3.4.2008 | 16:44
Tilhugalíf dúfna..
Á þessu heimili hefur bara verið tölvuvinna í tvo daga.. Frá litlu að segja.. Ég er að ljúka yfirferð á síðustu vistfræðiverkefnunum og ég er líka að stússast í Greinasafninu svona til hliðar..
Ég fór í labbitúr út í Kirseberggarðinn áðan.. Það er vor í lofti og mikið af fólki í garðinum með allskonar hunda og bara fólk í göngutúr eða að trimma.. Ég hélt ég myndi springa úr hlátri þegar ég sá einn hundinn detta út af bryggjunni og út í tjörnina og eigandinn varð að hysja hann upp... Endurnar kipptu sér nú ekki upp við þetta busl... Ég rétt slapp við fuglaskít af himnum ofan en fuglarnir eru í gríðarlegu tilhugalífi þessa dagana og eru í hreiðurgerð á fullu.. Ég fylgdist með dúfum í tilhugalífinu sem ég held að hafi aðallega samanstaðið af ofbeldisfullum derringi karlfuglsins en kvennfuglinn reyndi að hörfa en hann hélt áfram að hoppa og hoppa og rjúka í hana... Undarlegir tilburðir.. Valdi næði litlum árangri við mig með svona hegðun..... Þetta minnti mig á ógleymanlegt atvik við Stakhólstjörn við Mývatn þegar himbriminn úr hólnum synti til mín og dansaði fyrir mig mökunardans í 2ja metra fjarlægð, vel og lengi og söng til mín.. Það var dásamlegt... Ég get svarið það að hann var ekki bara að daðra við mig hann var yfir sig ástfanginn af mér..... Ég var alveg dáleidd yfir þessu atferli svona nálægt "eye to eye"... Þegar ég gekk svo restina af hringnum til baka þá mætti ég heldur fúlum hópi Japana með langar linsur... Æi... þeir voru að mynda himbrimann og hafa líklega bara náði skotum þar sem ég stóð eins og asni gapandi fyrir aftan fuglinn... hí hí.. Greyin...
Kanínurnar skoppuðu um túnin í garðinum en íkornarnir láta ekki enn sjá sig...
Á morgun ætla ég til Köben að hitta Dýrleifu, Hlyn og kannski Sigga Frigg.. Ég ætla aðallega bara að hangsa og hugsanlega kaupa mér víðsjá en það hefur staðið til lengi.. Ég þarf hins vegar að fara að muna það að ég er að fara í próf 14. apríl og verð víst að læra eitthvað fyrir það.. Ég á líka að semja fyrirlestur um Litunarplönturnar sem ég skrifaði ritgerðina um frá Gvatemala.. Ég er bara einhvern vegin búin í huganum... Það er alveg komið vor í mig og heimferðarhugur...
Valdi er kominn á Skógræktar fagráðstefnuna á Hvolsvelli.. Örugglega gaman hjá honum enda þekkir hann fullt af liði þarna.. Hann er í herbergi með Benna og svo er Gísli þarna úr Skorradalnum svo hann er örugglega í fínum gír..
Jæjja best að klára vistfræðina
Vorkveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Guðrún. Ohh það er alltaf svo gaman að lesa sögurnar þínar. Gæti vel trúað að ef ég kem einhvern daginn í Kirseberggarðinn að þá muni mér finnast ég hafa komið þangað áður því þú segir svo vel frá öllu þar.
Ákvað að skoða hvort þú værir ekki með einhverja skemmtilega sögu sem ég gæti lesið fyrir soninn sem liggur hér í ömurlegu skapi við hlið mér, og jú ég las þessa sögu um atferlishegðun dýra og manna og það kættist heldur lund hans.
Við Daníel vorum að spá í að hafa samband við ykkur skötuhjú varðandi eitt - varðandi sumarið- nú geri ég þig forvitna. En ætli þú fáir ekki bara tölvupóst um það á næstunni.
Ragnhildur Sævarsdóttir (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.