Enn fleiri dagar í Gvatemala

Sorry engir Islenskir stafir en eg er a Internetstofu i Flores.

Sídustu daga hef ég ekki verid i netsambandi. Ferdin er ordin ansi strembin enda 13. dagurinn í dag sem vid voknum snemma og dagarnir eru langir. Talsverd treyta er farin ad segja til sín.

En sídast spurdist til mín a Hotel Los Cuchumatanes. Vid keyrdum i gegnum hvitlauksraektarhérud sem var flott ad sja. Tad var nu eiginlega hápunktur dagsins tví tessi dagur for bara i keyrslu. Eftir hadegid tá forum vid enn verri fjallvegi en voru um daginn. Ég get svo svarid tad, teir voru hraedilegir. Og auk tess vorum vid fost tarna i brekkunni i 35,6 stiga hita. Shitt. tad var heitt og sveitt. Axel kennari grinadist mikid med ad tessi vegur vaeri bara nokkud seif en bara 20 manns deyja tarna á ári!!!!!!!     Astadan fyrir tvi ad vid vorum stopp var ad tad hafdi verid "landslide".. Kripi tilhugsun. Ég lokadi bara augunum og setti Ipod í eyrun á mér og hlustadi á "Er ég kem heim í Búdardal" og fleiri hallaerislog....  En tetta var víst sídasti fjallvegurinn  í tessari ferd.  Hér eftir er tetta aflídandi nidur á vid.

Naesta hótel var ekki merkilegt en tó i lagi. Sturtan var reyndar kold. Eg for i sturtu um morguninn og hun byrjadi heit og eg makadi mig i sjampoi og sápu og tá brast á Ískold sturta. ÍSKOLD..... Eg tók andkof.. En eg vaknadi. Hluti hopsins hafdi setid ad sumbli fram eftir kvoldi og voktu okkur Hlyn um nottina med song og laeti. Tad eru ekki bara Hvanneyringar sem syngja á leid heim fra barnum...  Um morguninn tá vorum vid i National Park sem er regnskógur. Tad var frabaert, stórkostlegur gródur, allskonar burknar og Tree fern (Trjaburkni) og fleira ahugavert. Hins vegar let tjódarfuglinn ekki sja sig nema uppstoppadur i upplysingamidstodinni. Ég var svolitid búin a tvi eftir tetta labb. David sagdi ad tetta vaeri bara aflidandi en i raun var tetta tvert upp og tvert nidur og ég er enn tognud i laeri eftir annad labb um daginn.  Eftir hadegi var svo haldid á tebugard og okkur var sagt ad vid aettum ad vera tar i 45 min. En tad endadi med 3ja tima tilgangslausu labbi og song hja gaedinum!!! JE dudda mia... Alveg ut i hott ad setja Nordurlandabúa ut i sólina i 6 tima allt i allt.. Vid bara rádum ekki vid tad. En annars var tebúgardurinn sjalfur áhugaverdur. Gaman ad sja innpokkunina (myndir koma seinna).  Tar sem tebúgardurinn tók svona langan tíma tá fengum vid bara stutt stopp í kaffiverksmidjunni, í raun fórum vid bara í búdina og keyptum kaffibaunir. Tar keypti ég rosalega gott súkkuladi sem er med kaffibaunum inni í. Umm.. tad var stórkostlegt. Audvitad keypti ég svo kaffi fyrir Valda tar.  

Hótelid um kvoldid var ljomandi fint og ég og Hlynur fengum aftur ad vera saman. Hins vegar vaknadi ég klukkan eitt um nóttina og var ordin veik. Eg held ég se bara ordin svona rosalega treytt líka ad tad for bara allt i steik hja mer. Uppkost og nidurgangur og har hiti og skjalfti.. Eg helt eg vaeri ad deyja. Hlynur svaf i gegnum oll óhljódin hjá mer inni á badi og missti meira ad segja af Kakkalakkanum... Agaett ad hafa svona herbergisfélaga sem madur bara truflar ekki neitt.  Um morguninn helt ég ad hopurinn yrdi ad skilja mig eftir en einhvern veginn fór eg fram úr og fekk mer Imodium Plus, Alkaseltzer, verkjatoflu og kók og drosladist út i rútu. Gudi se lof fyrir Imodium. Eg turfti varla ad fara a klostid i dag. Nuna er eg enn veik en hressari og á finu hóteli. Í dag keyrdum vid allavega 500 km sem var nokkud erfitt svona lasin. Vid fórum yfir á og Ansine og Lasse ákvádu ad synda yfir í stad tess ad fara med ferjunni. Kúl.. Ég hefdi gert tad ef ég hefdi verid hress..

Nú aetla eg heim á hotel í sturtu tar sem hárid á mér stendur sjálfstaett upp í loftid eftir svona keyrslu med opna bílhurd og glugga...

Ég lofa ad setja inn albúm strax og ég kemst í tradlaust net.

Bestu kvedjur fra Gvatemala


Háfjallaveiki og lofthræðsla

Jæjja fyrst ég lifði þennan dag af þá get ég allt. Við fórum upp til fjalla í dag og ég get varla lýst þessum vegum. Þeir voru HRÆÐILEGIR. Snarbrattar hlíðar og einbreiðir vegir með vörubílum og rútum þvers og kruss.. Púff.. Umferðarmenningin er líka skelfileg hér en í gær taldi ég 26 minningarkrossa/altari við veginn bara mín megin á 2ja tíma leið.

En allavega þá var gærdagurinn ekki merkilegur en við vorum bara að færa okkur milli staða. Hápunktur dagsins var að hlýða á fyrirlestur hjá konu sem stjórnaði hópi kvenna sem ræktuðu  jurtir fyrir jurtasjampó, spennandi verkefni en ég hélt ég yrði ekki eldri þegar Svend-Eric, kennarinn okkar og spænskutúlkurinn, kynnti konuna grafalvarlegur sem Lesbía Del Torres.. Ó my god.. ég rétt náði að bíta í tunguna á mér en þá þurfti hann að nefna hana aftur "Lesbía segir... " og ég átti svo bátt með mig að rifna ekki úr hlátri, sérstaklega þegar ég sá að Svend Eric stóð þarna uppi og eiginlega var að springa sjálfur. Aumingja konan, ég veit ekki hvort hún viti hvað nafnið hennar þýðir... En hún kom vel fyrir og var flott kona.

Við erum núna í þorpinu Hue Hue Temango. Áður en við lögðum af stað upp í fjallahéröðin í dag þá fengum við rosalegar leiðbeiningar um hvernig við ættum að hegða okkur. TD. Alls ekki taka myndir af börnum en japanskur ferðamaður var drepinn fyrir það því fólkið hélt hann ætlaði að stela barninu. Ekki tala um námur eða silfurnámur eða gullnámur, ekki segjast vera jarðfræðingar... Svo var þetta ekki útskýrt nánar..

Í dag fórum við sum sé stórhættulegar leiðir upp í 3500 metra og ég upplifði háfjallaveiki. Vá hvað það er skrýtið. Við vorum öll Íslendingarnir skrýtnir í hausnum og mig svimaði og ég datt einu sinni og ég gat varla gengið 10 metra án þess að anda rosalega hratt.. Þetta var rosalega skrýtið.. En það var frábært að sjá hvernig gróðurinn breyttist eftir því sem ofar dró og efst þá var gróðurinn ekki ósvipaður og á Íslandi.

Á leiðinni heim fórum við smá krók til að sjá eina trjátegund og ég ætla ekki að lýsa vegunum þar.. Jesús.. ég hélt í alvöru að þetta væri mitt síðasta.. Og á leiðinni niður þá sáum við fullt af krossum og skreytingum á stórhættulegum stað fyrir ofan gil og þar var fullt af fólki. Málið var að fyrir stuttu þá fór rúta þarna fram af og 40 dóu. Já þetta var nú ekki til að bæta andlega ástand mitt í þessari ferð..

Þarna á leiðinni í þorpunum sáum við alvöru Maya Indíána, smávaxna í þjóðlegum búningum, það var flott. Þarna er hins vegar mikil fátækt og við lentum í betlandi börnum í fyrsta sinn. Því miður eru engar myndir af Maya fólkinu í búningunum því við þorðum varla að draga upp myndavélina nema að það væri tré eða planta fyrir framan.

Annars erum við á ekki svo merkilegu hóteli þessa stundina og það varð atvik með könguló og rúmið mitt í gær og líka maura og annað rúmið hjá Dýrleifu og Lindu. Arrgg.... En heilsan er enn góð í hópnum. Ein stelpa fékk gubbuna um daginn og Linda var smá slöpp í maga í dag.. En hresstist þegar leið á daginn. Háfjallaveikin fór illa í okkur Hlyn en annars hafa bara verið stinnar og góðar hægðir á heimilinu.. Já þegar maður er í svona "langt í burtu landi" þá er þetta umræðuefnið yfir morgunmatnum.....

Þrjú ný albúm: Skrautjurtabúgarður í Gvatemala, Frábær dagur við vatnið og milliferðadagur. Ég set vonandi inn albúm á morgun fyrir Háfjallaveikina. En það er orðið svo kalt hér í lobbýinu á hótelinu og vopnaði vörðurinn er farinn að horfa talsvert á mig og ég veit ekki af hverju löggan kom hér áðan... Svo ég held ég drífi mig í bólið...  Enn og aftur takk fyrir kommentin við myndirnar...

Bestu kveðjur frá Gvatemala


Ný albúm frá Gvatemala

Ég henti inn í snarhasti tveim albúmum sem heita Meira Antigua og Primavera forest station. Við erum alltaf svo mikið á hraðferð hér að ég náði ekki að setja inn alvöru nöfn á stöðum, fólki og plöntum en ég vil frekar setja þetta inn svona en ekki. Ég er komin langt á eftir með albúmin en vonandi get ég sett inn meira í kvöld. Ástæðan fyrir því að ég gat sett inn núna er að það var einhver seinkun á brottför frá hótelinu og ótrúlegt en satt þá ákvað ég að sitja á barnum og setja inn myndir í stað þess að fara á túristamarkað í morgun.

Bestu kveðjur frá Gvatemala


Nokkrir dagar í Gvatemala

Ég er ansi hrædd um að þessi færsla verði hraðsoðin því það er verið að henda mér út af barnum þar sem nettengingin er..

Síðast fréttist til mín þar sem ég var að fara í Primavera forest station. Það var frekar svona "Röff" gisting í heimahúsi og allt frekar ógeðslegt. En við höfðum það af. Hins vegar var sundlaug úti í garði og það var næs. Við fórum í fína gönguferð og fræddumst um kaffirækt og hvað var gert þarna á búinu en þeir eru með allskonar búskap meðal annars gúmmí framleiðslu sem er snilld að sjá. Gúmmítrén fara fyrst að virka fyrir alvöru þegar þau eru 40 ára svo það þarf þolinmæði við þetta. Það er skorið í trén og kvít kvoðan kemur út og safnast í skál, þetta er gert á hverjum degi. Það var áhugavert að vera þarna þó það tæki svolítið á taugarnar.

Eftir þetta fórum við í lítið þorp við vatnið Antilia (held ég) Þetta er túristaþorp svo við erum á fínu hóteli. Eitthvað hefur þó ruglast með herbergjaskipanina og ég er með Dýrleif og Lindu núna. En allavega á leiðinni frá Primavera forest station þá fórum við á Ornamental búgarð þar sem voru ræktuð skrautblóm. Það var æðislegt að ganga þar um og sjá Jukkurnar (Yukka Elefantus...) og fleiri plöntur vaxa í haugum.. Við sáum líka plöntuna sem Axel prófessor er sérfræðingur í.. hún er rauð og stór.. (vonandi koma myndir seinna). Ég held ég hafi komist í tæri við snák þegar ég steig út fyrir göngustíginn til að taka mynd af blómi og eitthvað skreið í burtu í sinunni.. Shitt.. mér kross brá..

Í dag þá fórum við á bát yfir vatnið í æðislega krúttlegt þorp þar sem konurnar jurtalita bómull til að vefa úr og við fræddumst um það og ég fékk að prófa að vefa.. (myndir koma seinna). Vá þetta var svo spennandi og gaman að sjá. Hildur við þurfum að fara þarna á námskeið seinna en konurnar eru með þriggja daga námskeið. Við þurfum bara að læra spænsku fyrst... Þorpið var æði, mjög svona upphaflegt en samt með slæðingi af túristum. Ég keypti einn borðrenning af konunum og hann var allt of ódýr. Síðan skoðuðum við bæ með lækningajurtum og sápum. Því miður hafði bandarísk ung kona komið til þeirra í einhvern tíma og var búin að poppa upp allt dæmið, hækka verð og gerði þetta svona sölulegra og þar með túristalegra og óáhugaverðara. En samt gaman.  Eftir hádegismat var siglt á annan stað við vatnið til að ganga á vígalegt eldfjall. Eldfjöllin hérna eru öll svona alveg eins og í teiknimyndunum og líta út fyrir að gera spúið eldi hvenær sem er. Gengið var upp í hálfa hlíðina á 3000 metra fjallinu og útsýnið var skoðað. Ég fór reyndar ekki alla leið þar sem ég var mjög eftir mig eftir erfiða göngu á Skógarbúgarðinum. Mig grunaði að við sæjum bara aðeins meira útsýni og fleiri kaffiplöntur og það var víst rétt hjá mér.

Eftir þetta þá var klukkan orðin ansi margt en það var samt komið við á stærsta túristamarkaði í Gvatemala annars staðar við vatnið. En viti menn hann var að loka.. Alltaf upplifi ég þessa martröð að allt er að loka.. LOKA... Panikk.. Nei nei.. mér var alveg sama.. Ég keypti einhverja vefnaðarvöru sem var fín en ég hafði verið að skoða með Axel kennara svona leirdót sem áttu að vera fornmunir og ég náttúrulega trúði því ekki. Konurnar vildu fá mikinn pening fyrir svo ég gekk í burtu. En síðar kemur Axel til mín og segir að þetta hafi líklega verið í alvöru ALVÖRU fornmunir frá Maya tímanum. Þá vaknaði nú áhugi minn en hann í raun bannaði mér að kaupa þetta. Ég sagði EN en en en en það kemur bara annar túristi og kaupir þetta. NEi þetta á heima á safni hér í landinu sagði hann og auðvitað er ég sammála því.. En ég freistaðist bara svo og konan sem var að selja þetta elti mig í bátinn og án þess að Axel sæi tókst mér með aðstoð Lindu að prútta þetta úr 1200 í 300 Ketzales og þessu var hent um borð í bátinn og við sigldum í burtu með det samme.. Held að kennarinn hafi ekki tekið eftir þessu. En hins vegar sat ég uppi með alveg svakalegan móral.. En ég er 99% viss um að þetta sé ekki alvöru dót.. Ég þekki þetta svindl trikk frá Afríku... En allavega þá fékk ég líka móral yfir að hafa svikið kennarann og keypt þetta.. En viti menn... Haldiði að Axel hafi ekki komið til mín í kvöld frekar kleinulegur og viðurkennt að hann hafi keypt svona fornmun.. þrátt fyrir að hafa eiginlega bannað mér að kaupa þetta... Djísus.. en ég var ósköp fegin að ég gat þá játað fyrir honum brot mitt. Og við ákváðum að þetta yrði bara okkar leyndarmál.. Humm sem er núna komið á netið.. Hehe..

Annars tók við nýr forseti í dag hér í Gvatemala og alls staðar hljómaði þjóðsöngurinn og einhver forsetaútsending er blöstuð hér á barnum.

Ferðalagið er svo strembið og lítið um almennilega nettengingu að ég þori ekki að lofa myndum á næstunni.. En vonandi. Ég hins vegar kláraði að setja inn myndir  í albúmið frá Antigua - Krúttlegasti bær í heimi... og kannski get ég sett inn nokkrar aðrar myndir í annað albúm ef mér verður ekki hent út.. Barþjónninn er búinn að slökkva alls staðar..

Allavega takk fyrir kommentin og öll kommentin við Myndirnar.. Valdi minn ... Vonandi næ ég þér á MSN bráðum en núna er td. klukkan hjá þér held ég 4.33...

Bestu kveðjur frá Gvatemala


Enn í góðum gír í Gvatemala

Vildi bara láta vita að ég er á lífi hér í Gvatemala. Ég hef bara ekki verið í netsambandi í nokkra daga. Ég hef heldur ekki tíma til að skrifa meira núna en mun vonandi gera það í kvöld. Við erum á hóteli með brilljant netsambandi en Barinn lokar klukkan 22 á kvöldin og þar er eina sambandið.. Þvílíkt spælandi.. Ég var í miðju myndaalbúmi í gær þegar ég varð að hætta..

Í dag er planið að fara út á bát á vatni hér og hitta konur sem nota jurtir til að lita garn.

Takk fyrir öll kommentin bæði við myndirnar og færslurnar.

Bestu kveðjur frá Gvatemala (æi ég veit ekki í hvaða borg við erum núna, upplýsingaflæðið er tregt frá kennurunum)


Veðreiðar og fleira

Jæja,  Það er svo sem ekki mikið að frétta af mér hér í Malmö. 

Á föstudagskvöld fór ég í mat til Rakelar og var það ljómandi skemmtilegt og alltaf gott að setjast niður og spjalla öðru hvoru, þó að við Rakel hittumst á hverjum degi í skólanum þá er aldrei næði til að spjalla almennilega þannig að svona stundir eru nauðsynlegar. 

Í gær kom Vaggi en hann er hjá systur sinni í Köben þessa daganna.  Við skelltum okkur á veðreiðarnar í Jägersro. það var ekki nærri eins margt um manninn þar núna eins og þegar við fórum í haust, en menn öskruðu og æptu jafn mikið fyrir því enda hægt að græða vel ef maður er heppinn. Eftir að veðreiðunum lauk fylgdi ég Vagga niður á centralstation, og var lagður af stað heim þegar að hann hringdi og spurði hvort hann mætti gista systir hans var farinn að vinna og hann nennti ekki yfir.  það varð því úr að hann gisti.  Við röltum á bar og fengum okkur einn öl, fengum okkur síðan pizzur og röltum svo heim í góða veðrinu, 6°C.  þegar heim kom kveiktum við á sjónvarpinu en við vorum frekar lúnir eftir daginn og sofnuðum yfir því.  Við bjuggum svo Um Vagga í stofunni og vorum farnir að sofa um miðnætti.  Vaggi fór síðan um hádegið í dag.  eftir það hringdi ég í Krakkana og fór svo bara að haugast, tók aðeins til og dúllaði mér eitthvað og fór svo að surfa á netinu.

Á morgun byrja ég svo í nýjum kúrs í skólanum en það er kúrs sem heitir policy og er um stefnu og lög hinna ýmsu landa í skógræktar málum.  það verður fróðlegt að sjá hvernig hvernig aðrar þjóðir stjórna sínum skógræktarmálum.

það er ekki meira frá mér í bili

Bestu kveðjur

 Valdi


Antigua

Við erum búin að vera í Antigua sem er gamall bær, fyrrum höfuðborg Gvatemala, núna í tvo daga. Borgin er svo sæt og krúttleg. Allar göturnar beinar og auðvelt að rata. Hér eru yndislega krúttlegar götur og krúttlegir markaðir. Í gærmorgun fórum við á grænmetismarkaðinn hér sem var algjört æði, svona ekta local markaður eins og ég verslaði á í Gambíu. Ótrúlegt hvað það er margt eins hér enda eru bæði löndin við miðbaug. Ég hef ekkert fengið tíma samt til að rölta meira um því miður en í gær fórum við í langan bíltúr út á ströndina og sigldum þar um mangrove skóga. Það var rosalega áhugavert. Þar voru hvítir hegrar á flugi og allskonar skrýtnir fuglar og dýr. Td. Fiskar sem voru alltaf að kíkja upp úr vatninu og syntu um með augun upp úr.

Ökuferðin var svolítið svakaleg. Þetta eru fjallvegir og mikið um beygjur og bílstjórinn tekur fram úr alveg hægri og vinstri. Við stoppuðum svo á sykurplantekru sem var gaman að sjá og líka á tóbaksplantekru en það var gaman fyrir mig að sjá Nicotiana tabacum í ræktun þar sem ég var að leggja lokahönd á ritgerð um Nicotiana.  Þetta er svo fljótvaxta jurt að það tekur 3 mánuði að fá uppskeru hjá þeim.

Þegar á ströndina kom þá fóru sumir í sjóinn en ég var að mynda, bæði fyrir mig og á cameruna hans Hlyns.

Þegar heim kom þá vorum við alveg úrvinda eftir langan dag og fórum bara á hótel resturantinn og fengum okkur mat og margarítur.. Í dag ætlum við að skoða kaffiplantekru og hlýða á fyrirlestur um grasnytjar í Gvatemala. Síðan förum við í skógarrannsóknarstöð og verðum þar í tvo daga og ég efast um að það sé netasamband þar en aðstaðan er víst svolítið hrá og sumir þurfa að sofa á gólfinu. PANT EKKI ÉG.....

Ég verð að setja inn myndir seinna því netsambandið er svo slow hérna á hótelinu

Bestu kveðjur frá Gvatemala


Gráminn í Malmö

Það er nú ekkert spennandi að gerast í Malmö þessa daganna, bara skóli og annað eins og það á að vera.  Núna er ég til dæmis að undirbúa mig undir fyrirlestur/vörn á hópverkefni sem við vorum að vinna fyrir jól þ.e.a.s 100 ára landnýtingaráætlun fyrir Östad sem er risa land svæði sem Östad stofnunin á. Þetta eru um 4000 ha lands sem er nánast allt skógi vaxið.  þetta verður bara þægileg morgun stund með kennurunum vona ég en það kemur alt í ljós í fyrramálið.  Fyrir jól sótti ég um stöðu skógarvarðar á suðurlandi, ég fékk fréttir af því í dag að ég fengi ekki þá stöðu. þannig fór um sjóferð þá, en það koma önnur tækifæri síðar ég hef allavega ekki stórar áhyggjur af því að verða atvinnulaus í framtíðinni.

Annars ætla ég nú aðeins að fárast yfir veðrinu hér í Suður-Svíþjóð.  Eftir að vetur gekk í garð einhverntíman í Nóvember hefur varla sést til sólar nema dag og dag.  það er nánast búið að vera sama veðrið alla dag líka þ.e.a.s hægviðri skýjað og hiti 3-5 °C eða um það bil.  allt er grátt og leiðinlegt í svona tíðarfari, ekki skil ég í öðru en að stórhluti suður Svía leggist í skammdegisþunglindi á  þessum árstíma þetta er alveg hundleiðinlegt að vera alltaf í þessum gráma og tilbreytingarleysi í veðrinu. Það  kom reyndar snjór 5.jan en hann var farinn aftur um hádegi 6.jan. Þannig að ég bíð eiginlega ennþá eftir vetrinum hann kemur vonandi en annars kemur bara vor og sumar eftir þetta haust.  Núna er tildæmis 4°C skýjað og skúrir af og til, pínu meiri vindur en vanalega.  Þetta er náttúrulega hundleiðinlegt og hægt að bjóða fólki upp á svona veður dag eftir dag.Crying

Jæja best að hætta þessu röfli

Grámakveðjur frá Malmö

Valdi


Hiti og sviti

MYNDIRNAR KOMNAR INN við þessa færslu. 

Í morgun þá fórum við á Local markaðinn hér í Gvatemala city. Þetta var bæði túristamarkaður og grænmetismarkaður fyrir heimamenn. Markaðurinn var mjög snyrtilegur í niðurgröfnu verslunarhúsi í miðborginni. Þar var mikið um textílvörur, leðurvörur og allskonar litskrúðugar töskur og dót. Ég er nú ekkert að missa mig alveg á þessum markaði en ég mun fara aftur þegar við komum til baka og kaupa meira en þarna er hægt að kaupa fallega dúka og einhverjar grímur.

Þarna var líka local grænmetismarkaður sem var áhugaverður með ýmsum tegundum af ávöxtum. Við gerðum þau agalegu mistök að fara á salernið þarna þar sem ein stelpa í hópnum sagði að klósetið væri "mjög fínt"... Við hvað hún var að miða veit enginn því þetta var fullkomlega ógeðslegt en auðvitað bjóst maður svo sem ekki við öðru og við þurftum að kaupa fimm blöð af kósetpappír á mann áður en við fórum inn...

Eftir markaðinn tók við hangs og trjáskoðun á umferðareyjum.. Fyndin þessi umferðareyjublómaskoðun eða trjáskoðun.. Hávaðinn er svo mikill að maður heyrir ekki neitt og svo var orðið frekar heitt, sveitt og þreytt þarna eftir hádegi.  Eftir það var farið í danska sendiráðið til að hlýða á fyrirlestur um stjórnarástandið í Gvatemala en það var áhugaverður fyrirlestur og þarna var vel tekið á móti okkur. Niðurstaðan er sú að það er mjög stjórnlaust í Gvatemala og um 6000 manns eru myrtir á ári bara svona út í bláinn... Þetta er með hættulegri borgum þótt víðar væri leitað.

Í sendiráðinu fengum við hefðbundinn Gvatemalískan mat sem var innbakað fuglakjöt.. Okkur fannst það nú heldur dúbíus matur en létum okkur hafa það.. Og í desert var steiktur banani sem var svo húðaður með sykri.. Þetta leit hins vegar út fyrir að vera hundaskítur sem hafði verið rullað upp úr sykri.. Ekki geðslegt að sjá en var hins vegar mjög bragðgóður.

Eftir ferð í Mollið sem er í kjallara hótelsins til að kaupa úr þar sem við erum búnar að vera í algerri tímaleysu hér þá borðuðum við á hótelinu með Allan og svo komu sænsku stelpurnar tvær. Ég var eitthvað þreytt svo ég tók hvert hláturkastið á fætur öðru og hló og hló og hló.. þannig að tárin láku niður kinnarnar á mér.. Ég man síðast eftir svona hláturkasti hjá mér einmitt á hótelveitingastað í Kenya fyrir ansi mörgum árum... Það er eitthvað í loftinu í þessum heitu löndum.. En allavega það sem kom af stað síðasta hláturkastinu var að Allan spurði hvaða súpa væri og ég sagði aspas.. Og hann virtist ekki skilja aspas svo ég sagði bara aspas aftur með nokkrum tilbrigðum enda kunni ég ekki annað orð yfir það.. En þá spyr Allan " Does it swim?"  Ég hélt ég yrði ekki eldri.. Hann sum sé vissi auðvitað ekki að ég var að tala um grænmeti.. Hélt þetta væri kannski kræklingur .......

Þrátt fyrir svolítið stjórnleysi í skipulagningunni á ferðinni þá er þetta óskaplega gaman og mikið ævintýr að sjá borgina og skoða plönturnar hér..

Bestu kveðjur frá Gvatemala city...


Gvatemala City

Jæjja þá er fyrsti dagurinn í ferðinni að kvöldi kominn. Við fengum að sofa út svo langt sem það náði þegar maður er alveg ruglaður í tímabeltum en við vöknuðum um ellefu og röltum okkur niður í Mollið til að fá okkur að borða og skipta peningum. Mollið er mjög bandarískt og á mörgum hæðum í kjallaranum og þegar kom að hádegisverði þá mátti velja um Mc Donalds, Pizza ut, Taco Bell og fleira AMERÍSKT... 

Svo klukkan eitt þá vorum við mætt í lobbýið og þá seinkaði Sven Erik og Axel og þá biðum við klukkan tvö og svo seinkaði þeim aftur og þá var það þrjú.. Ég þoli ekki svona vesen.. Fyrsti dagurinn í nýju  landi og allir spenntir að skoða sig um og við sitjum föst í hótel lobbýinu.. En allavega loksins komu þeir og við lögðum af stað í blómaskoðun út á umferðareyjar.. Ó já.. en það fyndna er að ég sá fullt af spennandi tegundum og þetta var mjög fróðlegt.. Svo fórum við í það sem við héldum að væri Botanical Gardens en var svo bara plöntusala og líka mjög fróðleg þar sem skiltin voru mjög góð með allskonar upplýsingum ásamt verði og ég lærði líka mikið þar.

Síðan fórum við í súpermarket og versluðum vatn og fleiri nauðsynjar en þetta er svo amerískt þjóðfélag að þarna fékkst alkaseltzer og tylenol og allt svona amerískt. Ég hafði virkilega gaman af því að fara í Gvatemalískt Hagkaup en sumt var skrýtið og sumt ekki...

Á leiðinni heim þá tók ég eftir almenningssamgöngunum sem eru rútur sem eru líklega einkareknar og mjög skrautlegar en menn verða víst hér að keppa í skrautleika og þægindum því það er bara keyrt um eins og í Gambíu forðum daga og öskrað nafnið á borginni eða staðnum sem verið er að fara til og smalað saman fólki..

Síðan fórum við upp á hótel og flestir í hópnum fóru á einhvern veitingastað í nágrenninu en ég og Dýrleif og Linda fórum á veitingastað á hótelinu því við vorum þreyttar og vildum ekki fara langt í burtu...

Annarst leist mér vel á Gvatemala það sem ég sá og loftslagið er ljúft..

Bestu kveðjur frá Gvatemala city


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband