29.4.2008 | 12:58
Hvenær fækka Svíar fötum?
Í dag er 20 stiga hiti og ég var niðri í bæ áðan og Svíar eru enn kappklæddir... Hvað er málið með þetta?
Valdi er búinn að vera í skólanum mánudag og þriðjudag en er núna kominn í hópverkefnavinnu hérna einn heima þar sem hópunum er skipt upp eftir löndum og Valdi er eini Íslendingurinn í bekknum.
Síðasta sunnudag fór ég í "intensive throwing" námskeið en það var keramiknámskeið frá 10-16 og maður gat tekið endalausan leir og hent mistökunum jafnóðum án þess að spá í að vikta eða verka leirinn.. Þetta var rosalega gaman en ég sat alveg í föst allan daginn án þess að fá mat eða pásur. Ég náði að gera 3 "bolla" og gerði svo 3 í viðbót í dag. Ég snyrti til bollana frá sl. sunnudegi í dag og geri svo höldur í næstu viku. Þetta er svo gaman.
Annars hef ég bara verið föst í tölvuvinnu í tengslum við vistfræðina og greinasafnið. Nú fer vistfræðin að líða undir lok en síðasta verkefninu var skilað í gær.
Valdi var að panta tíma fyrir bílinn á verkstæði því það er farinn hjöruliðskross og það virðist erfitt að fá varahluti hér í svona bíla og þeir eru ekki ódýrir en bíllinn fer inn á mánudaginn.
Annars er bara bongóblíða og við á leiðinni út í sólina
(EITT NÝTT SMÁALBÚM)
Bestu kveðjur heim í slydduna og rokið
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Oh hvað ég öfunda ykkur...það eru svo sem 12 stig hér í RVK í dag, það er ágætt.
Mjög flottir bollar hjá þér GB.. hvað á síðan að gera við þá þegar búið er að koma höldunum á? Verða þeir "málaðir" eða?
Gangi þér vel með leirlistina, og Valdi gangi þér vel með hópverkefni í þessum stóra hóp :o)
Kveðja Elin og bumbus
Elin (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 13:09
Hefur einhver heyrt um "hjöruliðskross"? Það er ekki til og svíarnir ætla bara að plokka af ykkur pening.
Flottir bollar, á svo að fylla bílinn af leirvörum sem þú hefur búið til? og flyta heim til Íslands? Jóla og afmælisgjafir næstu ára!
Hér er rok og kuldi.
Kveðja, Gerður.
Gerður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.