3.2.2008 | 20:50
Gvatemalískar hryðjuverkaflær
Síðustu dagar hafa nær alfarið farið í að yfirfara vistfræðiverkefni nemenda að heiman. En þetta er ljómandi gaman.
Valdi var í prófi á föstudaginn og gekk la... la... en hagfræðikúrsinn er að drepa hann...
Annars hefur helgin farið í rólegheit. Í gærkvöldi komu Anna María, Rakel og Guttarnir í mat og Valdi gerði snilldargóðan kjúklingarétt sem við fundum á netinu. Þetta var ljúf kvöldstund og alltaf gaman að fá gesti þar sem Íslendingarnir eru fáir hér í Malmö, allavega fáir sem við þekkjum, en þarna held ég að Íslendingavinahópurinn sé upp talinn.... Það verður næs þegar Lilja og Vaggi snúa aftur í mars.
Í vikunni fórum við Valdi á netið til að skoða kamínur en við fengum þá flugu í höfuðið að þær væru kannski ódýrari hérna úti en aðallega kannski flottari en mér finnst þær allar ljótar sem ég hef séð á netinu. Auk þess kosta þær um 200 þúsund krónur... Við höfðum keyrt fram hjá kamínubúð hér í næstu götu og ákváðum í dag að labba þangað og gægjast á glugga. Og viti menn þar var ein lítil og sæt og bara alls ekki of ljót fyrir 27.000 íslenskar... Við þurfum að kanna þetta betur. Við fórum sum sé í fínan göngutúr í Kirseberggarðinum, fórum þar hring eftir hring en ég er mjög hrifin af þessum garði.
Í gærkvöldi varð ég vör við að eitthvað væri að éta sig upp handlegginn á mér... Ég held ég hafi komið með allavega eina fló með mér frá Gvatemala.. Ég hélt ég hefði náð að losa mig við hana af hægrihandlegg en þá held ég áð hún sé byrjuð á þeim vinstri en þar náði hún þremur góðum bitum.. Valdi heldur að hann hafi kannski fengið eitt bit... En vonandi ekki.. Ég er búin að setja alla textílvöruna út á svalir og svo þarf ég að taka hana inn í smáskömmtum og setja í frystinn... Vonandi bara fer ekki að rigna...
Á morgun byrja ég í tölfræðikúrs við KU. Ég þarf að fara á nýjan stað og allt nýtt... Ég stressast alltaf upp við svona.. Auk þess sem tölfræði er bara ekki min sterka hlið.. En ljósi punkturinn er að tímarnir á mánudögum byrja ekki fyrr en klukkan 10.00 sem er dásamlegt.. Ég þarf ekki að taka lestina fyrr en 8.40 sem er lúxus....
Valdi byrjar svo annað kvöld á sænskunámskeiði hér niðri í Malmö. Hann mætir tvö kvöld í viku í átta vikur.. Hrein snilld...
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt 5.2.2008 kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2008 | 22:20
Hversdagsleiki í Malmö
Ekki svaf ég nú vel fyrstu nóttina heima.. spratt á fætur snemma og var alveg súper spennt að fara að byrja að huga að vistfræðiheimaverkefnum nemenda sem höfðu setið á hakanum ansi lengi meðan ég var úti. Valdi fór í skólann og ég settist við skrifborðið.
Seina um daginn fór ég niður í bæ að borga húsaleiguna og svo um kvöldið komu Rakel og guttarnir í mat. Mikið var það nú næs og mikið spjallað.
Hins vegar virtist ég hafa slakað á um kvöldið og því steinsofnaði ég frekar snemma og rumskaði varla fyrr en um hádegi daginn eftir og gott betur en hádegi reyndar... Rumskaði aðeins um nóttina og vissi ekki á hvaða "hóteli" ég var... Ummm.. nú er ég þokkalega úthvíld og loksins komin eitthvað áleiðis í heimaverkefnum vistfræðinemenda en mér þykir óskaplega skemmtilegt að stússast í því.
Valdi er í mjög strembnum kúrs núna sem fjallar mikið um hagfræði og stjórnmál. Próf eru reglulega í kúrsinum sem eiga að heita létt skyndipróf en eru nær því að vera stór lokapróf.. eitt er á morgun..
Annars er bara rólegheit hér og gott að vera komin heim.
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2008 | 23:29
Komin heim í "heiðardalinn"
Jæjja ferðalagið gekk vel þó það hafi verið langt.
Við lögðum af stað frá Tikal Futura með bílstjóra og vopnuðum verði kl. 04:30 á mánudagsmorgni. Allar flugferðir gengu vel og við fórum bara beint á milli flugvéla. Reyndar var smá óvissa með tíma á Newark því við bara hringisóluðum lengi fyrir utan New York en svo smullum við inn. Lengsta flugið var nærri 8 timar frá Newark (New York) til Kaupmannahafnar og ég var alveg í þrengslum en fann svo lausa heila röð í Excit röð.. Ég yfitók hana alveg og svaf þversum og mikið leið mér vel.
Valdi kom og sótti mig á Kastrup þrátt fyriri flensu og ég fór heim og reyndi að halda mér vakandi til að laga Jett lakkið. Það var þvottadagur og ég þreif íbúðina hátt og lágt. Planið var að elda Lasagnja um kvöldi en ég eiginlega krassaði í Súpermarkaðinum af þreytu og við fórum á McDonalds og Lasagnjað bíður til morguns en þá koma Rakel og guttarnir í mat.
Þessa stundina er ég rosalega ánægð að vera komin heim eftir langt og strangt ævintýri en nú ligg ég í sófanum mínum með Valda og með rauðvínstár og mér líður óskaplega vel.
Ég var að setja inn tvö síðustu albúmin úr ferðinni: Mögnuð baðferð í þjóðgarði og Á leið til baka til Gvatemala City
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt 30.1.2008 kl. 07:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.1.2008 | 13:54
Íslandsferð
Sælt veri fólkið.
Eins og fram kom í færslunni hennar Guðrúnar þá fór ég til Íslands um helgina.
Þessi Íslandsferð kom nú ekki til af góðu ég fór til að vera við jarðaförina hennar Siggu vinkonu minnar og eiginkonu eins besta vinar míns hans Jónasar, en hún lést þann 14. janúar eftir baráttu við krabbamein. Útförin fór fram föstudaginn 25.Janúar frá Selfoss kirkju afskaplega falleg og tilfinningaþrungin athöft. Þarna kvöddum við mikla kjarna konu sem að verður sárt saknað af okkur sem að þekktum hana.
Veðrið lék nú ekki við mig í þessari ferð en við þurftum tvær atrennur til að lenda á fimmtudagskvöldið vegna þess að það var einhver sópur fastur á flugbrautinni en þegar við vorum lent fór ég og náði í jarisinn sem ég hafði tekið á bílaleigu og böðlaðist á honum til Reykjavíkur í brjáluðum skafbil og þæfingi. morguninn eftir var enn verra veður og allt ófært ekkert flug og það leit ekki vel út með að komast austur í jarðaförina, bæði þrengslin og heiðin lokuð. Jarðaförinni var frestað til 3 og í millitíðinni voru þrengslin opnuð, ég fékk far yfir með Eddu Björgvins, Önnu Margréti og Steinu á jeppling sem Edda var með frá dóttur sinni. Ferðin gekk vel og komum við á sekúndunni þegar athöfnin var að byrja. Á laugardeginum var skaplegt veður en spáin fyrir kvöldið slæm. Ég brunaði austur fyrir fjall náði í börnin og fór svo að heimsækja Höllu systur í sveitina þar fengum við pönnsur og kjötsúpu. þegar ég var svo búinn að skila börnunum þá ætlaði ég að kíkja á Jónas en hann var þá í bænum. Ég skellti mér í kaffi til Elvars og Helmu í staðinn. dreif mig svo yfir heiðina til baka því að það var að skella á þetta skíta veður. veðrið hélt svo bara áfram að versna og vakti mig nokkrum sinnum um nóttina þegar það buldi á rúðunni í gamla herberginu mínu. Morguninn eftir var enn bálhvasst og ég átti eftir að fara á Jaris út á Keflavíkur flugvöll til að taka flug heim kl 17. það var mjög hvasst á reykjanes brautinni og mér fannst vindurinn bara aukast eftir því sem nær dró flugstöðinni. þegar ég svo skilaði bílnum sögðu konurnar í bílaleigunni að það hefði fokið 40 feta gámur þarna á svæðinu í hádeginu enda vindur farið í um 6o metra á sekúndu í kviðum. Þegar ég hafði lokið við að versla nesti í Íslensku búðinni Hangiket, hákarl og brennivín, þá settist ég við barinn og fékk mér einn víking haldið þið að Tommy Lee hafi ekki allt í einu staðið við hliðina á mér að kaupa sér bjór og samlokur á barnum. Maður er bara orðin frægur .
En heim komst ég svo um klukkan 23:00 í gærkvöldi fullur af kvefi en ánægður með þessa Vetrar ferð ég fékk þó vetur.
þetta er orðið nóg í bili ég á að vera lesa einhverja hagfræði núna en er ekki alveg að nenna því.
Malmö kveðjur
Valdi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2008 | 05:33
Á leið heim í fyrramálið
Í dag erum við bara búnar að hanga á þessu lúxushóteli og undirbúa brottför sem er eldsnemma í fyrramálið. Ég þurfti að kaupa mér nýja ferðatösku því ég hef keypt eitthvað "aðeins" af dóti og ég þurfti líka að versla mér bakpoka þar sem það kom STÓRT gat á minn. En svona hlutir kosta slikk hér í Mollinu fyrir neðan hótelið svo þetta var nú ekki stórmál.
Við höfum ekki farið út fyrir hótelið í dag enda er búið að hræða okkur svo gríðarlega með hvað Gvatemala City er hættuleg að við bara höngum inni. Ég var bara í tölvustússi og niðurpökkun.
Ég setti inn tvö ný albúm sem heita Maya hofin í Tikal og Bátsferð. Ég lofa svo að síðustu albúmin fara inn á þriðjudaginn þegar ég kem heim.
Við tökum hótelskutluna kl. 4:30 í fyrramálið og fyrsta stopp er Huston í Texas og svo Newark fyrir utan New York en lengsta flugið er Newark-Köben og þá ætla ég að reyna að sofa. Í Kaupmannahöfn lendum við svo 7:30 á þriðjudagsmorgun... Púff.. það er langt ferðalag fyrir höndum.
Ég talaði mikið við Valda á msn í kvöld en hann var að koma frá Íslandi en hann þurfti að fara í jarðarför. Ég verð bara að segja það að tilhlökkunin er orðin MIKIL að koma til Svíþjóðar og knúsa kallinn minn... En ég er búin að sakna hans mikið í þessar þrjár vikur..
Jæjja best að fara að sofa þar sem vekjaraklukkan er stillt á 3:55.
Bestu kveðjur frá Gvatemala City
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 05:22
Lúxus og letilíf
Æi það er ágætt að þessi ferð er loksins búin. Ég er alveg úrvinda og næ bara ekki að hvílast. Í morgun var ég vöknuð um fjögurleytið og farin að spila kapal á tölvuna. Kennararnir voru alveg í stuði í morgun og vildu enn fara að greina plöntur og eitthvað rugl. Ég var sko ekki á því og kom mér fimlega undan því og fór með Helle á handverksmarkaðinn hér í miðbænum en ég var búin að ákveða að kaupa fallega dúka sem þar fengust. Ég keypti ýmislegt fleira smálegt meðal annars fallega leðurtösku. Þegar við komum aftur upp á hótel þá mættum við kennurunum með ferðatöskurnar sínar á leið út á völl. Ég hafði þurft að lána þeim slatta pening þar sem vísakortin þeirra voru ekki að virka en ég var með varasjóð í dollurum sem ég gat lánað þeim. Ég sagði að ef ég fengi þetta ekki borgað þá vildi ég allavega fá fyrstu einkunn fyrir fagið... hehe...
Eftir handverksmarkaðinn þá var farið í Mollið að borða en það er hér á hæðinni fyrir neðan og svo var haldið í súpermarketinn til að kaupa romm. En Martin kennari sagði að það væri skylda að kaupa ekta Gvatemalískt romm sem er 23ja ára gamalt.
Síðan tók við mikil tölvuvinna og innsetning á myndum, sem fór fram á barnum með einni margarítu, en ég er byrjuð núna að sinna vistfræðiheimaverkefnunum en ég sé um heimaverkefnin í vistfræðinni við Lbhí eins og ég gerði í fyrra en þetta er talsverð handavinna ef vel á að vera og nemendurnir eru ansi margir í ár eða um 80 talsins en mér finnst þetta óskaplega gaman. Ég var í fjórar klst bara að nálgast verkefnin og lesa pósta frá nemendum og skipuleggja en ég er ekki byrjuð á sjálfri yfirferðinni.. Þetta tekur slatta tíma. Ég talaði líka mikið við Valda á msn en ég er farin að hlakka mikið til að hitta kallinn minn aftur heima í Svíþjóð á þriðjudaginn.
Við höfum eiginlega ákveðið að vera ekkert að fara út af hótelinu. Þetta er fínt lúxushótel og hér er allt sem við þurfum, gymm, nudd, sundlaug, veitiingastaður, bar og Mollið hér í kjallaranum. Umhverfið hér fyrir utan er bara hættulegt og óspennandi svo hér erum við strandaglópar fram á mánudag á þessu lúxushóteli. Við hefðum farið í dag heim ef kennarinn hefði ekki alltaf verið með vitlausa dagsetningu á planinu.. Spæló.... Svo við pöntuðum miða heim seinna en nauðsynlegt var og það kostar okkur auka tvær nætur á hóteli.
Eftiri pizzu á veitingastaðnum og rauðvínsglas hjá Dýrleifu og Lindu þá skreið ég í bólið alveg úrvinda. Vonandi næ ég almennilegum svefni í nótt.
Ég setti inn tvö ný albúm: Orkideur og Yaxjá maya hofin.
Bestu kveðjur frá Gvatemala
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2008 | 07:06
Gvatemala City
Jæjja þá erum við komin aftur til Gvatemala City. Þetta er mest óspennandi borg í heimin en ég ætla líka ekki út af hótelinu þar til á mánudag þegar við förum í flug heim, nema reyndar smá á túristamarkaðinn í fyrramálið til að klára smá innkaup.
Síðustu dagar hafa verið ágætir á hallærislegu túristahóteli (Green Bay) með fría drykki og bíllaus. Ég fór snemma að sofa bæði kvöldin enda úrvinda eftir langt og strangt ferðalag. Hótelið var frekar væmið og ég náði heilum klukkutíma við sundlaugina og þá var ég búin að fá nóg. Þarna var hópur af Bandaríkjamönnum með tilheyrandi hávaða og læti. Frekar pirrandi. Í gær þá fórum við í nærliggjandi þjóðgarð og planið var að labba upp einhverjar þverhníptar brekkur í sex klukkutíma. Ég var nú ekki alveg að falla fyrir því enda máttum við verða eftir hjá fallegum hyl og fossi ef við nenntum ekki í gönguna. Ég notaði skynsemina og sleppti göngunni og synti í hylnum í staðin með Dýrleifu og Linda sat á bakkanum. Þetta var yndislegt og svo gengum við heim á hótel.
Í dag föstudag var svo síðasti dagur ferðarinnar formlega. Við lögðum af stað snemma í morgun á leigðri rútu en upphafleg ætluðu kennararnir að leigja rútu fyrir hádegið og taka svo public transport með allan farangurinn til Gvatemala City og svo Taxa á hótelið.. Glætan.. Ég þvertók fyrir svoleiðis rugl svo við fengum rútu alla leið. Enda var heimleiðin mjög skemmtileg og mikið að sjá.
Upp úr hádegi þá keyrðum við Hlyn og helminginn af hópnum að landamærum Hondúras og slepptum þeim út þar en þau ætla að vera nokkra daga þar fyrir heimferð. Hinn hluti hópsins hélt áfram í átt að Gvatemala City með mörgum stoppum en við sáum bananaverksmiðju á leiðinni en það var mjög áhugavert. Við sáum líka mangóakur, Papaya akur, vatnsmelónuakur og ýmislegt áhugavert. Við komum hins vegar seint á Hótelið og ég og Linda nentum ekki út til að borða og ákváðum að fá okkur bara pizzu á hótelinu. Áður en það gerðist þá ákváðum við að fá okkur afgang af rauðvíni sem við áttum en til þess að það gæti gerst þá þurftum við svissneska vasahnífinn minn með tappatogaranum svo ég tók lyftuna upp á 7. hæð til að ná í hann. Á leiðinni út úr herberginu fékk ég þá snilldar hugmynd að hlaupa bara stigana enda Dýrleif og Linda á 6. hæð beint fyrir neðan mig. Ég skelli mér út á stigaganginn sem var steyptur og hráslagalegur og viti menn ég lokast þar inni. Ég kemst ekki aftur inn á hótelganginn. Ég banka og banka og enginn heyrði. Ég fer þá niður á 6. hæð og banka þar því hurðinn hennar Lindu var þar við hliðna.. Og ekkert gerist.. Ég enda með að hlaupa niður á jarðhæð og taka svo lyftuna upp.. Þá hafði Linda heyrt bankið en ekkert skilið hvað var í gangi.. Þetta var bráðfyndið panikk að hlaupa þarna um eins og geðsjúklingur með tappatogarann... Ég hélt ég yrði ekki eldri. En pizzurnar voru góðar og netsambandið sleppur skulum við segja. Hér verðum við fram á mánudag og ég ætla að reyna að nota tímann til að vinna í tölvunni ef kennarinn gefur mér frið en hann er endalaust að tuða um eitthvað sem þarf að gera.. NÁMSKEIÐIÐ ER BÚIÐ....
Eitt myndaalbúm fór inn í dag en það er albúmið um Tebúskapinn. Fleiri koma svo á morgun og vonandi næ ég að setja þetta allt inn áður en ég fer heim á mánudaginn.
Bestu kveðjur frá Gvatemala City
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2008 | 20:36
Bátsferd og frí
Í gaer byrjadi dagurinn á fyrirlestri um eitthvad sem ég bara nádi ekki. Ég var svo treytt og áhugalaus. Svo var keyrt í fjórar klst. og okkur hent upp í báta og tá tók vid 6 klst bátsferd um fljót og fenjaskóga med hamraveggjum toktum af gródri og eyjum og allt saman. Vid sáum pelikana og hegra og fullt af fuglum. Tetta var alveg stórkostlegt. Vid stoppudum líka í Livingstone sem er baer sem er vid fljótid og er odruvísi en onnur torp í Gvatemala tví tar eru eiginlega bara svertingjar sem voru fluttir inn sem traelar. Madur steig á land og tá glumdi vid Reggie tónlist og svo voru svertingjar um allt. Ég vissi ekki hvort ég var stodd í karabískahafinu eda í Afríku en ekki minnti tetta á Gvatemala fyrir fimm aura... Stórskrýtid. Svo var siglt út á ballarhaf í myrkri og á einhvern undarlegan hátt fundum vid hótelid okkar Green Bay í myrkrinu.
Hótelid sem vid erum núna á er ágaett en tad er ekkert netsamband. Af einhverjum undarlegurm ástadum ta eru fríir drykkir í gangi. Hverjum datt í hug ad gera hóteldíl fyrir námsmenn med fría drykki...... Tad er nátturulega stórtap fyrir hótelid... Ég his vegar fór ad sofa snemma í gaer og í dag er frídagur sem er naes. Ég er á leid upp á hótel ad fá mér margarítu og liggja í sólinni eins og skata en ég er svo úrvinda eftir milljón daga á ferdalagi ad ég er ad deyja.... Svo er búid ad taka rútuna af okkur svo vid erum rútulaus fram ad brottfor á fostudaginn, Kúl.... svo vid erum fost hér med fría drykki hehe.... En allavega ta er ég buin ad fá nóg og hlakka bara til ad komast í netsamband á hótelid í Gvatemala City á fostudaginn...
Bestu kvedjur fra sundlaugarbakkanum og strandlífinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 03:36
Enn fleiri og stærri Maya hof
Auðvitað átti færslan í gær að heita Maya hofin í Yaxjá en ekki í Tikal. Yaxjá maya hofin eru minni og ekki jafn túristaleg og þau sem við sáum í dag. En í dag fórum við í Tikal National Park og sáum stærstu og flottustu hofin.
Það rigndi talsvert þegar við löbbuðum af stað að skoða hofin og Axel kennari ruglaði fram og til baka með dagskrána en loksins var labbað af stað og Axel ákvað að hafa klst plöntuskoðun fyrst. Glætan... Komin alla þessa leið til að sjá þessi stórkostlegu hof og Axel vildi skoða plöntur. Það er staður og stund fyrir allt saman og þetta var ekki móment til að skoða plöntur. Einhvern veginn tókst mér og fleirum að gufa upp úr hópnum og ég held að plöntuskoðun hafi bara farið fram fyrstu 10 mínúturnar... Hofin voru stórkostleg, risu upp úr skóginum á dulúðlegan hátt eins og hin bara enn stærri. Þetta svæði er talsvert meira túristalegt en þarna eru veitingastaðir og túristabúðir sem voru mjög dýrar. Ég labbaði meira að segja upp á eitt hofið þrátt fyrir að vera plöguð af lofthræðslu. Já þetta var alveg stórkostleg upplifun að sjá þetta. (flottar myndir koma seinna). Við sáum líka skrýtið dýr sem heitir Coatimundi sem er skyldur þvottabirninum en það er skordýraæta sem skoppaði um skóginn í hópum og er á stærð við meðalhund.
Eftir hádegismat þá vildu krakkarnir fara í svona Canopy skoðun en Canopy er efsti hlutinn á skóginum, eiginlega ofan á trjánum og þar er sérstakt lífríki dýra og plantna. Í raun hljómar þetta spennandi en þegar til kom þá held ég að þetta hafi meira verið svona Tarzan leikur að sveifla sér í böndum milli pramma í skóginum... Ekki alveg mín deild og við efuðumst um öryggi tækjanna sem voru notuð. Krakkarnir skemmtu sér hins vegar konunglega í mígandi rigningu.
Við stöllurnar fórum hins vegar aftur í rútuna og ætluðum að fá far heim á Hótel en gáfnaljósin kennararnir hentu okkur út við afleggjarann vitandi að ég var fárveik og haltrandi og sögðu okkur að labba 2 km að hótelinu sem í reynd var 4 km. Þeir eru stundum alveg ótrúlegir þessir kennarar, aðallega Axel sem segir eitt og gerir annað og virðist ekki alltaf vera á meðal vor eða yfir höfuð staddur í sömu ferð.... Við hins vegar nutum göngunnar, ótrúlegt en satt þrátt fyrir þreytu og skelltum okkur svo á barinn og fengum okkur Margarítu og áttum góða stund saman að spjalla í rólegheitunum sem var ljúft enda komnar nokkuð snemma heim á hótel en svo virðist sem frístundir og afslöppun sé ekki á dagskránni í þessari ferð og ég er orðin alveg gersamlega úrvinda...
Um kvöldið ætlaði ég að klára að setja inn myndir en þá ákvað netið að virka ekki sem skyldi svo myndirnar fara vonandi inn á næsta hóteli en þar fáum við loksins frídag eftir 17 daga stanslausa keyrslu.
Heilsan er held ég skárri en ég hef fengið matarlystina aftur en maginn er samt með stæla en ég held ég sé að komast yfir þetta.
Vonandi verður betri nettenging á næsta hóteli sem heitir Green Bay en þar verðum við í þrjá daga og það verður FRÍDAGUR Á MIÐVIKUDAG, JIBBÍ..
Bestu kveðjur frá Gvatemala
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2008 | 05:43
Maya hofin í Tikal
Ég tók auðvitað aftur kast á klóstinu í morgun frá 7-9 en eftir það var ég góð með aðstoð Imodium. Heilsan er samt frekar tæp og auk þess er alger ofþreyta komin í mig og hópinn. Við vorum á fínu hóteli sl. nótt og ég svaf nokkuð vel. Keyrslan á hótelið sem við erum á núna í Tikal var stutt og við byrjuðum daginn á að henda inn farangrinum og svo fórum við í Yaxjá garðinn að skoða Maya borg en það eru þessir stein píramídar sem eru alveg klikkað flottir. Það var talsverð rigning þegar við komum en svo stytti upp og veðrið var alveg skaplegt og ekki of heitt. Maya píramídarnir rísa upp úr skóginum á undarlegan og seyðandi hátt. Þetta var Maya borg síðan 600 ár fyrir krist. Við sáum fótboltavöll Mayanna og aðsetur prestanna og konunganna. Við röltum bara um og alltaf birtust nýjar byggingar í skóginum. Vá þetta var skrýtið. Mayarnir dóu svo út um 1100 eftir krist aðallega vegna hungurs en þeim hafði fjölgað mjög og réðu ekki við að framfleyta sér. Ofan á seyðandi umhverfið í skóginum þá glumdu öskur "Howling monkey" yfir allt en þetta eru pínulitlir apar sem öskra á við tíu ljón og það er hrikalega krípí að hlusta á þá... Þetta setti enn skrýtnari stemningu á heimsóknina.. Seinna sáum við svo lítinn apa en það var ekki þessi Howling monkey.
Á leiðinni heim á hótel þá var stoppað í "hádegismat" (kl. var að verða fjögur). Ég hafði enga matarlyst en fór á markaði á meðan. Þar mátti aftur finna "þjóðargersemar" til sölu. Ég keypti nú einn lítinn haus fyrir slikk enda vantaði mig þann þriðja í safnið þar sem sölukonan á síðasta stað sveik mig um einn haus. Axel kennari heldur enn að hann hafi keypt þjóðargersemar Gvatemalabúa. En ég get fullyrt að þetta eru líklega falsaðar vörur sem eru látnar líta út fyrir að vera gamlar eða 100 ára gamalt drasl sem er verðlaust því það er svo mikið til af þessu. Ég held ég hafi náð að róa kennarann í dag þegar við sáum tonn af þessu dóti í hótellobbíinu.. Ég keypti líka eitthvað meira leirdót og drasl og líka eina hauskúpu af einhverju útdauðu dádýri.. en nú er ég að ná tökum á prúttinu hér svo þetta fer að verða stuð.. (Ok Valdi ég skal reyna að hemja mig....)
Hótelið sem við erum á núna er fínt líka en nettengingin er hæg. Á morgun þá förum við að skoða stærstu Maya píramídana í Parque National Tikal. Vá eins og þessir í dag væru ekki nógu stórir...
Ég náði að setja inn tvö ný albúm þrátt fyrir hæga nettengingu en þau heita. Háfjallavegir frá helvíti og Háfjallaferð.
Jæjja best að koma sér í bólið. Annars er Howling monkey að öskra hér fyrir utan og það er rosalega krípí.. Þetta eru eins og 10 ljón.. En gott að vita að þetta er bara lítill api annars hefði ég ekki þorað að hlaupa yfir sundlaugasvæðið í herbergið mitt...
Bestu kveðjur frá Gvatemala
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar