15.5.2008 | 19:31
Með öngulinn í rassinum...
Hitinn þessa vikuna hefur dansað í kringum 18-19 og 20 stig.. Púff.. of heitt... Mér skilst að vorið/sumarið sé komið heima á Hvanneyri.. Hrein snilld..
Sl. þriðjudag fór ég í keramiktímann minn eins og alltaf á þriðjudögum nema að Johann sem kennir okkur var í fríi og einhver Johanna kenndi í staðin... Ég var bara ekki í stuði og það gekk ekkert upp hjá mér auk þess sem henni tókst að toga eitt handfangið af einum bollanna.... veit ekki alveg hvað var í gangi þar.... En við límdum haldið aftur á með leirlími... Loksins eru bollarnir að fara í brennslu.... Ég bjó síðan til tvær ágætis skálar en náði svo að klessa plastpoka í þær þegar ég var að setja þær upp í hillu svo þær voru hnoðaðar í kássu og sendar í endurvinnsluna...
Á miðvikudaginn fórum við upp í Varberg sem er í ríflega tveggja tíma fjarlægð frá Malmö. Við vorum að fara upp í Samskip með 6 kassa, eina ferðatösku og skápinn hennar Gerðar systur. Þetta er fyrsta sendingin heim en ég taldi ágætt að senda þetta í tveim lotum enda er þetta mikil skriffinnska og flókið kerfi allt saman... En þetta gekk ágætlega en við áttum að mæta með dótið fyrir 12 og við ætluðum að vera komin tíu en það vildi ekki betur til en svo að við komum akkúrat 12.03... Sem slapp þó fyrir horn... Valda þótti alveg óbærilega leiðinlegt að keyra hraðbrautina á spariklædda traktornum (Hilux). Ég hafði það hins vegar ágætt en ég hraut hálfa leiðina upp eftir og las svo glæpasögu á leiðinni niður eftir... Næs....
Valdi er á fullu í skólanum og svo er hann að drukkna í heimavinnu líka... Hann fór í próf á þriðjudaginn og er eiginlega að vona að hann hafi fallið þar sem það gekk illa hjá honum að læra vegna veðurs um helgina... Hann vill fá annan séns... (og betra próflestrarveður!) Ég er á fullu í Greinasafninu sem mér þykir ganga heldur hægt en þetta bara tekur þennan tíma og ég er ekki nógu þolinmóð...
Við fórum út að ganga í Kirseberggarðinn í gær og þá var fornbílasýning þar.. algert klúður að vera ekki með myndavélina.. Fullt af frábærum fornbílum og fólk að skoða þá.. En í dag skutumst við svo að veiða aftur við Eyrarsundsbrúna en Valdi hafði keypt hosuklemmu í Bauhaus og festi veiðihjólið á þannig að stöngin svínvirkaði... Við fengum hins vegar engan fisk en gaurinn sem var að veiða við hliðina á okur fékk þrjár geddur... Svo aftur fórum við heim með öngulinn í rassinum...
Nýtt stutt albúm
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hæ hæ
það styttist í ykkur, bíðum spennt!!!!
kveðja frá Hvanneyri
Bebba (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.