19.6.2008 | 16:23
SKYR! Best í heimi...
Ó já.. við erum enn á lífi... og enn að blogga.. Hins vegar hefur netsambandið verið mjög lélegt á Álfhólnum og við erum því að vinna í að skipta um þjónustuaðila í þeim efnum. Ég stelst því til að henda inn hraðfærslu hér í vinnunni..
Annars er bara fínt að frétta en við höfum verið mjög upptekin við að taka upp úr kössum og koma okkur fyrir síðustu daga og enn sér ekki fyrir endann á því verkefni. Við náðum reyndar að tengja sjónvarpið og Stöð 2 um helgina en heimasíminn er ekki enn tengdur... Krakkarnir komu um helgina og voru fram á 17. júní. Þau voru dugleg að hjálpa til við að bera hluti og vinna í garðinum auk þess sem þau hjálpuðust öll við að mála herbergið hennar Lindu en hún fékk að velja sér liti sjálf og hafði herbergið bleikt og gult og það kemur mjög vel út. Linda fór svo í sumarbúðirnar Ævintýraland hér uppi á Kleppjárnsreykjum í gær og hún var mjög spennt.
Ég var alveg búin að gleyma því hvað íslenskur matur er góður en við gerðum íslenska kjötsúpu um daginn og hún var alveg fantagóð og svo höfðum við skyr í hádegismat um daginn og mikið var það gott...
Á 17. júní komu Elvar og Helma með dóttur sinni í morgunkaffi og svo fórum við Valdi og Linda í skrúðgöngu hér á Hvanneyri. Á miðvikudagskvöldið komu svo Bebba og Óskar Óðinn í kvöldkaffi.
Valdi er að vasast í ýmsum málum þessa dagana en ég er hins vegar byrjuð að vinna hjá Landbúnaðarháskólanum við Greinasafnið eins og í fyrra og það er dásamlegt að vera komin aftur til starfa og gaman að hitta alla vinnufélagana aftur.
PS. ég mun klára að setja inn albúmið "Heimsins sætasta frænka" á næstu dögum þegar netsambandið batnar heima en ég kom bara inn einni mynd... En albúmið "Siglt frá Færeyjum " slapp fyrir horn en það er stutt...
Bestu kveðjur frá Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að heyra frá ykkur.
Talandi um íslenskan mat.....namm einmitt skyr, kjötsúpa, flatkökur.......úff ég fékk bara vatn í munnin að lesa bloggið ykkar.
Gakk vel með áframhaldandi upppökkun
Heyrumst og sjáumst
kv
HB
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 20:57
Það er ekki annað hægt en að segja nammm.... sakna mest skyrsins.
Sjáumst vonandi í júlí
Oddný Guðmundsdóttir , 25.6.2008 kl. 13:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.