Langur labbitúr og vondar pizzur..

BRYNHILDUR ÞÓREY ER EINS ÁRS Í DAG.. TIL HAMINGJU....

Í gær fórum við í langan göngutúr yfir í Bulltoftagarðinn.. Við höfum komist að því að Svíar eru snillingar í að viðhalda grænum svæðum í borginni og tengja þau saman mill bæjarhluta. Hægt er að ganga á grænum svæðum langar leiðir hér í borg.  Við gengum að Kirseberggarðinum okkar og þaðan yfir á grænt svæði milli íbúðabyggða en þar mátti finna fallega göngustíga, tennisvelli og fótboltavöll. Þaðan komumst við svo undir hraðbrautina og yfir í Bulltoftagarðinn sem er við hliðina á IKEA, umvafinn íbúðabyggð en er mjög stór og fjölbreyttur. Þarna eru tennisvellir, fótboltavellir, tjarnir, trjásýnisafn, líkamsræktarstöð, mínígólf, trimmbrautir og frisbívöllur svo eitthvað sé nefnt. Hrein paradís í miðri borg. Trjágróðurinn þarna er stórkostlegur en þarna má sjá aspir, lerki, hrossakastaníu og margt fleira.  Svo röltum við okkur til baka og ég held að við höfum allavega gengið um 10 km í gær.

Í gærkvöldi átti að vera kósíkvöld með pizzum en ég get svo svarið það að pizzurnar voru ofboðslega vondar.. Ég var alveg miður mín enda held ég að ég geri frekar góðar pizzur að öllu jöfnu... Nú verður pizzaofninum pakkað niður og hann fer heim með fyrstu ferð..

Sunnudagurinn fór í tölvuvinnu hjá okkur báðum. Við röltum okkur út í Kirseberggarðinn og löbbuðum 5 km. Við ákváðum að gefa restinni af pizzunum frá í gær séns til að spara pening og viti menn þær voru mun betri upphitaðar.. (en ofninn fer samt heim... )

Þetta var sem sagt róleg og næs helgi hjá okkur en nú fer Valdi til Póllands á morgun og þá verð ég ein alla vikuna en Valdi kemur svó á föstudaginn. Valdi er að fara í þjóðgarð í Póllandi sem heitir Bialowíeza.

(NÝTT ALBÚM)

Bestu kveðjur frá Malmö

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband