28.6.2008 | 12:15
Nokkur ný albúm
Jæjja þá erum við loksins orðin nettengd hér á Álfhólnum.. Það tók nú sinn tíma en þessi nettenging alveg svínvirkar eins og maður segir á góðri íslensku.... Þannig að eftir stutta morgungöngu með hundinn klukkan átta í morgun þá hófst ég handa við að flokka myndir og setja inn á vefinn svo að nú eru komin fjögur ný albúm:
GRÓÐURSETNING Í FELLSMÖRK: Síðustu helgi fórum við í gróðusetningarferð í Fellsmörk í Mýrdalnum þar sem Valdi er með 2,7 ha á leigu frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og þar erum við að setja niður plöntur. Eftir sameiginlegu gróðursetninguna þá var grillað og þetta var yndisleg helgi þrátt fyrir svolitla rigningu.
SUMARNÁMSKEIÐ Í PLÖNTUGREININGU: Ég stalst til að setja inn nokkrar myndir af nemendum og plöntum frá sumarnámskeiðinu í plöntugreiningu sem ég var að aðstoða við alla vikuna. Við vorum svo heppin með veður allan tímann. Ég var að taka fullt af myndum til að nota í kynningarmálunum fyrir Áskel og ég held að það séu þarna nokkrar mjög vel lukkaðar myndir af áhugasömum nemendum. Ég hafði mjög gaman af að vera með á námskeiðinu og ég lærði margt enda var þetta heil vika með helstu fræðingum á ýmsum sviðum grasafræði.
LINDA OG KÁTUR: Sætar myndir af Lindu og Kát þegar þau fóru með Valda suður í land að leita að hestunum okkar (Sem fundust ekki...)
17. júní: Nokkrar myndir frá 17. júní á Hvanneyri en Ungmennafélagið stendur fyrir skrúðgöngu, grilli og leikjum í skjólbeltunum á þjóðhátíðardeginum.
Annars er bara fínt að frétta. Krakkarnir eru komnir það er að segja þau eldri en Linda var hjá okkur alla vikuna. Jakob er fluttur inn í "herbergið" sitt niðri í kjallara sem er enn ekki orðið herbergi í raun og veru þar sem það vantar tvær hurðir, einn opnanlegan glugga og ofn til að svo sé en Jakob var svo spenntur að flytja inn í sitt eigið að við bara tæmdum herbergið og svo sjáum við til hvernig það gengur..
Í kvöld kemur dönsk sólasystir mín í heimsókn með mömmu sinni og kærasta en þau eru á rúntinum í kringum landið og komu með Norrænu. Ég ætla að bjóða upp á íslenska kjötsúpu.
Á Hvanneyri er rok en þurrt, alvet týpískt Hvanneyrar veður en það var hressilegt að labba smá hring með Káti í morgun klukkan átta..
Bestu kveðjur frá Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.