29.5.2008 | 08:01
Niðurpökkun og lokagrillveisla í kvöld
Takk fyrir æðisleg komment um bollana... Nú veit ég hvernig á að fá mörg kommennt á bloggið.. það er að kalla beint eftir þeim og það virkaði.....
Elín þú velur þann þrílita.. já ég er nokkuð sammála að hann sé sæmilega lukkaður og Bebba! það verður sko alltaf nóg kaffi á Álfhólnum. Ég sendi heim poka af Gvatemalakaffibaunum sem ég geymdi síðan í ferðinni til að geta boðið upp á nýmalað á Álfhólnum svo nú verður viðeigandi að hella upp á og drekka Gvatemalakaffi úr bollunum mínum.. Hrafnhildur.. Allt sem þú nefndir verður í boði á Álfhólnum, te, kaffi, safi, vatn, kakó og fleira til... Björk þú færð kaffi og jafnvel rauðvín í bollann.. ég er viss um að það virki.. Jú Vigdís, bollunum var nú einmitt raðað þannig að þeir flottustu væru fremstir svo það passar.... Já Þórunn Harðar.. þessi blái er einmitt sá stærsti og sterklegasti og hann hefur unnið á hjá mér þrátt fyrir að vera svona skærblár en ég er meira fyrir jarðliti... Og nú þurfið þið svo bara að drífa ykkur í kaffi á Álfhólinn strax og við komum heim.. Bollarnir fóru sko ekki með Samskip heldur var þeim pakkað inn í bóluplast og settir í plastbox.. Þeir fá að vera inni í bíl hjá okur allt ferðalagið.... Alveg heilagir..
Hrafnhildur... Ég veit ekki hvort við erum með síma á þig og ertu með síma á hana Oddnýju Guðmunds.. Mér hefur gengið illa að skrifa komment á bloggið hennar.. Við verðum líklega á ferðinni í Ási fimmtudaginn 5. júní.
Af flutingunum er það að segja að allt gengur ljómandi vel. Við erum búin að selja eða gefa nærri allt dótið en bara ein hilla og eitt skrifborð er eftir.. Það hringdi hingað íslensk stúlka sem sá auglýsinguna á Blocket og vildi kaupa skrifborð og endað með að kaupa líka fatahengið og fékk svo fullt af öðru dóti gefins.. Allir ánægðir... Ungt par sem var nýbúið að kaupa sér sumarhús keyptu svefnsófann og svo kom skrýtið par í gær og keypti rúmið. Maðurinn var axlarbrotinn og konan hans og Valdi báru rúmið út.. Þau ætluðu reyndar að koma því inn í skottið á Volvo station en það gekk ekki... Dö... þau sóttu þá toppfestingar og þá gátu þau flutt rúmið...
Núna gistum við á ágætis vindsæng á gólfinu. Það tók reyndar smá tíma að pumpa í hana og svo er hún undarleg og tekur kippi og það er hávaði í henni.. Við höldum að loftið sé að færast milli hólfa og líklega hætta þessi óhljóð í dýnunni... Vonandi....
Í gær vöknuðum við eldsnemma (5 um morguninn) til að fara með restina af dótinu upp í Varberg þar sem Samskip er með aðstöðu. Sú ferð gekk vel nema að reiðhjólin voru við það að detta af bílnum alla leiðina og við þurftum að stoppa og festa þau nokkrum sinnum... En í þetta sinn fóru hjólin, 6 kassar, 2 ferðatöskur, eldhúsborð og stólar, pottery hjólið og ein kommóða... Kallarnir hjá vörumóttöku Samskipa eru einstaklega næs og hjálpuðu okkur að koma þessu vel fyrir á bretti. Púff þá er það búið og núna finnum við endanlega ekki neit af dótinu okkar... Við til dæmis áttum fjóra ostaskera.. Einn sem Valdi gaf mér í jólagjöf og lítur út eins og hreindýr, tvo frá Álfhólnum og einn sem Guðbjörg skildi eftir hjá okkur þegar hún flutti úr landi.. Sem sagt fjórir ostaskerar.. Ég tók einn frá og pakkaði þremur og við ætluðum að lifa á hituðum rúnstykkjum og osti það sem eftir er en viti menn ég virðist hafa pakkað öllum fjórum ostaskerunum niður.. DARN.... ÉG NEITA AÐ KAUPA FIMMTA OSTASKERANN... Svo nú kaupum við niðurskorinn ost það sem eftir er... Sem sagt allt í kössum og klúðri...
Eftir ferðina upp í Varberg í gær þá fór Valdi beint í munnlegt próf í trjágreiningu og það gekk rosalega vel hjá honum en þetta var síðasta prófið og nú er bara eftir að fllytja einn fyrirlestur í dag.
Valdi er enn í skólanum og ég er að þrífa mig út úr íbúðinni í dag og svo fer ég í klippingu síðdegis. Í kvöld er svo grillveisla í skólanum því þetta er síðasti skóladagurinn. Ég fæ að fara með enda ekki seinna vænna að hitta eitthvað af þessum skólafélögum hans Valda.. Svo leggjum við af stað í ferðalagið á morgun... Þetta verður stuð...
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
jæja það er bara komið að því að leggja í hann - ég vona að þið eigið góða ferð og bið að heilsa þeim í Ási síminn hjá Oddnýju er 004794266882
kveðja guðbjörg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 29.5.2008 kl. 15:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.