25.10.2008 | 22:15
Bókfellið í meðferð
Jæjja þá eru tvær erfiðar vikur að baki en ég var í masterskúrsunum ofan á kennslu og annað sem ég var að gera. Valdi var að drukkna í mælingunum sínum en hann var í aðferðafræðinni líka.. Sl. föstudag þá fluttum við verkefnin okkar í aðferðafræðinni. Valda gekk mjög vel að flytja sitt og ég var stolt af kallinum en mitt verkefni var alveg í henglum... Ég bara var ekki vel undirbúin... Allt of mikið að gera en ég var að undirbúa kennslu til miðnættis og byrjaði þá að undirbúa fyrirlesturinn sem segir sig bara sjálft að gengur ekki vel upp.. MIKIÐ er ég fegin að þessi törn er búin.. Svo fegin.. Og svo þreytt..
Ég hafði hins vegar undirbúið skemmtilegan "Hengingarleik" fyrir Bændadeildarbekkinn eftir fyrlestur dagsins í jarðvegsfræði... með gáfulegum orðum úr náminu og keypti handa þeim nammi í verðlaun.. Það var rosalega gaman... Ég held þau hafi skemmt sér og svo var þetta "gáfulegt" líka.. Ég á örugglega eftir að gera þetta aftur... Þetta er skemmtilegur bekkur sem ég er með.. öll svo miklir karakterar þegar maður kynnist þeim...
Í gærkvöldi horfðum við á Taggart og ég prjónaði uppí í sófa en það var alveg óendanlega næs að kynnast sófanum mínum aftur og slaka á...
Í dag fórum við Valdi í Mosfellsdalinn með verkfæri og málingu.. Valdi var að rífa út innréttinguna á baðinu og gerði það með stæl í fínu smíðabuxunum sínum og með nýja kúbeinið sitt... Ég held hann hafi haft nokkuð gaman af þessu stússi... Ég málaði forstofuna og holið með grunnmálingu bara rétt til að maska purpura litahörmungina... Ég var lengi að setja teip á spegilinn og spasla og svoleiðis pjatt.. Ég vona svo að Guðni nágranni takið að sér að setja upp baðið aftur en við ætlum ekki að gera neitt fyrir eldhúsið nema mála.. Guðni sér þá væntanlega líka um að laga ónýtu gluggana en við Valdi ætlum að gera rest... Þetta verður í fínu lagi hugsa ég en mikið óskaplega er þetta nú yndislegt hús og yndisleg staðsetning þarna í Dalnum.. Ég fæ alltaf létt fyrir hjartað að hugsa til þess að ég mun aldrei búa þarna aftur... Snökt, snökt... Það er ákaflega skemmtilegt vandamál að eiga tvö draumahús, Bókfell og Álfhól... Þótt það sé óttalegt vesen á köflum.. Miðillinn á Hvanneyri sagði að ég myndi selja húsið og ég yrði sátt við það.. Ég held að sá tími sé varla kominn að ég sé sátt við það... En það mun gerast..
Það fylgir nýtt albúm: Bókfell af skemmdum og viðgerðum í Bókfellinu..
PS. Ef einhver veit um ÁBYGGILEGAN leigjanda, má hafa EINN hund... Þá er ég ekki byrjuð að huga að leigjendamálum í Bókfellið svo nú er tækifærið...
Bestu kveðjur úr yndislegu jólaveðri á Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Litli bróðir minn er einmitt í Bændadeildabekknum - ætla að koma í kaffi einhvern daginn og njósna um hann! Veit að ég held ekki um leigendur - myndi þó alveg vilja búa þar sjálf!
Elín Björk (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 23:02
Ha er miðill á Hvanneyri??
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 15:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.