Sauðdrukknir Svíar

Í gær fórum við upp í Lund með Lilju. Dagurinn fyrir 1. maí er einhverskonar hátíð hjá skólakrökkum og mátti sjá sauðdrukkna námsmenn slaga um allt í Lundi.  Þau voru greinilega að fara í eða koma frá einhverskonar "pikknikk" því allir voru með garðstóla, bjór og nesti. Einnig mátti sjá kóra á víð og dreif um bæinn ásamt lúðrasveit sem var með klappstýrur með sér.  Við vitum ekki alveg hvers eðlis þessi hátíð var en sumum búðum var lokað snemma í tilefni dagsins. Einnig rákumst við á mikið af mjög prúðbúnum ungmennum td. ungir menn í mörgæsabúningum og stúlkum í síðkjólum. Líklega hafa þau verið á leið á einhverskonar vorball eða lokaball hjá menntaskólanum sínum.

Eftir að hafa virt fyrir okkur mannlífið í Lundi þá fórum við á Enska krá og fengum okkur bjór en svo var haldið aftur til Malmö. Það verður að segjast að almenningssamgöngur eru mjög góðar hér en við gengum beint upp í lest til Malmö sem tók bara 15 mínútur.  Bíllinn er enn að bíða eftir að komast á verkstæði. 

Við Valdi ákváðum að skella okkur út að borða þegar við komum til Malmö en í miðborginni hér var ekki ófremdarástand og engir unglingar heldur var bara melló föstudagsstemning í gangi og fólk að flykkjast á barina. Við fórum á Ítalskan stað þar sem ég fékk besta pasta í heimi og Valdi fékk ágætis pizzu. Eins og sönnum námsmönnum sæmir þá pöntuðum við okkur ódýrustu rauðvínsflöskuna sem var eiginlega bara rosalega góð.  Næs.. Síðan var bara farið heim með strætó og haugast..

(ALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU)

Bestu kveðjur úr rigningunni í Malmö (Samt 14 stiga hiti og logn)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband