi meðlæti. Maturinn var alveg ROSALEGA góður eiginlega sá besti sem ég hef smakkað...  Við sáum ekki ástæðu til að fjárfesta í jólatré vegna plássleysis en keyptum jólarós sem gegndi hlutverki jólatrés.  Það voru þónokkrir pakkar sem fóru undir "Jóla-Tré-Rósina".

Hlynur fékk aðallega gjafir sem tengdust Gvatemalaferðinni en hann fékk viftu sem maður tengir við USB tengið í tölvunni sem er hrein snilld og svo fékk hann eyrnatappa, augnhlífar, uppblásinn axlapúða og öryggismittisveski.  Ég fékk fallega mynd frá Valda og stórkostlegann ostaskera sem var í laginu eins og elgur ásamt fallegum tré-ostabakka. Valdi fékk frá mér svona múltí-hníf eins og Lederman hnífarnir en heitir Gerber (eins og barnamaturinn!!!)... Valdi fékk líka húfu frá Héraðs- og Austurlandsskógum..   Frá Hlyn fengum við klassíst kerti og spil..   Frá Ömmu fengum við lopasokka sem er hrein silld enda mínir orðnir gatslitnir og frá systrum mínum fengum við Megasardiskinn.. Snilld.

Eftir pakkaupptöku þá var ísinn borinn á borð en það var þessi klassíski með suðusúkkulaðinu og heitu marssósunni..  Og það sem eftir lifði kvölds var nartað í konfektið og drukkið kaffi... Við náðum aldrei svo langt að taka fram jólaostana enda voru allir afvelta.   Valdi og Hlynur náðu að horfa á sjónvarpið  til fimm um morguninn en ég fór að sofa talsvert fyrr.

Á jóladag þá sváfu allir út vel og lengi og síðan var borðaður svakalegur Bröns sem var í Amerískum stíl með pönnukökum og hlynsírópi, beikon, steiktum pulsum og hrærðum eggjum... Og aftur lágu allir í valnum afvelta af áti...

Nú bíðum við bara eftir því að grísalingarnir lendi og þá fer Valdi út á Kastrup að sækja þau en þau eru í loftinu núna... Í kvöld eru svo plönuð litlu jólin en við búumst við einhverjum pökkum að heiman og krakkarnir fá sína hér frá okkur...

Bestu þakkir fyrir alla pakkana og jólakortin sem við höfum fengið...

Jólakveðjur frá Malmö

Guðrún og Valdi

(ATH: NÝTT ALBÚM)


Glæstum skvassferli lokið vegna íþróttameiðsla..

Við áttum pantaðan tíma í skvassi klukkan 12 í dag og þrátt fyrir banvænar harðsperrur hjá mér þá drifum við okkur. Þetta er svo gaman og ég mýktist öll upp og náði góðum sprettum áður en ég skoppaði tindilfætt eftir boltanum á síðustu mínútunum og tognaði á afturendavöðva (rassvöðva)....  Þetta var heldur sárt en þetta var eiginlega meira fyndið en sárt... Svo ég hökti nú um og væli enn meir en ég gerði í gær....  Og þar með er stuttum en glæstum skvassferli lokið í bili...

Þetta er líka dýrt sport en tíminn í dag kostaði 1600 ískr... Sem er rosalega dýrt... Eftir að ég kem heim frá Gvatemala þá ætla ég að tékka á öðrum stöðum í þeirri von að það sé ódýrara þar...

Valdi hjólaði niður í bæ sér til ánægju og yndisauka en veðrið hér er um frostmark og milt og gott en hins vegar hefur ekki sést til sólar í marga daga vegna skýja eða þoku.

Ég náði góðri törn í ritgerðinni í dag en um kvöldið þá gerðum við Valdi jólaísinn sem er þessi hefðbundni með rjóma, sykri, eggjum, suðusúkkulaði og góðri glás af sherry..... Síðan verður gerð marssósa á aðfangadagskvöld.

Kveðjur frá Malmö


Harðsperrur

Shittur maður...

Hvað geta harðsperrur eiginlega verið vondar? Ég er búin að hökta um í allan dag í agalegum vesældómi en ég hef greinilega hreyft við rassvöðvum í gær sem aldrei hafa hreyfst áður... ÞETTA ER SÁRT.... Valdi hlær að mér við hvert tækifæri og finnst þetta agalega fyndið og kallar mig Lipurtá... En ég er samt með einbeittan brotavilja að fara aftur í Veggtennis á morgun þar sem við eigum pantaðann tíma og þetta er síðasti séns fram í febrúar til að spila.  

Í dag voru jólagjafainnkaupin kláruð.  Við keyptum einhverja undarlega útgáfu af hamborgarhrygg sem var beinlaus en sáum svo í fréttunum á Rúv að hægt er að kaupa "íslenskan" hamborgarhrygg með beini einhvers staðar í Köben. Við keyptum gular og grænar baunir og ætlum að hafa sykraðar kartöflur. Síðan voru keyptir jólaostar, jólaglögg, jólanammi og allt tilheyrandi í jólaísinn. Ég keypti líka piparkökur svona tilbúnar og glassúr til að leyfa krökkunum að skreyta ef þau hafa áhuga.. Ok.. ég svindlaði svolítið og nennti ekki að baka...

Restin af deginum fór í uppvask og kvöldið í letilíf... Ég stefni á öflugan dag í ritgerðinni á morgun.

Kveðjur frá Malmö

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband