Kistuhöfði og Flókagata..

OK.. SORRY GERÐUR.. en ég kallaði óvart Flókagötuna Fjölnisveg... Úpps.. ég kann ekki að breyta nafni á albúmi sorry..

Gerður systir og Kristján keyptu hæð fyrir mörgum mánuðum á Flókagötunni. Þau hafa verið að gera hana upp í nokkra mánuði og loksins var komið að flutningi af Bergstaðastræti á Flókagötuna.. Ég og Valdi fórum í bæinn til að hjálpa og það var mjög gaman.. Þarna var þó nokkur fjöldi að aðstoða sem var frábært.. Íbúðin á Flókagötu er alveg meiriháttar falleg: Þrjár samliggjandi stofur, franskir gluggar í hólf og gólf og einn bogadreginn... Hátt til lofts.. Svalir, flott eldhús og alles.. Vá þetta er svo flott íbúð.. Það var gaman að taka þátt í þessu og líka að hitta Brján, Karen, Eydísi, Einar og svo Jón nágranna þeirra af Bergstaðastrætinu.. (Sjá myndaalbúm)

Sl. mánudag þá fór ég í Borgarnesið að ganga með Vesturlandsdeild "Göngum saman" (www.gongumsaman.is) en það eru konur sem ganga saman og taka svo þátt í stóru styrktargönguinni í Rvk. í september en með þessu á að safnast fé til brjóstakrabbameinsrannsókna. Þetta er í annað sinn sem ég labba og það er alltaf vont veður en það skiptir ekki máli. Það er svo gaman að hitta kellurnar í Borgarnesi og við erum allmargar sem förum af Hvanneyri í gönguna..  Það var svo ákveðið að næsta mánudag skyldi hittast á Hvanneyri og ganga þar um þannig að í kvöld (fimmtudagskvöld) hittumst við nokkrar og gengum út í Kistuhöfða svona til að testa leiðina.. Þetta var stórkostleg ganga í frábæru veðri og við sáum haförninn á leiðinni.. En ég held samt að Kistuhöfðinn sé aðeins of töff ganga þar sem ein gafst upp á leiðinni út eftir og ég var skilin eftir á leiðinni heim... Ég er ekki viss um að allir hafi munað nafn hópsins "Göngum saman" þegar það var tekið maraþonstrauj heim....  En ég og Kátur áttum gott labb heim... Líklega verðum við þó að finna auðveldari leið til að ganga næsta mánudagskvöld.. 

Sl. miðvikudag tók ég á móti fyrsta hópnum af Bandaríkjamönnum hér á Hvanneyri en ég er að létta undir með Bjarna Guðmunds og taka nokkra hópa.. Ég verð að segja að ég hef óskaplega gaman af þessu og ég var búin að eyða miklu púðri í að rifja upp og kynna mér sögu staðarins.. Leiðsögnin gekk ágætlega þó hún hafi verið svolítið stirð hjá mér en ég lærði af þessu og næsti hópur verður auðveldari... Þarna hitti ég mann sem býr í Denver rétt fyrir aftan skólann minn Bel Rea... Merkileg tilviljun í stóru landi..  

Valdi hefur verið að grúska í Masters verkefninu sínu en er þó ekki enn farinn að gera beinar mælingar í Skorradal.. Það fer þó að gerast.. Það er fínt að hafa hann heima.. hann er aldrei verklaus og er að gera hitt og þetta... Fínt að koma heim og maturinn er til...

Bestu kveðjur frá Hvanneyri 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég ákvað að þetta væri staðurinn til að hafa samband:) Annars erum við svo uppteknar að það mætti halda að við værum báðar enn í útlöndunum. Hvernig er það kæra vinkona, fer ekki að koma tími á kaffibolla eða rauðvínsglas?

 knús

Þóra á Hellum 

Þóra (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 13:16

2 identicon

Hæ Hæ.

Takk fyrir hjálpina í flutningunum.  Fjölnisvegurinn er nú ekki síðri gata en Flókagatan, jafnvel enn hærra fasteignaverð ef hægt er.  

Skemmtilegt að sjá myndirnar frá flutningnum.

Bestu kveðjur, Gerður. 

Gerður Bjarnadóttir. (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband