22.4.2008 | 16:34
Sólarvörn takk...
Já hér er aldeilis að koma sumar.. Sólin skín þvílíkt að ég var að kafna áðan úti í Kirseberggarðinum og það er kominn tími á sólarvörn fyrir rauðhausinn....
Þessa dagana er ég bara föst í tölvunni í vistfræðinni og Greinasafninu til skiptis. Það er í raun mjög gaman en alveg ofboðslega finnst mér Greinasafnið ganga hægt hjá mér.. ég veit ekki af hverju en þetta bara tekur svona svakalegan tíma ef vel á að vera...
Í morgun fór ég í keramiktíma en ég er farin að efast mjög um hæfileika mína á þessu sviði en allt gekk á afturfótunum í morgun. Leirklessan mín vildi ekki miðjusetja sig á rennibekkinn og það var sama hvað ég reyndi, klessan bara sveiflaðist til og frá í allar áttir.. Arrrggg.... En eftir smá leiðbeiningar og upprifjun frá kennaranum þá náði ég tækninni aftur í bili allavega... Ég er bara að æfa mig á bekknum og hendi öllu sem ég geri núna... Ég hef nú líklega ekki efni á því að gera grín að verkum annarra nemenda en konurnar virðast hirða allt sem þær gera og láta brenna, alveg sama hvað það er skakkt og skælt.. Ein mætti í dag með jólapiparkökumótin sín og var að gera leirkalla og hesta (eða var það grís).. Ég verð að segja að þetta er svolítið eins og að mála eftir númerum.... Þær eiga það líka til að fá kennarann til að sýna sér eitthvað og jú Jóhann gerir fína skál og sýnir þeim tæknina og um leið og hann er kominn fyrir hornið þá er hlaupið með skálina í brennsluhilluna.... HALLÓ...
Valdi átti fínan dag í Póllandi en hann er í Bialowíeza þjóðgarðinum. Í morgun hjóluðu þau á svæði innan þjóðgarðsins sem er með sérstaklega strangri friðun. Þar voru þau í dag að labba um og skoða, fugla, gróður, tré og dýralíf auk þess sem þau hlýddu á fyrirlestur úti í skógi. Hótelið sem þau eru á er alveg ágætt en bara sumar tölvur vilja nettengjast og tölvan hans Valda er ein af þeim sem er í mótþróakasti þannig að myndir frá Póllandi koma inn um næstu helgi.
Í fyrramálið þurfa þau að vakna um fimm leytið því þau ætla í fuglaskoðun eldsnemma að skoða "woodpeckers" og aðra furðufugla þarna á svæðinu...
Jæjja best að henda kínarúllunum inn í ofn... Desperat housvifes í kvöld... svo ég held ég taki bara sófakvöld með prjónana..
Bestu kveðjur frá Malmö (og Póllandi)
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt sumar skötuhjú!!
Bestu kveðjur frá Agureyris :)
Rakel (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 18:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.