Rólegir Malmödagar..

Síðustu dagar hafa verið ljúfir og rólegir hér á í Malmö.  Valdi hefur verið á fullu í próflestri en prófið var í gær og gekk vel og fjallaði um notkun lauftrjáa í skógrækt. Valdi fór líka í eina vettvangsferð til að skoða beyki- og eikarskógrækt en til þess þurftu þau að fara alla leið til Blekinge á svæði sem er rétt hjá Karlskrona en þar var höfuðvígi sænska flotans hér á árum áður og þess vegna er mikið um eik þar í kring en eikina notuðu Svíar í skipasmíðar.

Ég hef verið með nefið niðri í tölvunni alla vikuna en ég hef verið að fara yfir vistfræðiverkefni og vinna í greinasafninu hans Áskels. Þessi tölvuvinna er alveg botnlaus hít en mér finnst þetta mjög gaman, ég elska að fara yfir vistfræðiverkefnin og svara tölvupóstum nemenda en nú eru auðvitað öll samskipti á netinu. Greinasafnið hefur mig klæjað í puttana að komast í í allan vetur en ég kom með mikið af verkefnum út með mér en hef ekki komsti í þetta sem skyldi vegna tölvuvandræða og anna í skólanum.  Ég er líka að missa mig í þessu pottery tímabili mínu en ég er núna skráð á tvö dagsnámskeið hjá Wallakra og eitt 6 vikna námskeið hjá Folketsuniversitet og ég er að reyna að komast á "Intensive throwing" sem er dags pottery námskeið hjá Folketsunisversity þar sem maður borgar extra fyrir ótakmarkaðan leir og bara hamast og hamast og þarf ekkert að spá í leirinn, ef maður klúðrar þá bara tekur maður næstu klessu.... STUÐ....  Ég hef líka verið að kaupa pottery bækur á Amazon.. Stórhættulegt... Já þetta tímabil hlýtur að líða hjá...

Í gær fórum við Valdi í langan "heilsubótargöngutúr" við förum yfirleitt út í Kirseberggarðinn en ákváðum að taka röltið niður í bæ í staðinn.... Ég gerði mér hins vegar grein fyrir að við höfðum misst stjórn á "heilsubótarpartinum" þegar ég sat á Jensens buffhús og horfði ofan í súkkulaðibúðing... Ummmmmm .....  Röltið var hins vegar næs og mér reiknast til að við höfum þó labbað 8 km en við löbbum yfirleitt 5 km í Kirseberggarðinum...  Það hefur lengi staðið til að prófa Jensens buffhús en ég hafði komið þarna áður með Rakel en Valdi ekki... Þetta var stórfínn matur en staðurinn var pakkaður og biðröð út úr dyrum klukkan sex..

Hér stefnir í rólega helgi með göngutúrum, lærdómi og tölvuvinnu...

(TVÖ STUTT ALBÚM FYLGJA ÞESSARI FÆRSLU)

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband