7.3.2008 | 14:52
Verkefnaskil og síðbúnir gestir
Valdi var í gær í borginni Kaunas í Litháen. Eftir að hafa skoðað borgina þá heimsótti hópurinn Landbúnaðarháskólann í Kaunas og fengu leiðsögn um skólann. Síðan var þeim gert að heilsa upp á skógfræðinemana þar í landi en sá hópur var víst heldur uppburðalítill og feiminn. Í Kaunas var snjókoma og bara alvöru íslenskt veður segir Valdi og gladdist greinilega mjög þar sem við höfum verið í veðurleysu í Malmö í allan vetur. Í dag stefndi í að þau myndu hlusta á nokkra fyrirlestra og skoða Vilníus betur.
Vaggi og Lilja komu milli tólf og eitt í gærkvöldi.. Ég sat nú aðeins hjá þeim og spjallaði þrátt fyrir hvað það var orðið seint. Gaman að hitta þau þó það hafi verið stutt en það náðist að troða ofan í þau nokkrum sörum. Þau gistu en ég var farin í morgun þegar þau vöknuðu en ég þurfti að leggja af stað úr húsi klukkan sjö. Ég var svolítið stressuð því við áttum að flytja hópverkefnið okkar um Ellenberger gildin (ekki spyrja...). Ég var orðin svolítið hrædd um að ég þyrfti að standa undir þessum fyrirlestri ein því hinar stelpurnar voru eitthvað að slóra í þessu og viðhorfið er svolítið slappt þegar einkunnin er bara staðið og fallið. En viti menn þær komu nú bara á óvart með sinn hluta og þetta var nokkuð fínt bara.. Kennararnir hrósuðu okkur mikið, já voru eiginlega bara stórhrifnir, ég var mjög ánægð enda hafði ég nú lagt talsverða vinnu í þetta. Við höfðum óvart fengið lang erfiðasta verkefnið.. smá mistök hjá kennurunum en við unnum vel úr því.
Síðustu daga hef ég verið að lesa Konungsbók eftiri Arnald Indriðason, ég hef lesið nokkrar bækur eftir hann í vetur og Grafarþögn var sú besta og ég var frekar fúl þegar ég fattaði að Konungsbók væri ekki um Erlend rannsóknarlögreglumann. En vá þegar ég byrjaði á Konungsbók þá bara gat ég ekki hætt.. Þetta gerist á þeim slóðum þar sem ég er í skólanum inni í Köben sem gerir það svolítið meira sjarmerandi að lesa þetta.. Söguhetjurnar áttu það til dæmis til að fá sér bjór á Hvids vinstue sem þeir kalla Hvít en það er uppáhalds barinn minn í Köben (þekki reyndar enga aðra!!!) En bókin var meiriháttar og endirinn alveg gersamlega óvæntur og ekki óraunverulegur... Hrein snilld... Hrein snilld...
Annars stefnir bara í rólega helgi í internetleysi og Valdaleysi... Sem betur fer hef ég nú nokkrar sjónvarpsrásir til að horfa á og auk þess er ég á hraðferð með Rósaleppaprjónið mitt.. Ég er alveg í stuði þessa dagana. En ég tók líka með mér mikið af gögnum heim úr skólanum fyrir næsta hópverkefni.. Best að nota bara tímann vel þessa helgina í frið og ró.
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2008 | 16:26
Internetraunir
Það var ekki ég sem sprengdi bílinn í Malmö í morgun.. Og ég rændi heldur ekki Handelsbankanum í Jagersbro. Ég var hins vegar á rúntinum niðri í bæ fyrir hádegið og það var allt vitlaust í sírenum og ég taldi bara heillavænlegast að drífa mig heim.. Vissi reyndar ekki hvað var að gerast.
Annars er það helst að frétta að ég er að missa geðheilsuna vegna netleysis. Ég sótti í morgun nýtt módem í Telía til að prófa hvort það breytti einhverju en eins og ég var búin að segja 100 sinnum við starfsmennina.. ÞAÐ ER EKKERT AÐ MÓDEMINU... Loksins eru þeir búnir að samþykkja að líklega er þetta línan þeirra sem er biluð.. En þeir geta ekki kíkt á þetta fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag.. ARRRGGGG.... Þá hef ég verð netlaus í viku og verð líklega komin á geðdeild.. Nei nei.. þetta er ágætis afslöppun að hafa ekkert net en verður líklega ekki jafn sniðugt þegar vistfræðin byrjar að streyma að aftur... Ég hef aðgang að ókeypisi Interneti á Kirsebergbókasafninu. Þar er indælis starfsfólk sem vill allt fyrir mann gera. Í dag mætti ég klukkan fimm til að kíkja á netið en þá voru þau að loka.. Arrggg... en þá benti einn starfsmaður mér á að ef ég laumaði mér inn í félagsmiðstöðina við hliðina og sæti þar upp við ákveðinn vegg þá næði ég fínu sambandi.. Hehe.. þetta gerði ég og sat þarna eins og asni á gólfinu þegar starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar kemur hlaupandi með borð og stól... Næææææsss.....
Vaggi og Lilja koma víst seint í kvöld.. fúlt ég hefði vilijað fá þau miklu fyrr og elda og haf næs en það verður bara að bíða betri tíma... En við náum allavega smá kjaftatörn... Svo er stefnt á Íslendinga-bar-rölt á laugardagskvöldið í Köben...
Í kvöld ætlum við Rakel og guttarnir að fara út að borða á Jensens buffhús..
Ekkert hefur spurst til Valda í dag og geri bara ráð fyrir að hann sé á rúntinum í Litháen í góðum gír.. Hann bjallar örugglega í kvöld og þá get ég sett inn einhverjar fréttir af honum á morgun.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2008 | 17:29
Valdi í Vilníus
Almáttugur.. þessi dagur er bara ekki alveg að ganga upp hjá mér... Internetið liggur niðri heima og Digital sjónvarpið líka og það eina sem þjónustuaðilarnir segja mér að gera er að ræsa tölvuna mína... HJÁLP.. Ég er búin að hringja í þá 8 sinnum í dag og öll samtöl enda á því að ég er enn með EKKERT NET og þau segja bara ææ ég get ekki hjálpað..
Valdi er í Vilníus en hann fór þangað í gær með bekknum sínum. Þau byrjuðu á að keyra um og skoða garð með fullt af styttum af gömlum þjóðarleiðtogum, Stalín og Lenín og slíku... Það var víst skrýtið. Þau gistu svo á hóteli sem er ekki par fínt.. og Valdi þarf að deila rúmi með öðrum.. Jukk... Ég held að snobbhænan ég myndi ekki láta bjóða mér þetta... Í dag voru þau svo aðallega inni að hlusta á fyrirlestra.. Svolítið spælandi að vera í nýju landi og sitja inni.. En það lagast vonandi á morgun..
Við erum komin með miða í Norrænu fyrir okkur og bílinn 8. júní frá Bergen. Það hringdi kona frá skrifstofunni og sagðist vera komin með herbergi handa okkur en það væri svolítið dýrara en hitt sem við pöntuðum.. 78 þúsund krónur.. ég kímdi bara og sagði OK.. látum okkur hafa það.. En ég hafði búist við miklu hærra verði þar sem það kostaði 102 þúsund í fyrra að sigla út. En þá erum við bara ekki komin inn á háanna tímann sem byrjar akkúrat í ferðinni á eftir. Snilld.
Mér hundleiðist hér án Valda en ég fór að versla í morgun og þurfti að rúlla körfunni sjálf og bera pokana... Almáttugur... mikið á mann lagt.. Ég fór líka í klippingu og skellti mér í Sopstation þar sem ég fann stóran og fallegan rokk til sölu á 2000 íslenskar.. En ég freistaðist ekki.. Svo sá ég svo flottan kistil sem hefði verið gaman að kaupa og sjæna til... En ég hamdi mig...
Já Vaggi og Lilja, sófinn er sko laus og ég geymdi slatta af Sörum handa ykkur. Og þó ég segi sjálf frá þá voru þær bara nokkuð góðar. Bekkjarfélagarnir átu þær allavega með bestu lyst um daginn. Við gerum svo bara pizzur eða lasagnja um kvöldið... Ekki málið.. Hlakka til að sjá ykkur..
Jæjja best að hætta þessum prímadonnustælum og fara heim að læra en ég er núna á Kirseberg bókasafninu að nota netið þar..
Bestu kveðjur frá Malmö og Vilníus
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2008 | 22:54
Sörubakstur og Vottar Jehóva
Sörubakstur já... Í mars.. Ójá... Það er kökudagur í skólanum á morgun og ég fékk í mig einhvern rosalegan fiðring að baka Sörur þar sem ég hafði sleppt því um síðustu jól en jólin þar áður bakaði ég heimsins bestu Sörur.. Ég vildi bara vita hvort ég gæti enn bakað góðar Sörur eða hvort þetta hefði verið tilviljun en ó jú.. Sörurnar voru stórkostlegar og fallegar. Ég ætla með þær í skólann á morgun en ég ætla að reyna að geyma nokkrar fyrir gesti... hint hint... Vaggi og Lilja!!!!!
Valdi var í hagfræðiprófinu í dag.. Það var langt og það var erfitt.. en hann heldur að hann hafi náð þessu eða vonar það allavega. Það er mikill léttir yfir honum þegar þetta er búið en þetta var alveg hundleiðinlegt fag en auðvitað nauðsynlegt líka.
Á morgun fer Valdi til Litháen og svo til Lettlands í skólaferðalag. Þetta verður örugglega ævintýri hjá honum en hann verður í 8 daga.
Við hringdum í Norrænu í dag og reyndum að panta miða heim fyrir bílinn og okkur 8. júní frá Bergen. En auðvitað voru öll tveggja manna herbergin upppöntuð.. Andsk...... Við erum á biðlista og vonum það besta. Valdi er búinn í skólanum 1. júní og þá ætlum við að rúnta upp Svíþjóð og svo niður Noreg og taka ferjuna í Bergen en svo er stoppað heilan dag í Færeyjum og við getum væntanlega farið frá borði og heimsótt vini og ættingja. Ef við fáum miða það er að segja en annars fer bíllinn í gám og við í flug....
Í dag var ég ein heima að læra þegar dyrabjallan dinglaði. Við förum reyndar aldrei til dyra hér en ég svaraði í þetta sinn því ég á von á svo mörgum bókum frá Amazon en þá heyrði ég bara Rússkí, Votta Jehova... Bla bla... Ég sagði bara nei nei takk takk og skellti á dyrasímann.. Ég heyrði samt að Vottarnir komust inn í húsið og ég hélt bara áfram að læra og svo var bankað á innri hurðina... Ég gleymi mér og bara opna og þar standa tvær konur önnur eldri og hin yngri og byrja að tala um Votta Jehova og ég veit ekki hvað og hvað... Ég brosi bara og segi nei takk nei takk og loka bara hurðinn og skelli hratt í lás og viti menn þær halda áfram að banka og taka í húninn.. COMMON....
Við vorum í mat hjá Rakel og guttunum í kvöld. Við fengum alveg rosalega gott lasagnja með hvítlausbrauði.. Ummm það var svo gott enda gert alveg frá grunni en ekki úr pakka eins og mitt.. Nú verð ég að hætta þessu pakka lasagnja dóti.... svo fengum við ís í eftirmat þannig að við ultum út á meltunni... Nú fer að styttast í heimferð hjá Rakel þannig að mest var talað um skipulagningu á flutningum og kostnað við slíkt.
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2008 | 17:55
Rúv-klúður...
Arrrrrrrrrrggggggggggggggg.......
Loksins komst á hreint að Bikarúrslitaleikurinn yrði á netinu.. Mikil gleði hér á heimilinu og við vorum búin að koma okkur fyrir uppi í sófa með snakk og gos og búin að tengja tölvuna í flatskjáinn og tilheyrandi.... En svo.... Þegar kom að seinni hálfleik þá bara var hann ekki á netinu.. RÚV.. COMMON.... Hvernig er hægt að klúðra því að hafa seinni hálf leik með... Ég þurfti að fylgjast með vefútsendingu á mbl.is þar sem ég sat í sófanum og rífressaði á nokkurra sekúndna millibili og horfði á netið í sjónvarpinu og fékk þannig fregnir af gangi leiksins... En TAKK RÚV... fyrir að klúðra þessu... Þeir hafa reyndar verið í miklum vandræðum með vefsjónvarpið sitt en oft vantar framan á helstin í fréttunum eða er slitið aftan af útsendingu.. Ég man eftir Eddu verðlaununum einu sinni... " Og sigurvegarinn er..........." og svo var ekkert meir!!! Auk þess er mjög pirrandi þegar þeir setja svart fyrir auglýsingar þannig að það kemur dauður tími á skjánum, svartur og dauður, þá held ég nú að auglýsingarnar séu nú skárri.... Jæjja best að hætta að pirrast yfir þessu og fara að sætta sig við ósigurinn... Mér skilst að Brjánn hafi skorað mark.... Og snilldar uppsveifla hjá þeim í lokin sá ég á MBL.is....
Annars fórum við Valdi til Útlanda í morgun en við ákváðum að kíkja á nokkur sumarhús sem voru til sýnis hjá Bella Center í Danmörku en þar var svona sýningarsvæði með uppsettum sumarhúsum meðal annars frá EBK en ég hef séð þau hús í bæklingi og verið óskaplega hrifin af... Nei nei.. við erum ekki að fara að kaupa sumarhús... þetta var bara forvitni hjá okkur.. En húsin eru mjög flott og sjarmerandi. Svo duttum við örstutt inn í Fields sem er stærsta Moll í DK og er bara nokkuð spennandi að sjá. Við vorum reyndar bara að leita að salerni og munum fara aðra ferð til Útlanda til að kíkja á Fields seinna... Aðallega til að athuga hvort Danskir karlmenn séu eitthvað smekklegri í tauinu en þeir sænsku og kannski finnum við þá einhver föt á Valda sem er að verða nokkuð mikið fatalaus... Enda vaxinn "upp úr" ýmsu og göt komin á margar flíkur... Auk þess hefur ekki verið þvegið á þessu heimili lengi þar sem það þarf að panta þvottatíma og ég gleymdi þeim síðasta og það var ekkert laust fyrr en næsta mánudag.. ég held það hafi ekki verið þvegið þá í nærri 10 daga hér á heimilinu.. OJBARASTA....
Annars er Valdi bara fastur í próflestri og hefur verið duglegur að læra stærfræðiformúlur og fleira skemmtilegt... En það kom ljósapera á í hádeginu í dag og einhver skilningur í höfn þannig að hann tók sér smá pásu til að fara til DK og horfa á fyrri hálfleik.....
Nú ætla ég að fara að baka Sörur og fá mér rauðvínstár til að róa mig en ég er alveg arfavitlaus núna út af Rúv klúðrinu og auðvitað því að Fram tapaði og til að toppa skömmina þá var það fyrir Valsmönnum... En Brjánn bróðir er samt alltaf flottastur... Þeir vinna bara Íslandsmeistaratitilinn í staðinn (er hann ekki annars eftir?)
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2008 | 11:24
Hræðilegt..
Svona fyrirsagnir "45 létust í rútuslysi.... " koma á skjáinn annað slagið.. Yfirleitt eru þetta lönd langt í burtu og maður hugsar.. "hræðilegt" og svo les maður oft ekki meir.... en í þetta sinn staldraði ég lengi við því þetta kemur mér ekki á óvart þar sem ég var þarna á ferð fyrir ríflega mánuði.
Umferðarmenningin er hrikaleg og vegirnir oft vondir og mjóir. En á köflum var ekkert að vegunum en umferðarhraðinn er svakalegur og svo er bara flautað og vonað það besta. Við ókum fram hjá brattri beygju uppi í fjöllunum þar sem voru mörg minnismerki í vegkanntinum og þar hafði orðið slys skömmu áður og rúta farið niður í gil og 40 manns dóu. Þeir nota gamla bandaríska skólabíla sem rútur, bíla sem eru ekki nógu góðir fyrir USA en svo er lappað upp á þá í Gvatemala. Aksturslagið á bílstjórunum var þannig að það minnti mig á Gambíu en þeir sem óku verst skýldu sér á bakvið það að þeir höfðu "juju" sem er verndargripur sem verndar þá fyrir öllu... Eða öllu sem þú borgar fyrir, því stærra og dýrara því meiri vernd. Einn bílstjóri snéri sér við í sætinu meðan hann var að keyra og sýndi mér nýja "jujuið" og sagði þegar ég kvartaði undan ofsaakstri "it´s Ok I have a juju"... HJÁLP... En allavega þá sé ég aðstæður alveg fyrir mér þarna í Gvatemala og þetta er hræðilegt og líklega eru um 80 km í næsta sjúkrahús inn í Gvatemala City sem er næstum bara stutt miðað við aðrar mögulegar vegalengdir...
Í myndaalbúminu eru allavega tvær myndasyrpur þar sem ég hef myndað háfjallavegina og aðstæður sem voru ekki fyrir lofthrædda og þar sést líka í beygjuna þar sem fyrra slysið varð.
Kveðjur frá Malmö
ÁFRAM FRAM.
![]() |
45 létust í rútuslysi í Gvatemala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2008 | 21:16
Lærdómur og aftur lærdómur
Síðustu dagar hafa farið í lærdóm, próflestur og vistfræðiverkefni. Valdi er búinn í Policy áfanganum og er nú bara að læra undir próf. Þar með er áfanginn þó ekki búinn því hann er að fara í námsferð til Lettlands og Litháen í næstu viku í heila átta daga.. Ég dey... En þetta verður örugglega gaman hjá honum.
Við fórum í keðjusagarbúð í dag en Valdi þarf aðeins að skoða græjur og öryggisklæðnað áður en hann fer í verktakavinnuna heima í lok næsta mánaðar. Okkur sýnist reyndar vera sama verð og heima í þessum búðum en það er gaman að skoða þessar vörur. Keðjusagabuxurnar sem voru þarna eru svo liprar að það væri hægt að fara í ballett í þeim....
Við röltum aðeins um í Kirseberggarðinum í dag en það var komið myrkur. Ég taldi óhætt að rölta þarna um þar sem við vorum nú tvö á ferð og þarna eru ljósastaurar. Og það var ótrúlega mikil umferð af fólki í rökkrinu enda var veðrið óskaplega ljúft eftir tvo daga með roki og rigningu.
Um helgina eru Bikarúrslitin í handbolta en Brjánn "litli" bróðir er í vörninni hjá Fram. Ég gat ekki betur séð en að leikurinn væri ekki sýndur á netinu og ég var sko ekki sátt við það og hafði samband við Sport-Rúvara sem ég þekki... Ég veit ekki hvort það hafði einhver áhrif en mér sýnist núna að hægt verði að horfa á leikina á netinu á laugardaginn. Annars var þessi leikur alveg skelfilegur í fyrra þegar Ég, Valdi og öll börnin þrjú keyrðum í bæinn og borguðum formúgu í aðgang og þá skall Brjánn saman við Patta í byrjun leiksins og þeir slösuðust báðir og í sjónvarpinu var þessu líkt við sláturhús!!! Þetta var mjög skelfilegt.. Brjánn kom nánast ekkert inn á eftir þetta og svo voru slagsmál í hléinu... Og Fram tapaði með margra marka mun.. Þetta var klúður.... Ég vona allavega að leikurinn um helgina verði ekki jafn blóðugur og fari betur en sá í fyrra...
Bestu kveðjur frá Malmö ÁFRAM FRAM!!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2008 | 12:14
Skemmtileg helgi
Þrátt fyrir mikil vonbrigði að Dr. Gunni færi ekki út með Dr. Spok þá er ég alveg sátt við Friðrik Ómar og Regínu. Klæðnaður þeirra var talsvert betri en í fyrra skiptið. Ég held að málið sé eins og Bebba sagði í kommenti hér í síðustu færslu að það voru tvö skrýtin lög og þá deildust akvæðin á þau...
Ragnar og Hrafnhildur komu til okkar á sunnudagssíðdegi. Við fórum í smá verslunarleiðangur þar sem allt virðist mun ódýrara hérna en í Noregi. Síðan voru eldaðar pizzur og setið allt of lengi fram eftir nóttu... Ég held ég hafi verið svo langeygð eftir íslenskum gestum að ég talaði stanslaust á tvöföldum hraða allan tímann.. Yndislegt að fá svona góða gesti og vonandi koma þau aftur (ef þau þora)!!!!!
Gærdagurinn fór nú bara í leti og afslappelsi en dagurinn í dag verður tekinn með trukki. Mikil tölvuvinna framundan fyrir skólaverkefni, styrkumsókn, vistfræðiverkefnin og fleira og fleira... Það er alveg ferlegt hvað tíminn líður hratt en nú er svo komið að lítil kennsla er eftir í mosunum og aðallega mosagreining og undirbúningur fyrir stóra mosalokaverkefnið sem verður flutt í lok mars..
ATH: Nýtt myndaalbúm úr mosaferðinni í síðustu viku.
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2008 | 16:35
Evróvisionpælingar og hættuleg bókakaup
Nú er heil vika af "Multi Level politics" búin hjá Valda og hann telur það sé kraftaverk að hann sé á lífi eftir þessa viku enda var þetta ólöglega leiðinlegt. Það hljóta að vera einhverjir Evrópustaðlar fyrir leiðindi og þetta fór yfir mörkin... Hins vegar hefur hann verið flensulegur síðari hluta vikunnar og með hausverk sem gæti stafað af leiðindum. Enn er vika eftir af þesum kúrs en aðrar áherslur verða í næstu viku og vonandi skemmtilegri.
Ég skilaði ritgerðunum tveim útprentuðum til kennarans í KVL á föstudaginn. Báðar í tveim eintökum. Ég ætlaði að gorma þetta inn en það virðist vera mjög flókið mál að gorma inn í DK og SV en enginn vissi hvar það væri gert. Ég fór í skólabóksöluna sem sagði mér að kaupa gorm hjá þeim og labba svo nánast yfir hálfan bæinn og þar gæti ég komist í vél til að gata... Glætan... Svo ég keypti bara einhvert plast dót sem maður þræðir upp á blaðsíðuendana og virkar alveg eins vel og gormun.. Púff.. En þessi bóksala er alveg STÓRHÆTTULEG.. Þvílíkar bækur.. ÞVÍLÍKAR BÆKUR.. .Plöntufræði og aðallega dýrafræði enda er þetta náttúrulega Dýralæknaháskólinn.. Vá.. ég þurfti að beita mig mjög hörðu til að kaupa bara tvær bækur, eina um plöntuanatómíu sem er alveg stórkostleg og svo kilju um tilfinningalíf dýra eða svona pælingar um hvort dýr leiki sér eða stundi kynlíf sér til ánægju og yndisauka!!!!
Talandi um bókakaup þá missti ég mig á Amazon um daginn og keypti nokkrar Mosa og fléttu bækur.. Snilld.. Þær eru byrjaðar að berast og svo missti ég mig líka í skólanum í Mosatímanum þar sem kennarinn reyndi að selja mér Nordisk Lavflóra (Fléttuflóran) Síðasta bindið af þrem var að koma út.. JÚ AUÐVITAÐ KEYPTI ÉG ÞETTA ásamt sænskri Felthandbók fyrir fléttur. Ok ok.. ég veit ég þarf að fara í bókakaupameðferð
Í kvöld eru víst úrslitin í Evróvision undankeppninni heima á Fróni. Ég ákvað að setja mig inn í málin í snarhasti, hvaða lögum maður á að halda með og svoleiðis en Valdi ætlar að tengja tölvuna mína við flatskjáinn, Valda til mikillar ánægju eða þannig en hann þolir ekki þetta Evróvision rugl. Hann samdi hins vegar af sér í gær þegar hann sá Óttar Proppé flytja eitthvað lag og sagðist skyldi horfa á þetta með mér ef hann fengi að kjósa Dr Spokk eða Spúkk eða hvað hann kallar sig.... Jú jú það var nú lítið mál sérstaklega þar sem það er lagið hans Dr. Gunna og ég styð hann í einu og öllu enda gamall draumur hjá mér að senda Gunna í Evróvision.. Hehe..
Friðrik Ómar og Regína eru reyndar allaf flott en hver klúðraði búningunum þeirra og bakdansaranna? Friðrik Ómar er eins og hann sé í gömlum, of litlum jakkafötum af Páli Óskari og Regnína er í einhverjum eitíghs kjól sem gerði ekkert fyrir hana... Vonandi mæta þau í skárri fötum í kvöld.
Ragnheiður Gröndal alltaf sæt og syngur ljúft lag en bara ekki alveg rétti Evróvisionstíllinn (líklega er þetta hrós)...
Ekki líst mér nú á þetta Hahaha dú dú dú lag eða hvað sem það heitir.. Eitthvað hafa gaurarnir óverdósað á brúnkuspreyinu og stúlkukindin getur ekki sungið en það virðist vera aukaatriði þar sem bévítans lagið situr fast í hausnum á mér síðan í morgun og ég er ansi hrædd um að þetta gæti gengið vel í Evrópubúann.
Jæjja stuðkvöld framundan hjá mér allavega en Valdi ætlar að elda góða steik fyrir okkur og reyna að þrauka í gegnum útsendinguna. Á morgun koma svo Ragnar og Hrafnhildur í heimsókn en ég er alveg yfir mig spennt að fá loksins gesti enda frekar fátt um Íslendingana hérna megin Eyrarsundsins.
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.2.2008 | 22:30
Tvær ritgerðir í höfn
Nóg hefur verið að gera hjá Valda bæði í skólanum og svona almennt. Hann er að drukkna í kúrs núna "Forest and society: Processes, interactions, and policies. og í þessari viku eru þeir í Multi level politics and international forest regime. Wowww... hljómar ógeðslega skemmtilega eða þannig... Þetta er svona skógar hagfræði, stjórnmál og stefnur á alþjóðavísur... Ekki alveg uppáhaldið hjá Valda.. Hann er hins vegar búinn að læra mikiði um hvernig á að "plotta" chatta og skipuleggja og pæla á alþjóðlegum ráðstefnum... en lykilatriðið er að koma vel út hvíldur á svæðið og halda sér svo lengst vakandi um kvöldið... Gríðarlega mikil fræði þarna að baki......
Valdi er líka á fullu þessa dagana að skipuleggja mastersritgerðina og framhaldið á náminu og líka Íslandsferðina. Nóg að gera.
Ég fór í vettvangsferð í mosafræðinni í gær.. Ó ég var svo þreytt um morguninn að ég hélt ég myndi ekki hafa það í ferðina en sem betur fer þá tókst það.. Ég þoli svo illa þessar lestarferðir að ég bara sef ekki nóttina fyrir Köben ferð... En Mosaferðina var mjög skemmtileg. Þrír mosanördakennarar sem voru algjört æði, tveir svona í eldri kanntinum þvílíkir mosar sjálfir en ótrúlega fyndnir.. og svo Ulrik sem kenndi mér sveppina. Ég kom heldur seint heim aftur og fór snemma að sofa því ég var alveg úrvinda...
Á miðvikudagsmorgni vaknaði ég snemma og settist við skrifborðið því í dag klukkan þrjú átti ég að skila ritgerðunum tveim: Nicotiana og Litunarjurtirnar í Gvatemala.. Ég átti bara pjatt eftir en það pjatt var ótrúlega drjúgt en ég náði að skila um klukkan eitt. Snilld. þá er það búið og ég komin með prófrétt í Tropical botany, hins vegar er ekki séns að ég mæti í prófið á mánudaginn því það er of mikið að gera. Ég skil ekki af hverju próf úr Block II er í miðjunni á Block III þegar maður er byrjaður í öðrum fögum og verkefnaskilum. Enda held ég að stór hluti bekkjarins hafi það ekki í prófið og ég hugsa að einhverjir hafi ekki náð prófrétti... Upptökupróf er í byrjun apríl sem hentar mér óskaplega vel því þetta er skemmtilegt fag og ég vil lesa vel undir prófið.
Þegar Valdi kom heim fórum við í stuttan göngutúr niður í bæ og enduðum með að fá okkur að borða. Ég er núna á kafi í vistfræðiverkefnunum enda skilafrestur á morgun á verkefni 5 fyrir mig og verkefni 6 fyriri krakkana..
Valdi hefur náð að hjóla um án þess að kless á einhvern eða eitthvað.. Hann hefur komsti að því að það eru 3,3 km í sænskutímana sína. Já Rakel ég held að hjálmur sé góð hugmynd enda eruð þið að hjóla á sömu slóðum.. iiiiiiiiiiii
Annars endaði kvöldið á sjónvarpsglápi en ég datt niður í þátt um íshótel sem kom í ljós að var sama íshótel og hún Lilja Filipusar var að "vinna" við í einhverja daga um daginn.. Þetta er einhvers staðar lengst í Norður Svíþjóð og sýndi undirbúninginn við opnunina/bygginguna á hótelinu sem er í kappi við tímann og hitastigið.. Þetta var svo dramatískt að það lá við að maður felldi tár þegar það tókst að opna hótelið á réttum tíma.. HALELÚJA... http://www.icehotel.com/
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar