26.4.2008 | 19:34
Vladimír Pólskí heim frá Póllandi
Jæjja það hlaut að koma að því að kallinn kæmi heim.. En Valdi er búinn að vera í fimm daga í Póllandi nánar til tekið í Bialowieza þjóðgarðinum. Þetta var síðasta langaferðin hans en nú eru bara dagsferðir eftir.. Sem betur fer... Þessi þjóðgarður er langstærsti náttúrulegur skógur á láglendi í Evrópu og þarna eru heimkynni Evrópuvísundarins sem er stærsta landspendýr í Evrópu.
Ferðin var mjög skemmtileg í alla staði en hópurinn dvaldi á fínu gistiheimili rétt fyrir utan þjóðgarðinn í litlu þorpi. Skógurinn var alveg svakalegur en þetta eru stærstu tré sem Valdi hefur nokkurn tíman séð. Það var áhugavert að koma að skóginum því úr fjarska sást greinilega hvernig skógurinn er lagskiptur. Í útjaðrinum er birki og elri ríkjandi og þær eru töluvert lægri en aðrar tegundir þarna. Síðan koma aðrar tegundir lauftrjáa og grenið stendur svo upp úr og trónir yfir allt. Grenið er hátt í 60 metrar. Skógurinn var friðaður á sínum tíma fyrir skógarhöggi því þetta voru veiðilendur konunga og keisara en það var aðallega vísundurinn sem þeir vildu vernda til að veiða. Meðalstórt karldýr er um 900 kíló og má því maula á einum vísundi í ansi langan tíma.
Dýralíf er mjög fjölbreytt í skóginum og þar finnast sjaldgæfar tegundir fugla og dýra. Hópurinn fór í einskonar dýragarð þar sem sjá mátti stærstu spendýrin sem lifa í skóginum, td. gaupur, hirti, úlfa og vísunda. Þau fóru einnig í fuglaskoðun en sáu fáa fugla en heyrðu þó í mörgum meðal annars tveim gerðum af spætum. Þau sáu svo hrafnshreiður hátt í trjákrónu. Á leiðinni á hótelið sáu þau ekta stork á skorsteini en Valdi náði fínni mynd af storkinum í hreiðrinu (SJÁ ALBÚM).
Í þjóðgarðinum var glæný gestastofa/fræðslumiðstöð og þar fór hópurinn og sá sýningu um lífríki garðsins með leiðsögumanni. Þar mátti sjá allar helstu dýrategundirnar uppstoppaðar og útstillingu á plöntum og skordýrum. Þar keypti Valdi mjög fallega myndabók um þjóðgarðinn.
Síðasta kvöldið var svo grillað saman á tjaldstæði í þjóðgarðinum sem var rétt hjá landamærum Hvíta-Rússlands. Kvöldið var skemmtilegt og veðrið var frábært þetta kvöld og allan tíman en það var sól og blíða. Þetta var besta og áhugaverðasta fræðsluferðin sem Valdi hefur farið í á þessu ári.
Mín vika hefur farið í tölvuvinnu en hápunkturinn var að hitta Rabba, Hlyn, Sigga, Lilju og Örnu Dögg á veitingastað niðri í bæ og drekka "nokkra" bjóra.. Þetta kvöld var mjög skemmtilegt og ég held ég hafi fengið harðsperrur í kinnarnar eftir hláturrokurnar enda hlógum við út í eitt allt kvöldið... Frábært að hitta þetta lið og vonandi gerist það aftur fyrir brottför...
(TVÖ NÝ ALBÚM)
Gleðilegt sumar frá Malmö (í 15 stiga hita)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl
Þetta hefur verið góð ferð til Póllands.. Ég tel mig sjá 3 þreytta rannsóknarnemendur á myndinni. Biðjum að heilsa frá Egilsstöðum úr þoku og fimm stiga hita.
Benni (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.