10.9.2008 | 14:03
Valdi á afmæli í dag....
Hann Valdi er 43ja ára í dag....
Við erum nú ekki neitt að óverdósa á hátíðarhöldum í tilefni dagsins... Ég tók úr frystinum afganginn af fína lambafilenu sem við buðum upp á þegar Sunna varð 18 ára ásamt kartöflugratíninu... Það verður að duga... Enda rándýrt og fínt kjöt sem synd væri ef færi til spillis.... Í afmölisgjöf frá mér fékk Valdi námskeið á vegum Endurmenntunardeildarinnar hér við Lbhí um meðferð Forntraktora.... Já.. ég veit.. rómantíkin alveg að drepa okkur... En þó skárra en í fyrra þegar ég gaf honum viftu!!!
Í morgun vöknuðum við snemma en ég ætlaði ekki að vera föst í umferð aftur á leið í tímann minn í HÍ... Það tókst og við vorum komin hálf átta (45 mínútum áður en tíminn átti að hefjast).... Valdi kom með því við þurftum að kaupa á hann alvöru Jakkaföt þar sem hann er að fara í útför föðurbróður síns í næstu viku...
Tíminn í Heimildaleit í skjalasöfnum var mjög spennandi... Eftir fyrirlesturinn þurftum við að gera verkefni niðri í lesstofu Þjóðskjalasafnsins og það var skemmtilegt... Ég hlakka svo til að byrja á mínum verkefnum í þessu fagi en til þess þarf ég að hangsa eitthvað á Héraðsskjalasöfnum hér í nágrenninu sem er frábært en mig vantar bara einn sólarhring í viðbót inn í hvern raunsólarhring þessa dagana því það er svo mikið að gera....
Við Valdi fórum svo í Kringluna til að finna á hann jakkaföt... Við keyptum ágætis klassísk svört/dökk jakkaföt í Dressman.... Þau voru í alvörunni lang flottust þar... Við keyptum líka skyrtu en ákváðum að tékka á bindabirgðunum hér heima sem voru mistök því Valdi á bara prjónuð bindi, bindi með jólasveinum, bindi með hreindýrum, jólabindi, leður lakkrísbindi, hvít ullarbindi og svo mætti lengi telja... Auk þess á hann bindi sem stendur á 2000 á mörgum stöðum í mörgum stærðum.. sum sé aldamótabindi... Djísus.... Hann mun kaupa sér bindi á mánudaginn þegar hann fer í bæinn.... En mikið assgoti.. leit kallinn vel út þegar hann var kominn í allan pakkan... Glæsilegur kall þar á ferð...
Já BEBBA drífðu þig nú endilega í kaffi til mín... ég vinn heima þessa dagana og það er frekar einhæft að hitta ekki vinnufélaga og svo þarf maður að hita kaffið sjálfur sem er BÖMMER.... hehe..
Sigga Júlla já.. Ég ætla í ræktina í Borgarnesi.. Ég splæsti á mig árskorti og ætla að reyna að drífa mig í tækin eða spinning... ég fór í fyrsta sinn í gærmorgun í tækin og það var æði... Ég var nærri ein á svæðinu með tækin og heitu pottana.... Þetta tekur reyndar heljarins tíma að fara í nesið, í salinn, í sundið og aftur heim á Hvanneyri... En ég held það sé hverrar mínútu virði slík ferð... Ég ætla svo auðvitað að vera dugleg að láta Kát viðra mig hér um nágrennið allavega meðan það er veður og birta til... En við fórum í yndislegan göngutúr niður á Flæðiengjar í gær í mildu og yndislegu veðri... Ég var í ljómandi skapi þar til hundskrattinn hendir sér út í skurð og varð grútskítugur og týndi leikfanginu sínu... Nú á ég illa lyktandi hund.. Ojbarasta.... Ég sem hef lagt mikinn metnað í að greiða honum og halda honum fínum undanfarið...
Bestu kveðjur frá Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með daginn Valdi og takk kærlega fyrir hjálpina með flutninginn
Hugrún og Gaui (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 21:43
Til hamingju með bóndann í gær
Ef þú hefur hug á að fara í morgunspinning þá stefni ég á það tvisvar í viku en er ekki endanlega búin að ákveða hvaða vikudaga, í þessari viku voru það þriðjudagar og fimmtudagar en í næstu verða það mánudagar og miðvikudagar...... verðum bara í bandi...
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 11:25
Til hamingju með afmælið Valdi
vona að þið hafið það gott og að ég hafi tíma til að kíkja á ykkur einhverntíma þegar ég er á ferðinni.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 11.9.2008 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.