Hvar eru endurnar?

Í dag fór Valdi í vettvangsferð til Snogeholm. Þar er tilraunasvæði þar sem verið er að rækta laufskóg á gömlu landbúnaðarlandi. Þarna var plantað 1994 ýmsum tegundum af lauftrjám og nánast eingöngu náttúrulegum. Þetta var samstarfsverkefni milli landslagsarkitekta og skógfræðinga. Tilgangur þessa svæðis er að læra að rækta ýmis lauftré sem ekki er þekking á í Svíþjóð í dag.  Dagurinn var nokkuð áhugaverður, margt að sjá og sólin skein í heiði.. Nemendunum hafði verið skipt upp í hópa og hver hópur vann kynningu á einni tegund og hóparnir kynntu svo sína tegund fyrir samnemendum sínum í skóginum í dag.  Hópurinn hans Valda fékk það hlutverk að kynna blendingsblæösp (Hybrid aspen).

Í ferðinni sáu þau meðal annars magnaðan kurlara að störfum en það má sjá vídeó af honum hér neðar..

Ég er búin að vera að vinna í vistfræðiverkefnum og líka í próflestri síðustu daga. Ég er ekki alveg að nenna að lesa undir þetta próf því þetta er síðasta prófið og hugurinn er eiginlega kominn í annað..

Guðjón Helgi, tölvufræðingur hjá Lbhí, og Hugrún konan hans kíktu í kaffi til okkar í gær en þau ætla að eyða sumrinu í Svíþjóð og nágrenni. Það var mjög gaman að fá gesti og mikið spjallað en ég hafði bakað Baby Ruth köku í tilefni heimsóknarinnar og svo var drukkið nýmalað Gvatemalakaffi með.

Í gær og í dag höfum við rölt um í Kirseberggarðinum en mannlífið þar verður fjölbreyttara með hverjum deginum og yndislegt að fylgjast með öllu springa út. Núna eru það kirsuberjatrén og runnarnir sem eru alveg að fríka út í blóma en stærri trén eru líka að taka við sér en eiga þó nokkuð í land..    Við fórum með brauð til andanna á tjörninni en þá voru þær allar horfnar þessar sem við þekkjum en í staðin var kominn hópur af Helsingjum.. Þær voru sko alveg til í brauðið en hvar eru endurnar mínar.... Woundering

TVÖ ALBÚM FYLGJA ÞESSARI FÆRSLU. Vor í Malmö og Snogeholm...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 294952

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband