Saga af Kát Siggason

Jæjja páskahelgin var róleg en góð. Hér hefur verið snjór og slydda alla daga en í dag skaust hitinn upp í 3 stig og snjórinn hvarf en skömmu síðar var komið frost og snjókoma.. Trén eru samt að bruma alveg í gríð og erg svo vorið hlýtur að koma í næstu viku..

Ég fékk bréf frá Jóni Bónda í Ölvisholti sem er að passa hann Kát fyrir okkur.. Kátur er alveg snillingur í að koma sér í hinar undarlegustu aðstæður enda er hann svolítill heigull en hann óttast ketti óskaplega mikið. Á bænum er köttur sem heitir Brandur og hann ræður ríkjum í gróðurhúsinu en Kátur í þvottahúsinu.. Einn daginn hafði Brandur komið sér fyrir í þvottahúsinu í því sem Kátur kemur hlaupandi inn í hádegismat og fer að bryðja hundakexið sitt.. Brandur fer að þefa af afturendanum á honum af miklum áhuga en Kátur tekur ekki eftir neinu.  Jón Bóndi fylgist með spenntur hvað muni gerast... Loksins tekur Kátur eftir Brandi sem situr makindalega fyrir aftan hann og Kátur frýs alveg... Eina hljóðið sem heyrist er þegar hundamaturinn dettur út um munninn á Káti...... Ég sé alveg svipinn á Káti, frosnum af hræðslu við köttinn.. Greyið hann verður svo aumingjalegur.. Loksins sprakk Jón bóndi úr hlátri og rak köttinn út úr þvottahúsinu svo Kátur gæti haldið áfram að borða... Æi litla krúttið.. hann er svo mikil skræfa..  Jón lýsti þessu svo stórkostlega að ég ætlaði aldrei að hætta að hlægja enda sé ég alveg svipinn á Káti fyrir mér...

Ritgerðin gengur vel en ég er komin í 8 bls en nú fer ég að verða hrædd við tímann.. tikk, tikk, tikk.. ég á að skila þessu á fimmtudaginn..

Í dag var spurningakeppni Fjölmiðlanna, úrslitalotan. Stöð 2 vann snilldarlega enda hafði Oddur greinilega lagt á sig að læra allt lotukerfið utan að sem reddaði mörgum stigum.. En þau stóðu sig vel og það var frábært að hlusta á þetta. Sumar spurningarnar svolítið miserfiðar og undarlegar en jæjja þetta er til gamans gert.. En ég var hundfúl að fá ekki fleiri grasafræðispurningar.. Ævar Örn er alltaf með þessa fugla aftur á bak og áfram.. bí bí bí bí....  Ég ákvað að taka til í eldhúsinu og setja hátalara á tölvuna og hlusta en keppnin var ekki nærri búin þegar ég var búin að vaska upp svo ég bakaði bara köku á meðan.. Hver á að borða hana veit ég ekki..

Vaggi og Lilja eru í heimsókn núna, snilld að fá félagsskap. Lilja er að byrja í skólanum á morgun en þau voru að koma úr skíðaferð til Ítalíu.. Næs.. Ég eldaði pizzu handa þeim en ég held þau torgi ekki kökunni líka.. þau eru á meltunni fyrir framan sjónvarpið núna...

Annars er búið að vera óttalega næs að vera ein yfir páskana.. ég er alveg komin með rútinu að vakna frekar snemma og læra og fara svo út að ganga/hlaupa síðdegis.  Það var reyndar nánast slagveður áðan þegar ég fór út í garðinn en ég hafði það af að hlaupa og labba 4 hringi (5 km).. Snilld.. Ég finn alltaf minna og minna til í sköflunginum eftir að ég byrjaði að nota legghlífar.

Valdi og Benni eru bara að hamast í grisjuninni, þetta gengur hægt og hratt til skiptis, aðallega hægt. Ég talaði við Valda áðan og þá voru þeir að kokka sér hamborgara.. Í gær tóku þeir stuttan dag og horfðu á einhverja fótobltaleiki en Liverpool gekk illa skilst mér og var það mikil sorg..

Bestu kveðjur frá Malmö


Frost og snjókoma..

Í gærkvöldi þá ákvað digital sjónvarpið allt í einu að vera með í tilverunni og það small í gang akkúrat þegar Midsummer murder var að byrja en ég elska þá þætti svo það varð lítið úr ritgerðarvinnu í gærkvöldi en þátturinn var alveg fantagóður..

Ég var svo mætt niður í Sopstationen klukkan tíu í morgun en ég ætlaði að vera á undan umferðinni og kíkja aðeins á varninginn.. En viti menn það var lokað þarna, frekar spælandi.. Ég hélt þá upp í Burlov center og var nú aðallega bara að dóla mér. Ég skoðaði í stóra búsáhaldabúð sem heitir Cervera og þar fann ég fallegustu grillhnífapör sem ég hef séð... En 12 hnífar og 12 gafflar kostuðu heilar 38.000 íslenskar krónur... Dó.... Ég held ég notist bara áfram við hnífapörin sem ég keypti í Essó skálanum sl. sumar.. fyir 1200 kr.. Hins vegar fann ég hnífasett á viðráðanlegu verði en ég bíð eftir Valda til að skoða það nánar. Ég fór síðan í H&M og verslaði tvær blússur og eina kápu og eitt pils en þaðan fór ég í Zizzí og keypti léttan sumarjakka...  Ég veit ekki alveg hvort ég er að versla af leiðindum einum saman eða hvort mig vantar þetta.. Jú jú.. ég er alltaf fatalaus..

Þega heim kom þá lagðist ég í ritgerðarsmíði en þetta gengur hægt hjá mér. Ég er komin í 2 bls en efnið er mun flóknara en ég hélt. Svo var þvottatími og ég ætlaði út að labba meðan þvottavélin væri að klára sig en það er frost, rok og snjókoma svo ég bara hætti við.. Það var of hráslagalegt veður og ég hélt ég yrði úti á leiðinni í þvottahúsið..

Valdi og Benni eru búnir að vera duglegir en verkið gengur samt mjög hægt. Þetta er mun meiri keðjusagavinna heldur en kjarrsagavinna og tekur mun meiri tíma og orku.. Annars held ég að þeir hafi það bara fínt félagarnir heima hjá Sidda í Borgarnesinu. Þegar ég talaði við Valda áðan þá voru þeir að panta pizzu... Á morgun ætla þeir að hafa stuttan dag í vinnu og horfa á einhverja fótboltaleiki í sjónvarpinu... Ok.. það er páskasunnudagur...

Páskarnir verða bara rólegir hjá mér og ég geri bara ráð fyrir upphituðum pizzum í páskamatinn.. Ég ætla að vera dugleg að skrifa ritgerðina og fara svo út að labba.. Þó mér leiðist án Valda og sakni hans þá er nú lúmskt næs að vera svona einn, aleinn í tilverunni og slaka vel á... En það er hálfur mánuður í að Valdi komi til baka..

Páskakveðjur frá Malmö


Róóóóóóóólegheit...

Ó það er svo rólegt hjá mér þessa dagana... Svooooooooooo rólegt.. 

Að vissu marki er það ágætt en í raun verður þetta svona í þrjár vikur.... Það eina sem brýtur það upp er vettvangsferð eftir viku í  mosafræðinni.... Það sem heldur í mér lífinu núna er að ég er nettengd og 7,9,13 verð það vonandi áfram... Ég kláraði að yfirfara vistfræðiverkefnin í gærkvöldi.. Hélt ég yrði búin fyrir kvöldmat en svo þegar ég kláraði þá var klukkan 22.00 svo það var síðbúinn kvöldverður hjá mér í gær... Nú er ég því byrjuð að grúska í ritgerðinni og það er komið eitt orð á blað: INNGANGUR.... Það er ágætis byrjun er það ekki....? 

Rakel og Bolli komu í heimsókn og skiluðu af sér fjallagrasavíninu sem Bolli keypti handa mér í Fríhöfninni en þar sem fyrirlesturinn minn og lokaverkefni í mosa og fléttufræðinni endaði sem skemmtiatriði á kvöldvökunni í vettvangsferðinni þá ákvað ég að reyna að poppa þetta aðeins upp og bjóða upp á fjallagrasavínið helst undir kaflanum um íslensku fjallagrösin, Cetraria Islandica... Það getur ekki klikkað að múta kennurum og nemendum með áfengi er það..? hehe.. 

Það var gaman að hitta Bolla og Rakel en þau halda af landi brott á sunnudaginn for gúdd...

Í dag og í gær þá hef ég hlustað á spurningakeppni fjölmiðlanna á Rás 2 sem hann Ævar Örn er með... þetta er hin mesta skemtun fyrir mig þar sem ég þekki nú enn slatta af liði í þessum bransa.. En mér til mikillar ánægju þá bauð Ævar Örn upp á grasafræðispurningar og ég vissi svarið við öllum nema þegar spurt var um Hlaðkolluna, nöktu systur Baldursbrárinnar held ég að hann hafi kallað hana... Ég hef ekki heyrt þessa lýsingu áður. En allavega þá er ég sjokkeruð yfir grasafræðifáfræði fjölmiðlafólks en ég held að einungis tveim grasaspurningum af sex hafi verið svarað rétt...  En allavega þá komst Stöð 2 áfram með Odd og Láru Ómars og líka Fréttastofa Útvarps en ég ætla að halda með þessum tveim liðum.. Næstu undanúrslit eru held ég á páskasunnudag...  

Valdi og Benni eru að puðast í grisjuninni í Skorradalnum. Eitthvað kom þeim á óvart í hve litlu formi þeir voru en þeir kláruðu snemma í gær og voru eitthvað þreyttir og aumir svo þeir skelltu sér bara í sund í heitapottinn í Borgarnesi... Næs... enda er Sundlaugin í Borgarnesi með bestu potta á landinu og fína inni- og útiaðstöðu, gufubað og fínan tækjasal.. Hrein snilld...

Ég fór í minn daglega göngutúr í Kirseberggarðinn og það var mígandi rigning og hálfgert slagveður... Ég reyni að labba alltaf fjóra hringi og ég var næstum búin að gefast upp og labba heim eftir fyrsta hring og annan hring og þriðja en ég hafði þetta af... Þetta var mjög hressandi.. enginn á ferðinni þar sem þetta telst líklega mjög vont veður hér í Malmö.. Hið undarlega gerðist að skrefamælirinn minn ákvað að poppa aftur í gang en hann hafði verið bilaður í smá tíma auk þess sem ég missti hann ofan í vaskinn þegar ég var að þvo peysu af Valda!!!! Ég hélt hann væri endanlega dauður þá en viti menn ég ákvað að prófa hann áðan og hann svínvirkar... Ég labbaði heil 5267 skref, 4,89 km og brenndi 329 hitaeiningum á þessum 53 mínútum og 38 sekúndum sem ég var að labba....

Jæjja það er ótrúlegt hvað ég get rövlað miðað við að það er ekkert að gerast hjá mér..

Bestu páskakveðjur frá Malmö


Snjókoma og sjónvarpsleysi

Hér bara snjóar og snjóar.. Það er hvít jörð og þriggja stiga hiti, ósköp milt og jólalegt.

Valdi er kominn í Borgarfjörðinn. Hann og Benni gista hjá Sidda vini hans Benna í Borgarnesi en í gær voru þeir að stússast í bænum þar sem Valdi þurfti að gerast aftur Íslendingur eins og hann segir til að geta unnið verkið í Skorradalnum. Þeir sóttu líka græjur sem þeir voru að fjárfesta í fyrir verkið en Valdi keypti sér kjarrsög (ekki það að ég hafi hugmynd um hvernig slíkt lítur út)... Planið var svo að byrja að grisja í dag og vera duglegir yfir páskana.

Í gær ákvað ég að fara í búð og kaupa einhvern mat fyrir hátíðirnar. Ég ákvað meira að segja að fara á bílnum hér upp í næstu götu því ég nennti ekki að bera allt dótið heim... Ég hamstraði allskonar mat og keypti í pizzur ef einhver skyldi koma í heimsókn....  Svo kom í ljós að Coop búðin lokar bara ekkert yfir páskana, meira að segja opin á páskasunnudaginn svo hömstrunin var alger óþarfi en nú sit ég uppi með mikið magn af mat..

Í gær hurfu Digital sjónvarpsrásirnar.. Ég veit ekki hvað er vandamálið en þetta er bara týpískt Telía.. Mér gæti ekki staðið meira á sama þar sem ég hef enn opnu stöðvarnar sem eru 18 og ættu nú alveg að duga manni fram yfir páska...  Á meðan netið hangir inni þá er ég hamingjusöm.

Í gær var ég að klára að vinna Ellenberger-gildin fyrir hópverkefnið "mitt" sem er ekki mitt hópverkefni lengur... Ég held ég hafi samið ansi illa af mér þegar ég bauðst til að halda fyrirlestur um litun á ull úr fléttum og skófum í stað þess að vera með í hópverkefninu.... Ég slapp nefnilega ekki við minn hluta af hópverkefninu en þarf að gera aukalega fylrlestur og ritgerð.. Dö.... En þetta er óskaplega skemmtilegt ritgerðarefni og ég fékk heimildir hjá kennaranum og svo komu loksins bækurnar sem ég pantaði á Amazon í gær en tvær þeirra eru um litun úr fléttum og skófum. Þannig að ég er með fullt af fínum heimildum... Ég er líka búin að biðja Bolla hennar Rakelar að kaupa fjallagrasavín og fjallagrasahálstöflur í fríhöfninni heima og ég ætla að bjóða upp á það meðan ég held fyrirlesturinn...

Í dag ætla ég að klára að fara yfir vistfræðiverkefni númer 7 og byrja svo á sjálfri ritgerðinni. Einu pásurnar verða til að labba í Kirseberggarðinum og til að hlusta á spurningakeppni Fjölmiðlanna sem er á dagskrá Rúv kl. 13.00 (14.00 í Svíþjóð) en að sjálfsögðu held ég með Stöð 2 og Bylgjunni.

Bestu kveðjur frá Svíþjóð


Páskahret...

Ætli þetta sé ekki páskahretið sem kom í gær hér í Svíþjóð.. Það var bara stórhríð og stormur og í dag er fallegur jólasnjór (páskasnjór) yfir öllu.. Mikið var ég fegin að veðrið var ekki á ferð degi fyrr þegar Gerður og Þórunn voru hér.

Nú er Valdi farinn til Íslands í þrjár vikur.. Ég get svo svarið það að ég held ég muni veslast upp og deyja hérna án hans.  Formlegri tímasókn er lokið í skólanum hjá mér en síðasta kennslustundin var í dag þannig að núna er ég bara heima að vinna ritgerð og að læra undir próf.  ALEIN...  En ég ætla bara að vera dugleg að prjóna, labba og læra þessa daga..  Vaggi og Lilja koma um páskana til baka frá Ítalíu svo kannski fæ ég félagsskap þar en Rakel er hins vegar að flytja heim um svipað leiti..

Valdi er að vinna grisjunarverk í Skorradal með Benna næstu vikur.

Krónan hefur verið í frjálsu falli síðustu daga og ég kíkti á gengið áðan.. shittur... fyrir stuttu síðan þá vorum við að borga 63.000 á mánuði í leigu en núna erum við að borga 90.300 í leigu á mánuði... VÁ.. það munar um minna... Sænska krónan var eitthvað um 9 krónur minnir mig þegar við fluttum hingað en er í dag 12.9 kr... 

Bestu kveðjur úr snjónum í Svíþjóð


Frænknar frænkur í Malmö

Þessi helgi hefur verið mjög skemmtileg. Gerður systir og Þórunn frænka voru í heimsókn en þær eru núna komnar út á Kastrup og eru á leiðinni heim.

Laugardaginn byrjuðum við í Sopstationen sem er svona eins og Góði hirðirinn á Íslandi. Það fór nú ekki betur en svo að Gerður fílaði þetta í tætlur og missti sig alveg og keypti heilan skáp!!! Ó já... Fyrir reyndar bara 4000 kr ísl. en við Valdi þurfum að sækja hann á mánudaginn og koma honum heim og finna svo út úr því hvernig við sendum hann til Íslands.. Djísus...  Síðan fórum við niður í miðbæ og röltum þar um í rólegheitum og skoðuðum td. yndislega skartgripabúð þar sem við keyptum allar eitthvað glingur enda var útsala þar. Við rákumst á Finn og Áslaugu Thorlacius á Litla torginu sem var fyndin tilviljun.. Eftir miðbæjarrölt þá fórum við upp í Lund en mestur tíminn þar fór í að leita að veitingastað við allra hæfi en síðan var bara strollað um og farið í Dómkirkjuna.

Um kvöldið elduðum við lasagnja og Gerður var látin choppa í waldorfsalat en við fengum okkur margarítur í fordrykk sem voru ansi góðar. Melodífestivalen var á dagskrá en það var úrslitakvöldið í Sænsku Evróvision forkeppninni. Eftir að hafa horft á öll lögin sem voru eiginlega alveg skelfileg þá var niðurstaðan að halda með Charlottu Perelli sem vann Evróvision á sínum tíma þegar Selma var í öðru sæti. Hún er með lag sem heitir Hero og er alveg eftir formúlunni. Hún syngur þetta í súper þröngum og þéttum kjól sem er jafn efnismikill og sundbolur og svo eru tvær ljóshærðar blondínur í svipað efnislitlum kjólum fyrir aftan.. Niðurstaðan = Þrjár ljóskur í sundbol með stór brjóst.. sem dilla sér á sviðinu og syngja grípandi lag.. Ég er hrædd um að aðrar þjóðir eigi ekki séns... Sorry.. Regína og Friðrik en þetta er bara búið spil..

Á sunnudeginum eftir nýmalað Gvatemalakaffi og morgunverð þá var haldið upp í Wallakra krukkugerðina sem ég er svo svakalega hrifin af.  Ég er reyndar búin að bóka mig á námskeið hjá Wallakra í byrjun apríl í fjórar klst. að læra að renna krukkur.. Vá ég er ekkert smá spennt. En allavega þá dró ég Þórunni og Gerði nauðugar viljugar að sjá krukkugerðina. Gerður féll fyrir þessu og keypti eina reyndar 50 ára gamla krukku sem var svakalega flott og ég var eiginlega græn af öfund yfir... Ég keypti sjálf tvo skrautmuni og annar var enn volgur úr ofninum, í alvöru. Við löbbuðum aðeins um í skóginum fyrir utan en drifum okkur svo niður í Malmö til að skoða Bryggjuhverfið sem er mjög sjarmerandi nýtt blokkarhverfi við bryggjuna. Þar eru kaffihús og fljótandi íbúðir og gríðarlega mikið mannlíf. Skrýtið að hugsa til þess að þarna býr fólk á jarðhæð þar sem er stríður straumur fólks framhjá á góðviðrisdögum og um helgar. Ekkert prívací og við horfðum bara beint inn í stofu hjá fólki... En bryggjuhverfið er sjarmerandi í nýtísku stíl.

Síðan fórum við í Íþróttaoutletbúðina og þaðan í Burlov Center í leit að Expresso house og þar fengum við ágætis kaffi. Eftir það var haldið heim til að pakka og út á lestarstöð...

Þessi helgi var alveg einstaklega skemmtileg og ég vona að Gerður og Þórunn hafi haft gaman af Svíþjóðardvölinni.. Valdi var alveg einstaklega þolinmóður að keyra okkur út um allt og bera pokana okkar fram og til baka..  Ég held þetta hljóti að vera martröð hvers karlmanns að sitja uppi með eiginkonuna, systur og frænku að drekka margarítur og versla.. Ó my god..

NÝTT ALBÚM MEÐ ÞESSARI FÆRSLU

Kveðjur frá Malmö


Þórunn og Gerður í heimsókn

Valdi fór í skólann í dag til að flytja verkefnið sitt úr ferðinni. Það gekk ljómandi vel hjá honum. Hann kom svo heim og lagði sig.

Ég fór í mosatímann í morgun klukkan níu.. var ekki alveg í stuði enda var von á Gerði og Þórunni klukkan tólf.. Ég var frekar spennt.. Mosatíminn var ágætur.. Ég náði snilldarlega að losa mig út úr ofboðslega leiðinlegu sex manna hópverkefni á dönsku með því að bjóðast til að flytja fyrirlestur um litun úr fléttum og skófum á kvöldvökunni í vettvangsferðinni, reyndar fylgir 15 bls ritgerð með.. en það er í lagi.. Ég get unnið þetta ein og á ensku.. Snilld.. Kennarinn féll fyrir þessu enda var hinn möguleikinn sá að hann myndi semja þennan fyrirlestur sjálfur sem ég held hann hafi ekki haft áhuga á... En litun með fléttum og skófum er eitthvað sem ég hef áhuga á...

Klukkan 12 þá sótti ég Gerði og Þórunni út á völl. Við strolluðum svo upp og niður Strikið eða reyndar aðallega nærliggjandi götur og forðuðumst helst Strikið, alveg til sex þegar við fórum svo til Malmö. Við getðum pizzur og sátum og spjölluðum en gestirnir voru úrvinda af þreytu enda höfðu þær tekið rútuna út á Keflavík klukkan fimm í morgun...

Frábært að fá þær í heimsókn en á morgun bíður okkur langur túristadagur að skoða Malmö..

Bestu kveðjur frá Malmö


Netleysi enn og aftur

Ég get svo svarið það.. Daginn eftir að netið kom aftur á þá hvarf það aftur.. Ég byrjaði að hringja í þjónustunúmerið og segja þeim að þeir hefðu klúðrað þessu aftur en þeir voru bara ekki að ná þessu og heimtuðu að ég myndi ganga í gegnum allt ferlið aftur, slökkva á módeminu og kveikja, taka úr sambandi og kveikja 20 mín síðar, fara niður í Telía og sækja nýtt módem og prófa.. bla bla bla.. Ég sagði þeim að það væri EKKERT að módeminu þeir hefðu bara klúðrað þessu aftur... Svo gerist það oft að þeir taka niður gemmsa númerið og lofa að hringja eða lofa að hafa upp á tæknimanninum eða lofa einhverju og EKKERT GERIST.. Í hvert einasta sinn sem ég hringi þá er eins og maður sé að byrja upp á nýtt á ferlinu... Devil  En góði tæknimaðurinn sem reddaði þessu síðast rak augun í addressuna á verklistanum og kaus sjálfur að ganga í málið þar sem han þekkti það... Ég var samt búin að biðja oft um að hann yrði sérstaklega sendur því þetta var flókið mál og tók hann nokkra tíma að finna út úr þessu og best væri því að halda honun í þessu en nei... það var bara tilviljun að hann sá þetta.. En allavega þá hringdi hann um hádegið og kippti þessu í lag. SNILLD.. Ég náði að hafa upp úr honum nafn og gsm númer þannig að ef/þegar þetta bilar aftur þá á ég að senda honum sms.. Snilld...  Þannig að nú er alveg hvínandi netsamband og allar Digital stöðvarnar mættar á svæðið líka..

Valdi kom heim í gær frá Lettlandi og Litháen. Yndislegt að fá kallinn heim aftur.. Hann keypti handa mér tvö staup (æi ég veit hvað það er hallærislegt en ég byrjaði að safna þeim óvart.. ég sver það... ) og mjög fallegan hring. Ég hafði hins vegar keypt handa honum bókina Tré í Malmö en það er bók um gömul og tíguleg tré hér í Malmö. Við ætlum að reyna að skoða eitthvað af þeim áður en við förum. Þegar að heim var komið þá fórum við í labbitúr í Kirseberg garðinum. Við tókum með okkur gamalt brauð sem við gáfum öndunum. Það var virkilega gaman. Ég hef ekki gefið öndunum brauð síðan í gamla daga niðri við Reykjavíkurtjörn....

Takk fyrir öll sörukommentin. Það eru enn nokkrar sörur eftir sem bíða hand Gerði og Þórunni sem koma um helgina. Vá hvað það verður gaman að fá þær í heimsókn.. Get ekki beðið..  Ég mun svo leggja út í gríðarlegan Sörubakstur fyrir næstu jól og þá verða bara allir söruaðdáendurnir að koma í heimsókn til að smakka..

Já Anna Lóa.. Mikið væri nú gaman að vinna á Nautastöðinni. Það hefur verið gamall draumur hjá mér síðan ég flutti á Hvanneyri að leysa Sveinbjörn af í sæðistökunni. Ég held þetta starf myndi henta mér vel þar sem ég er mjög nákvæm og skipulögð í vinnubrögðum og hef dýrahjúkkumenntunina. En ég er ansi hrædd um að Sveinbjörn sé að leita að nautahirði en ekki til að leysa sig af.. Og það starf hentar mér ekki.. En ég veit samt ekki.. kannski er það hans starf.. Kemur í ljós..

Jæjja best kveðjur frá Malmö 


Netsamband komið á..

Ég var vakin klukkan 7.30 í morgun af Teila tæknikalli...  En ég var allavega glöð að einhver var að vinna í netleysis-málinu. Niðurstaðan var að María Jeppesen á neðri hæðinni hafði verið að fá sér Internet og nefndi af einhverjum ástæðum íbúðarnúmerið okkar 241 sem endaði þannig að gáfnaljósin hjá Telía fluttu tenginguna okkar yfir á hana.. Hún var voða glöð að þurfa ekki að bíða í 3 vikur.. Dö.... Það tók þá um 3 klst. að finna út úr þessu. Að lokum vorum við tengd aftur með mun minni hraða en við vorum að borga fyrir en sem betur fer var tæknimaðurinn vakandi og náði að laga það.  Púff.. ég er ósköp fegin að netið er komið á.. Það er vont að læra án þess að hafa netorðabækurnar og geta googlað allt og ekkert... Ég tala nú ekki um Skyp en ég hef ekki heyrt í systrum mínum síðan í síðustu viku en Gerður er að fá íbúðina sína afhenta í kvöld.. Snilld..

Valdi er enn úti í Lettlandi. Hann fór í þjóðgarð í dag sem heitir Gauja, þar sáu þau Daphne Mezereum í blóma en það er runni sem blómstrar fjólubláu, svo fóru þau í rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins og svo upp á hótel en þau gista rétt fyrir utan háskólabæinn Jelgava. Á morgun heimsækja þau landbúnaðarráðuneytið og skoða Ríga betur og svo heim á miðvikudag..

Helgin var róleg hjá mér en ég nennti ekki til Köben að hitta Íslendingana.  Aldurinn hlýtur að vera farinn að segja til sín þegar ég vil frekar vera heima að prjóna en að fara á Íslendingaskrall í Köben... Ég stússaðist aðeins í mosaverkefninu mínu og undirbjó vistfræðiverkefnin fyrir næstu önn. Ég fór út að trimma laugardag og mánudag en ég held svei mér þá að legghlífarnar sem Hrafnhildur Baldurs sagði mér að kaupa út af beinhimnubólgunni minni séu að virka.. Síðast þegar ég keypti legghlífar þá voru þær neon og það var líklega í kringum ´85!!!! En þessar eru nú bara svartar og eru undir íþróttabuxunum en þær virðast vera að gera gagn og ég gat hlaupið í dag án teljandi sársauka.. Snilld.

Í dag var 10 stiga hiti og yndislegt vorveður, mannlífið í Kirseberggarðinum var mikið, hundar og menn á flakki og börn úti um allt. Mikið á ég eftir að sakna garðsins þegar ég kem heim.

Rakel kom svo í heimsókn síðdegis með póst handa okkur og við fengum okkur kaffi og sörur.. Skrambi geri ég góðar sörur en ég missti mig og fékk mér tvær en þær eiga ekki að vera á mínum matseðli þessa dagana Blush. Flutningar voru enn og aftur aðalumræðuefnið...

Bestu kveðjur frá Malmö


Á ferð um Litháen og Lettland

Sæl verið þið

Ég (Valdi) er núna í námsferð um Litháen og Lettland og er nú staddur í litlum bæ í Lettlandi sem ég man ekki hvað heitir en hann er í nágrenni við Landbúnaðarháskólann,  við heimsækjum hann á morgun.

Ferðin er búinn að vera áhugaverð við erum búinn að vera suma daga á löngum fyrirlestrum um skógrækt og skógræktarstefnu Litháa en við erum líka búin að túristast helling og skoða margt og mikið.  Við skoðuðum borgina Kaunas í snjókomu í fyrradag.  Kaunas er næst stærsta borgin í Litháen með 385000 íbúa.  Allsstaðar þar sem maður er á ferðinni í Litháen er mikil uppbygging allsstaðar er verið að byggja bæði íbúðarhús verslanir og vegi. En það er samt mikið um ljótar blokkir frá sovéttímanum.  Við erum búin að fara aðeins út í skóg en í gær skoðuðum við skógarsvæði sem hafði verið sérstaklega friðað vegna þess að þarna var náttúrulegur eikarskógur. Það var búið að leggja hjólastólafæran göngustíg í skóginum og meðfram stígnum voru höggmyndir úr eyk (myndir koma seinna).  Síðan lá leiðin á stað þar sem eru jökulruðningar og á þessu svæði hafa fundist mannvistarleifar frá steinöld.  Í dag skoðuðum við svo höfuðborg Litháen Vilnius, fyrst með gæd og síðan á eigin vegum.  Það er mjög gaman að skoða gamla bæinn í Vilnius.  Ég fór upp í kastala sem er þarna í gamla hlutanum. Kastalinn stendur á hæð þannig að þegar maður er kominn upp í hann þá sér maður yfir alla borgina en það er merkilegt að sjá þessa borg svona ofan frá.  þarna blandast saman byggingastílar frá hinum ýmsu tímum og glænýjar glerhallir standa við hliðina á gömlum hjöllum, svo að eitthvað sé nefnt.  Klukkan 3 í dag var svo haldið af stað til Lettlands þar sem við erum nú.  Helsta breytingin sem ég hef orðið var við er að vegirnir hér eru mun verri en í Litháen.  Þetta varð maður strax var við þegar komið var yfir landamærin einnig er götulýsingin hér mjög lítil.

Ég ætla að láta þetta gott heita í bili ég set myndir inn þegar ég kem til Svíþjóðar aftur og þá verður ferðinni gerð betri skil.

Bestu kveðjur frá Lettlandi

Valdi

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 294952

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband