19.4.2008 | 10:31
Rólegir Malmödagar..
Síðustu dagar hafa verið ljúfir og rólegir hér á í Malmö. Valdi hefur verið á fullu í próflestri en prófið var í gær og gekk vel og fjallaði um notkun lauftrjáa í skógrækt. Valdi fór líka í eina vettvangsferð til að skoða beyki- og eikarskógrækt en til þess þurftu þau að fara alla leið til Blekinge á svæði sem er rétt hjá Karlskrona en þar var höfuðvígi sænska flotans hér á árum áður og þess vegna er mikið um eik þar í kring en eikina notuðu Svíar í skipasmíðar.
Ég hef verið með nefið niðri í tölvunni alla vikuna en ég hef verið að fara yfir vistfræðiverkefni og vinna í greinasafninu hans Áskels. Þessi tölvuvinna er alveg botnlaus hít en mér finnst þetta mjög gaman, ég elska að fara yfir vistfræðiverkefnin og svara tölvupóstum nemenda en nú eru auðvitað öll samskipti á netinu. Greinasafnið hefur mig klæjað í puttana að komast í í allan vetur en ég kom með mikið af verkefnum út með mér en hef ekki komsti í þetta sem skyldi vegna tölvuvandræða og anna í skólanum. Ég er líka að missa mig í þessu pottery tímabili mínu en ég er núna skráð á tvö dagsnámskeið hjá Wallakra og eitt 6 vikna námskeið hjá Folketsuniversitet og ég er að reyna að komast á "Intensive throwing" sem er dags pottery námskeið hjá Folketsunisversity þar sem maður borgar extra fyrir ótakmarkaðan leir og bara hamast og hamast og þarf ekkert að spá í leirinn, ef maður klúðrar þá bara tekur maður næstu klessu.... STUÐ.... Ég hef líka verið að kaupa pottery bækur á Amazon.. Stórhættulegt... Já þetta tímabil hlýtur að líða hjá...
Í gær fórum við Valdi í langan "heilsubótargöngutúr" við förum yfirleitt út í Kirseberggarðinn en ákváðum að taka röltið niður í bæ í staðinn.... Ég gerði mér hins vegar grein fyrir að við höfðum misst stjórn á "heilsubótarpartinum" þegar ég sat á Jensens buffhús og horfði ofan í súkkulaðibúðing... Ummmmmm ..... Röltið var hins vegar næs og mér reiknast til að við höfum þó labbað 8 km en við löbbum yfirleitt 5 km í Kirseberggarðinum... Það hefur lengi staðið til að prófa Jensens buffhús en ég hafði komið þarna áður með Rakel en Valdi ekki... Þetta var stórfínn matur en staðurinn var pakkaður og biðröð út úr dyrum klukkan sex..
Hér stefnir í rólega helgi með göngutúrum, lærdómi og tölvuvinnu...
(TVÖ STUTT ALBÚM FYLGJA ÞESSARI FÆRSLU)
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 18:15
The train will be terminated....
Vorið um þitt vætlar nef
Valdi þá er glaður,
um lágnættið þig lítið tef,
laginn skógarmaður (námsins maður).
Þessa fínu vísu fengum við frá honum Þórhalli frá Grímarsstöðum í athugasemd við myndina þar sem Valdi er að lykta af kirsuberjatrjánum... Gaman að fá svona fína vísu úr Borgarfirðinum.. Bestu þakkir Þórhallur..
Annars er allt fínt að frétta af okkur. Ég kláraði SÍÐASTA prófið mitt EVER.. hér í Köben... Vá þvílíkur léttir.. Þetta var í Tropical Botany sem eru 15 ECT einingar 7,5 íslenskar svo þessi kúrs var svolítið feitur og í stuttu máli þá gekk mér vægt til orða tekið mjög vel en ég fékk 12 í kúrsinum.. Sem er það hæsta sem er gefið.. (á mannamáli þá var ég með 10)... Hlynur Gauti tók prófið á eftir mér og fékk 10. Við vorum algerlega himinlifandi með árangurinn... Þungu fargi af manni létt.. Þetta var munnlegt próf þar sem maður flutti fyrirlestur og dró svo um tegundir til að svara spurningum um.. Ég fékk ekki einu sinni uppáhalds tegundirnar mínar, eiginlega var ég mjög óheppin með tegundir en jæjja.. ég var einfaldlega ansi vel lærð og Valdi hafði hlýtt mér vel yfir..
Mikið er ég glöð að lestarferðum er núna lokið til Kaupmannahafnar. Þetta var hreinlega farið að leggjast á sálina á mér að fara þetta... Í gær var ferðlagið skrautlegt.. Ég beið í 20 mín eftir strætó sem er á 4 mína fresti á morgnana... Allir miðasjálfsalar bilaðir á lestarstöðinni svo ég þurfti að fara langa leið í miðasöluna og rétt náði lestinni... Lestin á að fara áfram lengra en Aðalbrautarstöðina en stundum stoppar hún þar for gúdd.. Lestarvörðurinn var ekki sleipur í ensku og var að reyna að útskýra í hátalaranum að lestin færi ekki lengra og orðaði þetta svona "The train will go to Kobenhagen Central Station and there it will be terminated....." HJÁLP.... Verður henni eytt... Allir í lestinni litu hvorn á annan og loks sprakk fólk úr hlátri.. Ég fór svo í strætó til að komast í KVL og fyrir utan KVL þá straujaði strætó vegavinnuskilti og hliðin á vagninum var í mauki en ég náttúrlega bara fór úr strætó og í prófið...
Eftir prófið fórum við Hlynur á Kaffi Klimt og fengum okkur bjór og salat og spjölluðum um prófið og vorum nokkuð mikið ánægð með okkur. Svo ákvað ég að drífa mig aftur til Malmö en þá seinkaði lestinni alltaf um 10 mínútur þar til það kom Cancelled... 10 mín, 10 mín Cancelled.. ARRRGGGGG.... Svona gekk þetta í klst...Svo allt í einu kom tilkynning á dönsku í hátalarakerfinu og kurr komst á mannskapinn... og engar lestar komu í smá tíma.. Ég spurði næsta mann hvað væri í gangi og þá hafði einhver fyrirfarið sér á lestarteinunum og allt var stopp.. Woww... er þetta tilkynnt í hátalarakerfinu.. krípí... En mér var sagt að þetta væri mjög algengt...
Loksins komst ég heim.. En Valdi eldaði hangikétið handa mér og Lilju sem var dásamlegt.. Svo spjölluðum við vel og lengi við Lilju og horfðum á einhverja vitleysu í sjónvarpinu...
Í morgun fór ég í fyrsta keramikkúrsinn minn í "Folketsuniversitet". Mér líst rosalega vel á þetta.. Kennarinn er mjög fínn og áhugasamur kennari og er strax búinn að ákveða að heimsækja okkur Valda á Íslandi til að fara á hestbak og stunda "Fly-fishing"... Næs.. Hann er hámenningarlegur gaur sem gerir einhverjar keramik trommur og stundar svoleiðis gjörninga.. Gvuð.. ég er ekki að ná svona dæmi.. En hann er næs og fínn kennari svo mér líst rosalega vel á þetta..
Svo sótti Valdi mig og við fórum í Jagersro en þar er keramik verslun sem átti að vera svona "Warehouse" og ég sá fyrir mér risa sal.. En þá voru þetta nokkurra fm verslun með keramik ofna og rennibekki... En ég náði að kaupa mér svuntu og sjá verð á rennibekkjum og brennsluofnum en það hefur komið til tals ef ég verð ekki búin að missa áhugann á þessu eftir námskeiðið að kaupa rennibekk (Pottery Wheel) áður en við förum heim.. Ofninn kemur bara seinna..
Núna er Lilja komin í Gúllas og svo eru Desperat housvifes að byrja á eftir.. Næs..
Annars mælum við með að fara á: http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=9&id=5959
Þar má sjá framlag Landbúnaðarháskólans / Bændadeildar á söngvakeppni framhaldsskólanna: við bara skiljum ekki af hverju þeir unnu ekki.. Glæsilegt framlag, skemmtilegt og frumlegt...
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt 16.4.2008 kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.4.2008 | 17:13
Trjátúristar
TIL HAMINGJU MEÐ 8 ÁRA AFMÆLIÐ LINDA ÓSK!
Í dag var fyrsti dagur okkar Guðrúnar sem trjátúristar. Við fórum og skoðuðum tvö tré úr bókinni "Tré í Malmö" sem að Guðrún gaf mér um daginn. Þessi bók er alveg frábær en hún segir frá sjaldgæfum og merkilegum trjám í Malmö. Bókin er gefin út af Garðyrkjustjóra Malmöborgar árið 2007 og henni fylgir kort þar sem öll trén eru merkt inn á þannig að auðvelt er að finna þau. Markmiðið hjá mér er að heimsækja öll trén í bókinni áður en við förum aftur heim til Íslands en þetta eru 76 tré víðsvegar um borgina en flest eru þau þó í miðbænum og görðunum þar til dæmis Slottsparken og Pildammsparken svo að einhverjir séu nefndir. Í dag fórum við í garðinn sem við höfum alltaf kallað Kirseberggarðinn en heitir í raun Beijersparken, en þar heimsóttum við tré númer 59 sem eru Svartfurur Pinus nigra, eitthvað yfir 100 ára gömul en stærsta tréð er um 20m hátt og með 2m stofnummál. Þarna var líka tré númer 60 sem er Kastaníutré (äkta Kastanj) Castanea sativa, gróðursett um 1880 og er 9m hátt og um 1 m í stofnummál samkvæmt bókinni. Það er gaman að skoða þessi tré og núna sér maður garðinn í nýju ljósi.
Ég held að vorið sé skollið á hér í Suður Svíþjóð en sólin skein í heiði og hiti var um 10°C, allur gróður er í óða önn að springa út það sést munur með hverjum deginum sem líður. Tilhugalíf fuglanna er öflugt þessa dagana og við rákumst á eitthvað af stokköndunum á víð og dreif um garðinn en þær virðast halda sig frá tjörninni meðan Helsingjarnir ráða þar ríkjum svo sáum við óskaplega sætar og ástfangnar dúfur í keleríi uppi í tré..
Guðrún situr núna sveitt við próflestur en hún er að fara í síðasta prófið sitt á mánudaginn. Hún verður reyndar ekki aðgerðarlaus því að hún er búinn að skrá sig á keramiknámskeið í Folkets universitet alla þriðjudagsmorgna fram að brottför og byrjar hún þar í næstu viku, námskeiðið er meira að segja kennt á ensku.
Jæja það er best að fara að skoða bókina góðu og finna næsta tré til að heimsækja. Ég vona að það séu fleiri tré hér nálægt svo að ég geti náð að viðra Guðrúnu og heimsótt fleiri tré eins og í dag.
NÝTT ALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU: TRJÁTÚRISTAR
Vorkveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.4.2008 | 19:58
Hvar eru endurnar?
Í dag fór Valdi í vettvangsferð til Snogeholm. Þar er tilraunasvæði þar sem verið er að rækta laufskóg á gömlu landbúnaðarlandi. Þarna var plantað 1994 ýmsum tegundum af lauftrjám og nánast eingöngu náttúrulegum. Þetta var samstarfsverkefni milli landslagsarkitekta og skógfræðinga. Tilgangur þessa svæðis er að læra að rækta ýmis lauftré sem ekki er þekking á í Svíþjóð í dag. Dagurinn var nokkuð áhugaverður, margt að sjá og sólin skein í heiði.. Nemendunum hafði verið skipt upp í hópa og hver hópur vann kynningu á einni tegund og hóparnir kynntu svo sína tegund fyrir samnemendum sínum í skóginum í dag. Hópurinn hans Valda fékk það hlutverk að kynna blendingsblæösp (Hybrid aspen).
Í ferðinni sáu þau meðal annars magnaðan kurlara að störfum en það má sjá vídeó af honum hér neðar..
Ég er búin að vera að vinna í vistfræðiverkefnum og líka í próflestri síðustu daga. Ég er ekki alveg að nenna að lesa undir þetta próf því þetta er síðasta prófið og hugurinn er eiginlega kominn í annað..
Guðjón Helgi, tölvufræðingur hjá Lbhí, og Hugrún konan hans kíktu í kaffi til okkar í gær en þau ætla að eyða sumrinu í Svíþjóð og nágrenni. Það var mjög gaman að fá gesti og mikið spjallað en ég hafði bakað Baby Ruth köku í tilefni heimsóknarinnar og svo var drukkið nýmalað Gvatemalakaffi með.
Í gær og í dag höfum við rölt um í Kirseberggarðinum en mannlífið þar verður fjölbreyttara með hverjum deginum og yndislegt að fylgjast með öllu springa út. Núna eru það kirsuberjatrén og runnarnir sem eru alveg að fríka út í blóma en stærri trén eru líka að taka við sér en eiga þó nokkuð í land.. Við fórum með brauð til andanna á tjörninni en þá voru þær allar horfnar þessar sem við þekkjum en í staðin var kominn hópur af Helsingjum.. Þær voru sko alveg til í brauðið en hvar eru endurnar mínar....
TVÖ ALBÚM FYLGJA ÞESSARI FÆRSLU. Vor í Malmö og Snogeholm...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2008 | 08:04
Kallinn kominn heim
Jæjja þá er Valdi loksins kominn "heim" til Svíþjóðar. Æ hvað það er næs að endurheimta hann. Hann náði að kaupa handa mér báðar Arnaldarbækurnar sem mig vantaði á fríhöfninni og líka nýju bókina hennar Yrsu, Aska. Hins vegar er ég búin að setja þessar bækur upp í hillu fram yfir próf.. Það var erfitt en svo verður að vera.. Ég er á kafi í yfirferð á vistfræðiverkefnum og þarf svo að hella mér í próflestur en Tropical Botany prófið er næsta mánudag. Valdi keypti líka hangikétskepp.. ég veit það er jólamatur en við freistuðumst.. Ætli við bjóðum ekki Lilju í mat bráðum og maulum hangikét.. Ég var að spá í að kaupa osta og kex til að hafa rómókvöld í gær en ég sleppti því... svo í staðinn þá skárum við niður lifrarpylsu sem Valdi hafði keypt.. Ummm.. svo gott... þetta mauluðum við yfir sjónvarpinu....
Í gær fór ég á krukkugerðarnámskeið hjá Wallakra krukkugerðinni (www.wallakra.com). Þetta er krukkugerð sem byggir á langri krukkugerðarhefð hér í Svíþjóð (aðallega á skáni) og allt er með svona gömlum og sjarmerandi brag. Åsa Orrmell á þetta en hún keypti krukkugerðina fyrir einhverjum árum og gerði upp gamla brennsluofninn og endurvakti gamlar hefðir. Þetta er svo sjarmerand að það hálfa væri nóg.. Ég er nú búin að koma þarna nokkrum sinnum áður en loksins fór ég inn á verkstæði núna og gerði krukkur.. Þetta var svolítið stressandi þar sem ég hef aldrei reynt þetta áður en þetta gekk mjög vel hjá mér.. Åsa var alveg gáttuð á hvað krukkurnar mínar voru fínar.. en ég held það hafi bara verið byrjendaheppni. Við fórum svo í kaffi á Krána sem er þarna en það er uppgert gamalt hús með gati í gólfinu með gleri yfir til að horfa niður í ána.. Vá ekkert smá flott.. Að lokum fengum við að velja okkur eina krukku sem við gerðum til að láta brenna í þessum gamla Wallakra stíl sem er að þetta er brennt í stórum ofni með kolum og þegar hitinn er kominn í 1300 gráður þá er dælt salti á kolin og þá myndast einhverskonar saltglerjungur. Mér finnst alveg rosalega gaman eiga mína eigin Wallakra skál.. Vona reyndar að ég fái hana til baka því ég er náttúrulega að fara úr landi..
Valdi er farinn í skólann núna enda er hans skóli byrjaður á fullu núna, síðasta törnin fram til 31. maí. Svo ætlum við bara að versla í matinn og það er þvottadagur í kvöld... mikið verður næs að komast á Álfhólinn í sína eigin þvottavél og þurrkara og geta þvegið þegar maður vill og þurfa ekki að fara í næsta bæjarfélag með þvottinn.. ok ég ýki.. ég þarf að fara yfir götuna og í þarnæstu blokk.. en það ansi langt þegar maður býr á þriðju hæð með engri lyftu...
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.4.2008 | 14:11
TÖLVUSTÚSS OG MEIRA TÖLVUSTÚSS..
Já Ragnhildur! Nú er ég forvitin.. Ég bíð spennt.. meilið er nem.gudrunb@lbhi.is
Gærdagurinn var skemmtilegur.. Ég ákvað að skella mér til Köben á kaffihús í algeru tilgangsleysi. Hlynur náðist reyndar ekki á kaffihúsið vegna þreytu eftir verkefnaskil en Dýrleif klikkaði ekki og mætti galvösk á Café Klimt sem er uppáhalds kaffihúsið mitt í Köben. Mikið var næs að hitta hana og spjalla. Hún lýsti líka prófinu fyrir mér sem ég er að fara í 14. apríl en það er munnlegt próf í Tropical botany.. Ég er smá stressuð.. Síðan kom Palli vinur hennar til okkar og það var mikið spjallað. Af kaffihúsinu héldum við í Afríku búðina mína sem ég er svo heilluð af en við dóluðum okkur þar vel og lengi og keyptum eitthvað glingur.. Þaðan röltum við á Hvids vinstue og sátum þar úti í rólegheitum. Þá komu Siggi Frigg með foreldrum sínum og Hlynur. Snilld... það var ljómandi gaman að sitja með þeim og spjalla. Ég ákvað svo að drífa mig heim en mér tókst snilldarlega að villast á leiðinni upp á Nörreport. Bara skil ekki hvernig ég gat það... En í því sem ég var að spyrja til vegar þá heyri ég kallað Guðrún, Guðrún... og þá var það restin af hópnum búin að villast eins og ég.. Ég meina í alvöru þá er ekki hægt að villast á þessari leið en okkur tókst það öllum.. Við röltum svo fram og til baka og í hringi um hverfið og það var bara gaman.. Fundum allskonar skrýtnar götur og kirkjur og niðurrifin hús og hvað eina... Svo byrjaði að rigna og hinir hoppuðu inn á resturant en ég upp í lestina... Rennandi blaut..
Kvöldið fór svo í allskonar tölvustúss ásamt því að horfa á uppáhalds þáttinn minn "Midsummer Murder" og svo skreið ég beint uppí ásamt Arnaldi Indriðasyni sem er eini karlmaðurinn sem nær mér mjög snemma kvölds upp í rúm!!!!!! En ég er alveg gersamlega húkkt á bókunum hans þessa dagana... Í gær var ég að lesa Napóleonskjölin en sú bók er alveg ágæt... svolítið óverdós á köflum en reddaðist í lokin og í síðustu setningunni þá fær maður svarið alveg óvænt og ekki yfirdrifið.. Hrein snilld..... Nú á ég bara tvær bækur eftir en það er Bettý og Dauðarósir... en Valdi ætlar að tékka hvort þær séu til í fríhöfninni í kiljum...
Og dagurinn í dag er líka.... ENDALAUST TÖLVUSTÚSS.. Ég er að vinna fyrir Áskel, ég er að reyna að finna vinnu fyrir danska stelpu á Íslandi í sumar, ég er að sækja um í Fín, ég er að bankast, vinna í vistfræðinni og senda út pósta í tengslum við það og svo frvs... Þetta stúss tekur engan enda... Nú ætla ég að taka pásu og skjótast nokkra hringi í Kirseberggarðinum. Ég þarf líka að taka til því Valdi kemur á morgun, loksins loksins. Hann er núna heima hjá pabba sínum í Árbænum. Í gær fór hann á hestbak með Steinunni og núna er hann líklega að klippa garðinn hjá Hildi Kristjáns vinkonu minni. Svo fer hann líklega bara að pakka.. Jess.... ég endurheimti hann á morgun..
Ég setti inn öralbúm með þessari færslu..
Kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2008 | 16:44
Tilhugalíf dúfna..
Á þessu heimili hefur bara verið tölvuvinna í tvo daga.. Frá litlu að segja.. Ég er að ljúka yfirferð á síðustu vistfræðiverkefnunum og ég er líka að stússast í Greinasafninu svona til hliðar..
Ég fór í labbitúr út í Kirseberggarðinn áðan.. Það er vor í lofti og mikið af fólki í garðinum með allskonar hunda og bara fólk í göngutúr eða að trimma.. Ég hélt ég myndi springa úr hlátri þegar ég sá einn hundinn detta út af bryggjunni og út í tjörnina og eigandinn varð að hysja hann upp... Endurnar kipptu sér nú ekki upp við þetta busl... Ég rétt slapp við fuglaskít af himnum ofan en fuglarnir eru í gríðarlegu tilhugalífi þessa dagana og eru í hreiðurgerð á fullu.. Ég fylgdist með dúfum í tilhugalífinu sem ég held að hafi aðallega samanstaðið af ofbeldisfullum derringi karlfuglsins en kvennfuglinn reyndi að hörfa en hann hélt áfram að hoppa og hoppa og rjúka í hana... Undarlegir tilburðir.. Valdi næði litlum árangri við mig með svona hegðun..... Þetta minnti mig á ógleymanlegt atvik við Stakhólstjörn við Mývatn þegar himbriminn úr hólnum synti til mín og dansaði fyrir mig mökunardans í 2ja metra fjarlægð, vel og lengi og söng til mín.. Það var dásamlegt... Ég get svarið það að hann var ekki bara að daðra við mig hann var yfir sig ástfanginn af mér..... Ég var alveg dáleidd yfir þessu atferli svona nálægt "eye to eye"... Þegar ég gekk svo restina af hringnum til baka þá mætti ég heldur fúlum hópi Japana með langar linsur... Æi... þeir voru að mynda himbrimann og hafa líklega bara náði skotum þar sem ég stóð eins og asni gapandi fyrir aftan fuglinn... hí hí.. Greyin...
Kanínurnar skoppuðu um túnin í garðinum en íkornarnir láta ekki enn sjá sig...
Á morgun ætla ég til Köben að hitta Dýrleifu, Hlyn og kannski Sigga Frigg.. Ég ætla aðallega bara að hangsa og hugsanlega kaupa mér víðsjá en það hefur staðið til lengi.. Ég þarf hins vegar að fara að muna það að ég er að fara í próf 14. apríl og verð víst að læra eitthvað fyrir það.. Ég á líka að semja fyrirlestur um Litunarplönturnar sem ég skrifaði ritgerðina um frá Gvatemala.. Ég er bara einhvern vegin búin í huganum... Það er alveg komið vor í mig og heimferðarhugur...
Valdi er kominn á Skógræktar fagráðstefnuna á Hvolsvelli.. Örugglega gaman hjá honum enda þekkir hann fullt af liði þarna.. Hann er í herbergi með Benna og svo er Gísli þarna úr Skorradalnum svo hann er örugglega í fínum gír..
Jæjja best að klára vistfræðina
Vorkveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2008 | 21:00
Strútsegg og 12 stiga hiti...
Jæjja það fer að líða að því að ég endurheimti kallinn en hann kemur heim næsta sunnudag.. Æi það verður næs...
Já nú er komið vor ég sver það... Ég fór í sumarjakkann minn og peysu innanundir, skíthrædd um að drepast úr kulda en púff.. ég var að kafna... Veðrið var dásamlegt í dag bæði í Danmörku og Svíþjóð...
Í gær var nú bara rólegur þvottadagur. Ég vann mikið í tölvunni, vistfræðiverkefnin, tölvupóstar og allskonar stúss.. Ég er líka byrjuð að vinna í Greinasafninu aftur en tölvan er heldur slow til þess en þetta er samt að ganga með ákveðnu plotti hjá mér...
Í morgun var flutningur á lokaverkefnunum hjá hinum í bekknum.. Ég verð að játa á mig algert áhugaleysi og ég sat aftarlega og "fylgdist" með eða þannig.. aðallega var ég mjög pent að leika mér á netinu.. Ég meina þetta var nú mest á dönsku og einstaklega óáhugavert...... Hópurinn minn eða fyrrum hópurinn minn fékk mikið hrós fyrir góðan fyrirlestur og sérstaklega tekið eftir ítarlegum Ellenberger útreikningum... Íha.. það var ég.... Allavega þá var ég ósköp glöð að sleppa þarna út um hálf eitt og áttaði mig svo á því þegar út var komið að þetta var síðasti tíminn minn ever hjá Kaupmannahafnarháskóla.. Ég á eftir eitt próf en það er hjá KVL, já ég er komin með prófrétt þar en það var ákveðið vesen þar í gangi og ég lenti í ótrúlegum dónaskap frá einum starfsmanni.. Þvílíkir tölvupóstar og hroki.. En ég fékk prófréttinn svo ég er glöð...
Eftir síðasta tímann þá skellti ég mér á Kafé Klimt og fékk mér frábært salat og kláraði að lesa Synir duftsins eftir Arnald Indriðason, ansi góð en svolítið yfirdrifin í lokin en slapp fyrir horn.. Svo strollaði ég mér niður á Norreport og ákvað að kíkja í búð sem heitir African designe held ég.. ég hef séð hana áður en aldrei farið inn.. ekki seinna vænna.. Umm þetta var yndisleg búð.. fullt af dóti þarna sem ég á úr mínum Afríkuferðum og fullt sem mér fannst flott.. Ég þverbraut regluna mína um að kaupa bara Afríkudót í Afríku og keypti kertastjaka (tvo), strútsegg og keramik könnu.. Konan í búðinni talaði ekki ensku og þegar hún var að pakka inn dótinu þá misskildum við hvor aðra eitthvað.. Ég hélt hún væri að segja að hún myndi pakka dótinu vel inn, meinandi sterklega því þetta var brothætt dót.. Ég kinkaði kolli og brosti og fór svo bara að skoða meira.. Og næst þegar ég sný mér við þá sé ég að konan er að pakka þessu inn í gjafapakkningar.. og pjattaðist mikið við það.. Ó my god.. ég var eiginlega of sein að stoppa þetta því hún var á þriðja hlut af fjórum.. Úpps.. svo ég bara fylgdist með henni vanda sig óskaplega við að krulla alla borða og gera allt fínt...
Ég missti af lestinni upp á ca 3 sekúndur.. (Erfitt að hlaupa með strútseggið í gjafapakkningunni!) Og þá strollaði ég niður Strikið og var bara að dóla mér í rólegheitunum í nýja sumarjakkanum mínum og 12 stiga hita með strútsegg í fanginu.. Næs... Ó já það er komið vor í Danmörku þegar Íslendingar eru fleiri en Danir á Strikinu..
Það var svolítið erfitt að ferðast með strútseggið og keramikkönnuna... En það hafðist þar til í strætó þá fór málið að flækjast.. Ég missti símann minn og allt fór í steik og ég þurfti að skríða undir sætið og passa strútseggið líka.. Og eftir þá raun þá var ég næstum búin að missa af stoppinu mínu og í hamaganginum við að koma mér, skólatöskunni og strútsegginu út úr strætó þá steig ég FAST ofan á tærnar á næsta manni.. Úpps... Hann hafði sem betur fer húmor fyrir vandræðagangi mínum og hló að mér í því sem ég hentist út úr strætó alveg miður mín...
Restin af deginum fór í tölvuvinnu og stúss.. Lilja kom í heimsókn og við spjölluðum mikið... Eftir að Lilja fór þá horfði ég á "Starter wife" sem eru ágætir hallærisþættir sem ég datt niður í.. Það er óþolandi þegar maður horfir óvart á fyrsta þátt af seríu þá er voðalega erfitt að detta út... En svo sá ég að Desperat housewifes byrjar 15. apríl.. Jibbí....
Valdi heimsótti Jónas vin sinn í gærkvöldi fyrir utan Selfoss.. Þeir spjölluð saman fram á rauða nótt sem var frábært og Valdi kom ekki heim fyrr en hálf fjögur í nótt.. Síðan tók bara við stúss hjá Valda þar til hann fór um kvöldið að kíkja á garð hjá Hildi vinkonu og hann ætlar að klippa þar á laugardaginn.
Bestu vorkveðjur frá Malmö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2008 | 07:23
Frábær helgi
Þessa helgi var ég í Melby með Laver og mosser hópnum að skoða fléttur, skófir og mosa. Ég var nú ekkert alveg að nenna að fara heila helgi með bekknum í burtu en auðvitað var þetta skylda. Við vorum meira og minna úti með nefið niðri í jörðinni og svo inni að greina það sem við fundum. Á laugardagskvöldinu þá flutti ég lokaverkefnið mitt um fléttur og skófir til litunar og vakti sá fyrirlestur mikla lukku enda bauð ég upp á fjallagrasasnaps með.. Fyrirlesturinn minn var eiginlega settur upp sem skemmtiatriði á kvöldvökunni... Ég hafði hann því meira svona á léttu nótunum heldur en ef ég hefði flutt þetta í tíma..Stemningin var auðvitað talsvert léttari en við flutning lokaverkefnis í tíma og ég var með rauðvínsglas mér við hönd í gegnum allan fyrirlesturinn sem tók um klukkustund með flutningi og umræðum.... Það er því þungu fargi af mér létt núna en restin af bekknum á að flytja sitt lokaverkefni á morgun en ég get bara fylgst með..
Aðstaðan var ágæt þar sem við vorum en það var enginn hiti á herberginu mínu svo það var ansi kalt og ég svaf nánast í öllum fötunum en þar sem ég var svo heppin að vera ein í herbergi þá ákvað ég að þrauka. Ég vann allan tíman með sömu stelpunum en við vorum settar saman í hóp. Ég hef greinilega verið heppin með hóp því þær eru einstaklega almennilegar báðar og skemmtilegar en ég held við höfum hlegið nánast stanslaust alla hlegina í fíflaskap. Önnur hefur óskaplegan áhuga á Cladonia fléttum og hrópaði upp yfir sig við hvert tækifæri "Cladonia heaven".... Hún var alveg að missa sig þarna á svæðinu því hún sá svo margar nýjar tegundir.. Við hinar nutum góðs af því hún var iðin við að sýna okkur hvernig greina ætti í stundur tegundirnar..
Valdi er enn á Íslandi og er núna kominn í Árbæinn. Hann sótti börnin þessa helgina og var með þau frá laugardegi fram á sunnudagskvöld. Linda fór í leikhús með Sigríði og barnabarninu hennar að sjá Gosa minnir mig og svo var bara farið í labbitúra og næsheit. Á sunnudagskvöldinu þá komu Steinunn og Halla í mat en eftir það var börnunum skutlað austur fyrir fjall.
Nú er kominn sumartími í Evrópu og þá er tveggja tíma munur á Íslandi og í Svíþjóð og við erum á undan. Mér fannst vera heldur svindlað á okkur á sunnudagsmorgninum þegar við vorum ræst klukkan 8 en klukkan var í raun 7!!!!!
NÝTT ALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU
Bestu kveðjur frá Svíþjóð
Guðrún Bjarnadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2008 | 22:44
Hraðfærsla
Ákvað að láta örstutt vita af mér eða okkur þar sem ég hef ekki verið að standa mig í að setja inn færslur undanfarið. Málið er að þessi ritgerð tók alveg rosalega langan tíma en hún er búin núna og bara nokkuð fín og flott held ég.. 20 bls allt í allt. Fyrirlesturinn er hins vegar frekar svona hráunninn á power point og verður bara tekinn með á hlaupum.. En ég held ég reyni bara að blaðra mig í gegnum hann annað kvöld.. Já ég hef sem sagt ekkert gert annað en að vinna þessa ritgerð síðustu daga og eiginlega bara vikur...
Vaggi og Lilja komu í gær í heimsókn og elduðu handa mér lasagnja.. algjört dekur... svo sátu þau bara inni í stofu og voru á netinu og ég inni í herbergi að vinna.. Það er víst ekkert net þar sem þau eru.. Það er náttúrulega glatað..
Valdi og Benni eru rétt í þessu að keyra í hlað á Akureyri en þeir eru hættir í bili í verkefninu.. Valdi ætlar að hitta mann á Akureyri sem hann þarf að skrifa með fyrirlestur fyrir eitthvað Skógræktarþing eða hvað það heitir á Hellu (eða var það Hvolsvöllur) í næstu viku.. Hann ætlar svo að koma sér í bæinn um helgina og verður þá væntanlega í Árbænum..
Hér er búið að vera vetrarveður og snjókoma upp á hvern dag.. Í dag var þó 4 stiga hiti og enginn snjór svo ég er að vona að það fari nú að bresta á með vori..
Á morgun fer ég í vettvangsferð með Laver og mosser hópnum mínum.. Það er skyldumæting sem fer í taugarnar á mér því mér heyrist þetta bara vera einhver skemmtiferð.. Hver ætlar að taka með bjórinn? Hver sér um matinn? Hvað fáum við að borða? Hver sér um skemmtiatriði? Ég spurði hvað við ættum að gera þarna og svarið var: " Æi bara eitthvað, það er svona fuglaskoðunarhús þarna!!!" Ég hélt þetta væri Laver og mosser kúrs.. Æi þetta er voðalega ópró eitthvað.. En ég ætla bara að mæta og flytja lokaverkefnið mitt sem nóta bene var presenterað sem skemmtiatriði á kvöldvökunni annað kvöld ásamt fjallagrasasnappsinum..... ALMÁTTUGUR.. Ég er ekki sátt við þetta STAÐIÐ/FALLIÐ Kerfi því það dregur allan metnað úr öllum enda var ég dauðfegin að fá að gera mitt verkefni ein en ekki í hóp sem þýddi reyndar að ég skilaði 20 bls ein en hinar voru 6 með 10 bls!!
Jæjja best að fara að pakka
Bestu kveðjur frá Malmö
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar