9.5.2008 | 11:33
Sólarrúntur um Skán
Í gær fórum við í langan bíltúr um Skán.
Ferðin hófst reyndar í Sopstation þar sem ég hafði ekki komist þangað í langan tíma. Þar fann ég tvo diska sem ég keypti. Eftir það lá leiðin upp til Kristianstad sem er í norðausturhorninu á Skáni eða í um eins og hálfs tíma akstursfjarlægð. Kristianstad er krúttlegur bær með subbulegustu verslunarmiðstöð sem við höfum séð og líka eiginlega þeirri skrýtnustu. Minnti hálfpartinn á Kjörgarð á Laugaveginum í den. Ríkið þar var hins vegar alveg að gera sig en við fundum ótal margar nýjar tegundir af bjór sem Valdi hafði aldrei smakkað. Erindið var hins vegar að fara í handverksbúð en ég hafði séð til sölu fallega hringi á Litla Torgi á jólamarkaði sem voru seldir þar. Hringirnir voru mjög fallegir og ég fjárfesti í einum slíkum en hann er með rauðum stórum steini svona ekta ég...
Þegar við komum út úr handverksbúðinni varð Valdi fyrir árás vespu sem hann virðist hafa rekist í og þar af leiðandi pirrað á einhvern hátt en hún stakk hann í fingurinn og það var víst MJÖG VONT... Ég þurfti að plokka oddinn úr puttanum og svo varð puttinn hvítur... Úpps.. Valdi var mjög aumur í puttanum í dágóðan tíma og var puttinn stirður og bólginn enn í morgun...
Eftir Kristianstad ákváðum við að keyra meðfram ströndinni heim og fyrsta stoppið var Åhus en þar gengum við um ósa Helgeå þar sem var bryggja með veitingastöðum og ísbáti. Þetta var mjög huggulegur bær og sjarmerandi að labba meðfram ánni.
Þaðan keyrðum við áfram suður með ströndinni og stoppuðum meðal annars í Yngsjö og kíktum á ströndina þar. Sjórinn var ískaldur en við fórum samt í fótabað sem var mjög hressandi. Fólk er greinilega farið að koma sér fyrir í sumarhúsunum þarna í kring og einnig var mikið um húsbíla á svæðinu. Svíar virðast raunverulega nota sumarhúsin sín sem sumarhús og búa þar allt sumarið.. Það hlýtur að vera yndislegt að vera í þessu umhverfi nálægt sjónum þar sem eru strandveitingahús og stemning í heilt sumar en ekki bara um helgar eins og Íslendingar virðast gera.
Við ákváðum að hafa matarstopp í Simrisham og fórum á ágætis veitingastað, við röltum aðeins um miðborgina og niður að höfn en þarna eru eldgamlar götur og hús en miðbærinn virtist mjög huggulegur. Ég sá í einum búðarglugga alveg stórkostlega Ruggukind (samanber rugguhestur)... (sjá myndir).. Sem betur fer var búðin ekki opin því ég hefði alveg getað freistast til að kaupa kindina því mér fannst hún æði. Valdi dæsti bara....
Þegar heim var komið þá var lagst í sjónvarpsgláp en við náðum í skottið á "Dirty, Sexy, Money" en mér skilst að það sé verið að sýna þá vitleysu á Íslandi líka.
Í kvöld stefnum við á að fara til Hoor og heimsækja Hugrúnu og Guðjón og grilla með þeim.
PS. vorum að reka augun í það að hér er 21 stiga hiti en á Hvanneyri 2,1 úpps.... Sömu tölur en ekki alveg.....
Bestu kveðjur úr óbærilegum hita í Svíþjóð
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.