2.6.2008 | 08:39
Óbærilegur hiti
Jæjja þá erum við komin af stað í ferðalagið og strax degi á eftir áætlun en það skiptir engu máli..
Fyrsta daginn keyrðum við bara beint í Luhrsjö baden Camping og skelltum upp tjaldinu. Við fórum í létta kvöldgöngu niður að vatninu og inn í skóginn. Þessir Camping staðir eru allir svipaðir það er að segja milljón húsbílar við vatn og fullt af fólki með hundana sína með sér. Þarna voru til dæmis 5 stórir púðluhundar í girðingu við einn húsbílinn og flestir með einhverja hárgreiðslu og borða í hárinu.. Djísus...
Við sváfum ágætlega en mér var svolítið kalt. Um morguninn á laugadeginum þá endurröðuðum við í bílinn en farangurinn var meiri en við ætluðum okkur í upphafi. En eftir það hófst yndislegur rúntur þar sem við stoppuðum bara hér og þar eftir hentugleika. Fyrsta stoppið var í friðlandi þar sem við fórum í göngutúr og skoðuðum dásamlegt útsýni og fallegan skóg en þar heyrðum við í gauki, kúkú, kúkú..
Næsta stopp var í Råshult sem er æskuheimili Linné sem hefur verið breytt í byggðasafn og landið umhverfis bæinn er friðað sem menningarlandslag. Þar tókum við labb í skóginum og hittum litla og stóra hesta. Landslaginu er viðhaldið eins og það var á 18. öldinni og það er án gríns eins og að labba inn í annað tímabelti að labba þarna um.. Yndislegt. Byggðasafnið var skemmtilegt líka og þarna var túristabúð þar sem ég keypti mér blómasvuntu enda er kisusvuntan mín komin í hengla.
Við tókum létt stopp í stórri antíkverslun í gamalli skemmu. Ég get svo svarið það að ef ég hefði haft meira pláss í bílnum og einhver opin vísakort þá hefði ég misst mig alveg... Það var svo margt flott þarna og ekki á neinu uppsprengdu verði heldur akkúrat á sanngjörnu verði... Ég sá norska vöggu frá 1850 sem hefði verið fullkomin undir lopann minn.. Við sáum líka risastór elgshorn en ég hamdi mig ( eða Valdi hamdi mig ) og keypti bara Rådjurs horn sem voru lítil, pen og kostuðu bara nokkra hundraðkalla íslenska.. Valdi keypti sér gamla timbursög..
Næsta stopp var í Husby bruk sem er herragarður þar sem húsin og þorpið í kring hafa verið friðuð sem byggðasafn. Þar fórum við á yndislegan veitingastað og ég fékk frábæran fisk sem kallast Gös. Við röltum þarna um en þarna voru túristabúðir og söfn eins og gamla smiðjan sem var spennandi.
Við gistum svo í Ramkvilla þar sem var nær ekkert fólk og við skelltum okkur út í vatnið sem var mjög kallt en mjög frískandi í þessum svakalega hita.
Á sunnudeginum þá vorum við á slóðum Emils í Kattholti og Línu langsokk en við heimsóttum Kattholt og fórum í Bullerby þar sem börnin í Ólátagarði bjuggu. Síðan fórum við í Astrid Lindgren world sem er paradís barnanna en það er stórt svæði með endalausum sviðsmyndum úr ævintýrum Astrid Lindgren..
Þar sem hitinn var orðinn óbærilegur (31 stig) þá vorum við orðin alveg heiladauð og keyrðum inn í Linköping og skráðum okkur inn á hótel. Þar gátum við hlaðið öll batterí, komist á netið, farið í sturtu og slakað á. Um kvöldið fórum við á veitingastaðinn The bishops arm þar sem við vorum næstum einu kúnnarnir og við fengum svakalega góðan mat og nutum þess í botn að borða ekki Burger king eða ógeðslega kjötfarshamborgara sem er eitthvað sér sænskt fyrirbæri...
Í dag er planið að keyra inn til Stokkhólms.
Bestu kveðjur Frá Linköping
(NÝTT ALBÚM MEÐ ÞESSARI FÆRSLU)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.