Frábær helgi

Þessa helgi var ég í Melby með Laver og mosser hópnum að skoða fléttur, skófir og mosa.  Ég var nú ekkert alveg að nenna að fara heila helgi með bekknum í burtu en auðvitað var þetta skylda. Við vorum meira og minna úti með nefið niðri í jörðinni og svo inni að greina það sem við fundum. Á laugardagskvöldinu þá flutti ég lokaverkefnið mitt um fléttur og skófir til litunar og vakti sá fyrirlestur mikla lukku enda bauð ég upp á fjallagrasasnaps með.. Fyrirlesturinn minn var eiginlega settur upp sem skemmtiatriði á kvöldvökunni... Ég hafði hann því meira svona á léttu nótunum heldur en ef ég hefði flutt þetta í tíma..Stemningin var auðvitað talsvert léttari en við flutning lokaverkefnis í tíma og ég var með rauðvínsglas mér við hönd í gegnum allan fyrirlesturinn sem tók um klukkustund með flutningi og umræðum....  Það er því þungu fargi af mér létt núna en restin af bekknum á að flytja sitt lokaverkefni á morgun en ég get bara fylgst með..

Aðstaðan var ágæt þar sem við vorum en það var enginn hiti á herberginu mínu svo það var ansi kalt og ég svaf nánast í öllum fötunum en þar sem ég var svo heppin að vera ein í herbergi þá ákvað ég að þrauka. Ég vann allan tíman með sömu stelpunum en við vorum settar saman í hóp. Ég hef greinilega verið heppin með hóp því þær eru einstaklega almennilegar báðar og skemmtilegar en ég held við höfum hlegið nánast stanslaust alla hlegina í fíflaskap. Önnur hefur óskaplegan áhuga á Cladonia fléttum og hrópaði upp yfir sig við hvert tækifæri "Cladonia heaven".... Hún var alveg að missa sig þarna á svæðinu því hún sá svo margar nýjar tegundir.. Við hinar nutum góðs af því hún var iðin við að sýna okkur hvernig greina ætti í stundur tegundirnar..

Valdi er enn á Íslandi og er núna kominn í Árbæinn. Hann sótti börnin þessa helgina og var með þau frá laugardegi fram á sunnudagskvöld. Linda fór í leikhús með Sigríði og barnabarninu hennar að sjá Gosa minnir mig og svo var bara farið í labbitúra og næsheit.  Á sunnudagskvöldinu þá komu Steinunn og Halla í mat en eftir það var börnunum skutlað austur fyrir fjall.

Nú er kominn sumartími í Evrópu og þá er tveggja tíma munur á Íslandi og í Svíþjóð og við erum á undan. Mér fannst vera heldur svindlað á okkur á sunnudagsmorgninum þegar við vorum ræst klukkan 8 en klukkan var í raun 7!!!!!

NÝTT ALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU

Bestu kveðjur frá Svíþjóð

Guðrún Bjarnadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með að vera búinn með fyrilesturinn. 

Talandi um tímamismun, að þeir nenni að standa í þessu veseni

Hvenær áttu von á Valda heim til þín? 

kv

HB 

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband