20.8.2008 | 23:12
Logn á Hvanneyri..
Jæjja nú er tölvan komin úr meðferð hjá Guðjóni svo við getum farið að setja inn myndir. Ég er hins vegar svo sifjuð í kvöld að ég setti bara inn eitt albúm sem heitir Brynhildur Þórey á Hvanneyri... En þar eru örfáar myndir frá því þegar Brynhildur Þórey dóttir Brjáns bróðurs kom á Hvanneyri...
Annars er bara fínt að frétta. Valdi fyrir Austan og ég og Kátur ein í kotinu.. Brjálað að gera í vinnunni... Stundataflan komin fyrir veturinn og ég kenni yfirleitt kl. 8.15 á morgnana.. Ég held þetta hafi verið einhver slálfspíningarkvöt þegar ég bauðst til að vera með morguntímana... En það er fínt því þá nýtist dagurinn betur...
Síðustu daga hefur verið yndislegt milt veður á Hvanneyri og eiginlega hefur sumarið verið bara alveg frábært. Hér hefur verið logn dag eftir dag sem er ótrúlegt á Hvanneyri sem er náttúrulega þvlíkt rokrassgat ef satt skal segja.... Og í dag var enn og einu sinni bongóblíða og nánast logn. Yndislegt...
Við Kátur röltum til Bjarkar áðan en það er allt of langt síðan við vinkonurnar höfum setið yfir kaffibolla en það fór svo að ég borðaði kvöldmat hjá henni og rölti svo heim með Kát klukkan níu..
Hekla litla hennar Bjarkar er náttúrulega alger rúsína... Hún er svo dugleg að tala og hún segir "urún" (lesist Guðrún) og "tur" (lesist Kátur).... Torfi var að sækja hana þegar ég kom og hann lofaði að koma með smá knippi af byggi handa mér næst þegar hann kemur til að nota til að sýna fjarnemum þegar þeir koma í næstu viku.
Í dag fór ég í stuttan göngutúr með Rikka (Ríkarð Brynjólfssyni) sem er grasasérfræðingur skólans en ég bað hann að rifja upp með mér helstu túngrösin. Vallarsveifgras og Varpasveifgras og svo frvs. Língresin eiga td. til að ruglast í hausnum á mér en Rikki sýndi mér margt og mikið svo nú er ég viss um að þekkja þetta allt örugglega í sundur..
Jæjja kannski skelli ég inn fleiri myndum á morgun ef tími vinnst til..
Kveðjur frá Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er gott að þú verðir með nytjajurtirnar í vetur, leist satt að segja ekkert á það að Stefanía skildi þetta allt eftir í reiðileysi...
Jóna Þórunn (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.