Valdi hjólafantur!!!

Valdi fór upp í Alnarp í dag til að tala við kennara sem var svo ekki við. Áður hafði hann fest á hjólið hraðamæli og km mæli þannig að ferðin var eiginlega bara farin til að mæla vegalengdina og hraðann upp á grín.. En í öllum hamaganginum við að horfa á mælinn og spá í hraða þá klessti hann á annan hjólreiðamann og náði að skalla hann með hjálminum (hinum var nær að vera ekki með hjálm)... En allavega þá var þetta reyndar Valda að kenna þar sem hann var með hugann við annað. Hinn hjólreiðamaðurinn hjólaði vankaður í burtu en Valdi braut glitljós og hruflaðist á hendi..

Annars er það helst að frétta að Valdi gerði tilboð í grisjunarverk í Skorradal og í dag kom í ljós að hann var með lægsta tilboðið.  Verkinu á að vera lokið 15. apríli þannig að hann mætir á klakann vel fyrir þann tíma en verkið mun hann vinna ásamt Benna. Ég held að hann sé bara að hefna sín fyrir Gvatemala ferðina mína þegar ég var í burtu í þrjár vikur og honum leiddist á meðan en núna fer hann í byrjun mars til Lettlands og Litháen í 10 daga og svo aftur í ca 10 daga til Íslands strax þar á eftir.. Ég mun deyja úr leiðindum á meðan... En auðvitað er þetta fínt mál og gaman fyrir Valda að taka þetta verk að sér auk þess sem han nær þá að hitta börnin í þessari ferð.

Annars er ég bara enn og aftur að drukkna í þessum ritgerðum sem ganga þó ágætlega en ég tók mér pásu í dag til að labba í Kirseberggarðinum með Valda en veðrið var yndislegt og mikið mannlíf í garðinum.

Bestu kveðjur frá Malmö


Samnorrænt súperhallæri...

Í dag fórum við í kaffi til Rakelar og Guttanna og þar fengum við dásamlegar vöfflur með rjóma og líka bananabrauð sem var súpergott.... Þetta minnti mig á að ég tók vöfflujárnið mitt með mér út en hef bara ekkert bakað vöfflur... Skandall... Við sátum vel og lengi og spjölluðum en ég held það sé kominn heimferðarhugur í alla aðila enda sátum við og skoðuðum ferðaáætlun Norrænu í bak og fyrir... Annars held ég að það verði gaman að upplifa vorið hér talsvert fyrr en heima en ýmsar plöntur eru farnar að blómstra eða bruma nú þegar.

Morguninn hafði farið í ritgerðarsmíði og það gerði kvöldið líka en ég er komin í verulegt tímahrak með ritgerðina mína sem ég á að skila á miðvikudag. Ég er svo gott sem búin með aðra ritgerðina en ég held ég vanmeti samt pjattvinnuna sem er eftir eins og myndaskrá og öll heimildavinnsla í Litunarjurtunum og innsetning á öllum myndum. En ég hef allan morgundaginn til að klára þetta og það hlýtur að ganga.. Valdi hefur sinnt sænskunáminu um helgina auk þess að elda ofan í mig með myndarbrag...

Um kvöldið sáum við þann allra hallærislegasta tónlistarþátt sem ég hef nokkru sinni séð... Hann heitir Melodyfestival 2008 held ég en það er mikið fjallað um þetta í blöðnum hér. Þetta er sum sé einhver lagakeppni sem mig grunar að sé undanfari að Evrovision. Þarna er hún Carola þeirra Svía í einhverjum páskagulum kjól og komin í undanúrslit... Ég held þetta sé allra versta samnorræna hallærið sem ég hef séð... Kynnirinn var alltaf að skipta um jakkaföt og þau bara versnuðu og í úrslit voru einhverjir fávitalegir tvíburar í rauðum jakkafötum.. Ég var alltaf að skipta um stöð því ég þoldi þetta ekki en Valdi stóð mig að því að fara aftur á stöðina og glápa með kjálkann alveg niðri af undrun... Þetta var alveg ólýsanlega hallærislegt.. Og lítið hægt að gera í stöðunni annað en að emja úr hlátri yfir þessu eða leita að CSI á annarri stöð...

Bestu kveðjur frá Malmö


Kynlíf mosa...

Á föstudaginn fór ég í skólann í Fléttu- og mosafræðina og það var ljómandi skemmtilegt. Eftir að ég hætti í tölfræðikúrsinum þá hef ég getað einbeitt mér meira að mosunum og þeir tímar eru mjög áhugaverðir. Eftir fyrirlestur um æxlunarferil mosa sem nefnist öðru nafni "kynlíf mosa" sem var mjög svo spennandi þá greindum við  mosa og fléttur í smásjám það sem eftir var.. Ó það er svo gaman... Eitt vandamál er þó að kúrsinn sem á að vera á ensku eru meira og minna á dönsku og allt lesefni og "Lyklarnir" að mosum og fléttum eru allir á dönsku.. Ég er orðin frekar pirruð á "enskum" kúrsum á "dönsku"... En á föstudaginn var svo næs stelpa við hliðina á mér og hún hafði svo miklar áhyggjur af að þetta væri allt á dönsku að hún meira að segja þýddi fyriri mig enskuna á ensku.....  hehe.. ég bara brosti og þakkaði fyrir.. og við unnum okkur saman í gegnum lyklana og það var mjög gaman og fræðandi.. Vildi að fleiri væru svona næs við okkur "útlendingana"....

Valdi sótti mig á Central station og við fórum og versluðum mat fyrir helgina og fjárfestum í "flakkara" svona 500 gb utanáliggjandi minni fyrir tölvuna.. En ég fékk einhverja óværu í tövluna í gegnum msn um daginn og panikkaði að ég er ekki með neitt Bakkupp... En nú er ég búin að setja allt dótið á flakkarann þannig að ef að tölvan krassar þá er ég ekki alveg lost..

Valdi keypti sér "myndavél" á tölvuna svo nú geta krakkarnir séð hann þegar þau tala saman á Skypinu..Og við sjáum þau...  Skypið er náttúrulega hrein snilld.. maður borgar einhverjar örfáar krónur eða ekki neitt til að tala við fólk heima... Getum bara ekki talað í farsíma en allt annað virkar... Snilld þessi tækni... Valdi spjallaði í gær við krakkana í hátt í tvo tíma og í kvöld í allavega einn tíma... Og hann sá þau og þau hann.. Snilld... .

Laugardagurinn hefur verið rólegur og fór í ritgerðarvinnu en ég þarf að skila af mér ritgerðinni um Nicotiana sem er svo gott sem tilbúin og líka ritgerðinni um litunarjurtir í Gvatemala á mánudaginn... Ég er komin með tvær blaðsíður í Gvatemala ritgerðinni en það hins vegar er svo skemmtilegt efni og ég er með þetta alveg í hausnum á mér að ég hef ekki áhyggjur...  

Af einhverjum ástæðum hefur flensan ákveðið að taka sigi upp aftur og Valdi vaknaði fullur af kvefi og ég fékk hálsbólguna aftur og hitavellu.. En við ákváðum að líta algerlega framhjá þessum aumingjaskap í þeirri von að þetta myndi bara hverfa...

Við fórum í fínan labbitúr í Kirseberggarðinum sem Valdi sagði mér í dag að héti reyndar Beljerspark sem mér finnst afspyrnu asnalegt nafn og mun því kalla hann Kirseberggarðurinn áfram... Þar sáum við nokkrar konur að bera inn veitingar í félagsheimilið og svo heyrðum við hvell... ein hafði misst köku og bakka með einhverju sem leit út eins og smurðar flatkökur í jörðina... Spælandi.......

Já Þórunn Edda.. einmitt!! ég frétti að Kusan hefði gengið vel... Frábært...... Og hátt í 200 manns mætt.. Þetta eykst alltaf á milli ára... Frábært... Og vonandi gekk háskóladagurinn vel í ár... Var með létta heimþrá vitandi af háskóladeginum en ég var nú þarna í fyrra....  

Kvöldið fór í að prjóna dúllur og jafna sig eftir stórkostlega máltíð sem Valdi eldaði.. Við skulum hafa það á hreinu að öll þau aukalíló sem ég bæti á mig í vetur eru VALDA AÐ KENNA.. Hann er alltaf að elda svona snilldar máltíðir með rjómasósu og tilheyrandi....

Kveðjur frá Malmö...

 


Flensa á undanhaldi

Jæjja flensan er á undanhaldi eftir að hafa verið mjög leiðinleg í nokkra daga. Ég get svo svarið að ég þoli ekki að vera veik heima.. bara þoli það ekki.... Það er svo leiðinlegt að hanga heima og halda að maður geti reynt að læra með tissjú í annarri hendi og Nezeril í hinni... ÓÞOLANDI...

En það sem helst hefur gerst til tíðinda er að ég er hætt í tölfræðinni/tilraunafræðinni. Ég gerði mér grein fyrir því að ég hefði ekki skilið orð af því sem kennarinn sagði eftir fyrsta hálftímann í fyrsta tímanum. Ég fékk verkefni í hendurnar sem ég vissi ekki hvernig snéri.  Þetta er kúrs fyrir masters- og doktorsnema og ég bara var ekki nálægt því að ná þessu..   Ég ætla ekki að svekkja mig lengur og held að tíma mínum sé betur varið í Mosakúrsinum sem er mjög skemmtilegur og auk þess er ég enn að reyna að ná prófrétti í Tropical botany með því að skila inn tveimur ritgerðum næsta miðvikudag en það mun alveg ganga því önnur er búin og hin er alveg að bresta á..

Valda gengur vel í sænskunáminu og lærir samviskusamlega heima með orðabókina á lofti. En nú er hann farinn að slá um sig með sænskum orðatiltækjum og orðum sem ég skil ekki bofs í... FootinMouth 

Í dag frétti ég að Gerður systir og Þórunn frænka væru búnar að panta miða til Svíþjóðar í mars til að heimsækja mig.. Jibbí.. hrein snilld.. Ég vissi af Gerði enda var ég búin að pína hana lengi en svo bættist Þórunn óvænt í hópinn. HREIN SNILLD.... Þórunn er náttúrulega fyrrverandi Svíi eða þannig hún og Gunnar bjuggu hér í góðan tíma um árið..

Annars er Viskukýrin heima á Hvanneyri núna.. Ég er með emjandi heimþrá þar sem Viskan hefur verið mitt "Baby" síðan ég var skemmtanastjóri fyrir nokkrum árum... Ég skildi eftir langan "TO DO" lista fyrir skemmtinefndina núna sem virðist vera að standa sig mjög vel en mér heyrðist allt vera í fínasta lagi í dag þegar ég heyrði í liðinu.  Já ég verð víst að sætta mig við að þau geta þetta án mín..Frown

Bestu kveðjur úr vorinu í Malmö


Flensuskítur og meiri flensuskítur...

Óskaplega ætlar mér að ganga illa að komast í stærðfræðitímana mína... Í gær þá lagði ég af stað snemma til að finna örugglega kennslustofuna í þetta sinn... En það gekk samt ekki betur en svo að ég labbaði um hverfið til klukkan ellefu í tvo tíma (átti að mæta 10:15) og loksins fann ég kennslustofuna... Málið er að hún er svo vel falin bak við nokkrar stóra byggingar og inngangurinn lítur út eins og aðkoman að ruslageymslunni...  Enginn vissi hvar Universitetsparken 15 væri og hvað þá bygging 10. En það fyndna er að hin undarlega hjálpsemi Dana kom skýrt fram þarna.. Ég stóð náttúrulega eins og asni með kortið mitt í höndunum og tvisvar komu Danir að mér og buðust til að hjálpa og í bæði skiptin þá  var mér vísað í bandvitlausa átt... Auk þess fór ég inn í nokkrar byggingar á vegum háskólans og þar var mér vísað í vitlausar áttir og byggingar líka.. Ef fólk veit ekki svarið þá á það ekki að svara!!!!!  Kortið sem ég prentaði út frá strætóheimasíðunni var líka bandvitlaust... En núna veit ég nákvæmlega hvar kennslustofan er og mun finna hana á réttum tíma á morgun....

Restin af mánudeginum fór í vistfræðiheimaverkefnin og svo kom Valdi heim og við elduðum hamborgara... (alltaf sama diet fæðið á þessu heimiliTounge)

Á mánudagskvöldinu var ég búin að fatta að ég væri orðin lasin.... Ég var reyndar að reyna að líta framhjá því en það endaði með því að ég komst ekki í skólann í dag og var heima að reyna að lesa stærðfræði sárlasin.. Það gekk vægt til orða tekið mjög illa... En ég er með kvef, hita og hálsbólgu og hefði getað sofið allan sólarhringinn ef ég hefði leyft mér það.. En ég skal í skólann á morgun því það er stærðfræði og ég verð að mæta...

Valdi var í skólanum í allan dag svo mér leiddist óskaplega. Og núna er hann á sænskusnillinganámskeiði...  Já dagarnir núna eru ansi þéttsetnir hjá okkur en ég er enn í Tropical Botany þó að það tilheyri Block 2 og Block 3 er vel byrjuð... Auk þess hef ég vistfræðiverkefnin þannig að samalagt vantar mig um það bil einn sólarhring í viðbót fyrir hvern raunsólarhring... En þetta róast núna bráðum eftir að ég skila Verkefnunum í TB þá koma líka annarlok á Hvanneyri og þá er pása í verkefnunum meðan nemendur eru í prófum.   Og ég get þá loksins sinnt þeim áföngum sem ér er í hér Tölfræðinni og Mosunum...

Bestu kveðjur frá Malmö


Rólegheitahelgi..

Helgin hefur verið róleg hjá okkur.  Við höfum eiginlega setið við sitt hvort skrifborðið alla helgina. Ég hef verið að læra og líka að sinna vistfræðiverkefnum. Valdi hefur verið að skoða mastersverkefnismál á milli þess sem hann missti sig á Facebook en hann er nýbúinn að læra á það en ég er ekki orðin svo tæknivædd.

Í gær fórum við í göngutúr í Pildamsparken sem er hér miðsvæðis og er yndislegur almenningsgarður. Valdi uppgötvaði þennan Park meðan ég var í Gvatemala og vildi endilega sýna mér hann. Það er tjörn þarna í miðjunni og það var yndislegt að labba hringinn en þessi Parkur er talsvert  mikið stærri en Kirseberggarðurinn.  Eftir það fórum við í Burlov center að reyna að finna föt á Valda (fitubolluna) Tounge.... Það gekk illa þar sem hann virðist vera dottinn upp úr unglingatískunni (guði sé lof) og við fundum ekki miðaldratískuna bara gamalmennatísku... Kannski var miðaldratískan í Dressmann en mikið óskaplega var það allt ljótt. Síðan hvenær voru mittisjakkar í tísku og endalausar þverröndóttar peysur og bleikar skyrtur... Mikið um bleikt ....    Við keyptum reyndar einar buxur í Heimsmeistaramótinu (H&M) en þær gátu ekki klikkað því Valdi á tvær eins fyrir.

Um kvöldið borðuðum við okkur til óbóta því Valdi gerði svo rosalega góða lambasteik með snilldar sveppasósu...

Sunnudagurinn fór í skrifborðsvinnu en við röltum út í Kirseberggarðinn (4 hringi) og það var ljúft. Hér er 9 stiga hiti og vorlegt. Mikið mannlíf var í garðinum og trén eru farin að bruma og allskonar gul vorblóm mætt á svæðið.  Ég sá einn Pug hund og nú er ég alveg dýróð að fá slíkt kvikyndi... Það held ég að Kátur yrði hissa....

Bestu kveðjur frá Malmö


Utanlansferð

Í gær skelltum við okkur til útlanda nánar tiltekið til Köben... Sem er svo sem ekki í frásögur færandi þar sem ég fer þangað fjórum sinnum í viku þessa mánuðina... en í gær var svona "túrista" bragur á þessu... Valdi kom með og við fórum á Café Klimt að hitta Trópí hópinn, Hlyn, Dýrleifu og Lindu. Valdi gerði heiðarlega tilraun til að BANNA umræður um Gvatemala en það hlustaði enginn á hann... Hann reyndi að tala um tré en það hlustaði enginn á hann.. Hehe.. En þetta var ósköp næs. Valdi segist alltaf vera að fara til útlanda þegar hann fer yfir sundið sem er náttúrulega tæknilega alveg rétt....

Eftir kaffihúsaferðina þá röltum við Valdi bara Strikið og komum við í Magasín og HM en það þarf að kaupa buxur á kallinn þar sem hann hefur bætt eitthvað á sig síðan við komum.. Hann segir reyndar að það sé "þvottavélinni" að kenna en ég þekki þá afsökun einum of vel sjálf... En ég vaknaði á fimmtudagsmorgninum við tuðið í Valda "djöfullinn ég get ekki hneppt þessu maður... " Hann er nú ekki sá eini sem hefur bætt á sig.. málið er bara að hann má ekki gera grín að mér en ég má gera grín að honum.. (Ný regla sem ég bjó til Grin) (Asnaleg reglaAngry segir Valdi)

VIð komum líka við á Hvids Vínstuge og hittum Hlyn og Viljhálm vin hans.. 'Eg kann alltaf jafn vel við mig á þessum bar því hann er Eldgamall og þarna heyrir maður mikið íslensku og þjónarnir eru alvöru þjónar sem eru uppáklæddir og þarna eru líka fín salerni... Það er líka viðkunnalegt að hafa teiknaða mynd af Íslendingum sem hafa stundað barinn fyrir ofan okkur á veggnum.

Á Strikinu fundum við hnífabúð með svona ekta fínum eldhúshnífum. Okkur hefur dreymt um það lengi að kaupa okkur svona alvöru sett þar sem Ikea hnífarnir hafa aldrei bitið á eitt eða neitt... Ég veit ekki alveg hvað ég hélt með verð á svona gripum kannski 10.000 kall fyrir nokkra hnífa en við fundum mjög fallegt og vandað sett með 5 hnífum og einum kjötskærum fyrir 53.000 kr.. SHIT... Við tókum bara bækling og ætlum að láta okkur dreyma um þetta í nokkur ár í viðbót....

Við fórum svo á Hard Rock og ég fékk með De Lux margarítu sem er með grand mariner í og einhverju fleira trumsi.. Vá hún var svo góð og maður fékk að hirða glasið sem ég reyndar gerði þar sem ég mun servera margarítur fyrir Dýrleifu og Lindu þegar þær kíkja í heimsókn og undir því yfirskini þá fékk ég mér aðra Margarítu.. Ég þarf náttúrulega allavega tvö glös.... En ég hefði nú betur kíkt á verðið á þessari DeLux Margarítu áður en ég pantaði tvær... Því það kom í ljós við nánari útreikning að hún var auðvitað FOKDÝR.. En fyrir tvær þá borgaði ég 3300 íslenskar krónur.. Úpps.. ég hefði nú betur bara keypt mér kristalsglös... (vá við nánari útreikning þá kostaði þetta 400 ketzales í Gvatemala en það eru hálf mánaðarlaun verkamanns.. wowwwww)

Valdi fór á sænskunámskeiðið sitt á fimmtudagskvöldið en hann var í fyrsta sinn að fara í erfiðari tíma. Honum líst vel á þetta og ætlar að halda áfram á þessu stigi... Hrein snilld..

Róleg helgi framundan með labbitúrum, lærdómi, lærdómi, lærdómi og aftur lærdómi...

Bestu kveður frá Malmö


Súperséní á heimilinu...

Dagurinn byrjaði brösuglega hjá mér en ég ætlaði bara EKKI að geta vaknað en ég varð að dröslast á fætur þar sem tölfræðin er mikilvægt fag sem ég verð að læra. Ég var mætt niður á Central vel fyrir níu og þá var óvenjulega mikið af fólki á stöðinni. Málið var að það hafði einhver rafmagnsstrengur farið í sundur frá Lundi og niður í Malmö svo að engin lest hafði farið frá stöðinni í langan tíma... Og hófst þá biðin langa... En allavega eftir 50 mínútur þá lagði lestin af stað smekkfull til Köben en ég var með sæti annars hefði ég sko farið í fýlu... Eitthvað sagði mér samt að ég ætti bara að stinga af heim en NEI.. ég skyldi hafa það í tölfræðina... Á Hovebane... þá var meira að segja lestin til Malmö opin beint fyrir framan mig og ég þurfti að taka á mínum stóra til að hoppa ekki beint úr einni lest í aðra og aftur heim... Og einbeittur brotaviljinn kom mér upp í strætó og í Universitetsparken og þá var ég orðin mjög sein að sjálfsögðu... Og viti menn þegar ég loksins fann skólastofuna þá var bekkurinn FARINN.. HORFINN á braut.... Guð má vita hvert þau fóru en ég fór í fýlu og fór heim.... Andsk.. afsakið orðbragðið.. Ég hefði nú bara betur snúið mér á hina hliðina og haldið áfram að sofa.. Ég er mjög spæld yfir að hafa misst af tölfræðinni því ég þarf virkilega á kennslunni að halda.... En svona fór það....

Þegar heim kom þá fór ég að yfirfara vistfræðiverkefni og Valdi var að skrifa ritgerðina sína. Við tókum einn labbitúr niður í bæ og svo var bara haldið áfram í skrifborðsvinnu....

Hins vegar hringdi allt í einu síminn hans Valda (sem hringir aldrei því við eigum enga vini...Tounge ) og þá var það kennarinn hans í sænskunámskeiðunum... Hann tók stöðupróf í síðasta tíma og kennarinn vildi HÆKKA HANN UM NOKKRA BEKKI!.... Minn gengur núna um ekkert smá montinn.... heldur að hann sé súperséní í sænsku......

Eftir viðbrenndan kvöldmat (Valdi eldaði) þá hélt tölvuvinnan áfram fram eftir kvöldi.

Bestu kveðjur frá Malmö 


Hangikét á sprengidag..

Jæjja þetta var ágætis dagur. Ég missti ekki af lestinni og hún var á áætlun. Ég þurfti heldur ekki að taka strætó því ég var í tímum rétt hjá Nörreport.

Í dag var ég í fyrsta tímanum í Laver og Mosser (Fléttur og Mosar) þetta lítur bara vel út en ég held að kennararnir viti ekki alveg um hvað við erum að gera stóra verkefnið okkar. Við eigum að fara í einhvern þjóðgarð og gera eitthvað sem þeir gátu ekki alveg svarað. En ég hef ekki áhyggjur af því þar sem ég er alveg upptekin ennþá í Tropical Botany með verkefni og próf núna 25. feb.  Dagarnir eru reyndar mjög langir þegar tímarnir eru frá 9-16 og sama námsefnið allan tímann.. Ég var alveg búin á því þegar ég kom heim.  Ég var send heim með mosaræfil sem heimavinnu fyrir föstudaginn þar sem kennararnir verða ekki á staðnum. Ég er ansi hrædd um að ég sé ekki að fara á milli landa til að greina einn mosa.. Ég held líka að ég hafi drepið mosann á leiðinni heim... úpps...

Valdi var heima í dag að skrifa ritgerð, hann á að skila henni á morgun og ég held honum leiðist mikið í þessu verki. Sér til upplyftingar fór hann í langan hjólatúr um allan bæ í dag.  Hér í Svíþjóð er nánast alltaf einhver ljúf veðurleysa upp á 3-6 stiga hita. Hins vegar er umhverfið allt mjög grátt hér, alltaf grátt og lítil tilbreyting... Það verður fínt þegar það fer að vora hér en við höfum séð vorviðbrögð á trjánum og krókusar eru farnir að spretta upp.

Þegar ég kom heim þá beið Valdi mín með Hangikét og uppstúf.. Ummmmmm..... Hann keypti þetta þegar hann var á landinu um daginn. Við borðuðum okkur til óbóta en það var vel þess virði. Já fyrst hann fékk ekki saltkét og baunir þá varð þetta bara að duga.

Ég eyddi kvöldinu í vistræðiverkefnin og líka í að lesa fyrir Tölfræðikúrsinn. Almáttugur ég er í tölfræði á morgun frá 10-16. ÉG DEY..........

Bestu kveðjur frá Malmö


Nýjir kúrsar og bolludagur

Ég svaf nánast ekkert í nótt af stressi út af að taka lestina inn til Köben og fara á nýjan stað og í Tölfræðikúrs. Ég bókstaflega þoli ekki lengur þessar lestarferðir. Ef einhver segir við ykkur að það sé ekkert mál að "Pendla" svona yfir þá er það hrein og klár lygi.. Ég talaði við nokkra sem gerðu þetta áður en ég byrjaði á þessu og það sögðu allir að þetta væri nú ekkert mál... Ég veit ekki hvað fólk er að pæla sem þolir þetta..  

Dagurinn byrjaði sum sé í morgun á lestarstöðinni þar sem starfsstúlka neitaði mér um endurnýjun á lestarkortinu mínu af því ég var ekki með "rétt" skólaskírteini frá KU.... Ég þurfti því að borga 1800 ískr til að komast í skólann.. Ég var MIKIÐ pirruð, og um leið og ég kom út úr þessu rugli þá sá ég lestina líða af stað á undan mér. 8:40 lestin var svo sein að hún lagði af stað 8:55 og ég orðin allt of sein fyrsta skóladaginn... Ég missti líka af strætó  á Nörreport og þegar hann loksins kom þá var mér vísað út á röngum stað. Ég þvældist endalaust um háskólasvæðið og enginn vissi hvar byggingin var sem ég var að fara í og loksins fannst hún og þá leit hún út eins og kartöflugeymsla við hliðina á öllum fínu háskólabyggingunum... Tölfræðikúrsinn var reyndar ágætur. Ég allavega panikkaði ekki gersamlega yfir þessu... Auðvitað missti ég svo af strætó á leiðinni heim og ég sá líka í afturendann á lestinni og beið í 20 mínútur niðri í Norreport station sem er ógeðsleg. Þegar til Malmo var komið þá fór ég aftur á miðasöluskrifstofuna og fór bara á annað afgreiðsluborð og fékk endurnýjun á mánaðarkortinu eins og ekkert væri.... Týpískt Sænskt rugl... Og auðvitað sá ég í afturendann á sjöunni fyrir utan Central... En ég ákvað bara að labba heim og koma við í Cooop og kaupa í bollur...

Restin af deginum fór í netsamskipti við nemendur og svo bakaði ég bollur, þær tókust ágætlega vel en voru hálf væmnar... eiga þær ekki að vera væmnar og velgjulegar.. líklega hafa þær tekist vel..

Valdi fór á sænskunámskeið niðri í bæ. Þetta er mjög alþjóðlegur hópur sem er þarna og honum líst ljómandi vel á þetta. Hann verður á þessu námskeiði 2 kvöld í viku í átta vikur.  Þetta er svo stutt niður í bæ að hann hjólar þetta bara.

Kveðjur frá Malmö


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband