6.6.2008 | 08:29
Komin til Noregs
Jæjja þá erum við komin til Unnar og Einars í Noregi.. Þvílíkt yndislegt að búa ekki í tjaldi lengur..
Ferðalagið hefur gengið vel en hitinn er enn að drepa okkur. Sl. mánudag þá fórum við inn til Stokkhólms en það var eiginlega bara klúður því vegaframkvæmdir voru miklar þarna og umferðartafir í milljón stiga hita en loksins komumst við í gamla miðbæinn og röltum um sem var alveg yndislegt. Gamlar, mjóar, krúttlegar götur en okkur sýndist þessi aðalgata miðbæjarins vera algerlega stíluð á túrista, ísbúðir og túristabúðir til skiptis... Í Stokkhólmi fundum við dýrasta bílastæði sem við höfum rekist á ever... ca 600 kr. klst... Svo tíminn tikkaði á okkur og við drifum okkur í burtu... Við stoppuðum stutt í Uppsala og skoðuðum einhverja víkingagrafreiti en sjálft safnið var lokað en umhverfið var fallegt. Um kvöldið gistum við í Vallvik sem var mjög lítið tjaldstæði með tveimur húsbílum en auðvitað var öll aðstaða lokuð því túristatímabilið var ekki byrjað.. En við erum alltaf fegin að finna tjaldstæði þar sem nánast enginn er.. Valdi reyndi að veiða í sjónum með engum árangri og svo voru flugurnar að éta okkur lifandi fyrir utan tjaldið..
Á þriðjudeginum var haldið inn til Gränfors sem er lítið þorp eða húsaþyrping þar sem eru búnar til heimins bestu axir. Þetta var svona stoppið hans Valda en hann er búinn að tala um þetta í allan vetur að koma við þarna. Staðurinn var yndislegur. Þarna er Axarsafn sem er gamalt hús með myndum af axarnotkun og fullt af gömlum öxum, mjög sjarmerandi. Svo fórum við á kaffihús og loksins í axarbúðina sjálfa. Valdi fjárfesti í tveimur öxum, brýni og bók um hvernig á að byggja bjálkahús. Þarna er líka Keramikverkstæði sem var eiginlega mjög óspennandi en þeir sérhæfa sig í blómapottum... Við forum svo í smiðjuna sem var mjög skemmtileg en þeir vinna allskonar járnhluti eins og snaga og hurðahúna og slíkt. Við spjölluðum við konuna sem var þarna og hún var að segja okkur frá allskonar námskeiðum sem eru í smiðjunni. Gränfors heldur ýmis námskeið eins og í að byggja bjálkakofa, survival in the wild, smiðjuhandverk og svo kenna þeir allskonar útskurð. Það væri nú spennandi að fara þarna einhvern tíman.. Eða allavega senda Valda á bjálkakofanámskeið..
Þegar þarna var komið þá vorum við komin ansi nálægt skógareldunum í Hassela en það brá fyrir megnri brunalykt annað slagið og svo fannst okkur við greina mistur en það gæti hafa verið ímyndun.. En síðustu daga hafa geisað mestu skógareldar í Svíþjóð í nútímanum eins og segir í einu blaði. Ég var ósköp fegin þegar við tókum stefnuna frá eldunum..
Um kvöldið var gist á yndislegu húsbílatjaldstæði þar sem við vorum enn og einu sinni ein í heiminum og konan sem við hringdum í til að geta borgað fyrir tjaldstæðið vildi ekki taka við greiðslu en kom spes til að opna klósetaðstöðuna fyrir okkur svo við vorum með prívat klóset og sturtu rétt fyrir aftan tjaldið og vatnið þar fyrir framan... Glæsilegt...
Á miðvikudeginum drifum við okkur inn til Noregs en ferðalagið var mun lengra en við höfðum gert ráð fyrir þar sem Garmin græjan plataði okkur svolítið. Keyrslan var hins vegar stórkostleg í gegnum fjallendi og mikið skóglendi. Uppi á toppinum á fjöllunum rétt fyrir landamærin er greinilega skíðatúristastaður með milljón hótelum, verslunum og veitingastöðum. Lengst uppi á fjallstoppi mætti okkur td. skilti sem stóð á Kebab og annað sem sagði Stadium (íþróttaverslun)... Ekki var hræðu að sjá þarna enda enginn snjór og engir túristar... Hins vegar er túristatímabilið tvöfallt þarna á fjallstoppnum en seinna í sumar kemur þarna mikið af göngufólki enda er umhverfið mjög fallegt..
Við vorum svo komin til Unnar og Einars heldur seint en þá beið okkar matur og hreint rúm... Yndislegt. Unnur er systurdóttir Valda sem var að kaupa sveitabæ með sínum manni honum Einari sem er norskur. Þetta er hrein og klár paradís, landið er með skóg og fallegum akri og fyrir neðan húsið er beitarsvæði þar sem elgir halda til en fyrsta kvöldið sáum við elgina í ljósaskiptunum. Íbúðarhúsið er líka mjög stórt með milljón herbergjum og kamínum og kósi.... Kisan þeirra hann Dexter er alger rúsína og hér fer vel um okkur...
Á fimmtudeginum var farið til Oslóar að hitta Helle og Dóra. Þar fengum við hádegismat og svo var rölt um næsta nágrenni þar sem voru matjurtagarðar sem höfðu breyst í blómagarða með míní sumarhúsum. Það var æðislegt að hitta Dóra og Helle en ég hef ekki hitt Dóra í allt of langan tíma og hef varla náð að hitta Helle almennilega fyrr en núna... Við ákváðum að skippa miðborginni enda var hitinn alveg óbærilegur og Hilux er ekki stórborgarbíll svo það var brunaið inn í Ás þar sem við hittum Oddnýju og börnin hennar, Þórhildi og Svavar, ásamt Hrafnhildi en Oddný og Hrafnhildur voru með okkur Valda á Hvanneyri. Þær gæduðu okkur um Landbúnaðarháskólann og við skoðuðum landbúnaðarsafnið sem var mjög áhugavert fyrir mig en ég er sérleg áhugamanneskja um landbúnaðarsöfn og er Búvélasafnið heima á Hvanneyri uppáhaldssafnið mitt. Síðan var grillað heima hjá Oddnýju í bongóblíðu og mikið spjallað um heima og geima... Þetta var alveg frábær dagur í góðum félagsskap í Osló og að Ási...
Í dag föstudag er planið að taka því frekar rólega og jafnvel bara að hanga hér á búgarðinum með smá skutl í skógarsafnið sem er hér í nágrenninu.. Enn og einu sinni er milljón stiga hiti og Valdi orðinn frekar útkeyrður á endalausri keyrslu og aumur í eyrunum eftir gólin í mér á þessum háfjallavegum auk þess sem hægra lærið á honum er orðið aumt þar sem ég held fast í kallinn í bröttustu brekkunum... Ekki skánar það svo víst á leiðinni til Bergen á morgun en þar eru vígalegir háfjallavegir...
Bestu kveðjur frá Noregi
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.