Trjátúristar

TIL HAMINGJU MEР8 ÁRA AFMÆLIÐ LINDA ÓSK! 

Í dag var fyrsti dagur okkar Guðrúnar sem trjátúristar.  Við fórum og skoðuðum tvö tré úr bókinni "Tré í Malmö" sem að Guðrún gaf mér um daginn.  Þessi bók er alveg frábær en hún segir frá sjaldgæfum og merkilegum trjám í Malmö. Bókin er gefin út af Garðyrkjustjóra Malmöborgar árið 2007 og henni fylgir kort þar sem öll trén eru merkt inn á þannig að auðvelt er að finna þau. Markmiðið hjá mér er að heimsækja öll trén í bókinni áður en við förum aftur heim til Íslands en þetta eru 76 tré víðsvegar um borgina en flest eru þau þó í miðbænum og görðunum þar til dæmis Slottsparken og Pildammsparken svo að einhverjir séu nefndir.   Í dag fórum við í garðinn sem við höfum alltaf kallað Kirseberggarðinn en heitir í raun Beijersparken,  en þar heimsóttum við tré númer 59 sem eru Svartfurur Pinus nigra, eitthvað yfir 100 ára gömul en stærsta tréð er um 20m hátt og með 2m stofnummál. Þarna var líka tré númer 60 sem er Kastaníutré (äkta Kastanj) Castanea sativa, gróðursett um 1880 og er 9m hátt og um 1 m í stofnummál samkvæmt bókinni.  Það er gaman að skoða þessi tré og núna sér maður garðinn í nýju ljósi.

Ég held að vorið sé skollið á hér í Suður Svíþjóð en sólin skein í heiði og hiti var um 10°C, allur gróður er í óða önn að springa út það sést munur með hverjum deginum sem líður. Tilhugalíf fuglanna er öflugt þessa dagana og við rákumst á eitthvað af stokköndunum á víð og dreif um garðinn en þær virðast halda sig frá tjörninni meðan Helsingjarnir ráða þar ríkjum svo sáum við óskaplega sætar og ástfangnar dúfur í keleríi uppi í tré..

Guðrún situr núna sveitt við próflestur en hún er að fara í síðasta prófið sitt á mánudaginn.  Hún verður reyndar ekki aðgerðarlaus því að hún er búinn að skrá sig á keramiknámskeið í Folkets universitet alla þriðjudagsmorgna fram að brottför og byrjar hún þar í næstu viku, námskeiðið er meira að segja kennt á ensku.

Jæja það er best að fara að skoða bókina góðu og finna næsta tré til að heimsækja.  Ég vona að það séu fleiri tré hér nálægt svo að ég geti náð að viðra Guðrúnu og heimsótt fleiri tré eins og í dag.

NÝTT ALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU: TRJÁTÚRISTAR

Vorkveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já dúfurnar eru svo sætar, ég hafði aldrei séð svona fuglapar hjúfra sig að hvoru öðru! það er kannski þess vegna sem talað er um turtildúfur um ástfangið fólk?!

Lilja (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband