7.4.2008 | 08:04
Kallinn kominn heim
Jæjja þá er Valdi loksins kominn "heim" til Svíþjóðar. Æ hvað það er næs að endurheimta hann. Hann náði að kaupa handa mér báðar Arnaldarbækurnar sem mig vantaði á fríhöfninni og líka nýju bókina hennar Yrsu, Aska. Hins vegar er ég búin að setja þessar bækur upp í hillu fram yfir próf.. Það var erfitt en svo verður að vera.. Ég er á kafi í yfirferð á vistfræðiverkefnum og þarf svo að hella mér í próflestur en Tropical Botany prófið er næsta mánudag. Valdi keypti líka hangikétskepp.. ég veit það er jólamatur en við freistuðumst.. Ætli við bjóðum ekki Lilju í mat bráðum og maulum hangikét.. Ég var að spá í að kaupa osta og kex til að hafa rómókvöld í gær en ég sleppti því... svo í staðinn þá skárum við niður lifrarpylsu sem Valdi hafði keypt.. Ummm.. svo gott... þetta mauluðum við yfir sjónvarpinu....
Í gær fór ég á krukkugerðarnámskeið hjá Wallakra krukkugerðinni (www.wallakra.com). Þetta er krukkugerð sem byggir á langri krukkugerðarhefð hér í Svíþjóð (aðallega á skáni) og allt er með svona gömlum og sjarmerandi brag. Åsa Orrmell á þetta en hún keypti krukkugerðina fyrir einhverjum árum og gerði upp gamla brennsluofninn og endurvakti gamlar hefðir. Þetta er svo sjarmerand að það hálfa væri nóg.. Ég er nú búin að koma þarna nokkrum sinnum áður en loksins fór ég inn á verkstæði núna og gerði krukkur.. Þetta var svolítið stressandi þar sem ég hef aldrei reynt þetta áður en þetta gekk mjög vel hjá mér.. Åsa var alveg gáttuð á hvað krukkurnar mínar voru fínar.. en ég held það hafi bara verið byrjendaheppni. Við fórum svo í kaffi á Krána sem er þarna en það er uppgert gamalt hús með gati í gólfinu með gleri yfir til að horfa niður í ána.. Vá ekkert smá flott.. Að lokum fengum við að velja okkur eina krukku sem við gerðum til að láta brenna í þessum gamla Wallakra stíl sem er að þetta er brennt í stórum ofni með kolum og þegar hitinn er kominn í 1300 gráður þá er dælt salti á kolin og þá myndast einhverskonar saltglerjungur. Mér finnst alveg rosalega gaman eiga mína eigin Wallakra skál.. Vona reyndar að ég fái hana til baka því ég er náttúrulega að fara úr landi..
Valdi er farinn í skólann núna enda er hans skóli byrjaður á fullu núna, síðasta törnin fram til 31. maí. Svo ætlum við bara að versla í matinn og það er þvottadagur í kvöld... mikið verður næs að komast á Álfhólinn í sína eigin þvottavél og þurrkara og geta þvegið þegar maður vill og þurfa ekki að fara í næsta bæjarfélag með þvottinn.. ok ég ýki.. ég þarf að fara yfir götuna og í þarnæstu blokk.. en það ansi langt þegar maður býr á þriðju hæð með engri lyftu...
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294952
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nauj nauj, jólin hafa bara komið með í ferðatöskuna... ég hlakka til, enda finnst mér eins og páskarnir hafi farið framhjá mér :)
Lilja (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 14:07
Hæ hæ, gott að þú hafir endurheimt karlinn. En ég skil þessi þvottahúsvandræði á þér, það var rosalega gott að vera komin heim í sitt og þurfa ekki að fara út til að setja í vél. Ég þurfti einmitt að fara niður af annarri hæð og í þarnæstu blokk. Annars skrapp Tryggvi á Álfhólinn í gær og sótti grillið okkar, við höfðum nú bara hugsað okkur að bíða eftir að þið kæmuð og sækja það þá, en Ragnar var svo indæll að kippa því upp svo Tryggvi þurfti bara að koma við og sækja það! Það verður samt notalegt að fá ykkur hingað, hlakka mikið til.
Kveðja
Berglind (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 09:58
Hæ hæ
Hlökkum til að sjá Wallakra krukkuna þína á Álfhól í sumar!
Knús frá Utrecht
Þóra og Örvar
Þóra og Jón Örvar (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.