Panikk... það hringir enginn...

Smá panikk í gangi... En ég var að setja inn auglýsingu á Blocket.se til að selja húsgögnin okkar og það hefur enginn hringt.... PANIKK.... Hvað við gerum ef við losnum ekki við þetta veit ég ekki... Ég vil líka fá pening fyrir þetta því við náttúrulega eyddum hellings pening í þetta í haust..

Annars er bara rólegt... Vinnan fyrir Greinasafnið er að mestu búin í þessari lotu svo nú fer ég að einbeita mér að niðurpökkun.  Valdi fékk ekki að taka prófið sitt aftur sem honum gekk illa í svo nú situr hann sveittur og er að skrifa greinargerðir úr milljón greinum sem hann á að skila á morgun.. Hann er reyndar í dag í vettvantsferð í ´"útlandinu" sum sé Danmörku.

Ég fór í keramiktímann minn á þriðjudaginn og lenti í tímaharki við að klára að glerja bollana. Ég hélt kennaranum í gíslingu í 45 mínútur fram yfir tímann og konan hans og nokkurra mánaða gamalt barn biðu á meðan... En ég bara varð að klára að glerja því þetta var síðasti tíminn en svo sæki ég bollana tilbúna á þriðjudaginn næsta.. Vá ég er ekkert smá spennt að sjá hvernig þetta kemur út.. Ég ákvað að hafa þetta bara algjöra tilraunastarfsemi og hafði tvo liti á hverjum bolla og suma hálfa að utan líka... Panikkið gerði það að verkum að ég var farin að sulla litum hægri og vinstri á alla bolla og systemið mitt var komið í steik... Númer hvað af hvaða glerjung ég hafði valið saman á hvaða bolla var alveg komið í rugl... En það verður spennandi að sjá útkomuna..  Það er alveg sama hvað þeir verða ljótir, skakkir eða asnalegir á litinn... ÞIÐ FÁIÐ KAFFI ÚR ÞESSUM BOLLUM Í FRAMTÍÐINNI.. Og hana nú...

Ætli maður horfi ekki á Evróvision í kvöld með öðru auganu en ef Lilja kemur þá verður horft með báðum.. Valdi er í Evróvision verkfalli og verður því inni í herbergi að skrifa greinargerðir...

Jæjja ég ætla að halda áfram að horfa á símann og vona að hann hringi..

Kveðjur frá Malmö

PS. myndir koma vonandi bráðum inn... en það er eitthvað klikk á blogginu með innsetningu á myndum sem gerir það að verkum að það tekur marga klukkutíma...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta verða ábyggilega flottir bollar þó að það sé eitthvað litaskipulags ruglingur. Og örugglega jafn vökva heldir líka........

Gangi ykkur vel að pakka og græja! 

bestu kveðjur

HB

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband