Kartöflubyssa og súrealísk jarðgöng...

GETRAUN:

HVAÐ ERU MÖRG JARÐGÖNG Á 450 KM LEIÐ FRÁ MOELV Í HEIÐMÖRK (Einar og Unnur) OG YFIR Í BERGEN ÞAR SEM NORRÆNA LEGGUR AÐ?

Hitinn slaknaði aðeins í dag en það er búið að vera mjög heitt undanfarið.. Á föstudaginn fórum við í Skógarsafnið sem er ekki langt frá Einari og Unni. Hitinn var óbærilegur þann daginn en safnið var mjög skemmtilegt. Þarna mátti sjá allt sem tengist skógrækt, skógarnytjum og bara skóginum yfir höfuð td. var þarna safn um dýrin í skóginum.  Mér fannst reyndar svolítið langsótt að hafa kjallarann alveg undir fiskasafn þar sem sýndir voru fiskarnir sem eru í vötnunum í skóginum en hins vegar var mjög svalt í kjallaranum svo við skoðuðum þann part vel og lengi. Einnig var þarna útisafn þar sem maður labbaði út í eyju í stórri á þar sem voru gamlir veiðiskálar og mikill skógur.

Um kvöldið grilluðu Einar og Unnur fyrir okkur og við borðuðum úti á veröndinni þar sem við vorum á Elgvaktinni en elgirnir koma stundum fram í ljósaskiptunum og viti menn við sáum einn seinna um kvöldið en Einar og Valdi sáu reyndar annan mjög nálægt því þeir gerðu út leiðangur til að finna elgina.  Við höfum væntanlega ekki séð elgi fyrr um kvöldið þar sem Einar og Valdi voru að leika sér með kartöflubyssu.. Já KARTÖFLUBYSSU.. En Einar hafði búið til slíka þar sem maður setur kartöflu í langt rör og spreyjar svo hársprey í gat og kveikir í... BÚMM... Út þýtur kartaflan með miklum hvell og flýgur langar leiðir...

Eftir mat var líka farið í að sækja gamla kamínu sem Einar og Unnur gáfu okkur en húsinu þeirra fylgdu margar kamínur. Við fengum eina litla og krúttlega sem heitir Trolla og er með mynd af þverflautuleikara á hliðinni.. Snilldargræja en við höfum verið að skoða svona kamínur í vetur en ekki fundið neina sem okkur leist á fyrr en þessa..

Í dag keyrðum við til Bergen 450 km leið um stórkostleg fjöll og mörg jarðgöng. Landslagið var stórkostlegt á leiðinni og keyrslan skemmtileg en svolítið lofthræðsludæmi.. Við stoppuðum í krúttlegri geitaostabúð í þröngu fjallaskarði þar sem hjónin búa þar allt árið með geitunum sínum. Valdi keypti hjartarpylsu, geitapylsu og hreindýrapylsu og líka beitilynghunang en Valdi er orðinn mikill áhugamaður um pylsur af öllum stærðum og gerðum. Þarna mátti líka finna mjög fallega gæru/vefpúða sem kostuðu einungis 20 þúsund íslenskar... Ég fjárfesti hins vegar í litlum hreindýrahornum..

Á leiðinni voru fjölmörg jarðgöng.. og þau lengstu heita Aurdalsgöngin og eru 24, 5 km. Á leiðinni í gegnum göngin þá breytast ljósin annað slagið og verða rauð eða græn en þetta er gert til að halda bílstjórunum vakandi... Það er súrealískt að keyra í skærgrænum göngum eða bláum.... (Sjá myndband)

Það var fallegt að keyra inn til Bergen en það var mikið mannlíf í miðbænum í góða veðrinu. Við skelltum okkur bara beint á hótel sem er örstutt frá þar sem Norræna leggur að og erum á leið í bólið..

MUNIÐ AÐ TAKA ÞÁTT Í GETRAUNINNI.. Það eru ENGIN verðlaun.... Bara kikkið að vera með..  Rétt svar mun svo koma í fyrstu færslu eftir að við komum heim...

Bestu kveðjur frá Bergen..

(NÝTT ALBÚM)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég ætla að giska á 10

Sunna (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 15:40

2 identicon

'Eg held að þau séu 45 gönginn frá Unni og Einari til Bergen.  Kveðja Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 23:28

3 Smámynd: Oddný Guðmundsdóttir

Takk fyrir innlitið um daginn og góða ferð heim.

Ég giska á 33 göng, hef reyndar aldrei keyrt þessa leið, en í fyrra keyrið ég frá Ási og til Dale við Sunnefjord og voru 29 göng á þeirri leið Humm..... eru verðlaun í boði??

Oddný Guðmundsdóttir , 9.6.2008 kl. 12:00

4 identicon

Gaman að hitta ykkur í dag. Veðrið var kannski ekki alveg nógu gott, en samt svona ekta íslenskt.

En ég giska á að það voru 38 göng á leiðinni.

Kv. Elin

Elin (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband