3.7.2008 | 16:56
Grisjun, sund og nýtt þak...
Framkvæmdirnar á þakinu eru að verða búnar, loksins.. Þakið lítur mjög vel út, strompurinn farinn og málaðir fínir þakkanntarnir koma vel út en við Valdi höfum verið öll kvöld að mála þakkanntana úti í fjárhúsum þar sem við fengum aðstöðu. Næst á dagskrá er að skipta út stofuglugganum og þar næst er það herbergið hans Jakobs niðri í kjallara en þar vantar opnanlegan glugga og tvær hurðir, síðan kemur hurð út í garð úr stofunni og loks restin af gluggunum... Þannig að ef við hjónin verðum ekki við í vetur þá erum við í skuldafangelsi.... (myndir koma seinna af þakinu)
Í gærkvöldi fórum við upp í Fremri Brekku sem er sumarhús Hildar og Hlyns í Dalasýslu. Hildur er reyndar í NY til áramóta og Hlynur var ekki á svæðinu svo við gægðumst bara á gluggana en þetta er orðið svo fínt hjá þeim. Við vorum bara að sækja kerruna okkar sem var þar uppfrá. Bíltúrinn var hinn skemmtilegasti og ég komst að því að Sjoppan/kaupfélagið í Búðardal hefur mjög skemmtilega heimilisvörudeild. Það var hins vegar flatt á kerrunni svo þetta var algert klúður en við ókum með hana á 40 niður í Búðardal og settum loft í dekkið svo það slapp til.
Valdi er að grisja í Skorradalnum þessa dagana og ég er í vinnunni hjá skólanum. Nú er Áskell farinn í frí svo ég er komin á skrifstofuna hans sem er lúxus... til að opna glugga þá ýtir maður bara á takka og skjárinn á tölvunni er sá STÆRSTI sem ég hef séð.. Næs... Í dag fékk ég líka loksins í hús stórt verkefni sem mun væntanlega duga mér út mánuðinn... PÚFF... En í þessari fínu skrifstofu þá vinna verkin sig næstum því sjálf...
Í gær fórum við í sund sem er ekki í frásögur færandi nema að ég synti, Í ALVÖRU, ég synti 500 metra og það var ÆÐI... Sund er náttúrulega besta sport í heimi og aðstaðan í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi er alveg frábær.. innilaug, útilaug, frábærir pottar og svo frvs.. Hrein snilld... Við stefnum á sund aftur í kvöld en Valda finnst gott að mýkja sig í pottunum eftir grisjunarvinnuna...
Svo stefnir í rólega og góða helgi en börnin koma til okkar og við ætlum að reyna að gera bara skemmtielga hluti núna td. veiða, grilla (æi.. eigum ekki grill), eða gera eitthvað skemmtilegt saman.. Síðustu helgar hafa svolítið farið í að taka upp úr kössum, mála spýtur eða taka til í garðinum...
Bestu kveðjur frá Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það er hægt að grilla þó maður eigi ekki grill bara nota hugmyndaflugið og búa til holu eða hlaða upp steinum og setja kol í miðjuna og svo grind (úr bakaraofninum ef önnur er ekki fyrir hendi) ofan á. alltaf hægt að bjarga sér líka með einnota grilli ;-)
kv. gg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 3.7.2008 kl. 21:35
sund, já það er æði :)
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.