5.5.2008 | 17:11
Samnorræn hallæristíska..
Já við Valdi höfum komist að því að við erum orðin of gömul til að skilja tískustraumana hér í Svíþjóð og Köben. Við höfum reynt í smá tíma að finna venjuleg föt á Valda en það hefur gengið illa. Við ákváðum að fara í Fields sem er stór verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn og freista gæfunnar þar en Valdi er búinn að gera göt á öll sín föt eða "vaxinn upp úr þeim"...
Í Fiels fundum við alveg hörmulega tísku sem við köllum Samnorræna hallæristískustrauma... Sænskir karlmenn eru til dæmis rosalega gjarnir á að vera í bleikum skyrtum eða væmnum litum.. (Skoðið myndirnar).. Auk þess þá var hávaðinn eiginlega of mikill í þessum búðum til að við gætum einbeitt okkur.. Við enduðum í Dressmann og náðum þar í tvo boli og einn síðerma bol.. Auk þess keypti Valdi buxur í North face útvistarbúðinni sem hægt er að renna skálmunum af en hann er lengi búinn að langa í svona buxur.. Ég komst hins vegar í yndislega búð sem heitir The Masai Clothing company sem hefur stórar stærðir og ég keypti tvo svona "skokka" kjóla eða toppa... veit ekki alveg hvað þetta telst vera.. Valdi segir að þetta séu "Skokk kjólar" til að skokkka í.. Hummmm... Valdi sagði líka að þetta væri "gömlu kellingabúð"... því það voru bara eldri konur að afgreiða og versla... Þær sem voru ungar þarna voru að aðstoða mæður sínar að versla... (Æi er ég orðin svona gömul....)
Þaðan fórum við inn til Kaupmannahafnar og röltum okkur inn til Christianíu. Þetta var dágott rölt en það hafðist með einu bjórstoppið en hitinn var nánast óbærilegur á þessum yndislega laugardagi..
Christianía var fremur dapur.. Markaðurinn var svo sem skemmtilegur en ég keypti einn ódýran hring en hætti við að kaupa annan eftir að mér var bent á að skrúfa mætti steininn úr og geyma þar "kókaín"... Hummm.. held ég hafi ekki þörf fyrir slíkan hring... Í loftinu var ákveðin reykingalykt og einnig hlandlykt.. Óþrifnaður var mikill og sorglegt að sjá Grænlendingana litla og rýra með bjórinn sinn og eitthvað sorglegt skakkt glott á vörunum.. Mannlífið var mikið þarna og ferðamenn út um allt í bland við Grænlendingana og unga menn með bjór og jónu... Já það var ákveðin upplifun að koma þarna.. Við fórum inn á útskurðarverkstæði til að skoða timburhandverkið en það var heldur ómerkilegt og dýrt.. Á heildina litið þá var þetta að sjálfsögðu upplifun að koma þarna..
Eftir það var rölt í átt að miðborginni og við fundum bjórbúð með hinum og þessum bórtegundum og antíkmarkað. Við vorum að leita að veitingastað sem kom svo á daginn að var eiginlega of "fancy".. Við héldum áfram og rákumst inn á Mexícó/Texas stað við Ráðhústorgið.. Ég fór strax í fýlu þegar afturendinn á mér komst ekki í stólinn... Ég meina Texasveitingastaður ... og gerir ráð fyrir penu fólki... Ekki að ganga upp.. Margarítan mín var bara fjall af klaka sem flæddi um allt borðið.. En forrétturinn var stórkostlegur.. Hot wings.. Ekta USA... Valdi fékk sér Nachos með osti, stórn skammt.. Svo kom maturinn og þá var "Well Done" kjötið mitt rautt og hrátt og ég maulaði franskarnar.. En medium rare kjötið hans Valda var HRÁTT.. eins og það átti að vera.. En rauðvínið var gott og félagsskapurinn góður (Valdi)... Eftir það var haldið heim á leið enda var ég alveg gengin upp að hnjám og mikið þreytt..
Annars hafa síðustu dagar farið í að klára að fara yfir síðasta vistfræðiverkefnið og reikna saman vetrareinkunn og skila þeim af mér.. Þetta hefur verið svakaleg vinna.. En prófið hjá þeim er á morgun.. Ég verð að játa að það er ákveðinn léttir að vera búin að skila þessu af mér þó þetta sé búið að vera gaman.
Valdi er enn í hópverkefni en hópurinn samanstendur af Valda og Valda og meiri Valda.. Valdi segir að "hinir" í hópnum hafi verið latir um helgina og því hafi lítið unnist.. Hann segir að "hópurinn" lofi betri vinnubrögðum næstu daga..
Bíllinn er í viðgerð... Það eru bara ekki til varahlutir í bíla fyrir fullorðna í Svíþjóð og það þurfti að panta þá frá Danmörku sem virðist taka um það bil viku.. (45 mín með lest..).... Svo við bíðum enn..
Bestu kveðjur úr hitanum, svitanum og sumrinu í Svíþjóð
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.