25.5.2008 | 20:07
Svíþjóð með húsunum....
Á föstudaginn brunuðum við upp í Tomelilla sem er í um það bil 45 mín fjarlægð frá Malmö. Johann keramikkennarinn minn var búinn að tala við vin sinn um að selja mér ódýrt keramikhjól og tilheyrandi byrjendaverkfæri. Fyrst að við vorum nú komin út fyrir borgina þá tókum við skemmtilegan bíltúr til Ystad og svo suður með ströndinni inn til Malmö aftur. Á leiðinni þá missi ég út úr mér alveg óvart "Svíþjóð með húsunum er miklu flottari en hin Svíþjóð"... Túlkun: Þegar maður kemur út úr borginni þá eru bara krúttleg hús með krúttlegum görðum... Malmö er ekkert rosalega spes borg... Ég get ekki beðið eftir að keyra Smálöndin í næstu viku en mér skilst á Valda að þar séu sko alvöru krúttleg hús í pastellitum.
Við stoppuðum á syðsta odda Svíþjóðar sem heitir Smyge og svo keyptum við Jarðarber á vegasölu en nú virðist "sesonið" vera fyrir jarðarber sem voru til sölu út um allt. Þetta var næs bíltúr og ég var himin lifandi með "pottery hjólið" mitt og prísinn sem ég fékk..
Á laugardaginn þá fórum við yfir til Kaupmannahafnar að hitta Höllu stóru systur hans Valda en hún var þar á ferð með Reyni syni sínum sem er þjálfari fyrir blaklið sem var að keppa í Danmörku. Við hittum Höllu á Ráðhústorginu þar sem Panflautuleikararnir eru enn að halda uppi stuði... Við röltum upp að Sívala turninn og fórum þar upp. Maður hefur svo oft labbað framhjá turninum svo það var nú kominn tími til að kíkja inn og upp. Útsýnið frá toppnum er alveg klikkað en Sívali turninn var upphaflega byggður á 17. öld sem stjörnuskoðunarstöð.
Á Kongens Nytorv voru bæði handverksmarkaður og antíkmarkaður sem við röltum okkur um og svo gengum við Nýhöfn fram og til baka en fólksfjöldinn var talsverður enda var veðrið alveg frábært.. Eða Höllu fannst veðrið frábært en svona bongóblíða fer okkur Valda ekkert rosalega vel... En þetta var næs.. Eftir það var sest inn á Hvíds vínstue til að hvíla lúin bein. Dagurinn var ljómandi skemmtilegur í rölti og spjalli og gaman að hitta Höllu og taka sér pásu frá flutningsstressinu. Þetta var síðasta ferð okkar til DK í bili allavega.
Um kvöldið horfðum við svo á Evróvision og Valdi sýndi ótrúlega þolinmæði að horfa með mér og hlusta á skoðanir mínar á undarlegri stigagjöf sumra þjóða... En Íslenski hópurinn stóð sig frábærlega og ég held að 14. sæti sé bara ljómandi fínt. Hins vegar virðist ég alls ekki hafa nokkra dómgreind fyrir hverjir eru líklegir sigurvegarar þar sem ég hafði tautað yfir þrem efstu lögunum.. "Æi greyin.. þau eiga ekki séns.."... Já það er því ekki ráðlegt að taka mark á mínum Evróvisionspádómum.. En ég verð að viðurkenna að það kom upp smá púki þegar aumingja Carlotta Pirelli (Svíþjóð) var fyrir neðan Ísland og bara talsvert neðarlega... Það sem hefur ekki verið látið með þessa konu hér í Svíþjóð.. púff... Ég var nú einmitt að dást að því hvað flestar söngkonurnar voru í eðlilegum holdum fyrir utan Carlottu sem var heldur rýr og klæðalítil ásamt því að vera allt of mikið máluð.. Valda finnst að hún líti út eins og Bratz dúkka... Og ekki orð um það meir... En þetta var bara ljómandi skemmtileg keppni og næs sjónvarpskvöld yfir snakki hjá okkur Valda.
Við náðum að selja skrifborðsstólana okkar um daginn... Nú vorum við að auglýsa rúmið og svefnsófann og við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir.. Við bara verðum að ná að losna við þetta því annars er bara VESEN í gangi... Niðurpökkun er í fullum gír og allt í kössum út um allt og síðasta máltíðin var elduð í eldhúsinu áðan... Nú hefst nánast þriggja vikna tímabil þar sem við búum í ferðatöskum og finnum ekki neitt.. æi það er smá sjarmi yfir því en samt....
Bestu kveðjur frá Malmö
2 ný albúm Syðsta Svíþjóð (Tekið á símann hans Valda) og Síðasta Danmerkurferðin
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.