12.5.2008 | 10:36
Óbærilega heit helgi
Já hér hefur verið allt of mikill hiti. 25 stig alla helgina.. ÞETTA ER ÓBÆRILEGT...
Þessi helgi hefur verið mjög viðburðarrík og skemmtileg. Valdi er í próflestri en það hefur gengið illa að hanga inni og lesa í þessu veðri. Á laugardaginn hjóluðum við niður í bæ í Slottsparken en það er garðurinn í kringum Malmö kastala. Þar var krökkt af fólki, hundum og börnum og mikil sólarstemning. Já Svíar eru loksins búnir að fækka fötum. Við vorum aðallega að skoða trén í garðnum og vorum með kortið úr bókinni hans Valda um Trén í Malmö. Þessi garður er alveg yndislegur, fjölbreyttur og fallegur. Þarna eru tjarnir, blómabeð, tré, kaffihús, gömul mylla og margt fleira. Endurnar voru alveg "crazy", þær voru ekki mannafælur en Helsinginn var greinilega að verja sitt svæði því hann ætlaði að hjóla í okkur nokkrum sinnum og við áttum fótum okkar fjör að launa á köflum undan óðum Helsingjum. Við skoðuðum mörg tré, sáum fiska í tjörnunum og froska en þrátt fyrir mikinn hita þá var dagurinn ljúfur.
Ég vaknaði snemma á sunnudeginum því ég hafði náð að plata Lilju með mér á keramiknámskeið hjá Wallåkra en það var yndislegt að koma þangað aftur og Lilja sýndi ótvíræða hæfileika og gerði fullt af fínum krukkum. Ég fékk að vinna með meiri leir en ég hef gert hingað til og æfði mig í að miðjusetja stærri leirklumpa og gera almennilegar skálar. Við Lilja erum svo spenntar að fá krukkurnar okkar til okkar en þær verða ekki tilbúnar fyrr en eftir 2 mánuði svo líklega fáum við þær bara í haust þegar Valdi eða Lilja hafa erindi í SLU. Valdi gerði þau alvarlegu mistök að hleypa mér upp í Wallåkra með vísakortið mitt svo ég náði að versla eina skál, eina litla krukku og tvo kaffibolla sem voru nú aðallega keyptir til að æfa mig í að renna svona form. (var þetta ekki góð afsökun!!!)
Eftir Krukkunámskeiðið sóttum við Valda og fórum að veiða í varnargarðinum fyrir neðan Eyrarsundsbrúna. Enn var 25 stiga óbærilgeur hiti en stemningin í miðbænum og í görðunum við sjóinn og bara alls staðar, var frábær, fullt af fólki og sólarstemning. Við höfðum keypt ódýra veiðistöng en Valda snillingi tókst að brjóta plastið sem festir hjólið, áður en við byrjuðum að veiða... Þannig að það var svolítið puð að kasta út í og draga inn en Valdi lét sig hafa það og við Lilja sóluðum okkur á meðan. Ég kastaði reyndar nokkrum sinnum út í en gerði ekki mikið annað en að veiða þang og flækja hjólið. Við sáum hins vegar fullt af fiskum og einu sinni reyndi Horngädda (Belone Belone) að bíta í hjá Valda en það hafðist ekki.
Eftir að hafa gefist upp á veiðinni með öngulinn í rassinum þá ákváðum við að grilla og Lilja sótti grillið sitt og það var grillað á svölunum hjá okkur. Góður matur hjá Lilju og gott að enda ljúfan dag á svona góðri máltíð.
Í dag er Valdi enn í próflestri, svolítið sólbrenndur eftir gærdaginn en það er smá gola og eins og Valdi sagði "Það er BARA 18 stiga hiti"....
Bestu kveðjur úr hitanum í Malmö
(2 ALBÚM)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kartöflunara komnar í hús og verða tilbúnar til niðursetningar þegar þið komið heim. Hér er allt að laufgast og styttist í fyrsta grasslátt í görðum í Reykjavík. Kveðja Steinunn
Steinunn Reynisdóttir (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 19:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.