27.5.2008 | 11:30
Heimsins flottustu bollar!!!!
Jæjja núna búum við í kössum og ferðatöskum.. Reyndar er ekki búið að selja rúmið en vonandi gengur það. Sófinn var seldur í gær svo nú er aðalmálið að losna við rúmið.
Valdi er enn á fullu í skólanum og að skila verkefnum. Ég gerðist ritari fyrir hann til að hann yrði fljótari að skila af sér nokkrum greinargerðum og það svínvirkaði.. Þær eru búnar. Núna er hann uppi í Dalby Söderskov að mæla eitthvað og svo eiga nemendurnir að vinna í hópum á morgun og gera einhverja útreikninga. Þau lögðu reyndar af stað í gær en það mígrigndi svo það var snúið við og ákveðið að mæla í dag. Já veðrið í gær var æði, rigning og bara 8 stiga hiti.. næs.. Í dag er aftur orðið óbærilega óþolandi heitt (ósköp á maður samt eftir að sakna góða veðursins hérna þó maður bölvi því í augnablikinu... )
Í morgun var síðasti keramiktíminn. Ég mætti ekki nema bara til að sækja bollana mína sem voru enn volgir beint úr ofninum.. Þeir eru Æði... eða þannig... Maður verður að taka viljann fyrir verkið... þeir eru skrautlegir, skakkir, misstórir, glerjungurinn bráðnar saman á undarlegan hátt og sumir litir virka ekki saman.. En það skiptir engu máli.. mér finnst þetta flottustu bollar í heimi.... Þeir minnkuðu líka í brennslu um 10-15% svo þeir eru talsvert minni en ég ætlaði mér.. kannski verða þetta bara expresso bollar.. En ég er allavega búin að hella mér upp á kaffi núna og er að sötra úr nýju bollunum.... Ég er búin að setja inn myndir af bollunum og vil fá að vita hver er flottastur (skástur)....
Jæjja það er eins gott að halda áfram að pakka þar sem restin af búslóðinni fer upp í Samskip eldsnemma í fyrramálið... Sjónvarpinu verður ekki pakkað fyrr en seint í kvöld þegar Desperat housvifes er búið en allt annað má fara í kassa....
Bestu kveðjur frá Malmö
(NÝTT ALBÚM MEÐ BOLLUNUM)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér finnst þessi sem er númer 4 flottastur...þessi sem er hvítur, brúnn og rauður eða þannig. Annars eru þeir allir mjög flottir hjá þér og gaman að eiga svona sem maður hefur búið til sjálfur.
Elin (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 21:21
Ég ætlaði að velja í alvöru, en svo bara gat ég það ekki. Ég hugsaði já þessi númer eitt er flottastur. Svo nei þessi númer 4 svo nei þessi blái eða þessi á undan bláa. Fjúff það er ekki hægt að gera upp á milli þeirra. Ég skal frekar prufa að drekka úr þeim öllum og athuga hvort ég geti gert upp á milli þeirra þá.... áttu ekki nóg af kaffi á hólnum?
Bebba (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 22:50
VÁ HVAÐ BOLLARNIR ERU FLOTTIR
Mér finnst þeir allir mjög flottir hver á sinn hátt. Hins vegar ef þeir væru allir tómir á borðinu og ég ætti að taka einn til að brúka þá færi það allt eftir því hvað ég væri að fara drekka hvern ég myndi velja. Þar sem ég drekk ekki kaffi væri ég sennilega ekki að velja bollan í það...... en ef;
ég væri að fara drekka vatn þá myndi ég velja bolla nr. 6.
ég væri að fara drekka kakó þá myndi ég velja bolla nr. 3.
ef ég væri að fara drekka safa þá myndi ég velja bolla nr. 4.
ef ég væri að fara drekka te þá myndi ég velja bolla nr. 5.
Skekkjumörk gætu verið skap og veðurfar á því augnabliki sem valið færi fram.
Bestu kveðjur HB.
p.s. kíkið þið ekki við hér á ferð ykkar um Noreg?
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 21:04
Líklega ber ekki talningunni hjá mér og Elínu saman . Ég taldi frá vinstri til hægri ef maður opnar myndaalbúmið og sér bollana alla í röð. Jarpi bollinn nr.1 og blái bollin nr.6. Best að hafa þetta á hreinu sko
kv HB.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 21:15
Mér finnst sá skakkasti og beyglaðasti flottastur, get ekki beðið eftir kaffispjalli í Álfhól með expressó, einn skakkan og rauðvín í desert...koma svo:)))
Björk (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.