Skemmtileg heimsókn í Jägersbo

Í gær fórum við til Jägersbo til Hugrúnar og Guðjóns en þau eru búin að koma sér vel fyrir á hjólhýsasvæðinu þar í snyrtilegu hjólhýsi með stóru flottu fortjaldi.  Við lentum í umferðarteppu á leiðinni en við mættum til þeirra upp úr klukkan 18:00.  Svæðið þarna í Jagersbo campingcenter er yndislegt en þau eru td. staðsett alveg við vatnið og svo er fín þjónustumiðstöð rétt hjá, þar sem hægt er að þvo, fara á salerni og í sturtu. Einnig skoðuðum við eldhúsaðstöðuna sem var flott, hrein og fín.

Guðjón eldaði handa okkur frábært svínakjöt og líka flís af Hjartarkjöti.. Ummmm þetta var svo gott... Við borðuðum rækilega yfir okkur enda ekki annað hægt þegar svona góður matur er í boði. Í desert fengum við fersk bláber og jarðarber með rjóma sem var ljúffengt.

Eftir mat þá röltum við okkur niður að vatni og fórum út á skrýtna flotbryggju sem var þarna. Hún var samsett úr plastkubbum og skrúfuð saman með risastórum plastskrúfum.. Þetta var svona eins og Duplo bryggja..  þar var líka rennibraut fyrir börnin til að skutla sér í vatnið.. Valdi óþekktarormur þurfti náttúrulega að kanna hvað vatnið væri heitt/kalt og endaði með að fletta sig klæðum og kasta sér til stunds við mikinn fögnuð en aðallega undrun frá nærstöddum Svíum... Valdi synti þarna um í smá stund og kom svo upp úr alveg rennandi blautur og var í blautum buxum það sem eftir var heimsóknarinnar.. Og svo skilur hann ekkert af hverju hann er kvefaður í dag..

Þetta var ljúf heimsókn en við vorum svo komin til baka til Malmö um hálf tólf.

Í dag stefnir í óbærilegan hita enn og einu sinni en Valdi er í próflestri og ég er að vinna við greinasafnið. Líklega verður nú tekið rölt út í góða veðrið seinna í dag.  Á morgun förum við Lilja svo á keramiknámskeið upp í Vallakra..

NÝTT ALBÚM

Bestu kveðjur úr hita og svita í Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband