7.5.2008 | 08:03
Bollar, steik og Despó...
Jæjja það er rólegt hjá okkur núna. Valdi er að drukkna í hópverkefninu sínu og ég er að drukkna í vinnu í tölvunni. Við höfum lítið gert nema að rölta okkur út í Kirseberggarðinn til að fá smá hreyfingu. Endurnar eru líklega orðnar alveg stútfullar af brauði því þær litu ekki við brauðinu sem við reyndum að gefa þeim svo við urðum að henda því í næstu ruslatunnu...
Í gær fór ég í keramiktíma eins og alltaf á þriðjudagsmorgnum. Ég hér með dreg til baka öll ummæli um misflottar krukkur og skálar hjá samnemendum mínum... Bollarnir mínir eru svo skakkir og skældir... þetta er bara mun erfiðara en ég hélt.. .. Ég lét af fullkomnunaráráttunni um daginn og ákvað að muna að þetta námskeið væri til að læra af því en ekki framleiða fullkomna bolla í fyrstu tilraun... En í gær var ég að setja höldurnar á bollana og það gekk skrautlega... En höldurnar fóru á og svo sjáum við til hvort þær haldist þar en beinar eru þær ekki en ég held að þessir bollar verði bara skemmtilega persónulegir ef þeir klárast einhvern tíman.. (Sjá myndir).
Í gærkvöldi var Desperat Housvifes kvöld.. Þá er alltaf tilefni til að fá sér rauðvínstár og elda góðan mat... Við keyptum risasvínalærisvöðva úti í búð fyrir lítinn pening og svo gerði ég heimalagað Valdorfsalat með... Mikið hefðum við verið til í að grilla þessa steik á svölunum en við eigum ekki grill.. Í gær var 20 stiga hiti púff... Ég hjólaði niður í skattinn í gær og ég hélt ég myndi deyja á leiðinni... Svíar eru aðeins farnir að fækka fötum núna og hætta að ganga í dúnúlpunum...
Stefnir í svipaðan hita í dag en það er nú þegar heiðskírt og 17 stig í augnablikinu... Púfff ég dey... en ósköp á ég eftir að sakna veðursins þegar maður kemur heim í vindinn á Hvanneyri...
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessir bollar eru nú aldeilis fínir og hafa hver sinn persónuleika. 'Eg skil nú ekki í því að Valdi vilji ekki ganga í þessum líka fallegu fötum sem voru í myndaalbúmi síðustu færslu, þetta myndi fara honum svo vel sérstaklega, hvítar buxur og bleikur bolur
. Sit hér heima í flensu sem hefur hrjáð mig síðan á sunnudag. 'Eg reyndi að setja athugasemd við myndir í síðast albúmi en það kom alltaf villumelding. En Bleikblómstrandi tréið er kirsuberjatré. Vona að þið hafið það gott og passið ykkur nú á steikunum
. Kveðja Steinunn
Steinunn Reynisdóttir (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 08:44
Jæja var nú kominn tími til að kvitta fyrir sig svona einu sinni !
En líst vel á þetta bolladæmi hjá þér, sé fyrir mér keramik brennslu á Hvanneyri í nánustu framtíð. Annars bara bæó og hafið það gott !
Bjössi (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 01:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.